Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 14

Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Borgarráð samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir vesturhluta Laugardals Ahersla á að opna dalinn fyrir almenning Laugardalur BORGARRÁÐ samþykkti í fyrradag nýtt deiliskipulag fyrir vesturhluta Laugardals, en markmið skipulagsins er að stuðla að frekari uppbygg- ingu í dalnum með áherslu á íþrótta- og tómstundastarf, en jafnframt opna dalinn fyrir al- menning eins og kostur er með auknum gróðri og gerð stíga og útivistarsvæða. Þá er skipulaginu ætlað að koma á formlegri lóðaskiptingu fyrir helstu mannvirki. Deiliskipulagið var unnið af Landslagi ehf. fyrir Borgar- skipulag Reykjavíkur og var lögð sérstök áhersla á að missa ekki sjónar af þeirri heildarsýn sem mörkuð var í upphafi með skipulagi Laug- ardalsins sem samhangandi garðsvæðis með fjölbreyttum útivistarmöguleikum. Sundlaug og heilsuræktarstöð Skipulagsreitur deiliskipu- lagins er um þrjátíu hektarar að flatarmáli og afmarkast af Reykjavegi að vestan, Sund- laugavegi að norðan og Suð- urlandsbraut og gamla Múla- vegi að sunnan. Hulda Gústafsdóttir, lands- lagsarkitekt hjá Landslagi ehf., sagði að helsta frávikið frá gamla deiliskipulaginu væru ný lóðamörk og nýr byggingarreitur fyrir yfir- byggða sundlaug og heilsu- ræktarstöð við Laugardals- laugina. Gert væri ráð fyrir að lóðin fyrir sundlaugina og heilsuræktarstöðina yrði ein og óskipt. Hulda sagði að almennt væri verið að opna dalinn bet- ur fyrir fólki. Hún sagði að hinir afgirtu stóru íþróttavell- ir, Laugardalsvöllur og Val- bjarnarvöllur, lokuðu leiðum í vesturhluta Laugardalsins þannig að gangandi umferð úr Laugarneshverfi og frá sund- lauginni yrði að krækjavestur fyrir Laugardalsvöll á leið sinni um garðinn. Nýir göngustígar Hulda sagði að í nýja deili- skipulaginu væri reynt að bæta aðgengið með því að gera ráð fyrir nýjum göngu- stíg á milli Laugardalsvallar og Valbjamarvallar. Gert væri ráð fyrir að garðsvæði við Reykjaveg opnaðist til austurs að opnu svæði á milli Laugardalsvallar og sund- laugar og tengdist nýju I 1 Byggingarreitur REYKIAVÍK "•i. Laug&rdalshöll gönguleiðinni á milli Laugar- dalsvallar og Valbjarnarvall- ar. Þá sagði Hulda að einnig væri gerð tillaga um að opna gönguleið norður og austur fyrir Valbjarnarvöll en sú til- laga fæli í sér að vestur-, norður- og austurmörk vallar- ins yrðu afmörkuð með sér- stakri girðingu. Að öðru leyti gerir deili- skipulagið ráð fyrir óbreyttu vega- og stígakerfi í grund- vallaratriðum en að vegir og stígar verði í eigu og umsjá Reykjavíkurborgar sem og bílastæðin við sundlaugalóð- ina, Laugardalsvöll, Valbjam- arvöll, Þróttheima og Laugar- dalshöll, en þau em um 1.850 talsins og verða samnýtanleg fyrir gesti dalsins. Fjölnotahiís við Laugardalshöllina Hulda sagði að í nýja deili- skipulaginu væru lóðir skil- greindar skýrar en áður hefði verið gert. Samkvæmt skipu- laginu er möguleiki á að stækka stúku Laugardalsvall- ar, þannig að hún nái um- hverfls allan völlinn og einnig er gefinn möguleiki á því að stækka stúkuna við Valbjam- arvöll. Ennfremur er gert ráð fyrir nýjum inngangi og miða- sölu við Laugardalsvöll. Hulda sagði að í deiliskipu- laginu væri búið að skilgreina byggingarreit fyrir fjölnota- hús yið Laugardalshöllina og stærð reitsins gæfi möguleika á því að byggja húsið hvort heldur sem er austan Laugar- dalshallar eða sunnan. Ef val- ið verður að byggja húsið að sunnaverðu er gert ráð fyrir að húsið verði grafið inn í brekkuna. 