Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 60
í>0 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
L.ung.A - spennandi listahátíð ungs fólks - er hafin á Seyðisfirði
jnpi
r u u u
Frá sýningii hópsins á Herðubreið.
Seyðisfjörður/
náttúrulega -
hvað annað?!
Gunnhildur Hauksdóttir og Sara María
Skúladóttir fóru til Seyðisfjarðar í gær til
að taka þátt í listahátíðinni L.ung.A sem
stendur yfir fram á laugardag. Unnar
Jónasson hitti þær og fékk upp úr þeim
hvað væri eiginlega að gerast fyrir austan.
Morgunblaðið/Golli
Gunnhildur og Sara María yfir svörtu sjóðandi kaffi og skruddum sverum á Gráa kettinum.
„VIÐ FÓRUM þarna fyrst í janúar
á vegum samstarfsverkefnisins
Menning/náttúrulega. Það eru
Listaháskóli íslands, M 2000 og
þrjú sveitarfélög sem standa að
þessu verkefni. Það voru gerðir út
þrír hópar af öðru og þriðja ári frá
LHI og í janúar fórum við, 10
manna hópur, undir handleiðslu
Þorvaldar Þorsteinssonar til Seyð-
isijaröar og eyddum þar fimm dög-
um í að gera ítarlega úttekt á lífi
bæjarbúa," segir Sara María þegar
þær stöllur eru spurðar um for-
sögu sýningarinnar.
„Við gerðum þetta undir þeim
formerkjum að niðurstaðan yrði
myndlistarsýning á Seyðisfirði.
Það má segja að við höfum unnið
þetta svolitið eins og visindamenn í
rannsóknarvinnu, vopnuð alls kyns
upptökugræjum og myndavélum.
Við tókum hclling af viðtölum,
heimsóttum öll fyrirtæki bæjarins
og fengum nemendur efstu bekkja
grunnskólans í samstarf með okk-
ur. Það var mjög erfitt að velja úr
öllu þessu efni, en niðurstaðan
verður til sýnis í félagsheimilinu
Herðubreið á Seyðisfirði og eru
allir velkomnir á opnunina núna á
Viðburðaríkir listadagar á Seyðisfirði
L.ung.A Og
Norskir dagar
L.UNG.A - listahátíð ungs fólks
Austurlandi hófst í gær 19. júlí kl.
17.00 á Seyðisfirði. Þátttakendur eru
á aldrinum 15-25 ára og koma frá Ak-
ureyri, Reykjavík, Vestmannaeyjum,
Höfn, Eskifirði, Egilsstöðum, Nes-
kaupstað og Seyðisfirði. Þau vinna að
listsköpun í fjóra daga frá morgni til
ivölds. Hönnunar- og lagasamkeppni
verður á dagskrá á fimmtudagskvöld-
ið og hafa tíu aðilar skráð sig til þátt-
töku. Dansleikir, tónleikar o.fl. verður
til skemmtunar föstudag og laugar-
dag. Tilvalið er fyrir ferðafólk að líta
við og skoða þennan fallega og seyð-
andi fjörð, fara á kaffi Láru eða í
Netk@ffi Skaftfells og fá sér „ekta“
kaffi og njóta menningarviðburða.
Máltíð á Hótel Seyðisfirði svíkur eng-
an.
Dagskrá L.ungA og Norskra daga
tvinnast skemmtilega saman þannig
að allir ættu að fmna eitthvað við sitt
hæfi. Sýningar eru víða um bæinn,
m.a. sýna þær Ásta Ólafsdóttir, Alda
Sigurðardóttir, Sari Maarit Cede-
agreen og Kristín Reynisdóttir í skól-
anum, Olav Christopher Jensen í
Skaftfelli og í garðinum er sýningin
Karlinn í tunglinu - Bömin á jörðinni.
Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan er
öll miðvikudagskvöld kl. 20.30. frá
júní-sept.
Norskir dagar
Sýning norsku listakonunnar Heidi
Kristiansen opnar föstudaginn 21. júh'
kl 17.00 í gömlu Bröttu, Austurvegi
30. Sýningin verður opin kl. 14-18 alla
daga nema mánudaga til 6. ágúst.
