Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Fundur leiðtoga sjö helstu iðnrrkja auk Rússlands hefst í Japan um helgina
Stöðugleiki,
hagsæld og
hugarró efst
á dagskránni
Nago, lokýó. AFP.
FUNDUR leiðtoga sjö helstu iðn-
ríkja heims, auk Rússlands, hefst í
lok vikunnar á eyjunni Okinawa í Jap-
an og mun þar fjöldi málefna verða
tekin fyrir, allt frá útbreiðslu alnæmis
og öðrum hnattrænum ógnum til Int-
ernetsins og möguleika þess. Mikil-
vægi fundarins er ekki dregið í efa og
auk aðkallandi málefnaskrár mun
fundurinn verða síðasti G-8 fiindur
Bills Clintons Bandaríkjaforseta en
að sama skapi sá fyrsti fyrir Vladimír
Pútín Rússlandsforseta. Þá kann
pólitísk framtíð gestgjafans, Yoshiros
Moris, forsætisráðherra Japans, sem
sætt hefur harðri gagnrýni heima
íyrir, að ráðast af frammistöðu hans á
fundinum.
Þrjú málefni munu skyggja á önn-
ur á fundi leiðtoganna og hafa þau
verið flokkuð í þrjá flokka: Aukin
hagsæld, hugarró og heimur aukins
stöðugleika. Umræður um aukna
hagsæld munu að miklu leyti snúast
um misjafnt aðgengi jarðarbúa að
Intemetinu og miðast að því að finna
leiðir til að brúa hina svokölluðu
„stafrænu gjá“ milli norðurs og suð-
urs. Þá flokkast aðkallandi heilbrigð-
isvandamál, eins og gríðarleg út-
breiðsla alnæmis í Afríku, malaría og
berklar undir þennan málaflokk.
Hugarró og hnattrænn
stöðugleiki
Undir yfirheitinu hugarró munu
leiðtogar beina sjónum sínum að al-
þjóðlegri glæpastarfsemi, öldrunar-
þjónustu meðal iðnvæddra þjóða,
öryggisstöðlum í matvælaframleiðslu
og umhverfísvemd. Loks mun at-
hygli þjóðarleiðtoga beinast að því
hvemig unnt sé að viðhalda hnatt-
rænum stöðugleika með alþjóðegum
afvopnunarsamningum á sama tíma
og blikur era á lofti varðandi „útlaga-
ríki“ sem hafa einsett sér að verða sér
úti um gereyðingarvopn.
Vladimír Pútín mun mæta til fund-
arins beint frá heimsókn sinni til
Pyongyang þar sem hann átti viðræð-
ur við Kim Jong-Il, leiðtoga N-Kóreu,
og Peking, þar sem hann ræddi við Ji-
ang Zemin, Idnverskan starfsbróður
sinn. Þessi þijú ríki era staðráðin í að
reyna allt til að koma í veg fyrir að
fyrirhugað eldflaugavamakerfi
Bandaríkjanna verði að veruleika og
mun Pútín eiga fund við Bill Clinton
um þau mál. Áætlaður komutími
Clintons tU fundarstaðar í Okinawa
er hins vegar enn fremur óljós vegna
linnulausra samningaviðræðna Isra-
ela og Palestínumanna í Camp David
í Bandaríkjunum. Madeleine Al-
bright utanríkisráðherra skaut fyrir-
hugaðri för sinni til japönsku borgar-
innar Miyazaki á frest á síðustu
stundu vegna samningalotunnar
vestra og ef Clinton myndi grípa til
slíkra ráðstafana er líklegt að japönsk
stjómvöld tækju því sem móðgun.
Nýrrí Iotu WTO
viðræðna ýtt úr vör?
Japanskir fjölmiðlar hafa rætt það
að undanfömu að líkur séu á að
leiðtogar G-8 hópsins muni hvetja til
þess að ný lota viðræðna hefjist um
fíjáls viðskipti í heiminum. Tilraunir
til að efna til nýrrar lotu viðræðna á
fundi Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) í Seattle á síðasta ári fóra
fyrir h'tið vegna ágreinings milli
Bandaríkjanna og Evrópusam-
bandsins (ESB) um niðurgreiðslu
landbúnaðarafurða og vegna ákafra
mótmæla vemdunarsinna.
Nú þykir hins vegar líklegt að efnt
verði til nýrrar lotu, ekki síst í Ijósi
yfirlýsinga japanskra stjómvalda og
Jacques Chiracs, forseta Frakklands,
sem um þessar mundir fer fyrir ESB,
Reuters
Eikyu Oshiro, súshíkokkur í borginni Nago á Okinawa, er hér með nýj-
asta súshíréttinn sinn, þjóðfána ríkjanna, sem taka þátt í G-8-fundinum.
í vikunni. Chirac er nú staddur í
Japan í umboði ESB og í
sameiginlegri yfirlýsingu Japans og
ESB í gær sagði að „Japan og ESB
ákváðu að auka samvinnu sína með
það fyrir augum að ýta nýrri lotu [við-
ræðna] úr vör ásamt öðram aðildar-
ríkjum WTO.“ Viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjómar, Charlene Bar-
shefsky, sagði enn fremm- í gær að
stefna Bandaríkjanna væri að ná
samstöðu um viðræður meðal aðildar-
ríkja eins fljótt og unnt er, jafnvel á
þessu ári.
Sprengja gerð óvirk í Lundúnum
Tafír í almenn-
ingssamgöngum
Lundúnum. Morgfunblaðið.
