Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Húsavíkur- kaupstaður 50 ára HALDIÐ verður upp á 50 ára kaupstaðarafmæli Húsavíkur nk. laugardag. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands verður við- staddur hátíðarhöldin ásamt öllum núlifandi bæjarstjórum Húsavíkur, þingmönnum Norðurlandskjör- dæmis eystra og bæjarstjórum vinabæja Húsavíkur á Norðurlönd- um. A laugardag mun Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra jafnframt taka í notkun nýja virkj- un Orkuveitu Húsavíkur við Kald- bak. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þröngt mega sáttir sitja (gista). Talsverð fjöignn á Húsavfk 60 til 70 hús- bilar á tjald- svæðinu Húsavík - Það varð töluverð fólks- fjölgun hér í bæ nýverið en því miður var það ekki til langframa, því íbúar milli 60 og 70 húsbíla höfðu aðeins næturgistingu á tjaldsvæði bæjarins og var bílum þétt lagt á svæðinu. Hér voru á ferð félagar í Félagi ís- lenskra húsbflaeigenda sem eru á ferð um landið, töluverður hópur af þesum ferðalöngum rölti svo niður á bryggju og um borð í hvalaskoðunar- báta sem sigldu með þá út á Skjálf- andaflóann í ágætis kvöldveðri. --------------- Ekið á lamb við Húsavík FÓLKSBIFREIÐ var ekið á lamb skammt frá Húsavík í gær. Bifreiðin skemmdist mikið en farþegar og bfl- stjóri sluppu ómeiddir. Óhappið varð við Saltvík skammt sunnan Húsavík- ur. Bifreiðin reyndist óökufær eftir áreksturinn við lambið og var flutt af vettvangi með dráttarbfl. Morgunblaðið/jt I Geysisstofu er margs konar fróðleikur um náttúrufræði settur fram með nýstárlegum hætti. Nokkur þús- und gestir í Geysisstofu * I Geysisstofu má fá ýmsan fróðleik um mót- un landsins, eld og ísa og ýmislegt fleira. Jóhannes Tómasson fór þar einn hring og ræddi við Má Sigurðsson á Geysi, hóteleig- anda og hugmyndasmið. NOKKUR þúsund manns hafa heimsótt Geysisstofu, nýtt fræða- setur við Geysi, sem Már Sigurðs- son, eigandi Hótels Geysis, hefur haft frumkvæði að að koma upp. Már sagði í samtali við Morgun- blaðið að íslendingar hafi sótt hana nokkuð til jafns við erlenda ferðamenn. Geysisstofa var opnuð 2. júní og eru starfsmenn hennar þrír. Þeir veita gestum leiðsögn ef óskað er en fræðasetrið veitir margháttaðar upplýsingar um landafræði og náttúrufræði sem bæði tengist Geysissvæðinu beint og landinu öllu. Aðgangseyrir er 400 kr. Kjörið námstæki „Hérna geta menn fengið alhliða fræðslu um jarðfræði, landafræði og margt fleira og skólamenn sem hafa komið hingað segja að hér sé kjörinn vettvangur til að koma með nemendur vegna vinnu við þemaverkefni þeirra. Þetta er því kjörið námstæki,“ segir Már. Stof- an er til húsa í viðbyggingu við söluskálann en auk sjálfs fræðaset- ursins hefur minjagripaverslunin verið stækkuð til muna og telur Már hana nú vera eina þá stærstu sinnar tegundar utan Reykjavíkur. En dró verkfallið ekkert úr aðsókn gesta? „Nei, ég merki miklu fremur aukningu og tel hana vera um 20% í sumar svo áhrif af verkfalli eru hverfandi. Ferðamenn af skemmti- ferðaskipunum skila sér jafnt og áður og mér sýnist menn líka koma hingað í auknum mæli á bílaleigu- bílum. Þá hafa Islendingar skilað sér í auknum mæli vegna jarð- hræringanna og þess hversu Geys- ir hefur verið líflegur," segir Már og telur erlenda sem íslenska gesti vera ánægða með stofuna. MmH sfr U— Már Sigurðsson, hóteleigandi á Geysi, bregður sér öðru hverju á bak Harley Davidsson mótorhjólinu til að komast frá erlinum á þessum fjöl- sótta ferðamannastað. Már segir að þrátt fyrir það sjái hann nú að ýmislegt megi betur fara í Geysisstofu og verði ráðist í breytingar eftir því sem aðstæður leyfi. Hugmyndin um fræðasetrið fæddist fyrir allmörgum árum og skyldi engan undra að hún er nú orðin að raunveruleika enda hefur Már einatt eitthvað á prjónunum og lætur verða úr