Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 25 FERÐALÖG Morgunblaðið/Hrefna Þau sem standa að rekstri Brekkubæjar eru frá vinstri: Bryndís, Guðlaugur, Guðrún og Guðríður. Byggt við gistiheim- ilið á 58 dögum Hcllissandur NYLEGA var tekin í notkun sex herbergja viðbygging á gistiheimil- inu Brekkubæ á Hellnum í Snæ- fellsbæ. Það tók tæpa tvo mánuði að koma þessari byggingu upp en frá því hafist var handa við grunn- inn og þar til fyrstu gestirnir fengu inni liðu 58 dagar. I fréttatilkynn- ingu segir að öll herbergin séu tveggja manna og með sturtu. A gistiheimilinu er unnið eftir mót- aðri umhverfisstefnu og er það nú aðili að vottunarstefnu Green Globe 21, sem vottar sjálfbæra ferðaþjón- ustu um allan heim auk þess að vera aðili að Ecotourism Society sem stuðlar að sjálfbærri ferða- þjónustu. Rekstraraðilar gistiheim- ilisins eru Guðríður Hannesdóttir, Bryndís Sigurðardóttir, Guðrún Bergmann og Guðlaugur Berg- mann. Við Brekkubæ er einnig tjaldstæði og salur með svefnpoka- plássum en í vor var unnið að end- urbótum á ferðamannaaðstöðunni og eru þar nú sturtur og þvottavél. Gönguferð og staðarskoðun í Viðey HELGARGANGAN í Viðey verður að þessu sinni um Vestureyna. Far- ið verður með Viðeyjarferjunni kl. 14, en gangan hefst við kirkjuna kl. 14.15. Gengið verður framhjá Klausturhól, um Klifið, yfir Eiðið og síðan með suðurströnd Vestur- eyjar. Áfangar, listaverk R. Serra, verður skoðað. Einnig verða tveir steinar skoðaðir, annar með áletrun frá 1810, en hinn frá 1842. Þá eru þarna gömul ból lundaveiðimanna og ýmislegt fleira að sjá. Viðey og örnefni eyjunnar eiga sér skemmtilega sögu og fróðleik, sem reynt verður að draga fram í dagsljósið á göngunni. Eftir það verður gengið heim að kirkju aftur. Gangan tekur um tvo tíma. Fólk er beðið að búa sig eftir veðri, einkum til fótanna. Gjald er ekki annað en ferjutollurinn, sem er kr. 400 fyrir fullorðna og kr. 200 fyrir börn. Á sunnudag hefst staðarskoðun kl. 14.15. Sögð verður saga Viðeyjar og kirkjan skoðuð. Þá verða einnig sýndir merkisstaðir umhverfis Við- eyjarstofu. Staðarskoðun tekur um það bil eina og hálfa klukkustund. Klaustursýningin í Viðeyjarskóla er opin frá kl. 13.20 til 17.10 báða dagana. Þeim sem vilja er boðið upp á bílferðir þangað eftir komu ferjunnar kl. 13, 14,15 og 16. Aðgangur að klaustursýningunni er ókeypis, en sýningarskrá er á boðstólum sem kostar 400 krónur. Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er opið um helgina. Þar stendur yfir sýning á fornum, rússneskum helgi- myndum, íkonum og róðukrossum. Hestaleigan er að starfi og reiðhjól eru lánuð án endurgjalds við bryggjusporðinn í Bæjarvör. Loks skal vakin athygli á því, að tjaldstæði eru leyfð í Viðey end- urgjaldslaust. Sækja þarf um leyfi til ráðsmanns, sem síðan aðstoðar fólk við flutning á farangri frá og að bryggju. Ff»sfre.(si A ISLANDI! Frelsið er yndislegt ,nn - fyrir allt hugsandi fólk! Þú getur bókað allan sólarhringinn Samvinnuferðir Landsýn A varOi fyrir Þigl Gisting og veit- Eyrnalokkagöt insfar í Dalbæ Skjaldfönn ^ HJÓNIN Ingólfur Kjart- Hjónin Ingólfur Kjartansson og Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir ásamt börnum. Morgunblaðið/Kristbjörg Lóa ansson og Jörgína Elín- björg Jónsdóttir háfa komið upp ferðaþjónustu í samkomuhúsinu Dalbæ í Unaðsdal á Snæfjalla- strönd við ísafjarðardjúp. Á árunum 1972 til 1977 réðst Átthagafélag Snæ- fjallahrepps í að byggja samkomuhúsið Dalbæ og átti það að þjóna því hlut- verki að vera samkomu- staður fyrir heimamenn. Nú hefur hlutverki húss- ins verið breytt og það leigt til ýmissa nota auk samkomuhalds, meðal annars er það vinsælt hjá vélsleðamönnum yfir vetr- artímann. Hjónin Ingólfur og Jörgína Elínborg hafa nú tekið húsið á leigu yfir sumartímann, frá 20. júni til 20. ágúst, og bjóða þar upp á gistingu og veitingasölu. Hægt er að fá gistingu með uppá- búnum rúmum eða svefnpokaplássi og því fylgir morgunverður. Þá er tjaldsvæði fyrir þá sem vilja. Hægt er að fá létta rétti í hádeginu og síðan kaffi og heimabakað bakkelsi en sú þjónusta hefur mælst hvað best fyrir það sem af er. Frá Unaðsdal er gjarnan lagt upp í gönguferðir um Jökulfirði og Horn- strandir og Dalbær því tilvalinn staður fyrir ferðalanga að hvílast áð- ur en lagt er upp í lengri ferðir eða að þeim loknum. Náttúrufegurð í ná- grenninu er mikil og gönguleiðir miklu fleiri en þessar eins og inn í Kaldalón, að Drangajökli eða út með ströndinni að Möngufossi. Við Dalbæ er einnig flugvöllur og bátabryggja skammt frá. Hjónin leggja kapp á að gera Dal- bæ sem heimilislegastan, verði er stillt í hóf og því reynt að hafa íburð sem minnstan. Þessa dagana eru þau að viða að sér gömlum myndum af liðnum at- burðum, vinnulagi manna og húsa- kostum, til að prýða veggi hússins og væru slíkar myndir vel þegnar ef einhverjir ættu þær í fórum sínum og gætu hugsað sér að láta þær af hendi. í Heilir sturtuklefar Nú einnig 100 gerðir af eyrnalokkum 3 stœrðir árgreiðslustofan apparstíg (simi 5513010) Sturtuklefar heilir með 4 hliðum, sturtubotni og sturtusetti. Stærðir 70x70, 80x80 90x90 og 72x92 _ Bæði ferkantaðir og júýá bogadregnir. tÉt VATNSVIRKINN ehf v Ármúla 21,533 2020. > Reykjavík, f laugardal fös. 21/7 kl. 19 - lau. 22/7 kl. 17 og 19 sun. 23/7 kl. 17 og 19 - mán. 24/7 kl. 19 þri. 25/7 kl. 19 - mið. 26/7 kl. 19 fim. 27/7 kl. 19 - fös. 28/7 kl. 19 SelfQSS lau. 29/7 kl. 19 - sun. 30/7 kt- 17 HÖfn mán. 31/7 kl. 19 - þri. 1/8 kl. 17 Seyðisfjðrður mið. 2/8 kl. 19 Miðasala opin daglega frá klukkan 14 FERÐAMÁLARÁÐ Ky N NlR Hvað aðgerast0 í landinu. Dagskrá vikuna 20.-26. júlí Hornafjötður Jöklasýning. Sýningarsalir á Höfn og í þjóSgarSinum í Skaftafelli. ýmislegt að sjá þarfrá 20. maí - 20. september. Hvolivöllur Sýning. Söguveisla. Sögusetrið á Hvolsvelli. Maí - ágúst. Hólmavík Galdrasýning á ströndum. 23. júní - 31. ágúst. Víða um land List í orkustöðvum. Jání - september. Hafnarfjörður Krýsuvík — samspil manns og náttúru. Maí - ágúst. Reykholt Sýning. „Atök í heiðní og kristni hjá Snorra". Maí - ágúst. Við Geysi Geysisstofa. Fræðasetur um jarðfræði og fl. við Geysi í Haukadal. 20. júlí fi mmtudagur Reykjovík Iþróttir. Valin fótbolta- og körfuknattieikslið frá menningar- borgum Evrópu árið 2000 hittast ogspilasaman. 20.-23. júlí. 21. júlíföstudagur SeySisfjörSur Norskir dagar. Norskir listamenn sýna. 21. -23. júlí. Skálholt Hátíð. Skálholtshátíð. Samkirkjuleg hátíð. Tónlist, kynning kirkjunnar, hátíðarmessa, varðeldur, barna- dagskrá, fjöiskyldudagskrá og útitónleikar. 21.-23. júlí. 22. júlí laugardagur Húsavík 50 ára afmæti Húsavíkur. Aðalafmælishátíð Húsavíkurbæjar. ýmsir viðburðir, forseti Islands verður viðstaddur hátíðarhöldin. 23. júlí sunnudagur Reykjavík Tónleikar. Sumarkvöld við orgelið. Hallgrímskirkja. Akureyri Tónleikar. Sumartónleikar í Akureyrarkirkju. Stykkishólmur Tónleikar. Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju. 25. júlí þriðjudagur Stykkishólmur SkrúSganga og sýning. Skjern-garden dönsk lúðrasveit. Listinn er ekki tæmandi. LeitiS nánari upplýsinga á upplýsingamiSstölvum sem eraS finna víSa um land.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.