SPREN G JUSÉRFRÆÐIN GAR
gerðu í gær óvirka sprengju í mið-
borg Lundúna og sprengdu að auki
upp óþekktan pakka sem vakti gran-
semdir í framhaldi af sprengjufund-
inum.
Aðgerðirnar ollu töluverðum töf-
um á almenningssamgöngum í Lund-
únum því loka þurfti Paddington-
lestarstöðinni meirihluta gærdagsins
auk þess sem fjöldi neðanjarðarlesta
gat ekki gengið samkvæmt áætlun.
Ennfremur var Viktoríu-stöðinni lok-
að í nokkrar klukkustundir.
Sprengjan fannst við lestarteina í
nánd við Ealing Broadway-neðan-
jarðarlestarstöðina í vesturhluta
Lundúna eftir viðvaranir sem lög-
reglunni bárast um kl. 6 í gærmorg-
un.
Að sögn lögreglu var um nokkrar
sprengjuhótanir að ræða og vora
fleiri en ein lestarstöð nefndar til sög-
unnar sem vettvangur tilræðis.
Lýðveldissinnar á N-írlandi
taldir ábyrgir
Peter Mandelson, Norður-írlands-
málaráðherra, sagði á breska þinginu
í gær að sprengjuhótanirnar væra að
öllum líkindum komnar frá lýðveldis-
sinnum á Norður-írlandi þrátt fyrir
friðarsamkomulagið sem nú væri í
gildi.
Talsmaður lögreglunnar í Lundún-
um sagðist ekki útiloka, að sprengju-
hótanimar stæðu í tengslum við
skrúðgöngu sem halda átti til heiðurs
Elísabetu drottningarmóður í tilefni
aldarafmælis hennar í ágúst og fór
fram samkvæmt áætlun í Lundúnum
í gær, þrátt fyrir viðburði dagsins.
Traust íslensk múrefni
síðan 1972
Kyrmtu þér ELGO múrklæðningu
áður en þú ákveður annað
URKLÆÐIMIIMG
ELGO múrklæðningin er létt og sterk, sem fegrar, ver og einangrar
»Á verði við allra hæfi
tar á nýtt og eldra húsn
Varist eftirlýkingar
Leitið tilboða!
Ráðhús Ölfuss, Þorlákshöfn
!l steinprýði
Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík
Sími 567 2777 — Fax 567 2716
V______________________
ELGO MÚRKLÆÐNIIUGIIU hefur verið undir eftirliti
RB síðastliðin 9 ár og hefur farið í gegnum
ýmsar prófanir, svo sem IUORDEST IUT Build
66, og staðist þær allar. ELGO
MURKLÆÐIUIIUGIIU var tekin út af
Birni Marteinssyni, verkfræðingi
hjá RB, ÁN ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin ha
verið prófuð hjá RB
Pútín hef-
ur fullan
sigur gegn
héraðs-
stjórunum
Moskvu. AFP; Reuters.
VLADÍMIR Pútín, forseti Rúss-
lands, vann í gær mikinn sigur í
tilraunum sínum til að ná undir sig
miðstjórnarvaldinu í landinu. Þá
samþykkti dúman, neðri deild
þingsins, með góðum meirihluta
breytingar á lögum um stöðu rúss-
nesku héraðsstjóranna.
Frumvarp Pútíns um, að hann
fengi vald til að reka héraðsstjóra,
sem gerst hefðu brotlegir við lög,
og víkja þeim frá, sem sættu rann-
sókn, hafði verið fellt í efri deild-
inni, sambandsráðinu, en það er að
mestu skipað héraðsstjóranum. Til
að hnekkja því þurfti frumvarpið
að fá 300 atkvæði í dúmunni en
niðurstaðan var sú, að 362 þing-
menn samþykktu það en 35 voru á
móti. Þá samþykkti dúman einnig
framvarp um, að héraðsstjórarnir
yrðu sviptir sæti sínu í sambands-
ráðinu. Höfðu héraðsstjórarnir áð-
ur fallist á það nauðugir viljugir og
var málamiðlunin sú, að þeir fá að
halda sætinu út næsta ár en eftir
það verða þeir að tilnefna annan
mann sem fulltrúa sinn.
Skipar sjö
„yfirhéraðshöfðingja“
Frá því að Pútín tók við embætti
í maí í vor hefur hann hert mjög
tökin á héruðunum 89 og nokkram
sinnum hefur hann ógilt lög, sem
þar hafa verið samþykkt en brjóta
í bága við alríkislög. Hafa héraðs-
höfðingjarnir oft verið sakaðir um
að ríkja sem eins konar furstar á
sínu svæði og misnota það frelsi,
sem Borís Jeltsín, fyrrverandi for-
seti, veitti þeim. Hefur Pútín nú
skipað sjö „yfirhéraðsstjóra“ og er
það hlutverk þeirra að sjá til, að
farið sé eftir fyrirskipunum frá
Moskvu.
Níkolaj Fedorov, héraðsstjóri í
rússneska sjálfstjórnarlýðveldinu
Tsjúvashíja og mikill andstæðing-
ur lagabreytinganna, sagði í gær,
að Pútín væri að eyðileggja sjálfan
grundvöll rússneska sambandsrík-
isins og gæti með því kynt undir
þjóðernishreyfingum.
Litaðu tilveruna
Heildsölubyrgðir: Isflex s:588 4444