Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Akureyringar ánægðir
með að búa á Akureyri
AKUREYRINGAR telja stöðuna á
húsnæðismarkaðnum betri í sínu
bæjarfélagi en íbúar höfuðborgar-
svæðisins. Þeir eru hins vegar
óánægðari með launamálin, atvinnu-
tækifærin og vöruúrvalið, en telja
barna- og fjölskylduvænt umhverfí,
rólegheit og nálægð við náttúruna til
kosta þess að búa á Akureyri. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í sam-
anburðarkönnun á ánægju og
óánægju fólks á Akureyri og höfuð-
borgarsvæðinu sem Gallup og Ráð-
garður unnu fyrir atvinnumálanefnd.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hefur Akureyrarbær
ákveðið að verja 13 miHjónum króna
á næstu tólf mánuðum til markaðs-
átaks í atvinnumálum, því að sam-
kvæmt könnun Gallups og Ráðgarðs
vega atvinnu- og launamál einna
þyngst þegar fólk ákveður að flytjast
frá Akureyri. Um 52% Akureyringa
sem þátt tóku í könnuninni nefna at-
vinnu- og launamál sem helstu
ástæðu óanægju sinnar með lífskjör á
Akureyri. Til samanburðar má geta
þess að 18,4% íbúa höfuðborgarsvæð-
isins telja atvinnutækifærin helsta
kost þess að búa í Reykjavík. Akur-
eyringar virðast hins vegar ánægðir
með bæinn sinn þegar á heildina er
litið því 73,7% segjast mjög ánægðir
með að búa þar og 18,5% segjast
frekar ánægðir. Aðeins rétt um 2%
segjast frekar eða mjög óánægðir
með að búa á Akureyri.
Það sem Akureyringar nefndu sem
helstu kosti þess að búa á Akureyri er.
barna- og fjölskylduvænt umhverfi,
en tæp 19% svarenda nefndu það, og
13,6% nefndu gott veðurfar og töldu
þá margir til tekna að hafa mikinn
snjó og hafa væntanlega haft vetrar-
íþróttir í huga. Höfuðborgarbúar
nefna úrval vöru og þjónustu og at-
vinnutækifæri sem helstu kosti þess
að búa á höfuðborgarsvæðinu.
Staðan á húsnæðis-
markaðinum góð
Akureyringar telja stöðuna á hús-
næðismarkaðnum góða, um 78%
sögðu hana vera mjög góða eða frek-
ar góða, en 12% töldu hana frekar
slæma eða mjög slæma. íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu telja stöðuna á hús-
næðismarkaðnum þar vera heldur
verri. Um 52% telja stöðuna þar vera
frekar slæma eða mjög slæma, en um
36% töldu hana góða eða mjög góða.
Akureyringar eru einnig
bjartsýnni á að eignast eigið húsnæði.
Af þeim sem áttu ekki húsnæði og
sýndu áhuga á að eignast slíkt töldu
rúm 60% möguleika sína mjög góða
eða frekar góða, samanborið við rúm
46% á höfuðborgarsvæðinu.
Valur Knútsson, formaður at-
vinnumálanefndar Akureyrarbæjar,
sagði að það væri greinilegt að fólk
væri að mörgu leyti ánægt á Akur-
eyri. „Það er reynslan að íbúafjölgun
er mest hér þegar það er kreppa hér
og kreppa í Reykjavík, en minnst
þegar það er þensla í Reykjavík. Það
virðist vera svo að fólk vilji hafa tæki-
færin fyrir framan sig, þó að það nýti
þau ekki alltaf,“ sagði Valur. Hann
sagði það einnig merkilegt að fólk á
Akureyri telur möguleika sína betri á
að eignast gott húsnæði, samanborið
við svarendur á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta er eitthvað sem við munum
hamra á í viðleitni okkar að fá fyrir-
tæki til að setjast að hér í bænum,“
sagðiValur.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Maður dæmdur
fyrir fjárdrátt
FYRRVERANDI formaður
stjórnar og trúnaðarráðs Dval-
arheimilis aldraðra sf. á Húsa-
vík og prófkúruhafi félagsins
hefur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra verið dæmdur í 8
mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt,
skilorðsbundið til þriggja ára.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa á tímabilinu 2. október
1991 til 23. nóvember 1994 dreg-
ið sér fé úr sjóði félagsins, sam-
tals rúmar 3,8 milljónir króna,
með því að gefa út og innleysa
átta tékka á reikninga félagsins
og nýta allt andvirði eða hluta
tékkanna í eigin þágu. Ennfrem-
ur kemur fram í dómnum að
ákærði hafi leitast við að leyna
fjárdrætti sínum með með því
að láta endurskoðanda félagsins
í té tilhæfulaus gögn og rang-
færa þannig bókhald félagsins.
Fyrir dómi viðurkenndi mað-
urinn skýlaust sakargiftir sam-
kvæmt ákæruskjali og var játn-
ing hans í samræmi við
rannsóknargögn málsins. Þótti
og sannað að ákærði hafi gerst
sekur um þá háttsemi sem hon-
um er gefin að sök í ákæru.
Ákærði sagðist fyrir dómi hafa
notað nefndar peningafjárhæðir
til eigin þarfa, m.a. til greiðslu
opinberra gjalda, víxilskulda,
skuldabréfalána og annarra
reikninga.
í dómnum kemur fram að til
þess beri að líta að ákærði end-
urgreiddi þegar á árinu 1994 inn
á bankareikninga dvalarheimil-
isins rúma eina milljón króna.
Hann játaði undanbragðalaust
brot sín við rannsókn málsins og
endurgreiddi á árunum 1997 og
1998 að fullu þá fjárhæð sem
sakarefni þessa máls tekur til
ásamt vöxtum og öllum kostnaði
sem leiddi af rannsókn kæranda
og ríflega það.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Minningarskákmótið um Steinberg Friðfínnsson
Olafur sigraði aftur
FIMMTA minningarskákmótið um
Steinberg Friðfinnsson var haldið á
Baugaseli í Barkárdal, fæðingarstað
Steinbergs, um síðustu helgi. Alls
tóku 9 keppendur þátt í mótinu en
sigurvegari varð Ólafur Kristjáns-
son sem hlaut 12 vinninga af 16
mögulegum. Þetta var jafnframt
annar sigur Ólafs á mótinu á jafn
mörgum árum.
Þór Valtýsson hafnaði í öðru sæti
með 11 vinninga og Jón Björgvins-
son í því þriðja með 10,5 vinninga.
Keppt var um farandbikar sem
Ferðafélagið Hörgur gaf til mótsins.
Skákfélag Akureyrar stóð fyrir
útihraðskákmóti á dögunum í sam-
vinnu við Bókabúð Jónasar en þar
var keppt um farandbikar sem gef-
inn er af bókabúðinni. Gylfi Þórhalls-
son sigraði, vann allar níu skákir sín-
ar.
Útihraðskákmót við höfnina
Á morgun, föstudag, kl. 10 verður
haldið útihraðskákmót vestan við
Oddeyrarskála við Strandgötu, svo-
kallað Hafnarmót. Það er Hafnasam-
lag Norðurlands sem stendur fyrir
mótinu í samvinnu við Skákfélag Ak-
ureyrar. Þar sem skemmtiferðaskip
verða við bryggju og á Pollinum má
búast við að erlendir ferðamenn
verði á meðal þátttakenda.
Djasskvartettinn Peanut Factory.
Djass í
Deiglunni
DJASSKVARTETTINN Peanut
Factory leikur á heitum fimmtudegi
í Deiglunni í kvöld og hefjast tón-
leikarnir kl. 21:30. Kvartettinn var
stofnaður í október árið 1999 af
Hauki GröndaI,Stefan Pasborg og
Jesper Lovdal. í honum eru auk
Hauks Gröndals á saxófón þeir
Jesper Lövdal saxafónleikari, Jeppe
Skovbakke kontrabassaleikari og
Stefan Pasborg á trommur.
Aðgangur á tónleikana er ókeyp-
is og er fólki bent á að koma tíman-
Iega til að ná sór í sæti. Þess má geta
að þeir félagar leika einnig í Gamla
bænum á Hótel Reynihlíð föstudag-
inn 21. júlí og laugardaginn 22. júlí.
FímmtudagskvöU
tónlcíkar kl.22.
Túpflakarnír,
Síggíllluga
og Oddur
Bjantí ásamt
Wjómsveítínní Tíl baka.
