Morgunblaðið - 15.07.2000, Side 30
30 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 31
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BROTTKAST AFLA
Á ÍSLANDSMIÐUM
FULLYRÐINGAR Sjómanna,
skipstjórnarmanna og ýmissa
fleiri um brottkast afla á ís-
lenzkum fiskiskipum hafa valdið tals-
verðu uppnámi í þjóðfélaginu að und-
anförnu. Flestum svíður sú sóun, sem
brottkast á fiski er í raun, en hins veg-
ar hefur verið illmögulegt að fá hald-
bærar upplýsingar um umfang brottk-
astsins. Fram hafa komið
nafngreindir einstaklingar, sem hafa
fullyrt, að brottkast afla sé í miklu
stærri stíl en talið hefur verið til
þessa. Jafnvel sé öllum þorski undir
60-70 sentimetrum hent fyrir borð,
þar sem ekki borgi sig að koma með
hann að landi, sérstaklega þar sem
leiguverð fyrir kvóta sé svo hátt, að
tap sé á smærri fiskinum.
Arni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra hefur skipað sérstaka nefnd til
að kanna brottkast afla á Islandsmið-
um, svo og hefur ráðherrann tilkynnt
aðgerðir til aukins eftirlits um borð í
fiskiskipum. Fjöldi eftirlitsmanna
verður tvöfaldaður og í athugun er að
koma upp eftirlitsmyndavélum um
borð í fiskiskipum til að fylgjast með.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, dregur mjög
í efa, að brottkast afla sé jafn um-
fangsmikið og fullyrðingar hafa
heyrzt um, eða 60-100 þúsund tonn af
þorski árlega. I viðtali við Morgun-
blaðið sagði hann m.a.: „Umræðan um
brottkast hefur gosið upp af og til á
undanförnum 20 árum. Eðli málsins
samkvæmt eru rannsóknir á brotum
af þessu tagi mjög erfiðar viðfangs, en
samkvæmt lauslegum athugunum
okkar á undanförnum árum á þessu
bendir fátt til, að brottkastið sé af
þessari stærðargráðu. Þó gert sé ráð
fyrir, að öllum þorski 70 sentimetrar
að lengd eða styttri sé hent er hæpið,
að magnið geti verið svo mikið miðað
við eðlilega sókn og samkvæmt stofn-
mati okkar. Og auðvitað er sem betur
fer svo, að langt er því frá að verið sé
að henda öllum fiski undir 70 senti-
metrum. Eldri kannanir á brottkasti,
þótt ófullkomnar séu, benda einnig til
miklu minna magns en þarna er rætt
um.“ Óhjákvæmilegt er að taka fullt
mark á þessum ummælum forstjóra
Hafrannsóknastofnunar. Allar okkar
aðgerðir við að byggja upp fiskistofn-
ana við landið eiga rætur í rannsókn-
um og athugunum starfsmanna stofn-
unarinnar. Farið er í megindráttum að
tillögum Hafrannsóknastofnunar við
ákvörðun heildarafla vegna þess, að
stjórnvöld og landsmenn treysta því
að þær séu byggðar á beztu vísinda-
legu upplýsingum sem fáanlegar eru
urn stærð og stöðu fiskistofna.
Ástæður mikillar umræðu að und-
anförnu um brottkast afla má rekja til
þess, að um miðan júnímánuð var
skýrt frá niðurstöðum í athugun
Fiskistofu á aflasamsetningu fiski-
skipa, sem gerð var í samvinnu við
Landhelgisgæzlu og að ábendingum
fiskieftirlitsmanna. Athugunin þótti
eindregið benda til mikils brottkasts,
því skipin, sem athuguð voru, lönduðu
nær eingöngu 5 kg fiski. Þegar eftir-
litsmaður var hins vegar um borð við
veiðarnar var aflasamsetningin mun
fjöjbreyttari og fleiri stærðir af fiski.
