Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.07.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ofskynjunarsveppur notaður af neytendum kannabisefna Langvarandi neysla veldur varanlegum heilaskemmdum UNGMENNI sem neyta kannabisefna nota gjarnan ofskynjunarsveppi meðfram annarrí neyslu segir Guðbjörn Björnsson, læknir á sjúkra- húsinu Vogi. Hann segir sveppinn, sem vex hér á landi, innihalda virk ofskynjunarefni. „Þetta er raunverulegt vímuefni." Dæmi eru um að einstakl- ingur hafi borðað allt að 110 sveppi í eitt og sama skiptið. Ofskynjunarsveppir hafa verið flokkaðir sem eitraðir „Það eru yfir 30 tegundir af ofskynjunarsvepp- um til á Islandi og þeir hafa sennilega flestir verið til hérna frá ómunatíð. Þeir hafa verið flokkaðir sem eitraðir og eru nú ekki beint lystugir. Menn verða bara veikir af þeim og því lítið gert af því að misnota þá sem eiturlyf, nema gamla berserkja- sveppinn," segir Guðbjörn Bjömsson, læknir á sjúkrahúsinu Vogi. Sveppurinn, sem hvað mest er notaður til vimu- gjafar um þessar mundir, barst hingað til lands fyrir um 15-16 árum. Hans varð fyrst vart á túnum Reykjavíkur en hefur nú breiðst út um allt land. „Þetta er voðalega lítill og ræfilslegur og ljótur sveppur," segir Guðbjöm. „Hann inniheldur raun- vemlegt ofskynjunarefni sem heitir psilocybin." Sveppurinn veldur ofskynjunaráhrifum og jafnvel tímabundnu geðveikiástandi. „Sumir verða hræddir og skelfingu lostnir,“ segir Guðbjörn. Algengur hjá þeim sem neyta kannabisefna Guðbjörn segir neyslu á ofskynjunarsveppum nokkuð algenga hjá þeim sem neyta kannabisefna. Það sé afar fátítt að fólk neyti eingöngu ofskynj- unarlyfja þar sem líkaminn er fljótur að mynda mótefni gegn þeim. Sveppurinn sé því aðallega notaður meðfram annarri fíkniefnaneyslu. I sveppnum er psilocybin en það er flokkað með öðrum ofskynjunarlyfjum, s.s. englaryki og LSD. Guðbjörn segir afar erfitt að fylgjast með efnis- magni í sveppnum. Það sé mjög misjafnt hversu mikið psiloeybin sé í hverjum sveppi. Stundum nægi 1-2 til að mynda ofskynjunaráhrif en Guð- björn segir dæmi um að einstaklingur hafi borðað allt að 110 ofskynjunarsveppi 1 einu. Langvarandi eiturlyfjanotkun veldur varanlegum heilaskaða Guðbjörn segir að rannsóknir sýni æ betur fram á skaðsemi eiturlyfja. „Langvarandi neysla á þess- um efnum veldur óafturkræfum skaða á taugaend- um og boðefnum í heila. Þetta er miklu alvarlegra en menn héldu fyrir nokkrum árum,“ segir Guð- björn. Rannsóknir hefðu staðfest það sem margan grunaði. Guðbjörn segir að nokkuð beri á því að ungmenni komi á Vog sem hafi neytt ofskynjunar- sveppsins. Þau séu þá jafnan ringluð og það taki nokkurn tíma fyrir þau að ná sér. Einnig hafi nokkrir þurft að leita á slysadeild eftir sveppa- neyslu. Flugleiðir færa Rauða krossinum gömul ein- kennisföt FLUGLEIÐIR afhentu Rauða krossi íslands um 2.000 gömul ein- kennisföt til hjálparstarfs. Nýverið voru ný einkennisföt tekin í notk- un og að frumkvæði starfsmanna var ákveðið að gefa þau gömlu til hjálparstarfs. „Það er mjög ánægjulegt, að gömlu ein- kennisfötin kunni að koma að gagni að nýju, eins og þau hafa nýst Flugleiðum til margra ára en allar merkingar sem tengjast Flugleiðum munu verða fjarlægð- ar,“ sagði Sigurður Helgason, for- stjóri Flugleiða, við tækifærið. „Allur fatnaður sem berst til Rauða kross Islands kemur sér vel fyrir skjólstæðinga félagsins og vil ég þakka Flugleiðum fyrir þessa fatagjöf. Hún mun koma sér vel í Athuga- semd frá Almanna- vörnum MORGUNBLAÐINU hefur borist athugasemd frá Hjalta Sæmunds- syni, aðalvarðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, vegna um- mæla Jóns Baldurssonar, yfir- læknis á slysadeild, í Morgunblað- inu 18. júlí sl. um rútuslysið á Hólsfjöllum. I