Föstudags-og
laugardagskvöld
dansWjómsveítín KOS
GROHE
Eldhústæki
Grohe-vatn og vellíðan
Grohe
eldhústækin
eru með keramic
blöndunarhylki
OPH) ÖLL KWðLD Tll KL 21
JWiMETRO
Skeifan 7 • Sími S2S 0800
Framkvæmdir við fyrstu nýbyggingu Háskólans á Akureyri komnar vel á veg
Stærstur hluti hússins í
notkun í næsta mánuði
Morgunblaðið/Kristján
Fyrsta nýbygging Háskólans á Akureyri hefur risið á háskólasvæðinu á
Sólborg. Á myndinni eru Sigurgeir Arngrímsson hjá SJS verktökum og
Ólafur Búi Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Háskólans á Akureyri.
FRAMKVÆMDIR við fyrstu
nýbyggingu Háskólans á Akureyri
á Sólborg eru komnar vel á veg.
Nýja húsið er um 2.000 fermetrar
að stærð og sögn Ólafs Búa Gunn-
laugssonar, framkvæmdastjóra
HA, er stefnt að því að taka stærst-
an hluta þess í notkun í síðustu viku
ágústmánaðar nk. og hefja þar
kennslu.
í nýja húsnæðinu verða kennslu-
stofur, vinnuaðstaða fyrir kennara
og skrifstofur. Kennsluhúsnæðið er
í þremur álmum með átta kennslu-
stofum, sérhæfðu húsnæði fyrir
kennslu í hjúkrun og iðjuþjálfun
auk hópherbergja og tengjast álm-
urnar gangi sem tengir allt húsnæði
skólans saman.
SJS verktakar sjá um byggingu
hússins én fyrirtækið átti lægsta
tilboð í verkið sem boðið var út fyrir
rúmu ári. Tilboð SJS verktaka
hljóðaði upp á rúmar 247 milljónir
króna. Sigurgeir Arngrímsson hjá
SJS verktökum sagði verkið hafa
gengið nokkuð vel en þegar mest er
hafa, með undirverktökum, um 25
manns verið að vinna í byggingunni.
Sigurgeir sagði að nýbyggingin
væri nokkuð nýtískulegt hús í fram-
kvæmd. Það væri með álgluggum,
veggir væru sandsparslaðir, sem
væri ódýrara og að allar lagnir
væru utanliggjandi, í köplum og
rennum.
Framkvæmdir fyrir
rúman hálfan milljarð
SJS verktakar eru einnig að
byggja 7 hæða fjölbýlishús með 29
stúdentaíbúðum við Drekagil, fyrir
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri,
steinsnar frá háskólasvæðinu á Sól-
borg. Uppsteypu hússins er lokið og
framkvæmdir innanhúss komnar
vel á veg, að sögn Sigurgeirs en þar
hafa allt að 30 manns verið að störf-
um. Ráðgert er að Félagsstofnun
stúdenta fái 20 íbúðir í húsinu, sem
keyptar voru á þessu og síðasta ári,
afhentar í lok næsta mánaðar. Þá
hefur Félagsstofnun stúdenta for-
gangsrétt á leigu þeirra 9 íbúða sem
eftir eru en stefnt er að því að stofn-
unin eignist þær í framtíðinni.
I húsinu, sem er samtals um
2.200 fermetrar að stærð, eru 14
þriggja herbergja íbúðir, jafnmarg-
ar tveggja herbergja íbúðir og ein
einstaklingsíbúð. Þá er kjallari í
húsinu. Kostnaður við bygginguna
er um 200 milljónir króna.
Félagsstofnun stúdenta á fyrir 28
íbúðir og 26 einstaklingsherbergi í
fjórum húsum í bænum, þannig að
hér er um gríðarlega viðbót að ræða
í húsnæðismálum námsmanna.
Heildarkostnaður við nýbyggingu
HA og stúdentaíbúðirnar er áætlað-
ur vel á sjötta hundrað milljónir.
Þá hefur verið auglýst eftir ráð-
gjafa til að undirbúa útboð vegna
byggingar rannsóknarhúss við Há-
skólann á Akureyri. Stærð hússins
og framkvæmdatími hefur þó ekki
verið endanlega ákveðin. Hug-
myndin er að rannsóknarhúsið
verði ekki í eigu ríkisins, heldur
einkaaðila, sem mun þá leigja það
undir starfsemi HA og aðra rann-
sóknarstarfsemi.