Morgunblaðið - 20.07.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 20.07.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913 164. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Persónu- upplýs- ingar á glámbekk BRESKA rafmagns- og gasveitu- fyrirtækið Powergen hefur stað- fest að öryggisbrestur hafi orðið með þeim afleiðingum að upplýs- ingar um fjármál þúsunda við- skiptavina fyrirtækisins kunni að hafa legið á glámbekk. Breska rík- isútvarpið, BBC, greinir frá þessu. Kveðst fyrirtækið hafa haft sam- band við lögreglu vegna málsins. Powergen er eitt af stærstu fyr- irtækjum Bretlands og varð ör- yggisbresturinn á vefsíðu þess. Það var viðskiptavinur, John Chamberlain, sem komst á snoðir um brestinn. Chamberlain vinnur í tölvuiðnaði. „Ég trúði ekki mínum eigin aug- um,“ sagði hann í samtali við BBC. „Þarna voru nöfn, heimilisföng, krítarkortagreiðslur, númer á bankareikningum og fleira. Ég leitaði að mínu eigin eftirnafni, og viti menn, það fannst ásamt heim- ilisfangi, krítarkortinu mínu, gild- istíma og fleiru. Ég trúði þessu varla.“ Chamberlain sagðist hafa fundið skjöl þar sem tilgreindar voru debetkortagreiðslur rúmlega sjö þúsund viðskiptavina Powergen þegar hann fór inn á heimasíðu þess til að greiða reikninga sína. Powergen tjáði BBC í gær að fyrirtækið myndi hafa samband við hvern og einn viðskiptavin sem hefði orðið fyrir barðinu á öryggis- brestinum. Hefði það fyrst orðið hans vart síðdegis á þriðjudag. Hefði lögreglu, er rannsakar mál- ið, verið veittar allar upplýsingar. ----------------- Rúmenía Barist við miltis- brand Búkarest. Reuters. EMBÆTTI dýralæknis í Rúmeníu greindi frá því í gær að það væri að reyna að hefta útbreiðslu milt- isbrandsveiru er hefði þegar orðið einum manni og tugum nautgripa að bana við Dónárósa. Maðurinn sem lést var bóndi og hafði borðað sýkt svínakjöt. Dýralæknir í Tulcea-héraði sagði að grunur léki á að níu manns væru smitaðir af veirunni og hefðu þeir verið fluttir í sjúkra- hús. Sagði dýralæknirinn að fyrir hálfum mánuði hefði því verið lýst yfir að um faraldur væri að ræða, en þá hefðu hafist verstu þurrkar í Rúmeníu í heila öld. Helstu einkenni miltisbrands eru hár hiti, stækkun miltans og bólga í hálsi á sumum dýrum. Veikin banar búpeningi þúsundum saman í hitabeltislöndum á ári hverju. Tilfelli eru mun færri og breiðast sjaldnast út í heittempr- uðum löndum. „Kraftaverk“ þarf svo ár- angur náist í Camp David miðnætti í gær að Bandaríkjamenn hefðu gert síðustu tilraun til að bjarga viðræðunum með því að leggja til að ísraelar og Palestínu- menn myndu saman fara með stjórn í hluta gamla borgarhlutans í Jerúsalem, og að Palestínumenn fengju yfirráð í sumum borgarhlut- um utan landamæranna eins og þau voru fyrir 1967 er ísraelar inn- limuðu austurhluta borgarinnar. Hefði sendinefnd Palestínu- manna verið gefinn frestur til mið- nættis að staðartíma, eða klukkan fjögur síðastliðna nótt að íslensk- um tíma, til að bregðast við tillög- unni. Hefðu samningamenn sagst reiðubúnir að íhuga hana. Fregnir bárust af því síðdegis í gær að Barak væri við það að yfir- gefa Camp David og hefði sent Clinton bréf þar sem hann kvart- aði yfir því að Palestínumenn *, tækju ekki þátt í samningaviðræð- ’ unum af heilindum, að því er fréttastofan AP greindi frá. Á meðan Lockhart ræddi við fréttamenn í gærkvöld sat Clinton á fundi með Arafat, en fyrr um daginn hafði hann rætt við Barak. Ekki hafði í gærkvöld verið hald- inn fundur allra þriggja. Clinton frestaði för sinni til Japan á fund átta helstu iðnríkja heims, en upp- haflega var áætlað að hann héldi af stað í gærmorgun. í fyrrinótt var tilkynnt að för hans hefði verið frestað í um það bil sólarhring og hefði Clinton samkvæmt því átt að leggja af stað síðastliðna nótt. Sagði Lockhart í gærkvöld að ekki stæði til að breyta þeirri áætlun. VIÐRÆÐUR leiðtoga Palestínu- manna og ísraela stóðu enn í Camp David í Bandaríkjunum síð- astliðna nótt með milligöngu Bills Clintons Bandaríkjaforseta, og var á fréttaskýrendum að skilja að ein- hver skriður hefði komist