Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Speight
sannspár
ÞJÓÐERNISSINNAÐIR uppreisn-
armenn á Fídjíeyjum fögnuðu því í
gær að þeim hefði tekist að koma í
veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórn-
ar á eyjunum, en þeir höfðu fengið
litla sem enga aðild að stjórninni.
Tuttugu ráðherrar og tólf aðstoð-
arráðherrar áttu að sverja embætt-
iseiða frammi fyrir nýjum forseta
eyjanna, Josefa Iloilo, í gærmorgun,
en forsetinn mætti ekki til athafnar-
innar eftir að leiðtogi uppreisnar-
manna, George Speight, hafði varað
við því að frekari óeirðir myndu
brjótast út ef athöfnin færi fram.
Laisenia Qarase, sem taka átti við
embætti forsætisráðherra, tilkynnti
að forsetinn væri „illa fyrir kallaður“
og að myndun nýrrar stjórnar hefði
verið frestað um ótilgreindan tíma.
Skömmu síðar yfírgáfu Speight og
menn hans þinghúsið, sem þeir hafa
haft á valdi sínu síðan 19. maí, og
settust að í skólahúsi í útjaðri höfuð-
borgarinnar, Suva, og ríkti mikill
fögnuður þar í gærkvöldi.
Uppreisnarmennirnir voru ósáttir
við hversu iýr hlutur þeirra í ríkis-
stjórninni átti að vera, en þeir segj-
ast berjast fyrir réttindum frum-
byggja á Fídjí og vilja að íbúum af
indverskum uppruna, sem eru í
minnihluta, verði meinað að taka
þátt í stjórn eyjanna.
Haft var eftir Speight á mánudag,
að væntanleg stjórn myndi sæta
andspyrnu, og að óeirðir væru yfir-
vofandi, og sagði hann þá „gamanið
rétt að byrja.“ Talsmaður Speights,
Joe Nata, varaði við því, áður en at-
höfnin átti að hefjast í gær, að ef rík-
isstjórnin tæki við myndi það leiða til
óeirða. „Ef ríkisstjórnin sver emb-
ættiseið mun það leiða til borgara-
styrjaldar. Þetta er ekki innantóm
hótun,“ sagði hann.
I leit að
betra lífi
HÓPAR ólöglegra innflytjenda
frá ýmsum Afríkuríkjum streyma
til Spánar á hverjum degi og
reyna þeir oftar en ekki hættu-
lega landgöngu við Gíbraltar-
sund. Einn slíkan hóp bar að landi
nærri bænum Tarifa á Suður-
Spáni í gær en lögreglumenn
komu umsvifalaust á vettvang og
skipuðu innflytjendunum að leggj-
ast á jörðina.
Rússneski auðkýfíngurinn Borís Berezovskí hættir formlega á þingi
Hús og landareign Gús-
inskís tekin eignarnámi
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKIR embættismenn hafa
lagt hald á hús- og landareign fjöl-
miðlakóngsins Vladimírs Gúsinkís að
Sól & sumarleikur
Werther's
og Toffifee
Settu stefnuna á
^qasgrill
1. vinningur
Ferð fyrir fjóra til
Benidorm í 1 viku
Samvinnuferðir
2.-4. vinningur
Char-Broil CB6000
gasgrilt að verðmæti
kr. 23.900.-
Aukavinningar
20 sælgætiskörfur
KAMlti KMtíSSON
Landsýn
Kauptu
Werther's
og Toffifee.
Taktu þátt í
spennandi
sumarleik í
næstu verslun.
Sendu þátttökuseöil ásamt kassakvittun til Karls K.
Karlssonar hf., Skútuvogi 5,104 Reykjavík.
Dregið í byrjun águst
þvi er lögmaður hans sagði í gær.
Fjölmiðlasamsteypa Gúsinskís,
Media-Most, sem rekur einu óháðu
fréttamiðlana sem ná til allra lands-
manna, hefur sætt rannsókn lögreglu
og skattayfirvalda vegna ásakana um
brot á einkarétti og fjárdrátt. Gúsins-
kí var færður til yfirheyrslu í síðasta
mánuði og er talinn hafa neitað að
svara saksóknurum. Hefur hann lýst
því yfir að aðgerðir lögreglunnar séu
hluti af aðför ríkisstjómar Vladimírs
Pútíns að fjölmiðlaveldi sínu. Fjöl-
miðlar í eigu Gúsinskís hafa verið af-
ar gagnrýnir á stefnu Pútíns forseta.
Saksóknarar hafa hins vegar neit-
að þvi að Kremlveijar hafi nokkuð
með málareksturinn að gera og segja
að framkvæmdavaldið sé ekki tengt
málinu.
Interfax-fréttastofan ræddi í gær
við Pavel Astakhov, lögmann Gúsins-
kís, sem sagði að yfirvöld hefðu tekið
landareign í bænum Chigasovo, rétt
fyrir utan Moskvu, og hús í eigu auð-
kýfingsins eignamámi.