8.000 fm lóð, vestan við ISI í deiliskipulaginu er mal- bikuðu svæði vestan við gervi- grasvöllinn ráðstafað sem fjölnotasvæði, sem nota má t.d. fyrir bílastæði, boltaleiki og ýmsar uppákomur, s.s. sýningar, sirkus o.s.frv. Gert er ráð fyrir að svæðið verði umlukt trjágróðri til skjóls og prýði. Þá er búið að skilgreina lóð vestan við ÍSÍ og ÍBR, en hún er um 8.000 fermetrar og er gert ráð fyrir að byggja megi 2.000 fermetra grunn- flöt á tveimur hæðum. Á lóð- inni er gert ráð fyrir 50 opn- um bílastæðum og 64 bílastæðum í bílageymslum neðanjarðar. Mikil aukning á gæludýra- og hrossahaldi á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Arnaldur Nýr dýraspítali byggður í Víðidal Víðidalur FYRSTA skóflustunga að byggingu nýs dýraspítala á Vatnsveituvegi 4 í Víðidal var tekin í gærdag. f fréttatilkynningu segir að þörfin fyrir sérhannaðan nútímalegan dýraspítala hafi aukist verulega á und- anfornum árum og að lengi hafi staðið til að reisa nýjan dýraspítala á höfuðborgar- svæðinu. Þar komi fyrst og fremst til að gæludýra- og hrossahald á höfuðborgar- svæðinu, sem og landinu öllu, hafi aukist mikið. Enn- fremur kalli aukin sérhæf- ing í dýralækningum á betri aðstöðu. Einnig segir að tilgangur- inn með byggingu nýs dýra- spitala sé að taka það skref inn í 21. öldina sem nauðsyn- legt sé, svo heilbrigðisþjón- usta við dýr geti talist sam- bærileg við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. í því sambandi sé ætlunin að nýr dýraspítali uppfylli þá staðla sem settir eru um slík- ar stofnanir erlendis. Nýi spitalinn verður á tæpum hektara lands á horni Breiðholtsbrautar og Vatns- veituvegar. Dýraspítalinn er teiknaður af arkitektastof- unni Glámu-Kím og er tæpir 500 fermetrar að stærð. Byggingin samanstendur af tveimur húsum, öðru fyrir smádýr og hinu fyrir stór- gripi, aðallega hesta. Húsin tvö tengjast með glerbygg- ingu sem í verður móttaka og skrifstofa. Áætlað er að spítalinn taki til starfa eftir næstu áramót. Eigandi væntanlegs dýra- spítala er fyrirtækið Dýra- spítalinn í Víðidal ehf. sem að standa fimm dýralæknar, Steinn Þ. Steinsson, Þor- valdur H. Þórðarson, Helgi I. Sigurðsson, Katrín Harð- ardóttir og Ólöf Loftsdóttir. Þorvaldur H. Þórðarson, dýralæknir, segir nýja hús- næðið bjóða upp á þó nokkra nýja möguleika en fyrst og fremst betra starfsumhverfi og þægilegri aðstöðu fyrir dýrin. f mörg ár hafi dýra- spítalinn búið við aðstöðu- leysi þar sem núverandi hús- næði spitalans sé löngu orðið oflítið. Morgunblaoið/Jim omart Búið er að koma upp staurum fyrir umferðarljós á gatna- mótum Hagamels og Hofsvallagötu þrátt fyrir að borgar- yfirvöld hafí enn ekki samþykkt staðsetningu Ijósanna. Umferðarljós án samþykkis Vesturbær ÞRÁTT fyrir að borgairáð hafi enn ekki samþykkt að setja upp umferðarljós við Hofsvallagötu og . Hagamel eru framkvæmdir þar löngu hafnar og lítið á eftir að gera annað en að koma ljósunum á staurana og kveikja. Framkvæmdir við uppsetn- ingu ljósanna hófust í lok júní og birtist þá mynd af þeim í Morgunblaðinu. Málið var hins vegar ekki tekið fyrir hjá skipulags- og umferðarnefnd fyrr en í síðustu viku og í borgarráði var það ekki tekið fyrir fyrr en á þriðjudaginn. Skipulags- og umferðamefnd samþykkti uppsetningu ljós- anna, en borgarráð frestaði afgreiðslunni á fundi sínum í fyrradag. Kristbjörg Stephensen, fulltrúi borgarstjórnar, sagði að málinu hefði verið frestað þar sem borgarráð hefði viljað fá frekar upplýsingar frá embætti borgarverkfræðings, m.a. arðsemisútreikninga. Hún sagði að málið yrði ekki afgreitt fyrr en þær upplýs- ingar myndu berast. Kostnaður um 15 milljónir Auk tillögu um að setja upp umferðarljós við Hagamel og Hofsvallagötu liggur fyrir borgarráði tillaga um að setja upp umferðarljós á þremur öðrum stöðum í borginni. Við Strandveg-Hallsveg, Búst- aðaveg-Ósland og Mýrargötu- Ægisgötu. Ætla má að upp- setning allra ljósanna kosti um 15 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.