í forustugrein Morgunblaðsins í
kjölfar fyrrgreindrar athugunar
Fiskistofu sagði m.a.: „Landsmenn
hafa mikla hagsmuni af því, að um-
gengnin um auðlindina verði með þeim
hætti, að hægt verði að byggja fiski-
stofnana upp. En engir eiga meiri
hagsmuna að gæta en útgerðarmenn
og sjómenn, sem hafa lífsviðurværi
sitt beint af fiskveiðum. Það er ótrúleg
skammsýni í því fólgin að kasta fiski á
þann veg, sem telja verður augljóst að
umræddir bátar hafi gert. Þeir, sem
það gera, sýna af sér sóðaskap í um-
gengni um þessi miklu þjóðarverð-
mæti, skeytingarleysi gagnvart lang-
tímahagsmunum þeirra sjálfra og
annarra sjómanna og útgerðarmanna
og hirða bersýnilega ekkert um þjóð-
arhag.“ Þessi ummæli eiga að sjálf-
sögðu við enn, hvort sem umfang
brottkasts er minna en fullyrt er í um-
ræðunni nú eða nær því, sem forstjóri
Hafrannsóknastofnunar telur. Stjórn-
völdum ber að gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir brottkast afla og at-
huga þarf allar færar leiðir til þess.
Ástæða er m.a. til þess að kanna, hvort
breytingar á núverandi aflaheimildar-
kerfi séu nauðsynlegar til að koma í
veg fyrir þá ósvinnu, sem brottkast á
veiddum fiski hlýtur að teljast.
KLÚÐUR í STJÓRNSÝSLU
ÞAÐ ORÐ hefur lengi legið á, að ís-
lendingar svari ekki bréfum eða
þá seint og illa. Slíkar umkvartanir
hafa heyrzt æ sjaldnar nú á dögum
tölvupósts og rafrænna fjarskipta. Nú
er frekar kvartað yfir því í evrópsku
samstarfi, að íslenzk stjórnvöld upp-
fylji ekki þær skyldur, sem þau hafa
tekizt á herðar.
Fyrir helgina var skýrt frá því, að
Eftirlitsstofnun EFTA hefði ákveðið
að hefja rannsókn á byggðastyrkjum á
Islandi. Ástæðan sé sú, að allir
byggðastyrkir, sem veittir hafi verið
frá síðustu áramótum, séu ólöglegir.
Þetta byggir Eftirlitsstofnun EFTA á
því, að íslenzk stjórnvöld hafi skuld-
bundið sig til að leggja fram kort yfir
þá landshluta, sem eigi kost á byggða-
styrkjum, fyrir 1. maí 1999. Það hafi
ekki verið gert og því er farið fram á,
að fleiri byggðastyrkir verði ekki
veittir í bili og nauðsynlegum upplýs-
ingum skilað innan 20 vinnudaga.
Stofnunin minnir íslenzk stjórnvöld á,
að hún geti afturkallað alla styrki, sem
veittir hafi verið í blóra við reglur um
byggðastyrki. Verði styrkveitingum
haldið áfram geti stofnunin vísað mál-
inu til EFTA-dómstólsins.
Hér er augljóslega um klúður að
ræða í stjórnsýslunni, því vel á annað
ár er liðið frá því skila átti umræddu
byggðakorti. Slík vinnubrögð eru ekki
viðeigandi, hvorki í erlendum sam-
skiptum né á innlendum vettvangi.
Auðveldara hefði verið að senda Eftir-
litsstofnuninni umrætt kort á réttum
tíma fremur en að eyða tíma og fyrir-
höfn í að svara umkvörtunum og kær-
um. Vonandi lærir stjórnsýslan sína
lexíu af þessu klúðri.
Lög og reglur um aðskilnað einstakra starfssviða fyrirtækja í verðbréfaþjónustu
Mismun-
andi út-
færslur eft-
ir löndum
Vangaveltur hafa verið uppi um hvort
ráðgjöf íslenskra fyrirtækja í verðbréfa-
þjónustu um fjárfestingar geti verið
litaðar af eigin hagsmunum. Jón
Sigurðsson og Sigrún Davíðsdóttir
kynntu sér hvernig reynt er að tryggja
aðskilnað einstakra starfssviða í slíkum
fyrirtækjum hérlendis, í Danmörku,
Bretlandi og Þýskalandi.
LÍKT og verðbréfafyrirtæki annars staðar í heiminum sinna
íslensk verðbréfafyrirtæki margvíslegri þjónustu. Meðal
þjónustuþátta eru eignastýring, móttaka og miðlun við-
skiptafyrirmæla, gerð útboðs- og skráningalýsinga, við-
skipti með verðbréf fyrir eigin reikning og ráðgjöf og greining. Þeg-
ar öll þessi störf fara fram innan veggja sama fyrirtækis er fyrir
hendi sé hætta á hagsmunaárekstrum.
