Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 21 ÚRVERINU Þýska skipið Yris hættir að landa á Eskifírði vegna olíuverðs „Slæmt ef olíu- verð fælir físki- skip frá Islandi“ Iceland Seafood eykur samstarf við Arthur Treacher’s Morgunblaðið/Arnaldur Ævar Agnarsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Iceland Seafood, og Tom Hoffman, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arthur Treacher’s, undirrita viljayfirlýsingu um aukið samstarf fyrirtælqanna. Unnið að þróun fískrétta í smásölu ICELAND Seafood Corporation, dótturfélag SÍF hf. í Bandaríkjun- um, og bandaríska fiskiréttakeðjan Arthur Treacher’s undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aukið sam- starf fyrirtækjanna. í henni felst að fyrirtækin stefna að auknu sam- starfi á næstunni við þróun á nýjum smásöluafurðum undir merkjum Arthur Treacher’s, sem og fram- leiðslu á hefðbundnum fiskréttum á veitingastöðum keðjunnar. Iceland Seafood Corporation var áður helsti birgir Arthur Treacher’s á fiski en fyrirtækin tvö hafa ekki haft mikið samstarf á undanförnum árum. Ævar Agnarsson, fram- kvæmdastjóri framleiðslusviðs Ice- land Seafood, vonast hinsvegar til að aukið samstarf fyrirtækjanna leiði til þess að Iceland Seafood verði á ný helsti birgðasali Arthur Treacher’s. „Við teljum samstarf af þessu tagi skynsamlegt, meðal ann- ars vegna þess að eignarhald beggja fyrirtækjanna er á íslandi. Sam- starf er auk þess hentugt báðum að- ilum og það eykur möguleika þeirra beggja. Við höfum góða aðstöðu til framleiðslu fiskrétta í smásölu fyrir Arthur Treacher’s í verksmiðju okkar í Newport News þar sem afkastageta verksmiðjunnar er ekki nýtt til fulls í dag.“ Miklir möguleikar í smásölu Tom Hoffman, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Arthur Treacher’s, segist binda miklar von- ir við samstarf við Iceland Seafood, enda skapi það ótal möguleika, einkum á smásölumarkaðnum. „Við höfum unnið að þróun smásölurétta þar sem áhersla er lögð á þægindi og skjóta eldamennsku. Vonandi sjáum við fiskrétti frá Arthur Treacher’s sem framleiddir eru hjá Iceland Seafood í hillum stórmark- aða innan fárra mánaða. Til að byrja með verður einkum um fiskrétti að ræða en Arthur Treacher’s er eink- um þekkt fyrir fiskrétti sína sem bornir eru fram með frönskum kar- töflum. Iceland Seafood framleiðii- nú þegar fiskrétti fyrir veitingastaði Arthur Treacher’s og vonandi verð- ur framhald þar á. Islenskur fiskur er sá besti sem völ er á og Arthur Treacher’s hefur ætíð Iagt mikla áherslu á gæði vörunnar. Vöru- merki okkar er mjög vel þekkt í Bandaríkjunum og samstarfið við Iceland Seafood skapar því að mínu mati gríðarlega möguleika í smá- sölu fiskrétta,“ segir Tom Hoffman. ÞORBERGUR Hauksson, starfs- maður Eskifjarðarhafnar, segir að það sé mjög miður éf olíuverð á ís- landi fæh fiskiskip frá því að landa hérna. „Þetta er mjög slæmt mál. Ef skip hætta að landa hér er það auð- vitað tekjumissir fyrir höfnina. Eins er mjög slæmt mál ef verðmunurinn á olíu milli landa er það mikill að menn eru tilbúnir að flytja sig út af honum einum,“ segir hann. Skipstjóri þýska skipsins Yris hef- ur ákveðið að hætta að landa afla sín- um á Eskifirði vegna hás olíuverðs eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Ekki um listaverð að ræða Bjami Bjarnason, fulltrúi for- stjóra Olíufélagsins, segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem eitthvað þessu líkt komi upp í Færeyjum og telur að þetta sé heldur afstætt dæmi um verðmun á olíu milli landanna. „Ég hef enga skýringu á þessu verð- lagi í Færeyjum en hér er greinilega ekki um listaverð að ræða því lista- verð hefur oft verið hærra í Færeyj- um heldur en hjá okkur. Það hafa áð- ur komið fram svona gylliboð og þá eru það stóru oh'ufélögin, sem reka sjálf sín umboð þarna, sem eru á bak við þau og það eru sjálfsagt hægari heimatökin fyrir þau að lækka verðið þar sem þau eru framleiðendur olí- unnar. Mér sýnist þetta verð sem þeir eru að bjóða vera alveg út úr allri mynd og jafnvel undir heimsmark- aðsverði.“ Ekki raunhæfur samanburður Bjarni segir að þetta sé ekki raun- hæfur samanburður á olíuverði milli landanna þar sem gefin sé afsláttur til stærri notenda hér á f slandi. Hann segir að eins verði að taka inn í mynd- ina að haldið sé uppi mun hærra þjónustustigi hér á landi heldur en í Færeyjum. „Þetta hefur komið áður upp í Færeyjum og þá spurðumst við fyrir um þetta hjá okkar birgjum og þeir hafa heldur enga skýringu á þessu. Við erum sannfærðir um það að okkar innkaupsverð er ekkert lak- ara enn annarra miðað við það magn sem við erum að kaupa." Samúel Guðmundsson, forstöðu- maður áhættustýringar hjá Olíu- verslun íslands, tekur í sama streng og segir að áður hafi heyrst um lágt olíuverð í Færeyjum. „Þetta verð sem þarna um ræðir er með ólíkind- um lágt og er langt undir færeysku verðhstaverði. Ég tel að þetta lága verð geti ekki skýrst af neinu öðru en því að það er framleiðandi sem er að selja þarna sjálfur á einhverju heild- söluverði." Byggingaplatan sem allir hafa beðið eftir VIROCbyggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf VIROCbyggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi VIROCbyggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni VIROCbyggingaplatan er umhverfisvæn VIROCbyggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. PP &CO I.eitiS frekari upplýsinga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 8 568 6100 Stirkmtteft mmmWM vegna opnunar á einum glæsilegasta sýhingarsal f Evrópu á stillanlegum rúmum! ml iln ^ é á betra verði í BT Einnig fylgir öllum einbreiðum, stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í júlí. Horft á sjónvarp Morgun- matinn Unnid Slappað af Sofið Lesið eyðir 1/3 hluta ævinnar í rúminu! Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stellingu sem er. Með öðrum takka færð þú nudd sem þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér. Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks slökun og þannig dýpri og betri svefni. ...gerðu kröfur um heilsu & þægindi Betra Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 Opib: Mán. - fös kl. 10-18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.