Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 33
LISTIR
Suður-afríski sönghópurinn Ladysmith Black Mambazo vakti mikla at-
hygli á tónleikum á Listahátið. Hér situr hópurinn að snæðingi.
undanfarin misseri. Svarið er ekki
gefið. Þótt eitthvað takist vel í
ákveðinn tíma er ekki þar með sagt
að ævarandi þörf sé fyrir það, eink-
um ef gosvirknin er lítil. Hátíðin í ár
hefur aftur á móti tekið af öll tvímæli
um það að þörfin fyrir Listahátíð í
Reykjavík er meiri en nokkru sinni
fyrr.“
Nú vantar bara almennilegt hús-
næði. „Við finnum illilega fyrir hús-
næðisleysi. Menn láta sig dreyma
um tónlistarhús, sem myndi auðvit-
að fyrst og fremst mæta þörfum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands, en kæmi
fleirum svo sannarlega til góða, með-
al annars Listahátíð. Við höfum að-
gang að þremur húsum fyrir um
fimm hundruð manns en það dugar
bara einfaldlega ekki til. Ég er sann-
færður um að við hefðum getað fyllt
fimmtán hundruð manna hús að
minnsta kosti fimm sinnum á sýn-
ingu San Francisco-ballettsins, svo
mikill var áhuginn. Við höfum Laug-
ardalshöllina en finnum að það er
ekki endalaust hægt að bjóða upp á
hana. Það var reynt að gera hana
huggulega fyrir stórsöngvaraveisl-
una, sem tókst reyndar vonum fram-
ar, en eftir stendur að þetta er og
verður íþróttahús, ekki tónleika-
höll.“
Finna þarf þörfina
Að áliti Sveins er mikilvægt að
Listahátíð bregðist við aðstæðum,
finni hvar hennar er þörf hverju
sinni. „Það er miklu meira um að
vera á sviði menningar og lista nú en
1970. Það hefur til dæmis ekki eins
mikla þýðingu nú að flytja inn klass-
íska tónlistarviðburði. Hér voru
haldnir um fjórtán hundruð tónleik-
ar í fyrra. Sömu sögu er að segja um
djass og kvikmyndir, listgreinar sem
Listahátíð tók upp á sína arma á sín-
um tíma. Nú eru til sérstakar hátíðir
utan um þessar greinar. Eins rokkið.
Við fluttum Led Zeppelin inn á
fyrstu Listahátíðina en nú eru þau
mál komin í aðrar hendur. Þarna sjá-
um við hlutverk Listahátíðar í
hnotskurn, hún á að brydda upp á
nýjungum en ekki bæta við það sem
þegar er á boðstólum.“
Sveinn segir líka nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir því að Listahátíð
í Reykjavík sé fyrst og fremst hátíð
fyrir íslendinga. „Gerðar hafa verið
tilraunir til að laða að útlendinga og
þeh hafa vissulega komið. Það skipt-
ir hins vegar ekki sköpum fyrir
rekstur hátíðarinnar og mun ekki
gera.“
Framlag hins opinbera til hátíðar-
innar var í upphafi helmingur af
veltu. Nú er það að sögn Sveins um
þriðjungur. „A móti kemur að kost-
un hefur aukist töluvert en það
breytir því ekki að þriðjungur er al-
mennt talið í lægri kantinum á hátíð-
um af þessu tagi. Þennan grundvöll
væri viturlegt að treysta.“
Að sögn Sveins hefur komið til tals
að halda hátíðina árlega en ekki ann-
að hvort ár, eins og nú tíðkast.
Sér hann kosti við þá hugmynd?
„Það yrði örugglega rekstrarlega
hagkvæmt að halda hátíðina árlega.
Ég er heldur ekki í vafá um að nóg er
til af efni og áhugi almennings er
sannarlega fyrir hendi. Það stefnir
því allt í þá átt. Ákvörðun af þessu
tagi blandast hins vegar inn í póli-
tíska umræðu, nefnilega byggðar-
stefnu. Talað hefur verið um listahá-
tíð eða menningarhátíð landsbyggð-
arinnar sem gaman væri að sjá verða
að veruleika. Hún yrði þá haldin
annað hvort ár, á móti Listahátíð í
Reykjavík. Ég hef á hinn bóginn
ekki trú á því að hægt sé að reka
slíka hátíð á sömu forsendum og
Listahátíð í Reykjavík. Að mínu viti
ætti hátíðin ekki að stíla inn á sömu
mið alfarið og listahátíð heldur
stuðla að sköpun út frá þeim efnivið
sem til er út um allt land. Það er
stórkostleg gullkista."
