Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 6

Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 20. J ÚLÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Cornelio Sommaruga, fráfarandi formaður Alþjóðaráðs Rauða krossins Sæmdur íslensku fálka- orðunni I máli hans á Bessastöðum kom fram að til íslands hefði hann fyrst komið 1969 og oft hefði hann komið síðan, einkum er hann var vara- framkvæmdastjóri EFTA og tók þátt í samningaviðræðum um inn- göngu íslands í samtökin. Sem for- maður Alþjóðaráðsins sótti hann ísland nokkrum sinnum heim og bar hann í gær sérstaklega lof á Morgunblaðið/Kristinn sendifulltrúa Rauða kross fslands, sem hann sagði að væru ákaflega hæfir. Minntist hann m.a. Jóns Karlssonar sendifulltrúa sem var veginn við störf í Afganistan. Rdleg viðbrögð við hagstæðum viðbótarframlögum í lífeyrissparnað Búist við aukningu með haustinu FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi í gær Comelio Sommaruga, fráfarandi formann Alþjóðaráðs Rauða krossins, stór- riddarakrossi með stjörau hinnar íslensku fálkaorðu, við athöfn að Bessastöðum. Sommaruga lét nýlega af emb- ætti sínu hjá Alþjóðaráði Rauða krossins, en hafði átt sæti í nefnd- inni í þrettán ár og gegnt for- mennsku í tólf ár. Nýr formaður Al- þjóðaráðsins, Jakob Kellenberger, tók við embætti um siðustu áramót. Sommaruga fæddist 1 Rómaborg árið 1932, en hefur svissneskt rfkis- fang og doktorsnafnbót í lögum frá Háskólanum í Ziirich. Hann starf- aði Iengi í utanríkisþjónustunni í heimalandi sínu, en gerðist síðan varaframkvæmdastjóri EFTA og síðar ráðherra efnahags- og við- skiptamála í Sviss. Hann tók við embætti formanns Alþjóðaráðs Rauða krossins í maí 1987 af Alexandre heitnum Hay. LAUNÞEGAR sem eiga samkvæmt nýlegum kjarasamningum kost á auknu viðbótarframlagi í lífeyris- sparnað hafa farið rólega í að nýta sér þann möguleika. Viðbótarfram- lagið er þó verulega hagstætt og er búist við að fólk taki við sér með haustinu, þegar menn átta sig á hag- stæðum möguleikum aukins fram- lags atvinnurekenda. I janúar 1999 var launþegum í fyrsta skipti boðið upp á að draga frá 2% af laununum og leggja fyrir í við- bótarlífeyrisspamað. Auk þess bætti atvinnurekandi þá við 0,2%, en fékk það síðan frádregið í trygginga- gjaldi, þannig að í raun mátti segja að ríkið legði þá fjárhæð til og var litið á það sem ákveðna viðbótar- hvatningu fyrir fólk að vera með. Viðbrögð við þessu urðu þó dræmari en búist var við fyrirfram, en sam- kvæmt könnun sem fjármálaráðu- neytið lét gera í ársbyijun 2000 hafði þá innan við 30% launamanna nýtt sér þessa viðbótargreiðslu í líf- eyrisspamað. Samkvæmt kjarasamningum sem gerðir hafa verið á þessu ári hafa heimildir launþega til lífeyrissparn- aðar nú verið auknar úr 2% í 4%, auk þess sem afsláttur ríkisins á trygg- ingagjaldi fyrirtækja hefur hækkað úr 0,2% í 0,4%. Þar að auki hefur bæst við 1% framlag beint frá launa- greiðanda og mun það framlag hækka í 2% 1. janúar 2002. Þetta gerir að verkum að viðbót- arlífeyrisspamaður, sem er frádrátt- arbær frá skatti, getur hækkað úr 2,2% í 6,4% hjá þeim sem kjósa að nýta sér þann möguleika að leggja fyrir 4% af laununum í lífeyrisspam- að. Fyrh- einstakling með 150.000 króna mánaðartekjur þýðir þetta að frá 1. janúar 2002 getur hann eignast 6.300 krónur í séreignarsjóði mánað- arlega, þótt raunverulegt framlag hans sé ekki nema 1.849 krónur á mánuði, samkvæmt útreikningum Breytingar á viðbótarlífeyris- sparnaði skv. nýlegum kjarasamningum Áður Eftir Framlag launþega 2% 4% Mótframlag rikisins 0,2% 0,4% Mótframlag launagreiðanda 0% 1-2% * Alls 2,2% 5,4-6,4% * 1 % frá 1. maí 2000 09 2% frá 1. janúar 2002 Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Þeir njóta ekki mótframlags sem ekki leggja fyrir Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá nokkmm þeirra sjóða og banka sem bjóða upp á þjónustu varðandi viðbótarlífeyris- sparnað hefur fólk farið rólega af stað eftir kjarasamninga, þó að greina megi vissan stíganda í fyrir- spurnum og áhuga á þessum mögu- leika. Viðmælendur Morgunblaðsins voru á einu máli um að fólk væri ekki ennþá búið að átta sig á kostum þessara auknu mótframlaga, því dæmið liti þannig út að það væri hreinlega of hagstætt til þess að sleppa því að fara út í viðbótarlíf- eyrissparnað. Enda missa þeir af mótframlaginu sem ekki leggja a.m.k. 2% af laununum í lífeyris- sparnað. Búist er við að fólk taki við sér í auknum mæli með haustinu, því við- bótarlífeyrissparnaður er orðinn það hagstæður að flestum launþegum á almennum vinnumarkaði er ráðlagt að nýta sér hann. Samkvæmt upp- lýsingum frá Búnaðarbankanum - Verðbréf er viðbótarlífeyrir hag- stæðasta sparnaðarformið sem býðst í dag vegna mótframlags launagreiðanda og hagstæðrar skattalegrar meðferðar lífeyris- sparnaðar. 