Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
1 . 1. Real Slim Shady
Eminem
t
t
t
t
*
*
t
t
t
*
t
*
t
t
2. Dánarfregnir og jarðarfarir
Sigur Rós
3. Ennþá
Skítamórall
4. Light Years
Pearl Jam
5. Natural Blues
Moby
6. Falling Away From Me
Korn
7. Music Non Stop
Kent
8. Rock Superstar
Cypress Hill
9.0ops...l did it again
Britney Spears
10. Big in Japan
Guano Apes
11. The One
Backstreet Boys
12. Thong Song
Sisqo
13. Try Again
Aaliyah
14. Þær tvær
Land & Synir
15. Ex Girlfriend
No Doubt
, 16. You Can Do It
lce Cube
17. Make me bad
w Korn
■^18. Crushed
Limp Bizkit
19. Take a Look Around
Limp Bizkit
20. Shackles
Mary Mary
Lístinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
© mbl . j S TíjjPPEQ
skjAr einn
FÓLK í FRÉTTUM
Hér sé popp!
TONLIST
Geisladiskur
ELDRAUÐARVARIR
Eldrauðar varir, geisladiskur Uzz.
Björn I. Þórisson syngur aðal- og
bakraddir ásamt því að leika á
hljðmborð. Honum til aðstoðar eru
Máni Svavarsson (forritun og
hljómborð), Björn Sigurðsson (bassi
í „Nóttin bíður“), Ævar Sveinsson
(gítar í „Allt sem ég vil“, „Eld-
rauðar varir“, „Ástarveiran" og
„Gleymi öllu“), Sigurður Rögn-
valdsson (gítar í „Nóttin bíður“ og
„Once Again“) og Jón E. Hafsteins-
son (gítar í „Searching"). Öll lög og
textar eru eftir Björn I. Þórisson.
Máni Svavarsson útsetti ásamt
Bimi. 30,05 mín. Björn I. Þórisson
gefur út.
UZZ hefur verið starfandi í nokk-
ur ár og „Eldrauðar varir“ er fyrsta
platan sem frá henni kemur, þrjátíu
mínútna þröngskífa sem inniheldur
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qfuntu
tískuversíun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
dægurpopp af mismunandi gerð og
gæðum. Textar eru bæði á íslensku
og ensku og eru þeir upp og ofan,
aðallega ofan en geta þó verið nokk-
uð smellnir á köflum eins og í lín-
unni „Hún er hlý og köld, hvort hef
ég mínútu eða öld“ sem er að finna í
fyrsta laginu, „Gleymi öllu (hugsa
um allt)“.
Opnunarlagið er borið uppi af
léttum hústakti, enda er húsasmíða-
meistarinn sjálfur, Máni Svavars-
son, á staðnum og skreytir hann
velflest lögin með poppvænum
tölvutöktum. Annað lagið er á svip-
uðum nótum, þó öllu rólegra. Illu
heilli tekst Birni einhverra hluta
vegna miður upp í þeim lögum sem
bera íslenska texta og mætti kalla
nútímavædd en hann er í essinu sínu
er hann horfir aðeins til baka og
vottar svuntuþeysarapoppi níunda
áratugarins virðingu sína. Þannig er
lokalag plötunnar, sem komst víst í
útvarpsspilun á sínum tíma, óttaleg
froða og titillagið virkar illa, hljóm-
ar eins og afgangslag úr brunni
Nýdanskrar eða Todmobile.
Það er engu líkara en einhver
aukaorka streymi yfir Björn þegar
hann svissar yfir í mál Engilsaxa.
\4I4W|, ‘ *•¥■ 5
iilíð!
Afengiskaup
fyrir unglinga
eru lögbroÉ
ivivi'.'Ai'ii'KLi'mviiiaiT/TBri
Lagið „Searching“ er til að mynda
afar vel heppnað tæknópopp með
sterkar tilvísanir í nokkrar hetjur
gærdagsins eins og Human League,
Nik Kershaw, Ultravox og Depeche
Mode. Vel sungið lag með drama-
tískri melódíu. Eins eru lögin „Nótt-
in bíður“ og „Once Again“ vel
heppnuð, rödd Björns hefur vana-
lega sterka nálægð og fer það vel í
þessum lögum, sem eru í rólegri
kantinum.
Raddbeiting Björns getur verið
nokkuð athyglisverð, stráð gnótt af
poppsykri og minnir skuggalega
mikið á söngspíru hinnar örendu
sveitar Vina vors og blóma, undar-
leg blanda af hrossahneggi og
kindajarmi. Þrátt fyrir þennan
óþægilega hljóm á hann til að beita
henni á hugmjmdaríkan hátt, teygir
hana upp eða niður skalann og eyk-
ur eða dregur úr tilfinningasemi
eins og við á.
Heildarhljómur plötunnar er ró-
legur og lítt áleitin og hentar laga-
smíðunum vel. Spilamennskan flýt-
ur fram hjá án þess að maður taki
eftir henni, helst að hugmyndaríkur
gítarleikur nái stundum flugi. Um-
slag plötunnar er eftirtektarvert og
grípandi og á hrós skilið.
Björn hefur þó nokkra hæfileika
til að bera í poppsmíði, á köflum er
hér að finna ágætlega grípandi
popplög en inn á milli koma þó lög
sem fara inn um annað eyrað og út
um hitt að mestu leyti. Það verður
þó að teljast Birni til tekna að hann
semur lög sem reyna ekki að vera
neitt annað en það sem þau eru. Hér
er á ferðinni eitt hundrað prósent
popp sem svínvirkar í sumum tilfell-
um en fellur flatt á nefið í öðrum.
Arnar Eggert Thoroddsen
Heiðar og Linda eru ást
fangin upp fyrir hausT
r@5arsson
stórtjSko)
if
ÉG FYRIRGEF
1 HENNISAMT
igeií:]