Hugtakið Kínamúrar (e. Chinese walls) er vel þekkt á verðbréfa-
mörkuðum í hinum vestræna heimi. Það gengur út á að tryggja
skýran aðskilnað einstakra starfssviða innan fyrirtækja í verðbréfa-
þjónustu. Með þessum ráðstöfunum eiga fyrirtækin að forðast hvers
kyns hagsmunaárekstra eða misnotkun trúnaðarupplýsinga sem
kunna að koma upp milli þeirrar deildar er annast markaðsviðskipti
með verðbréf og annarra starfssviða.
Hvert starfssvið
skal vera sjálfstætt
Um slíka múra er mælt fyrir um í 15. gr. íslensku verðbréfavið-
skiptalaganna. Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu skulu sýna fram á að
fyllstu óhlutdrægni sé gætt gagnvart viðskiptamönnum sínum og að
þeir njóti fyllsta jafnræðis. Með skýrum aðskilnaði eiga fyrirtækin
að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. í athugasemdum við þessa
frumvarpsgrein segir að hvert starfssvið skuli vera sjálfstætt í störf-
um sínum og traustir veggir skilja þau að.
Samkvæmt áðurnefndri 15. gr. er það í höndum Fjármálaeftirlits-
ins að staðfesta reglur fyrirtækja í verðbréfaþjónustu sem miða að
aðskilnaðinum. í þeim reglum skal gera sérstaka gi’ein fyrir hvernig
háttað er eftirliti innan fyrirtækisins með því að þeim sé fylgt. I
greinargerð kemur ennfremur fram í greinargerð að mikilvægt sé að
eftirlitið sé með þeim hætti að það tryggi aðskilnað. Það megi til
dæmis gera með auknum verkefnum innri endurskoðanda eða með
sjálfstæðum siðastjóra (e. complianee officer).
Morgunblaðið/Áslaug
Hugtakið Kínamúrar (e. Chinese walls) er vel þekkt á verðbréfa-
mörkuðum í hinum vestræna heimi. Með því er átt við að skýr að-
skilnaður einstakra starfssviða innan fyrirtækja í verðbréfaþjón-
ustu sé tryggður.
BRETLAND
Heildstæðar og
strangar reglur
IÞýskalandi gilda heildstæðar og
strangar reglur um Kínamúra,
líkt og í Bandaríkjunum. Fram-
kvæmd þeirra og eftirlit virðist
mun strangara en í Danmörku og
Bretlandi.
Samkvæmt þýsku reglunum á
sú deild innan verðbréfafyrirtækja
sem annast verðbréfaviðskipti að
vera algjörlega aðskilin frá öðrum
starfssviðum, jafnt hvað varðar
ytra skipulag, aðgang að upplýs-
ingum og mannahald. Tölvukerfi á
til dæmis að vera aðskilið og einnig
öll stjórnun.
Reglumar kveða ekki nákvæm-
lega á um hvemig þetta skuli út-
fært í smáatriðum, aðeins að þessi
aðskilnaður eigi að vera fyrir hendi
og enginn samgangur megi vera
milli þeirrar deildar, sem annast
hlutabréfaviðskipti og svo annarra
deilda, eins og greiningadeildar.
Verðbréfafyrirtækin verða allt-
af að geta sýnt fram á ofangreind-
an aðskilnað.
Einnig gilda nákvæmar reglur
um að alltaf eigi að vera hægt að
rekja nákvæmlega hver vissi hvað
á hvaða tíma hvað hafi verið gert,
hvenær og af hveijum. Allt kapp
er því lagt á að tryggja fullkomið
gagnsæi í öllum viðskiptaháttum
og gera nákvæma rakningu við-
skiptaferlisins mögulega. Almennt
gildir að það verða að vera fagleg
rök fyrir því hver viti hvað. Enginn
kemur nálægt einstökum viðskipt-
um nema hann hafi til þess fagleg-
ar forsendur.
Ef umfang starfsemi þýsks
verðbréfafyrirtækis er of lítið til að
unnt sé að deildaskipta því verður
samt sem áður að taka tillit til áð-
urnefnds aðskilnaðar. Það verður
þá að gera með því að skilgreina á
nákvæman hátt hver annist verð-
bréfamiðlun innan fyrirtækisms
og er þeim aðila ætlað að halda öll-
um upplýsingum fyrir sig. Smæð
fyrirtækja er því engin afsökun
fyrir að slaka á aðhaldi.
Aðhaldið liggur í
trúverðugleikanum
Nákvæm lagaákvæði og reglur
um Kínamúra er ekki held-
ur að finna í Bretlandi. Líkt og í
Danmörku eru menn þeirrar
skoðunar að aðhaldið liggi í trú-
verðugleika verðbréfafyrirtækj-
anna. Að það skipti öllu fyrir þau
að hafa gott orðspor.
Mismunandi reglur eru í gildi
innan fyrirtækjanna sjálfra sem
eiga að fyrirbyggja hagsmunaá-
rekstra og misnotkun aðstöðu,
sem og að tryggja aðskilnað ein-
stakra starfssviða. Þessar reglur
eru fremur almenns eðlis, án ná-
kvæmra fyrirmæla, en reynslan
af þeim hefur verið góð og fyrir-
tækin kappkosta að eftir þeim sé
farið, enda trúverðugleiki þeirra
í húfi. Lögð er mikil áhersla á
það á breska fjármagnsmarkað-
inum að fyrirbyggja hvers kyns
hagsmunaárekstra.
Hjá breska fjármálaeftirlitinu
fengust þær upplýsingar að ekki
hefði þar reynt á mál vegna
hagsmunaárekstra innan fyrir-
tækja í verðbréfaþjónustu.
Sérfræðingur á breska verð-
bréfamarkaðinum tók fram í
samtali við Morgunblaðið að við-
skiptaumhverfið á breska fjár-
málamarkaðinum væri mjög al-
þjóðlegt og því hefðu
bandarískar reglur töluverð
áhrif þar. Margir bandarískir
bankar væru með útibú í Bret-
landi og þeir kepptust allir við
að uppfylla væntingar banda-
rískra viðskiptavina sinna, til
dæmis með því að fylgja eftir
nákvæmum reglum á heima-
markaðinum, meðal annars til
þess að draga úr hættu á að fá á
sig málsókn. Þessi afstaða
bandarísku bankanna hefur
einnig áhrif á breska banka og
aðra aðila á fjármálamarkaðin-
um. Því má ætla að bresk yfir-
völd muni með tímanum herða á
reglunum um skýran aðskilnað
starfssviða.
Engar
mótaðar
reglur
I* Danmörku gilda engin sérstök
lagaákvæði eða opinberar
reglur um aðskilnað starfssviða
fyrirtælqa í verðbréfaþjónustu,
heldur lúta ýmis laga- og reglu-
gerðaákvæði að þessum atriðum.
Innan fyrirtækjanna sjálfra gilda
að sögn ekki neinar samræmdar
reglur um aðskilnað greiningar-
deilda og þeirrar deildar sem ann-
ast markaðsviðskipti. Innan við-
urkenndra fyrirtækja á þessu
sviði er þó vandlega gætt að að-
skilnaður sé virtur og þá ekki ein-
vörðungu á þessum tveimur svið-
um. Raunverulegir veggir og
læstar dyr eru þó ekki sú leið sem
farin hefur verið í Danmörku til að
tryggja aðskilnaðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
danska fjármálaeftirlitinu eru
Kínamúrar eitt af því sem stofn-
unin hefur góðar gætur á. Fjár-
málaeftirlitið miðar þó við að eftir-
litið eigi fyrst og fremst að vera í
höndum sjálfra fyrirtækjanna í
verðbréfaþjónustu og innri endur-
skoðenda þeirra. Útfærslan eigi
að vera í þeirra höndum.
En hvað styður þær skoðanir að
eftirlitið skuli falið fyrirtækjunum
sjálfum? Fyrst og fremst gríðar-
legir hagsmunir fyrirtækjanna
gagnvart viðskiptavinum sínum
að ráð þeirra um fjárfestingar-
kosti þyki trúverðug og örugg.
Öllu máli skipti að grunur leiki
aldrei á um að verðbréfafyrirtæki
sé að ráðleggja viðskiptavinum
kaup sem það sjálft geti á ein-
hvern hátt haft hag af. Danir virð-
ast Kta svo á að það sé trúverðug-
leiki fyrirtækjanna sjálfra sem sé
í hættu sé ekki rétt farið að, frek-
ar en að það sé í verkahring yfir-
valda að móta reglur um aðskilnað
starfssviða.
Raddir þessa efnis hafa oft
heyrst á íslandi á undanförnum
misserum, en þó hefur löggjafan-
um þótt tilefni til að setja skýrar
reglur á þessu sviði. Getur ástæð-
an verið sú að ekki sé unnt að
treysta íslenska markaðinum til
að virða óskráðar grundvallar-
reglur?
Engin mál komið upp hjá
danska fjármálaeftirlitinu
Viðmælandi Morgunblaðsins í
Danmörku tók fram að eftir því
sem verðbréfamarkaðir væru
smærri, þeim mun líklegra væri
að greiningardeildir verðbréfafyr-
irtækja ráðlegðu kaup á sömu
hlutabréfum og markaðsvið-
skiptadeildir ættu viðskipti með.
Ekki sökum eigin hagsmuna, ef
einhverjir væru, heldur einfald-
lega af því að fyrirtækin gætu af
eðlilegum ástæðum verið að fjár-
festa í þeim fáu bréfum sem þættu
góður fjárfestingarkostur á litlum
markaði. Við þessar aðstæður
væri erfitt að komast hjá því að
verðbréfafyrirtækið sæi sér hag í
þessum sömu fáu fjárfestingar-
kostum og greiningardeildin
kæmi auga á. Hins vegar væri af-
ar mikilvægt fyrir viðkomandi
fyrirtæki að aldrei vaknaði grunur
um að samráð væri haft milli
deildanna tveggja eða að ráðlegg-
ingar og greiningar mörkuðust af
eigin hagsmunum.
Hvað aðrar tegundir hags-
munaárekstra áhrærir þá era til
reglur í Danmörku, líkt og víðast
hvar annars staðar, sem er ætlað
að koma í veg fyrir að verðbréfa-
fyrirtæki eða starfsmenn þeirra
eigi viðskipti fyrir eigin reikning
sem ganga fyrir viðskiptafyrir-
mælum viðskiptavina (e. front
ranning).
Engin mál hafa komið upp hjá
danska fjármálaeftirlitinu sem
tengjast aðskilnaði starfssviða
fyrirtækja í verðbréfaþjónustu.
agbókarblöð
SPANN
«»•«•»*«»*«»*«*•*«»*«»*«»*«•»«>«»*«»•«•»««»*«**«••«•»*
•*«»•«•»*•»*«»*«»
Spánverjar tala helzt ekkert annab en spœnsku
og rœkta arfleifö sína med einstökum hœtti
4. maí,
fimmiiidagur
Komum til Granada í gær eftir 2ja
tíma ökuferð frá Cordóba. Allt landið
þrælræktað, mest plantað trjám.
Gistum á einu sérstæðasta hóteli
sem við höfum kynnzt, Alhambra
Palace Hotel. Það er skammt frá Al-
hambra-höllinni sem máramir reistu
á sínum tíma, en Karl V bætti við á
16. öld. Alhambra merkir hið rauð-
steinótta hús. Samt sýnist mér höllin
fremur rauðbrún en rauðleit, en að
innan eru móttökusalur soldánsins,
svefnherbergi hans, svefnherbergi
aðalkonunnar, einstæðar gersemar.
Einnig garðamir og allt sem þama
blasir við augum. í næsta nágrenni
við hallirnar virkið og þaðan ótrúleg
útsýn yfir borgina og til Sierra Nev-
ada-fjalla. Gamla íbúðarhverfið utan
við hallarvirkið er rústir einar því að
hersveitir Napóleons sprengdu þær í
loft upp, að fyrirmælum hans sjálfs.
Napóleon var að sjálfsögðu hvorki
gáfumaður né stórmenni, heldur
venjulegur herforingi sem óð eins og
hundingi yfir allt og alla, en Frakkar
tóku í dýrlingatölu af misgáningi.
Astæðan til þess að Alhambra-höllin
var ekki einnig sprengd í loft upp var
sú að einhent hetja, spænsk, tók sig
til og hjó á alla sprengiþræðina, áður
en Frakkamir áttuðu sig. Þannig
bjargaði hann þessum menningar-
sögulega dýrgrip. Ég tel þennan ein-
henta mann, José Garcia, miklu
merkilegra framlag til mannkyns-
sögunnar og menningarsögunnar en
fyrirbrigðið Naflajón.
Garðarnir í Medina, sem merldr
bær, hafa verið græddir upp og þar
eru hin fegurstu trjágöng. Þar era
gömlu gosbrunnamir notaðir enn,
þeir era eitt af furðuverkum verald-
arsögunnar, en arabamir leiddu
vatnið úr fjöllunum, komu fyrir
gosbrannum á víð og dreif og allt án
þess notaðar væra neinar tæknilegar
eða verkfræðilegar formúlur. Vatnið
rennur einfaldlega af einum hjalla á
annan og spýtist upp úr gosbrannun-
um þar sem því er ætlað - og allt er
þetta með ólíkindum; rétt eins og
annað í tengslum við þetta virki, ekki
sízt varðturninn þaðan sem blasir við
útsýn yfir allt héraðið.
Granada er gríðarlega vel staðsett
í fjalllendi sem er einskonar fram-
hald af Sierra Nevada-ljöllum; eitt
fegursta bæjarstæði sem ég hef séð.
Margt gamalt og gróið í þessu um-
hverfi sem er ævintýri líkast. En
mesta ævintýrið er af manna völd-
um, þ.e.a.s. Álhambra sjálf. Þar era
skreytingamar með svipuðum hætti
og í stóra moskunni í Cordóba, arab-
íska skriftin víða, blasir við á veggj-
um og er partur af skreytingunni; af
henni má sjá hver byggði þessi húsa-
kynni, hvenær þau voru byggð og
ýmislegt fleira sem heyrir sögunni
til. Þetta fólk skildi ekki eftir sig aðr-
ar heimildir en þessi húsakynni,
hvorki bækur né annað. Af þeim sök-
um verða menn að lesa þessa sögu af
veggjum þessarar einstæðu húsa-
gerðarlistar. Þar era einnig áminn-
ingar eins og þessi sem mér datt í
hug að fella í svofelldan Ijóðrænan
búning:
Enginn er guð
nema Allah,
en í garðinum
blómlegtjúdasartré
kristið fólk
getur hengt sig í því
efþaðselursig
fyrir silfurpeninga.
Við horfðum á þetta fallega tré
ALHAMBRA-ÚÓ//A í Granada.
sem leiðsögumaðurinn sagði að héti
júdasar-tré hér um slóðir, en annars
staðar ástartré.
Einkennilegar andstæður, nema
því aðeins að Júdas hafi svikið Krist
vegna ástar á honum. Það er til svo
margvísleg ást - eina þá vinsælustu
nú um stundir og þá sem einna helzt
er í tízku mætti kalla peningaást!
í gær var 26 stiga hiti, í dag sval-
ara og þægilegra. I gær fékk ég
slæman verk í öxlina, sjúkraþjálfun
langt undan, en Ingó náði í lyf handa
mér og nú er ég fínn og til alls vís.
í gær var kirkjuleg hátíð um allar
götur Granada. Það var eftir-
minnilegt að fylgjast með henni. Þús-
undir manna á götunum, konumar í
faliegum spænskum flamenco-
kjólum, margir karlar með hatta,
sumir á hestum eins og í gamla daga.
Einnig í einhverjum búningum sem
minntu á Yerma eftir Lorca eða
Blóðbrallaup. Ég dái Spánverjana
fyrir það hvað þeir halda arfleifð
sinni vel við; unga fólkið ekki sízt. Öll
tónlistin á götunum spænsk, allt
sungið á spænsku. Það heyrðist ekki
enskt orð, enginn vestrænn dans -
allt spænskt og samkvæmt uppskrift
arfleifðarinnar. Ég öfunda Spán-
verja af þessu þrekvirki, að varðveita
sérkenni sín með þessum einstæða
hætti. Það er hægt að lifa í nútíma-
samfélagi án þess láta amerík-
aníséringuna gleypa sig með húð og
hári - en getum við það?
Kvöldíð
Hef verið að hugsa um hvað kaþ-
ólskar þjóðir Evrópu eiga gott að
hafa varðveitt ai-fleifð sina jafnvel og
jafhlengi og raun ber vitni. Hátíðin
hér í Granada í gær var í raun fagn-
aðar- og trúarhátíð. Hún heitir Hátíð
krossins. Fólkið upplifir trú sína með
öðrum hætti en við, það upplifir hana
eins og andblæ frá liðnum öldum.
Konumar eru í síðum og alla vega lit-
um flamenco-kjólum sem era ein-
hvers konar listaverk út af fyrir sig
og karlamir punta sig með sama
hætti og þeir hafa gert í gegnum ald-
imar.
Fóram í Dómkirkjuna í dag. Hún
er mikil og skrautleg, líklega bar-
okk-kirkja frá 17. öld gæti ég trúað.
Mjög skrautleg að innan, en skrautið
er þunglamalegt. Sáum einnig graf-
hýsi ísabellu og Ferdinands konungs
sem er við hliðina á kirkjunni. Það er
mjög áhrifamikið. Þar ræður dauð-
inn ríkjum. Þar sér maður kistumar
undir miklum minnismerkjum. Auk
þeirra liggur þar eitthvert fleira
kóngafólk, mig minnir Filippus I og
einhver drottning. Skiptir ekki máli.
Það er enginn þama hvort eða er. En
minningin er rækilega ræktuð. Á
torgi skammt frá Dómkirkjunni er
mikið minnismerki sem sýnir Kól-
umbus á tali við í sabellu. Þegar við
voram í Alhambra í morgun sagði
leiðsögumaðurinn að Kólumbus hefði
átt síðasta samtal sitt við í sabellu og
Ferdinand fyrir Ameríkuforina í
einu af hallarherbergjunum ski’aut-
legu. Þar afhenti ísabella Kólumbusi
skartgripi sína, svo að hann gæti
fjármagnað ferðina. Okkur var sögð
svipuð saga í kastalanum í Cordóba.
Þetta er nokkum veginn eins og þeg-
ar maður ferðast um Bandaríkin og
rekst á hvert húsið á fætur öðra þar
sem Washington á að hafa gist - og
þá helzt á tveimur, þremur eða fjór-
um stöðum í einu! Én allir vildu víst
Lilju kveðið hafa.
Hitt þykir mér athyglisverðara
hvað mildð af skólakrökkum sækir
söguleg minnismerki ásamt kennur-
um sínum og leiðsögumönnum.
Spánveijar tala helzt ekkert annað
en spænsku og rækta arfleifð sína
með einstökum hætti. Hér er allt
spænskt, þ.e.a.s. það sem er ekki arf-
leifð frá mörg hundrað ára yfir-
ráðum máranna hér um slóðir, en
þeir vora þá einnig orðnir nokkurs
konar Spánveijar, þegar yfir lauk.
Ég var að velta fyrir mér hvers
vegna íslenzkir skólakrakkar eru
ekki látnir rækta arfleifð okkar betur
en raun ber vitni. En hvaða arfleifð?
Það er þá einkum tungan og bók-
menningin, við eigum nánast engin
hús. Náttúran er það sem dregur
ferðamenn að landinu; ekki hús,
kastalar eða hallir; ekki kóngafólk
eða stórviðburðir. Ekki íslenzkan
heldur, því hún er fyrir okkur. Hvað
er þá eftir? Ekki geta krakkarnir
farið endalaust til Skálholts, að Hól-
um eða skroppið til Þingvalla.
Við værum í raun og veru öreigar
sem þjóð ef við ættum ekki bók-
menninguna og tunguna; ef við ætt-
um ekki náttúra landsins; sjálfa um-
gjörðina.
P.s. (Það var ekki fyrr en márarík-
ið á Spáni hafði leyst upp í 36 smá-
veldi sem Ferdinand og ísabella
sigruðu þau og sameinuðu Spán. Síð-
asti soldáninn fékk fararleyfi til Af-
ríku, sbr. kristilega kærleiksblómin
spretta/ í kringum hitt og þetta...).
Alhambra
Ómaðksmoginn sedrusviður
í lofti
ilmur af sígrænni myrtu
í gai-ðinum
júdasartré
göngum
inn í 13. öldina
fylgjum finkuléttri
hugsun
inn í andrúm
ólíkra tíma,
mælskir eru veggirnir,
enginn er guð
nema Allah
w er mestur
wtalar
úr þögulum veggjum
hértalar Allah
úr sjöunda himni
þaðan sem vatnið rennur
að rótum tímans,
hvílumeyru
við vatnsmjúka tónlist
gosbrannanna
fjalltærtervatnið
í brunnunum
fjalltærtervatnið
af sjöunda himni
þar sem fuglamir baða sig
í vængmjúkri hugsun guðs.
M.