Berezovskí hyggst
beijast gegn Pútín
Rússneski auðkýfingurinn Borís
Berezovskí hætti í gær formlega
þingmennsku í neðri deild rússneska
þingsins, dúmunni, og hét því að
halda áfram viðleitni sinni við að efla
samstöðu um að berjast gegn stefnu
Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta.
Berezovskí sagðist í lokaávarpi
sinu í dúmunni vera hryggur yfir að
hafa bmgðist þeim kjósendum sem
kusu hann í þingkosningunum í des-
ember sl. en sagðist jafnframt skilja
við dúmuna með „hreina samvisku og
miklum trega“. Hvatti hann þing-
menn til að taka veigamiklar ákvarð-
anir með hreinum og beinum hætti.
Þingmenn dúmunnar kusu um af-
sögn Berezovskís í gær og vom 346
þingmenn henni samþykkir en að-
eins fimm á móti. Er þetta í fyrsta
sinn frá hmni Sovétríkjanna að þing-
maður segir af sér í mótmælaskyni.
Eftir ávarpið í dúmunni ræddi
Berezovskí við fréttamenn þar sem
hann fordæmdi aðför Pútíns gegn
rússneskum kaupsýslumönnum og
héraðsstjómm í landinu. „Það er
þjóðþrifamál í dag að skapa sterka
andstöðu við stjómvöld. Menn era
fullar skilnings á því að aðgerðir
stjórnvalda skapa hættu fyrir samfé-
lag okkar. Við verðum að stöðva þau
og sýna þeim aðhald,“ sagði Ber-
ezovskí við fréttamenn fyrir utan
dúmuna.
Samtöl rússneskra
auðjöfra á netið
London. Daily Telegraph.
AFRIT af samtölum milli rússnesku
auðjöfranna em nú komin inn á netið
og sýnir það svo ekki verður um villst,
að njósnað hefur verið um þá í langan
tíma. Getur birtingin ekki komið á
betri tíma fyrir Vladímír Pútín, for-
seta Rússlands, en hann hefur heitið
að klekkja á auðjöfrunum.
Talið er, að samtölin séu ófölsuð en
þó hugsaniegt, að sumum „stað-
reyndum" hafi eitthvað verið hag-
rætt. Margar vikur tæki að lesa öll
skjölin og myndin, sem þau gefa af
ríku mönnunum í Rússlandi, er ekki
fögur. Þar ber græðgina hæst en þeir,
sem hafa áhuga á vita hver drap
hvem; hvernig embættismenn fara að
því að snúa sér út úr glæparannsókn
eða hver útvegaði háttsettum manni
vændiskonur, þurfa ekki að leita
lengra.
Fram kemur, að einn auðjöfurinn
var eltur frá Luton-flugvelli í Eng-
landi til húss í Kensington og upplýst
er um skrásetningamúmer bifreið-
anna og bílstjóramir nefndir á nafn.
Sumar upplýsinganna em fremur
sóðalegar en aðrar beinlínis bamaleg-
ar þar sem stundum eingöngu vegið
að íbúðum auðjöfranna eða vinnustað.
Haft er eftir Sergei Sokolov, rúss-
neskum vefritstjóra, að njósnað sé
um mikinn fjölda manna í Rússlandi.
Þar sé um að ræða 10 opinberar leyni-
þjónustustofnanir og um 20 einka-
reknar og allar bijóti þær lög.
Sprenging eignuð ETA
Yitoria, Madríd. AFP, Reuters.
SPRENGING varð í gær í verslun-
arhúsnæði í bænum Vitoria í Baska-
landi og eyðilagðist byggingin vem-
lega í þessu fjórða tilræði á sjö
dögum sem rakið er til aðskilnaðar-
hreyfingar Baska (ETA).
Sprengjan sprakk stuttu eftir mið-
nætti, aðfaranótt miðvikudags, þeg-
ar húsið og götur vom að mestu
mannlausar og hafði dagblaði í Vi-
toria og lögreglunni verið gert við-
vart áður. Maðurinn sem hringdi og
lét vita af tilræðinu sagðist vera full-
trúi ETA.
Enrique Villar, fulltrúi spænskra
stjórnvalda í Baskalandi, sagði við
fréttamenn á tilræðisstaðnum í gær
að hann vissi ekki hvert hafi verið til-
efni árásarinnar. „Þeir þurfa ekki
neitt tilefni. Þeir hata svo marga
hluti að þeir verða að sýna fram á
það með þessum hætti,“ sagði Villar.
Sprengja finnst í Malaga
Sprengja fannst í bifreið í eigu
Jose Asenjo, framkvæmdastjóra
Sósíalistaflokksins í Malaga, í gær,
aðeins nokkrum dögum eftir að
borgarráðsmaðurinn Jose Maria
Martin Carpena var skotinn til bana
af vígamönnum ETA, að konu sinni
og dóttur á unglingsaldri ásjáandi.
Lögreglusveitir lokuðu nálægum
götum og eyddu sprengjunni í gær.
Talið er að þessi síðasta hrina of-
beldisaðgerða ETA eigi rætur í
harðari stefnu aðskilnaðarsinna við
að sækja sjálfstæði Baskalands.