á við- ræðurnar í gærkvöld. Talsmaður Clintons, Joe Lockhart, sagði á fréttamannafundi að viðræðurnar væru „mjög erfiðar", en forsetinn væri staðráðinn í að halda þeim áfram uns honum þætti einsýnt að „öll sund væru lokuð". ClW-sjónvarpsstöðin hafði í gær eftir Hanan Ashrawi, óform- legum talsmanni Palestínumanna, að kraftaverk þyrfti til að viðræð- urnar, sem fram fara í sumarbú- stað Bandaríkjaforseta skammt frá Washington, skiluðu tilætluðum árangri. Takmark viðræðnanna er endan- legt samkomulag um frið milli ísraela og Palestínumanna sam- kvæmt rammasamkomulagi sem gert var í Ósló árið 1993. Frá því fundurinn hófst 11. júlí hefur Clinton gengið á milli leið- toganna og reynt að knýja fram samkomulag um helstu deiluefnin, framtíðarlegu landamæra palest- ínsks ríkis, örlög nokkurra millj- óna palestínskra flóttamanna og stöðu Jerúsalemborgar, sem báðir aðilar gera skilyrðislaust tilkall til. Palestínumenn vilja að austur- hluti borgarinnar verði höfuðstað- ur sjálfstæðs ríkis þeirra og í gær greindi arabíska blaðið Asharq a1- Awsat frá því að Yasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínu- manna, hefði sagt við Barak og Clinton: „Sá arabaleiðtogi sem myndi afsala sér Jerúsalem hefur enn ekki verið í heiminn borinn.“ Reuters-fréttastofan hafði eftir palestínskum embættismanni um Bill Clinton og Ehud Barak ræðast við í forsetabústaðnum í Camp David í gær. N-Kórea mun hætta eldflaugaframleiðslu Seoul. AFP. VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, sagði eftir fund sinn með Kim Jong-Il, leiðtoga Norður-Kóreu, í Pyongyang í gær að N-Kóreustjórn hefði heitið því að hætta framleiðslu á langdrægum eldflaugum gegn því skilyrði að ríkinu yrði veittur aðgang- ur að tæknibúnaði og þekkingu tengdri geimeldflaugum. Pútín sagði að á fundum sínum með leiðtoganum n-kóreska hefðu þarlend stjómvöld sagst myndu hætta eld- flaugavarnaáætlunum sínum ef önnur ríki myndu samþykkja að veita ríkinu eldflaugahreyfla til geimrannsókna. „Norður-Kóreubúar eru reiðubúnir að nota aðeins eldflaugatækni ann- arra ríkja ef þeir fá eldflaugahreyfla sem nota má til friðsamlegra geim- rannsókna,11 sagði Pútín í samtali við Jnterfax-fréttastofuna rússnesku. Lagði Pútín á það áherslu að auk Rússlands gætu önnur ríki deilt ábyrgðinni við að útvega N-Kóreubú- um slíkan tæknibúnað. „Við teljum að frumkvæði Rússa í þessu tilliti sé ekki nægjanlegt. Allir, þ.á m. Suður-Kór- eubúar auk Bandaríkjamanna, Kín- verja og Japana, ættu að styðja við bakið á þessu ferli,“ sagði Pútín í við- tali við ITAR-TASS-fréttastofuna. Joe Lockhart, talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði að ekki væri að vænta viðbragða við yfirlýsingu Pút- íns fyrr en efnistök fundar leiðtog- anna hefðu verið greind nánar. ,Aug- ljóslega höfum við unnið mikið á þessum vettvangi - hvað varðar eld- flaugaáætlun N-Kóreu, en látið mig sjá þessa skýrslu áður en ég tjái mig um þetta,“ sagði Lockhart. Stjómmálaskýrendur höfðu spáð því að Pútín hygðist reyna að fá stjórnvöld í Pyongyang til að láta af eldflaugasmíði sinni með það fyrir augum að auka alþjóðlega samstöðu gegn eldflaugavamaáætlun Banda- ríkjamanna sem fyrirhugað er að reisa til að veijast hugsanlegum árásum „útlagan'kja" líkt og N-Kóreu. Fram úr ljóshraða AP. EÐLISFRÆÐINGAR hafa um langan aldur talið að ekk- ert geti farið hraðar en ljósið fer um tómarúm. En í tilraun sem gerð var í Bandaríkjun- um nýverið sendu vísinda- menn leysigeislabylgju í gegn- um sesíumgufu í glerbúri og fór hún svo hratt að hún var komin út úr búrinu áður en hún hafði fyllilega farið inn í það. Fór bylgjan 310-falda þá vegalengd sem hún hefði farið ef búrið hefði verið lofttæmt. Vísindamenn segja þetta vera mest sannfærandi vitnis- burð sem fram hefur komið um að hægt sé að fara fram úr ljóshraða, að minnsta kosti við sérstakar aðstæður á rann- sóknarstofu. Niðurstöðurnar era birtar í vísindaritinu Nat- ure í dag. Þær hafa enn sem komið er ekkert hagnýtt gildi. MORGUNBLAÐIÐ 20. JÚLÍ 2000 090000 6909C

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.