Hugmyndaleg forysta
heimamanna
Sveinn bendir á að þegar sé til vís-
ir að listahátíð á landsbyggðinni með
Listasumri á Akureyri, tónlistarhá-
tíðum í Skálholti, Reykholti og á
Kirkjubæjarklaustri á sumrin og
fleiru. „Það sem mér þykir brýnast
er að þessu sé ekki öllu stjórnað héð-
an frá Reykjavík. Heimamenn eiga
að vera í hugmyndalegri forystu.
Listahátíð í Reykjavík gæti vita-
skuld miðlað af sinni faglegu reynslu
en ekki sem stýrikerfi heldur sem
ráðgjafi, ekki síst um praktísk at-
riði.“
Og Sveinn hefur fleiri markmið í
huga fyrir landsbyggðina. „Ég vil sjá
atvinnuleikhús í öllum landsfjórð-
ungum. Menn höfðu veika trú á
Leikfélagi Akureyrar á sínum tíma,
óttuðust að það dræpi alla leiklistar-
starfsemi í grenndinni. Ahrifin hafa
verið þveröfug. Leiklist stendur í
miklum blóma nyrðra. Þá er kominn
visir að óperustúdíói á Austurlandi,
löng hefð er fyrir tónlistarstarfi á
ísafirði og þjóðlagahátíð er nú hald-
in á Siglufirði, svo dæmi séu tekin.
Þetta sýnir okkur, svo ekki verður
um villst, að hagur byggðanna felst í
því að skapa sér sérstöðu út frá sögu
sinni og menningararfi. Menningar-
borgin hefur komið að miklu gagni í
þessu tilliti. Nú er bara að gleyma
félagsheimilahugsjóninni og mynda
stærri einingar. Menningarlífið
verður fjölbreyttara og öflugra með
þeim hætti. Listahátíð í Reykjavík á
svo að sigla áfram sem flaggskip -
Gullfoss menningarinnar.“
Nýr Pure Color
varalitur sem
endist
Uppgötvaðu lit í þrívídd!
Hreinan, sterkan, djúpan.
Áferð sem er engu lík
og 24 ótrúleg litbrigði.
Komdu og lóttu okkur
hjólpa þér að finna
hvaða litir fara
þér best.
Sterkur litur
Sindrandi gljái
Einstök ending
ESTEE LAUDER verslanir:
Clara, Kringlunni, Sara, Bankastræti, Lyfja, Lágmúla, Lyfja,
Setbergi, Lyfja, Hamraborg, Hagkaup, Kringlunni, Hagkaup,
Smáranum, Amaro, Akureyri, Apótek Keflavikur.
Júlítilboö
á Bronco Pro Shock
8“, 20“ og 22'
stellhæð jl
Plasthúðaðar sveifar^kf
Ál nöf og Alloy gjaröir
24" 21 gíra fyrir 8-10 ára. .
20" 6 gíra fyrir 6-7 ára. ij
Breiður og mjúkur hnakkur
Tectro al
V-bremsur
Shimano
gírbúnaður
Al stýri
og stýrisstammi
Grip Shift
J /skiptihandföng
Eagle dcmpari
60 mm fjöðrun
26" 21 gíra.
Hjóiin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði.
Árs ábyrgð og upphersla fylgir hjólum frá Markinu.
Ármúla 40
Sími: 553 5320
Iferslunin
AMRKIÐ
• Hjá Ása, Hafnarfirði • Pipulagningaþjónustan, Akranesi • Hrannarbúðin, Grundarfiröi • Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi • Hegri, Sauöárkróki
• Valberg, Ólafsfirði • Skíðaþjónustan, Akureyri • Skógar, Egilsstöðum • Vik, Neskaupstað • KASK, Homafirði • Útisport, Keflavík
Tilboð kr. 23.715 stqr: 22.530
Tilboð kr. 22.865 stqr: 21.530
Tilboö kr. 18.615 stqr: 17.685
■ ■- ..... ■
Skeifunni 11 - Simi 588 98S0 - Veffang orninn.is Opiðkl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga