Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Frá afhendingfu styrksins.
Rúmfatalagerinn
styrkir Blindrafélagið
RÚMFATALAGERINN hefur frá
þvi í júní á siðasta ári innheimt
pokagjald í verslunum sínum. Ágóði
þess hefur runnið til Blindrafélags-
ins. Nýverið færðu forsvarsmenn
't* fyrirtækisins Blindrafélaginu 500
þúsund króna styrk og ákveðið hef-
ur verið að hann renni til tölvu-
kennslu blindra og sjónskertra.
„Tölvur hafa og geta nýst blind-
um og sjónskertum afar vel í leik og
starfi og brýn þörf er á bættri að-
stöðu og tækjakosti til kcnnslunnar.
Stuðningur sem þessi kemur sér því
afar vel og mun tvímælalaust bæta
aðstæður margra blindra og sjón-
skertra tölvunotenda. Ákveðið hef-
ur verið að framlengja samstarf
Rúmfatalagersins og Blindrafélags-
ins um eitt ár til viðbótar," segir
m.a. í fréttatikynningu frá Blindra-
félaginu.
Ævisögur í
heimspekilegu ljósi
FOSTUDAGINN 21. júlí nk„ kl. 15
verður haldið málþing um ævisögur í
heimspekilegu ljósi á vegum Heim-
spekistofnunar Háskóla íslands og
ReykjavikurAkademíunnar og fer
það fram í JL-húsinu, Hringbraut
121, 4. hæð. Á málþinginu munu
tveir erlendir fyrirlesarar fjalla um
heimspekilegar ævisögur.
Dr. James Conant, prófessor í
heimspeki við Háskólann í Chicago,
flytur fyrirlestur um heimspeki og
ævisögur og dr. Ray Monk forseti
heimspekideildarinnar í Southamp-
ton-háskóla flytur fyrirlestur sem
hann nefnir „Philosophical Biogra-
.. phy: The Very Idea.“ Fundarstjóri
er dr. Róbert H. Haraldsson lektor í
heimspeki við Háskóla íslands.
Dr. James Conant er hér á landi
sem Fulbright-styrkþegi og hefur
kennt námskeið um Wittgenstein við
Háskóla íslands. Conant er höfund-
ur fjölda greina um Wittgenstein,
Kierkegaard, Frege og Nietzsche
sem sumar hverjar hafa valdið
straumhvörfum í heimspeki. Conant
hefur einnig ritstýrt fjölda verka
m.a. eftir Hilary Putnam og Thomas
Kuhn. I skrifum sínum um sígild
heimspekiverk hefur hann m.a. lagt
áherslu á ævisögulega þætti.
Dr. Ray Monk er forseti heim-
spekideildarinnar í Southampton-
háskóla. Hann er höfundur bókanna
Ludwig Wittgenstein: The Duty of
Genius (1990) og Bertrand Russell:
The Spirit of Solitude (1996). Báðar
þessar ævisögur vöktu mikla athygli
bæði innan og utan heimspekinnar
og aflaði ævisaga hans um Wittgen-
stein honum heimsfrægðar.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
VR styður
Sleipni
STJÓRN Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur hefur samþykkt að
styrkja Bifreiðastjórafélagið Sleipni
um þrjár miHjónir króna, en Sleipnir
hefur sem kunnugt er átti í langri
kjaradeilu við vinnuveitendur.
Vi I ályktun stjómarinnar sem var
samþykkt samhljóða segir: „Fram-
vinda þessa máls og niðurstaða
snertir verkalýðshreyfínguna alla.
Það er skylda okkar, sem eitt af
stærstu verkalýðsfélögum í landinu,
að sýna stuðning við félagsmenn í
Sleipni í verki.“
-------------------
Markaður í
Skagafírði
FERÐAÞJÓNUSTAN Lónkoti í
Skagafirði stendur fyrir þremur
markaðsdögum í sumar. Eru það síð-
ustu sunnudagar í júní, júlí og ágúst.
„Eftir eru sunnudagurinn 30. júlí
og sunnudagurinn 27. ágúst. Mark-
aðurinn er opinn almenningi frá kl.
13 til 18 en sölufólk hefur tímann frá
kl. 10 til 13 til að koma sér fyrir. Þeir
sem vilja leigja sér söluborð geta
hringt í Lónkot. Markaðsdagar í
Lónkoti eru árvissir og fara fram í
samkomutjaldi staðarins sem er hið
stærsta á landinu,“ segir í fréttatil-
kynningu.
»1
Kvöldganga
UMSB
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 20. júlí
verður fjöruganga á Mýrum. Lagt
verður af stað frá Girðisholti við
Miðhús, kl. 20 (ath. taka Álftanes-
afleggjarann frá aðalvegi).
Leiðsögumaður verður Svandís
Bára Steingrímsdóttir. Fróðleg og
skemmtileg ganga um fallega
strönd. Gangan er fyrir alla og tekur
um tvo tíma.
--------------
Verðlaun í
bruðkaupsleik
VERSLUNIN Villeroy & Boch tók
þátt í brúðkaupsleik Bylgjunnar fyr-
ir skömmu. „Vinningshafar voru
mjög lukkulegir með vinninginn en
þeir fengu matar- og kaffistell fyrir
12 ásamt fylgihlutum. Einnig stál-
hnífapör frá þýska fyrirtækinu
WMF,“ segir í fréttatilkynningu.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Mannekla
á sambýlum
VIÐ foreldrar fatlaðra
barna horfum uggandi til
haustsins, því nú þegar er
farið að bera á manneklu á
sambýlum. Við þurfum að
taka okkar einstaklinga
eitthvað heim um helgar,
en við skiljum manna best
af hverju þetta er, en það
eru launin. Það er sorglegt
að launin skuli vera svona
léleg, því ef starfsfólkinu
býðst önnur vinna, þá er
það farið. Ég vil skora á
yfirvöld sem hlut eiga að
máli að hækka launin. Ég
veit að þetta er gefandi
starf og fólkið sem vinnur
þessi störf gefur mikið af
sér. Við erum þakklát því
fólki sem vinnur með son
okkar og hann er líka
mjög ánægður. Ég vona að
þessu verði komið í lag
sem allra fyrst.
Sigurborg Pétursdóttir.
Fyrirmyndar
ferðamáti
MIG langar til þess að
taka undir með Guðrúnu
sem skrifaði í Velvakanda
sunnudaginn 16. júlí sl. um
Strætisvagna Reykjavík-
ur. Almenningssamgöngur
eru verri í dag en fyrir 30
árum. Leið 11 er til dæmis
tekin af um helgar og er
það mjög bagalegt fyrir
eldri borgara sem búa í
blokk við Hæðargarð. Þeir
eiga kannski ekki bfi til
þess að komast leiðar
sinnar og þurfa að ganga í
gegnum heilt hverfi til
þess að ná í strætisvagn.
Margt af þessu eldra fólki
er ekki í stakk búið til
þess að ganga mjög langt.
Mig langar að spyrja
Strætisvagna Reykjavíkur
hvort þetta sé fyrirmynd-
ar ferðamáti, eins og þeir
auglýsa, fyrir eldri borg-
ara að þurfa að ganga
langar leiðir til þess að
komast leiðar sinnar. I all-
ri þessari hagræðingu hef-
ur hinn almenni borgari
algjörlega gleymst.
Ein afar óánægð.
íþróttaþjálfun fyrir
hressa gamlingja
ÉG hef árum saman reynt
að komast í rétta tegund
þjálfunar fyrir tiltölulega
hressa gamlingja. Ég hef
farið í flestallar félagsmið-
stöðvar aldraðra á Reykja-
víkursvæðinu en alls stað-
ar er sama sjúkraleikfimin
og meira að segja sami
kennarinn, sem er ágætur
í sínu fagi, en við erum
bara ekki öll alafdauðir
sjúklingar þó við séum
úrskurðuð löggild gamal-
menni.
En svo kom langþráð
leikfimi fyrir hressa
gamlingja í Laugardals-
höll. Mánuðum saman
taldist mæting um og yfír
hundrað, hvernig sem
viðraði. En þá fékk ég
einhvern flensubacter
sem nærri drap mig.
Hjarnaði þó við að end-
ingu og fór þá beint í
Laugardalshöll en þar
var þá komið sama moðið
og í félagsmiðstöðvunum,
fólkið hætt að mæta, var
aðeins rúmlega 10 manns
mætt. Fíni landsliðs-
þjálfarinn okkar búinn að
yfirgefa okkur og hann
sem var rétt að byrja með
handbolta fyrir okkur. Ég
mætti ekki aftur þar.
Á hverju ári hef ég tal-
að við Leikni, spurst fyrir
um þjálfun fyrir hressa
gamlingja, t.d. blak eða
badminton - eða shotokan
karate sem er góð alhliða
þjálfun fyrir okkur. En
nei, ekkert svoleiðis fyrir
gamlingja, bara fyrir
börn.
Hvernig væri nú þegar
IR og Leiknir sameinast
að spara heilbrigðiskerf-
inu milljónir/milljarða með
því að viðhalda góðri
heilsu hressra gamlingja
þar til við hreinlega
hrökkvum upp af. Ætti að
vera hægt að fá styrk út á
það.
Með von um úrlausn að-
kallandi verkefnis því ann-
ars er fyrirsjáanlegt að við
töpum heilsunni og leggj-
umst á heilbrigðisþjónust-
una, sem má víst ekki við
meiru. Ég hef í gegnum
árin talað við starfsfólk
íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar þar
sem hver vísar á annan og
útkoman er ekkert. Kerfið
virðist ekki virka.
Margrét Ásgeirsdóttir.
Tapað/fundið
Svartur ullarfrakki
tapaðist
SVARTUR ullarfrakki
tapaðist í miðbæ Reykja-
vík laugardaginn 15. júlí sl.
I vasanum var veski með
skilríkjum, gsm sími og
lyklar. Upplýsingar í síma
551-8458 eða 895-9912.
Bfllyklar í óskilum
KONA gleymdi bfilyklum
ásamt húslyklum í versl-
uninni Glugganum á
Laugaveginum. Hún getur
vitjað þeirra þar.
Dýrahald
Gulbröndóttur kisi
í óskilum
LÍTILL, gulbröndóttur
kisi með stór Ijósbrún
augu fannst við Arnar-
hraun í Hafnarfirði laug-
ardaginn 15. júlí sl. Upp-
lýsingar veitir Anna
695-3697.
Tveir hundar í óskil-
um að Leirum
TVEIR hundar eru í óskil-
um að hundahótelinu Leir-
um. Annar er blendings-
hundur, brúnn og svartur,
en hinn er lítill, svartur
blendingur. Eigendur geta
vitjað þeirra strax eða haft
samband í síma 5668366.
Lómapar í Borgarfirði.
Morgunblaðið/Ómar
Víkveiji skrifar...
„HEFUR þú eitthvað orðið var við
Mick Jagger eða Keith Richards,
meðlimi rokkhljómsveitarinnar
Rolling Stones, á göngu um
bæinn?“
Þessa óvenjulegu spurningu
lagði Víkverji fyrir nokkra íbúa í
Ólafsvík á dögunum. Tilefnið var að
deginum áður hafði lystisnekkja
verið í höfninni á Ólafsvík og grun-
ur lék á að þar væru frægir poppar-
ar um borð. Skemmst er að minn-
ast þess að fyrir ári birtist Jagger
skyndilega á bryggjunni á ísafirði,
en hann var þá á ferð í snekkju í
eigu ítalsks auðkýfings.
Enginn sem Morgunblaðið ræddi
við á Ólafsvík hafði fyrir víst séð
meðlimi Rolling Stones, en allir
höfðu hins vegar heyrt að þeir
hefðu verið þarna á ferð og flestir
höfðu heyrt um einhvern sem hafði
hitt þá. Einn hafði heyrt að þeir
hefðu drukkið kaffi á hótelinu. Á
hótelinu könnuðust menn ekki við
að hafa gefið Jagger kaffi, en vildu
þó ekki sverja fyrir það. Þar töldu
menn hins vegar að heimsfrægir
popparar hefðu komið við í verslun
og keypt þar eina peysu. Þegar haft
var samband við verslunina vildu
menn ekki kannast við að hafa selt
Jagger eða öðrum stórpoppurum
peysu, en vildu ekki sverja fyrir að
hafa séð einhverja útlenda menn
fyrir utan verslunina. Hins vegar
sögðust verslunarmennirnir hafa
heyrt að skipstjóri snekkjunnar
hefði rætt við Ólafsvíking sem byði
upp á hvalaskoðunarferðir frá Ól-
afsvík. Sá maður kannaðist vissu-
lega við að hafa rætt við skipstjór-
ann, en hann kvaðst ekki hafa verið
nægilega forvitinn til að spyrja um
það hverjir væru með honum um
borð, enda ekki búinn að heyra af
því að þarna væru hugsanlega
meðlimir einnar þekktustu rokk-
hljómsveitar heims á ferð.
Við svo búið varð Víkverji að gef-
ast upp. Fréttin um stórpoppara í
Ólafsvík var því aldrei skrifuð. En
eftir situr spumingin, voru Jagger
og Richards á snekkju við Ólafsvík
í síðustu viku? Kannski væri nær
að spyrja, hvaða máli skiptir hvort
þeir félagar voru í Ólafsvík eður ei?
Víkverji vill ekki leggja neinn dóm
á hvort slík spurning er réttmæt,
en því verður hins vegar ekki á
móti mælt að fjölmiðlar gera tals-
vert mikið af því að segja sögur af
frægu fólki og enginn vafi leikur á
að lesendur hafa áhuga á slíkum
fréttum.
xxx
FYRST minnst er á fræga popp-
ara getur Víkverji ekki látið
hjá líða að lýsa furðu sinni á frétt-
um af ungstirninu Britney Spears,
en hún er ein vinsælasta poppsöng-
kona heims þessar vikurnar. Fyrir
stuttu las Víkverji frásögn af því að
söngkonan ætlaði að fara að gifta
sig vini sínum, Justin Timberlake
að nafni. Daginn eftir bárust nýjar
fregnir af söngkonunni og þar sagði
að hana dreymdi um að giftast Vil-
hjálmi Bretaprins. Það fylgdi jafn-
framt með í fréttinni að ekkert ætti
að vera því til fyrirstöðu að Vil-
hjálmur og Britney yrðu hjón því
að hún hefði verið að slíta vinskap
við kærasta sinn, fyrrnefndan Just-
in Timberlake! Hverju á maður að
trúa?