^Heidi stundaði nám í myndlist og
ifandíðum við Elen Ofstad skole í
Þrándheimi í Noregi á árunum 1976-
78 og sýnir nú textílverk. Hún hefur
haldið fjölda einkasýninga víða um
heim og tvívegis hlotið verðlaun fyrir
verk sín í Noregi. Sjö verka hennar
eru í opinberri eigu. Við opnun
Norskra daga mun ræðismaður Nor-
egs á Austurlandi, Birgir Hallvarðs-
son, setja Norska daga og harmon-
ikkuleikarinn Kjetil Skaslien leikur
nokkur lög. Einnig mun sendiherra
Noregs og kona hans ásamt menning-
arfulltrúa Noregs á íslandi heiðra
gesti með nærveru sinni af þessu til-
efni. Allir eru hjartanlega velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
Harmonikkuleikarinn Kjetil Skas-
lien mun leika á Norskum dögum á
Seyðisfirði föstudaginn 21. júh og
laugardaginn 22. júh í Skaftfelli,
menningarmiðstöð. Aðgangur er frír
báða dagana. Kjetil Skaslien er fyrst
og fremst þekktur fyrir sérstaka og
óhefðbundna samsetningu á hljómum
harmonikkunnar. Hann leikur að
sjálfsögðu gömlu dansana, þar sem
harmonikkan hefur alltaf verið aðal-
hljóðfærið en sem undirleikari og ein-
leikari töfrar hann fram hina fegurstu
tóna. Hann er fæddur í Grue Finn-
skog og mikið af angurværðinni í
verkum hans kemur frá hinum tröll-
vöxnu skógum. Tónhstarhæfileikar
hans koma sérstaklega vel fram í út-
setningum hans á verkum þekktra
norskra tónhstarmanna. Sumir vilja
halda því fram að hann sé mest þekkt-
ur fyrir heimsmet sitt í hraðspih á
„Tiger-rag“ án og í votta viðurvist.
Vorið 1999 var hann með tónlistar-
hópnum „Tigerbalsam“ í Victoria
Teater á Karl Johan. Þetta verk fékk
mjög góðar viðtökur bæði í fjölmiðl-
um og hjá áhorfendum. Tónlistarhóp-
urinn, sem samanstendur af ( fyrir
utan Ketil Skashen sjálfan) Osló-
stúlkunni Kari Svendsen, trúba-
domum Lars Klevstrand, stór-
tónhstarmanninum Steinari Ofsdal
og söngvaranum Tom Percy, mun
verða á ferð um Noreg með sýning-
una Tigerbalsam árið 2000.
Listanemar og náttúran
2. árs nemar í Listaháskóla íslands
heimsóttu Seyðisfjörð í vetur. Þeir
unnu meðal annars með seyðfirskum
unglingum að ýmsum verkefnum,
heimsóttu vinnustaði og hittu fólk. Nú
eru þau að koma aftur og ætla að
Verk eftir Heidi Kristiansen:
„Flókalundur 1997“.
setja upp sýningu sem þau unnu í
framhaldi af heimsókninni. Sýningin
er hluti af verkefni sem er samstarfs-
verkefni LHÍ og M2000 og kallast
menning - náttúrulega og er verkefn-
ið unnið á fjórum stöðum á landinu;
LHI, Seyðisfirði, Blönduósi og Dala-
byggð. A Seyðisfirði taka nemend-
umir ásamt kennara sínum Þorvaldi
Þorsteinssyni fyrir spumingu dags-
ins varðandi sambúð manns og nátt-
úru, nýtingu náttúrunnar í atvinnu-
skyni, möguleika og hættur. A
sýningunni má sjá andht einstakra
Seyðfirðinga sem urðu á vegi þeirra,
heyra hljóð frá Þorrablótinu o.fl. Sýn-
ingin verður sett upp í Herðubreið og
verður opnuð sunnudaginn 23. júh kl
16.00. Allir eru boðnir velkomnir.
Sýningin verður opin kl 14- 18 alla
daga nema mánudaga til 6. ágúst
2000.
Funksveitin Jagúar mun halda tón-
leika á laugai'dagskvöldið, eru hér
efnilegir ungir piltar á ferð sem hafa
það að mottói að leika aðeins á tón-
leikum í þessari hringferð sinni í júlí.
Sóldögg mun leika fyrir dansi föstu-
dagskvöldið og koma fram ótengdir á
laugardeginum úti undir bem lofti ef
veðurguðir leyfa. Gjömingaklúbbur-
inn setur upp gjöming á laugardegin-
um en þær hafa komið víða fram sl.
ár. Þær komu fyrst fram með gjöm-
inginn „Kossagjömingur" í Dagsljósi
Ríkissjónvarpsins árið 1996 og hafa
komið víða við síðan, m.a. í Nýlista-
safninu í Reykjavík, Aircondition í
Kaupmannahöfn, Oslo og New York
svo eitthvað sé nefnt.
sunnudaginn kl:16.00,“ segir
Gunnhildur gestrisin að venju.
„Það er óhætt að segja að Seyð-
isfjörður sé staðurinn til að vera á
þessa dagana því þar er mjög mik-
ið um að vera. Seyðisfjörður er líka
bara svo frábær. Ég held að við
sem fórum þangað í janúar og
kynntumst svolítið fólkinu þar
verðum aldrei söm. Ég man að ég
faðmaði konuna sem afgreiddi
okkur alltaf í Essoskálanum og
kyssti hana bless,“ segir Gunnhild-
ur, „það er náttúrlega ekkert
venjulegt. „Það eru allir bara ein-
hvern veginn svo opnir og ótrúlega
gestrisnir þarna og hún Alla, Aðal-
heiður Borgþórsdóttir, er súper-
kona sem skipuleggur þetta allt
saman og Þóra á Haföldunni og ég
veit ekki alveg hvað ég á að segja.
Dieter Roth er þarna uppi um alla
veggi og þetta er bara einhvern
veginn svona lítill hámenningar-
gullmoli þarna fyrir austan."
En hvað með þessa listahátíð?
„Já, í framhaldinu fengum við
tvær verkefni þarna í tengslum við
listahátíð sem Seyðisfjörður er að
skipuleggja þessa dagana og byrj-
aði í gær. Hátíðin heitir L.ung.A.
og er listahátíð ungs fólks á Aust-
urlandi. Sýning hópsins okkar
fléttast svo inn í þessa hátíð en
starf okkar tveggja felst í að vera
með „workshop" sem fólk skráir
sig í og við vinnum svo með. Við
fengum 80 fm rými sem við ætlum
að breyta og djöflast í þar til það
er orðið að einhverju öðru, ein-
hverju sem við vitum ekkert hvað
er, vegna þess að það verður unnið
á staðnum með þeim sem skrá sig.
Það eina sem við gerum er að
koma með rammann, sem er rým-
ið, svo erum við búnar að safna
dóti til að nota og við ætlum að
koma með listaverkabækur og von-
andi slidesmyndir af verkum sem
eru unnin I þessum anda, þ.e.a.s. að
breyta rými, til þess að gefa þátt-
takendum hugmyndir um hvernig
myndlist er í rauninni mikið til
unnin í dag,“ segir Sara María.
Hvernig má vinna út frá þeirri
hugmynd einni að breyta rými?
„Við förum ekkert að kenna
þeim að teikna paprikur og lands-
lag, dembum okkur bara beint í
myndlistina, þannig að við Fórum
hamförum í rými og skemmtum
okkur konunglega við það,“ svarar
Gunnhildur að bragði.
Það er lika margt annað í boði,
ritlist sem Andri Snær verður með,
leiklist hjá Helgu Braga, dans og
tónlist að ógleymdum mjög íjöl-
breytilegum myndlistarsýningum.
Það verða fjórar myndlistarsýn-
ingar í grunnskólabyggingunni,
Alda Sigurðardóttir, Ásta Ólafs-
dóttir, Sari Maarit Cedegreen og
Kristín Reynisdóttir eru þar.
I menningarmiðstöðinni Skafta-
felli stendur yfir sýning norska
myndlist.armannsins Olaf Kristofer
Jensen og í „Gömlu Bröttu" verða
textflverk Heidi Kristiansen.
Gjörningaklúbburinn „peformer-
ar“ þarna líka. Þær verða með
gjörning úti, á laugardeginum, en
þær voru að koma frá Austurríki
þar sem þær eru að sýna í nýju
safni í Bregenz. Á Seyðisfirði
verða þær með gjörning sem heitir
Æðri verur eða „Higher Beings"
en þær hafa sýnt hann áður í
Gautaborg, Amsterdam og Reykja-
vík en líka á Selfossi og í danskri
sveit.“
„Við hvetjum bara alla til að
skella sér til Seyðisfjarðar um
helgina, því Seyðfirðingar eru
algjörir snillingar,“ segja Gunn-
hildur og Sara María og hlakka til
að heilla Austfirðinga upp úr skón-
Nakin list
Reuters
LJÓSMYNDARINN Spencer Tun-
ick sést hér við vinnu sína á Willi-
amsburg-brúnni í Manhattan í New
York á dögunum. Borgarstjórinn
Rudy Giulani reyndi að koma í veg
fyrir að myndatakan færi fram en
allt kom fyrir ekki og Tunick fékk
vilja sínum framgengt. Tunick er
listamaður sem ferðast um Banda-
ríkin og ætlar sér að mynda sem
flesta hópa nakins fólks. Kallar hann
verk sitt „Ferðalag um nakin fylki“.