Morgunblaðið - 15.07.2000, Page 12

Morgunblaðið - 15.07.2000, Page 12
12 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Ami Sæberg Malbikið slegið Laugardalur ÞAÐ er ekki alltaf nóg að slá grasið og láta þar við sitja. Ef gangstétt eða vegur er við hlið grasblettsins sem sleg- inn er getur þurft að huga að grasinu sem þeyst hefur úr sláttuvélinni og upp á mal- bikið. Maðurinn, sem varð á vegi ljósmyndara í Fjölskyldu- garðinum í Laugardal, hefur fundið ráð til að koma gras- inu af malbikinu og aftur út á tún. Hann stillir sláttuvél sína þannig að hún blæs grasinu burt um leið og hann ýtir henni eftir stéttinni. Félagsstarf aldraðra í ljósi breyttrar hugmyndafræði MEÐ breyttum áherslum og viðhorfum hefur félagsstarf aldraðra í Kópavogi tekið miklum breytingum síðastlið- in ár. Aðstaða til slíks starfs er góð í bænum, þar eru tvö félagsheimili sem aldraðir hafa aðgang að, en það sem gert hefur gæfumuninn er að nú er litið með allt öðrum hætti á inntak og tilgang fé- lagsstarfsins. Hugmynda- fræðin sem liggur að baki starfi sem þessu skiptir öllu máli, segir Aðalsteinn Sigfús- son, félagsmálastjóri Kópa- vogs. I Kópavogi er lögð áhersla á að vinna með eldri borgur- um, að styðja þá og hvetja til eigin frumkvæðis og fram- kvæmda. Öldrun hluti ákveðins ferlis „Félagsstarf byggist á því að ýta undir frumkvæði aldr- aðra, auka virkni aldraðra og hvetja til þátttöku í samfélag- inu“, segir Aðalsteinn. Viðhorfsbreytinga gagn- vart öldruðum er þörf. I starf- inu i Kópavogi er unnið mark- visst að því að koma í veg fyrir þá stöðluðu umfjöllun sem gjarnan er neikvæð og fylgir félagsmálum aldraðra. Lögð er áhersla á að það sé eðlilegur hluti af lífinu að eld- ast, að sögn Aðalsteins. Það sé virðingarvert að vera aldr- aður. Þjóðfélagið taki jafnt tillit til allra óháð aldri. Oldr- un sé náttúrulegur hluti ákveðins ferlis. Þó fylgikvillar komi fram við öldrun séu jafnframt ýmsir jákvæðir þættir sem fylgja efri árunum sem gjaman gleymast í um- ræðunni. Aðalsteinn segir það einnig forréttindi að eldast. Ekki Aðalsteinn með bæinn í baksýn. gefist öllum þess kostur. Gjarnan var litið á félags- starfið sem þjónustu fyrir eldri borgara, algerlega kost- aða af bæjarfélaginu. Hugs- unin að baki var sú að hafa þyrfti ofan af fyrir fólkinu, segir Aðalsteinn. Allt önnur sjónarmið hafa nú rutt sér til rúms og hefur Kópavogur haft þar frumkvæði. Á síðari árum hefur félags- Morgunblaðið/Halldór Kolbeins starfið tekið nokkrum stakka- skiptum undir áhrifum breyttrar hugmyndafræði. Hugmyndafræðin felst eink- um í því, að sögn Aðalsteins, að starfsfólkið vinnur ekki lengur fyrir þá sem sækja fé- lagsstarfið heldur með þeim. Frumkvæði fólksins eykst því stöðugt og sér það um skipu- lag starfseminnar að mestu leyti. Kópavogur Öldruðum eru því ekki skapaðar aðstæður og settar skorður í því umhverfi sem þeir eiga að vera í heldur eru þeir sjálfir ábyrgir fjrir starf- inu og skapa sér sjálfir það umhverfi sem þeir vilja, segir Aðalsteinn. Aldraðir eru því veitendur en ekki þiggjendur. Félagsstarf aldraðra sjálfstæð rekstrareining Aðalsteinn segir nauðsyn- legt að líta á þjóðfélagið sem einn hóp þar sem einstakling- arnir eru á mismunandi aldri, með misjafna reynslu og mis- jafnir að þroska. Með þessu sé reynt að skapa öllum virð- ingu í samfélaginu og viðhlít- andi tillitssemi. Tekið var að beina sjónum að hugmyndafræði félags- starfs aldraðra í auknum mæli árið 1994. Með nýjum tímum og nýju fólki koma ný viðhorf, segir Aðalsteinn. Árið 1999 var félagsstarf aldraðra gert að sjálfstæðri rekstrareiningu innan Fé- lagsþjónustu Kópavogs. Ekki var lengur litið á það í jafnrík- um mæli sem aðstoð við eldri borgara heldur sem sjálfsagð- an kost eldra fólks til frí- stunda, skemmtunar og ann- arrar iðkunar sem fólk velur sér. Félagsstarfið þótti ekki lengur fara saman með lög- bundinni öldrunarþjónustu er varðar heimilisþjónustu, vist- unarmál, ráðgjöf, húsnæðis- mál og fjárhagsaðstoð, að sögn Aðalsteins. Með þessu var stigið fýrsta skrefið í þá átt að gera félagsstarfið að sjálfstæðri laustengdri ein- ingu við Félagsmálastofnun sem stýrt yrði einungis af eldri borgurum sjálfum. Knatt- spyrna í sólinni ÍBÚAR höfuðborgarsvæðis- ins nutu sólar og blíðu í gær og mátti víða sjá unga sem aldna dunda sér í görðum sínum, leika sér og baða sig í sólinni. Þessir ungu menn léku knattspyrnu í Mosfellsbæn- um í gær og sýndu af- bragðs takta þegar ljós- myndari átti leið hjá. Harmonikkuleikur í Bankastræti Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Framkvæmdir á V íkingss væðinu UNNENDUR harmonikku- tónlistar sem áttu leið um Bankastrætið eftir hádegi í gær, fengu sannarlega tilefni til að gleðjast því þar léku harmonikkuleikarar tónlist af fingrum fram fyrir vegfarend- ur. Harmonikkuleikarar þessir eru þátttakendur í alþjóðlegri harmonikkuhátíð Reykjavíkur sem haldin er nú um helgina í samvinnu við Reykjavík - menningarborg Evrópu. I gær var einnig leikin harmonikkutónlist í Fjöl- skyldugarðinum í Laugardal, auk þess sem opnunartónleik- ar voru haldnir í Grafarvogs- kirkju í gærkvöldi sem og tón- leikar í Norræna húsinu. Harmonikkuleikarar gera víðreist Þátttakendur í harmon- ikkuhátíðinni gera víðreist um höfuðborgarsvæðið um helg- ina. Dagskráin í dag hefst klukkan tíu að Reynisvatni þar sem sett verður fjölskylduhá- tíð sem stendur til klukkan 16. Milli 13 og 15 verður leikinn harmonikkutónlist í Laugar- dalnum og í kvöld verða haldn- ir stórtónleikar og dansleikur á Broadway. Á morgun verður sérstök harmonikkudagskrá í Árbæj- arsafni milli klukkan 13 og 16 og lýkur hátíðinni á Kringlu- kránni annað kvöld þar sem bæði innlendir og erlendir harmonikkuleikai’ar leika. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Víkingur og verktakafyrir- tækið Völur hf. undirrituðu 30. júní síðastliðinn verk- samning um jarðvinnu- og yfirborðsfrágang á æfinga- og keppnisvöllum Víkings á fé- lagssvæðinu við Stjörnugróf í Fossvogi. Breyta malarvelli í grasvöll Samkvæmt samningnum mun Völur hf. sjá um að breyta núverandi malarvelli í grasvöll sem áætlað er að verði aðalkeppnisvöllur Vík- ings. Einnig mun Völur taka að sér jarðvegsskipti á viðbót- arsvæði Kópavogsmegin við bæjarmörk Reykjavíkur og Kópavogs og gerð tveggja grasæfingavalla á þessu nýja svæði. Einnig sjá þeir um gerð malarvallar við Traðarland. Verkinu á að ljúka fyrir 1. nóvember 2000. Eiríkur Einarsson Á myndinni má sjá f.v. við borðið Þór Símon Ragnarsson, formann Víkings og Halldór Ing- ólfsson, framkvæmdastjóra Valar. Sækir um leyfi fyrir skemmtigarði Kópavogur HJÁ sýslumanninum í Kópa- vogi hefur verið lögð inn um- sókn um leyfi til að opna skemmtigarð þar sem fram færi leikur með svokölluðum Iitmerkibyssum. Leikur þessi kallast á ensku „Paint ball“ og er nokkuð þekktur og vinsæll víða erlendis. Leikurinn fer yfirleitt fram utan dyra í landslagi þar sem auðvelt er að fela sig. Tilgangur hans er elta uppi og skjóta and- stæðingana með sérútbúnum byssum sem skjóta málning- arklessum í margs konar lit- um. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu sýslumannsins í Kópavogi bíður umsóknin afgreiðslu þar til umsækj- andi hefur aflað frekari gagna, en búist er við að ljóst verði á næstu vikum hvort leyfið verður veitt. Fossvogur Miðbær Mosfellsbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.