47 flötta- menn hafa snúið aft- ur heim AF þeim 75 Kosovo-Albönum sem komu hingað til lands í fyrra hafa 47 snúið aftur heim, að sögn Hólmfríðar Gísladóttur, deildarstjóra í alþjóða- deild Rauða krossins á Islandi. „Allir þeir flóttamenn sem fóru til Reyðar- fjarðar hafa snúið aftur en þangað fóru tuttugu og fjórir," sagði Hólm- fríður, en einnig hefur sex manna fjölskylda sem fór til Dalvíkur snúið aftur. Sjö af þeim tuttugu og þremur flóttamönnum sem fóru til Hafnar- fjarðar hafa haldið heim á leið. Að sögn Hólmfríðar lítur út fyrir að þeir sem hafa ákveðið að vera eft- ir á íslandi verði hér til frambúðar. „Eins og staðan er í dag vitum við ekki annað en að svo verði,“ sagði Hólmfríður. „Flóttamönnunum er auðvitað frjálst að fara ef þeir vilja, en nokkrar fjölskyldur héldu heim í sumarfrí og verður spennandi að fá að heyra hvað þær segja þegar þær koma til baka.“ Hólmfríður sagði að þeir flótta- menn sem hafa ákveðið að ílengjast hér hefðu látið vel af sér. Víkingaskip- ið Kvitserk komið áleiðis til Færeyja SEX Norðmenn og einn íslend- ingur eru í áhöfn Kvitserks, sem lagði úr höfn í Noregi að- faranótt miðvikudags, en það er 16 metra langur knörr. Vík- ingaskipið er væntanlegt til Vestmannaeyja fyrir lok næstu viku. Tilgangur ferðarinnar er að minnast siglingar Hjalta Skeggjasonar og Gissurar hvíta með gjafavið í stafkirkju í Vestmannaeyjum. Síðdegis í gær var knörrinn kominn um 80 mílur áleiðis frá Noregi og stefndi á Færeyjar. Veður var gott í gær en byr fremur lítill. Stolið frá Hróa Hetti BROTIST var inn í veitingastaðinn Hróa Hött við Hringbraut í fyrri- nótt, en hann ber sama nafn og út- laginn sem forðum daga stal frá þeim ríku og gaf þeim fátæku. Við- vörunarkerfi staðarins fór í gang en þegar vaktmenn Securitas komu á vettvang urðu þeir einskis varir. Þegar framkvæmdastjórinn kom til starfa um morgunin tók hann hins vegar eftir því að búið var að brjótast inn á skrifstofu staðarins en litlu hafði verið stolið. IHD Hlkl. 21.00 á fimmfudegum! í m /h Þ H H 5 E M^H J fl H T H B StŒR UPPLÝSINCASÍMI S88 7788 SKRIFSTOFUSÍMI 568 9200 Atvinnuleysi mældist 1,3% í júní Atvinnulausum fækkar mest í Reykjavík MEÐALFJÖLDI atvinnulausra á höfuðborgarsvæðinu í júni var 1.265 eða um 1,5% af áætluðum mannafla. At- vinnuleysi er enn mest á höfuðborgarsvæðinu, en það minnkaði þar um 34% frá því í júní í fyrra. Að meðaltali voru 1.829 manns án atvinnu á landsvísu í júní í ár, en atvinnulausum hefur fækkað að meðaltali um 816 frá því á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi í mánuðinum mældist 1,3%, en í júní í fyrra var atvinnuleysi 1,8%. Þetta kem: ur fram í yfirliti atvinnuástands Vinnumálastofnunar. í maí síðastliðnum var 1,6% mannafla á höfuðborgar- svæðinu án atvinnu, en atvinnulausum körlum fækkaði um 92 að meðaltali í júní. Atvinnulausum konum hefur hins vegar fjölgað um 25 frá því í maí. Hlutfallslegt at- vinnuleysi karla var því 0,9% í júní, en var 1,2% í maí, samkvæmt yfirlitinu. Hlutfallslegt atvinnuleysi kvenna í júní var það sama og í maí eða 2,1%. Að meðaltali eru um helmingi fleiri konur atvinnulausar en karlar, en 1.202 konur voru atvinnulausar í júní á móti 627 körlum. Samkvæmt yfirlitinu var framboð af lausum störfum á hjá vinnumiðlunum í lok júní síðastliðins nokkuð meira en í lok maí, en störfum fjölgaði um 36 á milli mánaða. Alls voru um 450 störf laus í júní í ár og þar af voru ríflega 65% þessara starfa á höfuðborgarsvæðinu samanborið við 69% í síðasta mánuði. Lausum störfum fjölgaði hraðar á landsbyggðinni, en í lok júní hafði þeim fjölgað um 27 miðað við 9 á höfuðborgarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.