yfirlýsingunni segir: „Jón full- yrðir m.a.: 1. að almannavarnakerfið hafi verið virkjað fyrir tilviljun, 2. að vaktmaður Landhelgis- gæslunnar hafi frétt af þessu slysi vegna þess að þyrla Gæslunnar hafi verið kölluð út. Hið rétta er að vakthafandi varðstjóri í stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar ákvað í ljósi umfangs slyssins að virkja Almannavarnir ríkisins, stjórnstöð Almannavarna mun hafa orðið virk innan einnar klukkustundar frá útkalli varð- stjórans. Sú töf hafði.engin áhrif á gang björgunaraðgerða, enda hafði varðstjórinn gert allar þær ráð- stafanir sem honum bar í ijósi verkefnisins. Varðstjóri í stjórnstöð Land- helgisgæslunnar ákveður í umboði forstjóra LHG útkall þyrlu í hvert skipti og kallar hana út. Þar með er honum væntanlega fullljóst að þyi’lan hafi verið kölluð út, og hvers vegna. Ég verð að lýsa vonbrigðum með að maður í stöðu Jóns Bald- urssonar láti hafa eftir sér þvílíkar rangfærslur og útúrsnúninga, sér- staklega í ijósi áralangs samstarfs Jóns við stjórnstöð LHG. Jóni ætti að vera fullljóst hvernig stjórnstöð LHG starfar, sérstaklega í ljósi formennsku sinnar í nefnd sem skipuð var um útkallsreglur á þyrlu LHG, sem skilað hefur áliti. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er mönnuð allan sólarhringinn árið um kring, þar eru að störfum varðstjórar með áratuga reynslu af leitar- og björgunarstörfum. Ég leyfi mér að segja að störf þeirra stjórnist ekki af tilviljunum eða handahófi. Stöðin er ávallt tilbúin til að- gerða með eða án utanaðkomandi aðstoðar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Björg Jónasdóttir, Guðný Hansdóttir, Ólafur R. Gunnarsson, Sigurður Helgason, Hannes Birgir Hjálmarsson og Ólafur Arnason við afhendinguna. starfi Rauða krossins, sem mun sjá til þess að gjöfin nýtist þeim sem á þurfa að halda,“ sagði Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross fslands. Einkennisfótin hafa þegar verið seld til fataflokkunarstöðvar í Hollandi þar sem þau verða annað- hvort seld eða gefin fátækum. Yfírleitt gengur vel að manna kennarastöður framhaldsskólanna Vantar aðallega raungreinakennara FREMUR gott hljóð er í yfirmönn- um framhaldsskólanna í landinu um komandi haust og vetur, en flestir eru sammála um að erfitt sé að fá kennara í raungreinum, einkum eðl- is- og efnafræði, líffræði og stærð- fræði, og mun erfiðara en áður. At- hygli vekur að það vandamál er ekki einskorðað við landsbyggðina, held- ur virðist það sama upp á tening- num á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið hafði samband við nokkra framhaldsskóla og spurðist , fyrir um það, hvernig almennt hefði gengið að manna kennarastöðurnar. „Það hefur gengið vel,“ sagði Ragn- heiður Torfadóttir, skólameistari Menntaskólans í Reykjavfk. „Það hefur auðvitað hjálpað til, nú eins og fyrr, að skólinn er í hjarta borgar- innar og stendur á gömlum merg og er kunnur, þannig að okkur hefur alltaf gengið vel að fá kennara hing- að.“ í máli Péturs Rasmussen, aðstoð- arskólameistara Menntaskólans við Sund, kvað við annan tón, en hann sagði hafa gengið fremur illa að ná í kennara. „Ég held reyndar að við séum einna verst stödd, af einhverj- um ástæðum. Ég var nú frekar vondaufur þar til fyrir stuttu, þegar birti skyndilega til með eðlisfræð- ina, en við sitjum uppi með ein- hveijar hörmungar í stærðfræði. Raungreinarnar eru vandamálið og það er ekkert nýtt vandamál. Það er mjög oft svo, að þegar við erum nýbúin að krækja í einhvern dregur hann umsóknina jafnskjótt til baka, þegar hann frétth' launakjörin. I raungreinum, þar sem er svo mikil eftirspurn eftir fólki á öðrum stöð- um, eru kennaralaunin einfaldlega ekki samkeppnisfær." Allir með réttindi nema einn Þorsteinn Þorsteinsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Garða- bæ, sagði hins vegar að ráðningar kennara hefðu gengið vel. „Við höf- um alltaf átt gott með að ráða fólk. Allir kennarar við skólann eru með réttindi, nema sá sem kennir tré- smíðar. Þó gæti verið að ég þyrfti að auglýsa einhvern tímann með haustinu eftir kennurum í raun- greinum, einfaldlega vegna fjölgun- ar í skólanum." Á ísafirði sagði Guðmundur Ein- arsson, varamaður í skólanefnd Framhaldsskóla Vestfjarða, að menn þar væru alls ekki í slæmum málum, en ástandið hefði þó oft ver- ið betra. „Síðast þegar ég vissi vant- aði a.m.k. dönskukennara," bætti hann við. Og Magnea Guðmun- dsdóttir, varaformaður skóla- nefndar, tók í sama streng: „Ég var á fundi fyrir tveimur eða þremur vikum og þá var ekki allt frágengið. En ég veit ekki hvað hefur gerst síð- an; e.t.v. hefur skólameistara tekist að manna það sem upp á vantaði." Við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki varð Jón F. Hjartarson skólameistari fyrir svör- um: „Það gengur mjög vel hjá okk- ur. Það er ekki oft sem við höfum fengið fleiri en eina umsókn um hverja stöðu, en það gerðist núna. Þannig að við erum ánægð.“ Og Jón Már Héðinsson, aðstoðar- skólameistari Menntaskólans á Ak- ureyri, var einnig glaður í bragði. „Það hefur gengið vel. Við erum með stöðugan og traustan kjarna og það gekk vel að ráða í þær fáu stöð- ur sem losnuðu I vor. Það má kannski segja að við höfum verið heppin, því það er erfitt að ná í kennara, og launin spila þar stórt hlutverk. Það er búin að vera upp- sveifla í samfélaginu svo að ríkis- stofnanir, eða a.m.k. skólarnir, eiga erfitt með að keppa við hinn al- menna markað hvað það varðar." Valgerður Gunnarsdóttir, skóla- meistari Framhaldsskólans á Laug- um, sagði að ennþá vantaði dönsku- kennara, en að öðru leyti væri skólinn vel í stakk búinn fyrir kom- andi haust og vetur. Svipuð laun og krakki fær í sjoppu I Gunnari Baldurssyni, aðstoðar- skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík, var ekki eins góður tónn. „Okkur vantar í tvær heilar stöður, þ.e.a.s. eina í stærðfræði og tvær hálfar í sálfræði og námsráðgjöf. Stærðfræðin er aðalvandamálið, og mér skilst að svo sé víða um land. Það er ekkert auðvelt að fá menn menntaða í stærðfræði, með fjög- urra ára háskólanám, og bjóða þeim svo rétt rámlega hundrað þúsund krónur á mánuði; það eru svipuð laun og krakki fær í sjoppu ef hann tekur nokkrar aukavaktir. Enda hefur enginn ansað þessum auglýs- ingum okkar. Það hafa þó verið fyr- irspurnir um sálfræðina. Samt bjóð- um við niðurgreitt húsnæði og flutningsstyrk, þannig að menn flytja hingað sér að kostnaðarlausu. Það ýtir ekkert á. Launin eru vandamálið.“ Helgi Omar Bragason, skóla- meistari Menntaskólans á Egils- stöðum, sagði að það ætti bara eftir að ráða einn kennara. „Það er að vísu líffræðikennari, svo að það get- ur verið þrautin þyngri að ráða fram úr því. Þetta er samt svipað og verið hefur undanfarin ár. Við erum ekki samkeppnisfær við hinn al- menna markað, sérstaklega hvað snertir raungreinafólkið." Þenslan í samfélaginu og sóknin á liöfuðborgarsvæðið Og á Heimaey var til svara Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyj- um. „Það gengur nú frekar illa að ráða í þær stöður sem lausar eru. Eflaust spilar þenslan í samfélaginu hér inn í; nú er um mörg störf að velja, fleiri en oft áður. Og sóknin á höfuðborgarsvæðið á líka einhvern þátt í þessu. Maður verður var við það, að fólk er ekki jafn tilbúið og stundum hefur verið að fara út á land. Mig vantar t.d. kennara í líf- fræði og efnafræði. Þegar slíkar stöður hafa verið auglýstar hafa yf- irleitt borist ein eða tvær umsóknir, en það var ekki núna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.