hlutunum. Ríkið rétti eigandinn Geysissvæðið hefur verið til um- ræðu vegna hugmyndar ríkisins um kaup þess. Eigendur eru nokkrir og telur Már nokkuð góða samstöðu meðal þeirra um að selja. Hins vegar þurfi að rannsaka svæðið betur, ekki síst vegna jarð- hitaleitar. Boranir standa fyrir dyrum enda orkuþörf sífellt meiri og þegar séð verður fyrir endann á því verkefni geta menn hugsað sér að ríkið taki við svæðinu. Kveðst Már aðeins sjá jákvæðar hliðar við það að ríkið eignist landið. Hjá Hótel Geysi og við aðra þjónustu sem Már og kona hans, Sigríður Vilhjálmsdóttir, reka starfa nú um 40 manns. Margir koma til starfa þar ár eftir ár og talsverður hluti hópsins er útlend- ingar enda ekki óeðlilegt á stað þar sem útlendingar eru um og yf- ir helmingur gesta. Hugmyndir á sveimi Þegar Már þarf að leita næðis skellir hann sér á bak á Harley Davidson mótorhjóli sínu sem hann er mjög stoltur af. Þá er hann næsta sambandslaus við um- heiminn þegar hann skýst í lengri sem styttri ferðir frá erli dagsins. Er ekki fráleitt að ímynda sér að nýjar hugmyndir gerjist með hon- um í slíkum ökuferðum. Og hvert er þá næsta verkefnið? „Það verð- ur bara að koma í ljós. Það eru oft einhverjar hugmyndir í meðferð. En ég er viss um að hafi ég gert eitthvað rétt þá er það Geysis- stofa!“ segir hann og rýkur af stað á hjólinu. Morgunblaðið/Líney Persakötturínn Mússa og Þóröur Ragnar í tjaldútilegu í Ásbyrgi. Kisa í útilegu Morgunblaðið/Jóel Sverrisson Um 140 manns á 70 húsbílum komu í heimsókn í Laxárvirkjun í vikunni og má segja að hópurinn hafi nánast fyllt gilið við Laxárstöðvar með farskjótum sfnum. Þórshöfn - Persakötturinn Mússa og eigandi hennar, Þórður Ragn- ar, undu sér vel í útilegu í Ás- byrgi enda komst hitastigið hátt þar í sól og blíðu. Algengt er að sjá heirnilishund- inn með í ferðalagi en heldur sjaldgæfara að kötturinn fari með. Kisa var róleg og ánægð enda bandvön og lét sér vel líka að vera í löngu tjóðri við tjaldið. Að sögn eigandans voru engin vandræði með að fóðra Mússu í útilegunni því þrátt fyrir fínt ætt- erni er hún eins og köttur Bakka- bræðra; hún étur allt. Gdð aðsdkn að listsýn- ingu í Lax- árvirkjun GÓÐ aðsókn hefur verið að listsýningu sem opnuð var í Lax- árvirkjun um miðjan síðasta mán- uð, að sögn Bjarna Más Júlíusson- ar, stöðvarstjóra Mývatnssvæðis. Atta listamenn taka þátt í sýning- unni í Laxárvirkjun en yfirskrift hennar og annarrar sýningar sem stendur yfir í Ljósafossvirkjun er: List í orkustöðvum. Það er Félag íslenskra myndlistarmanna sem stendur að sýningunni í samvinnu við Landsvirkjun. Óhætt er að segja að sýningar- rýmið sé óvenjulegt í Laxárvirkj- un, inni í miðri orkustöðinni sem sprengd hefur verið inn í gljúfur- vegg í farvegi Laxár. Verkin eru á nokkrum stöðum, á gangi inn að vélarsal, í vélarsalnum eru nokkur verk og þá eru listaverk í hliðar- göngum og svonefndu pallhúsi. Bjarni Már sagði að tilgangur- inn með sýningunni væri að opna fyrirtækið enn frekar almenningi. Fólk gæti komið og skoðað lista- verkin, kynnt sér starfsemi stöð- varinnar og að auki væru fjöl- margar skemmtilegar gönguleiðir í grennd við Laxárgljúfur, sem öll- um væri heimilt að nota. Gestir þurfa þó ætíð að sýna fyllstu að- gætni á þessum gönguleiðum, ekki síst í námunda við straumvatn og orkuvirki. Aðrar aflstöðvar Landsvirkjunar á Norðurlandi, Kröfluvirkjun og Blönduvirkjun eru einnig opnar um helgar og þangað getur almenningur komið og kynnt sér starfsemina. í vikunni komu í heimsókn í Laxárvirkjun um 140 manns á 70 húsbílum og sagði Bjarni Már að þeir hafi nánast fyllt gilið við Lax- árstöðvar. Sýningin í Laxárvirkjun verður opin fram á haust, eða til 15. september, og er opið frá kl. 13-17 alla virka daga og frá kl. 13- 18 um helgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.