Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 40

Morgunblaðið - 20.07.2000, Side 40
4fl FIMMTUDAGUR 20, JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Margrét Halldórsdóttir, Axel Jónsson, Bergljót Halldórsdóttir, Leifur ísleifsson, Ásdís Halldórsdóttir, Kristján Eyjólfsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, DAGNÝ JÓNSDÓTTIR, Hraunbæ 58, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 17. júlí sl. Jarðsungið verður frá Árbæjarkirkju föstudaginn 28. júlí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Minningarsjóð Heiðar Baldursdóttur, KHÍ, sími 563 3800. Hörður S. Óskarsson, Ómar S. Harðarsson, Ingibjörg Kolbeins, Harpa Harðardóttir, Anna Borg Harðardóttir, Jón Gunnar Grjetarsson, Óskar S. Harðarsson, Arndís Kristleifsdóttir, Jón Hugi S. Harðarson, Elsa J. Björnsdóttir og barnabörn. Ragnhildur Jónsdóttir, Rúnar E. Geirsson, Þórhildur B. Einarsdóttir, Sæmundur Guðmundsson, Elsa G. Friedlander, barnabörn og barnabarnabörn. t " Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ferjubakka, síðast til heimilis á Miðbraut 1, Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi föstudaginn 14. júlí síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 21. júlí kl. 14.00 t Elskulegur faðir, tengdafaðir og afi, TRAUSTI MARINÓSSON frá Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 12. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11 -E á Landspítalanum fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Ómar, Marinó, Ólafur, Guðrún, Matta og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KARL HJALTASON handavinnukennari, Einilundi 8D, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 13. júlí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 21. júlí klukkan 13.30. - Þeir, sem vilja minnast hans, láti líknarfélög njóta þess. ¥ Guðlaug Pétursdóttir, Haraldur Karlsson, Aldís Jónsdóttir, Sverrir Karlsson, Anna Karlsdóttir, Anton Valgarðsson, Sigurbjörg Karlsdóttir, Ómar Sigurðsson, Elísabet Karlsdóttir, Þóra Karlsdóttir, Rúnar Russel, barnabörn og barnabarnabörn. JOHANNA SIGRIÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR + Jóhanna Sigríð- ur var fædd í Hafnarfirði 3. júlí 1925. Hún lést á Elli- heimilinu Grund 7. júlí síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Katrínar Markús- dóttur, f. 29.3. 1900, d. 31.3. 1967, og Þor- geirs Sigurðssonar, f. 24.6. 1902, d. 8.6. 1972. Systkini Jó- hönnu: Markús, f. 14.8. 1924, d. 24.11. 1984; Alda, f. 24.10. 1929, d. 26.7. 1989; Gestheiður, f. 27.2. björg, f. 24.9. 1935; brún, f. 27.9. 1942. Jóhanna giftist 15.3. 1958 Jó- hannesi B. Einarssyni, bifvéla- 1931; Ingi- Edda Kol- Það rennur margt í gegnum huga minn þegar ég skrifa hér nokkur kveðjuorð fyrir hönd systra minna og mágkonu um Hönnu okkar. Fimm ára barátta við illvígan sjúk- dóm er á enda. Hanna var fremur heilsuhraust, ég minnist þess varla að hún hefði verið veik um dagana. Hanna fór snemma að taka til hend- inni og létta undir á heimili foreldra sinna með pössun á yngri systrum, þeim Öldu og Deddu, og með öðrum verkum sem til féllu. Hanna systir mín er 10 ára og nokkrum vikum bet- ur þegar ég sem þetta skrifa fæðist. Á þessum árum bjó fólk yfirleitt í litl- um húsakynnum og var það svo hjá foreldrum okkar. Þau höfðu eitt her- bergi og eldhús og á þessum tímum fæddu konur böm sín heima. Hanna mundi þess vegna vel þegar ég kom í þennan heim, fjórða systirin. Hanna var einnig send í sveit á sumrin og var í ýmsum snúningum, bæði innandyra og einnig við úti- störf. Hún var hjá móðurömmu okk- ar sem bjó í Ystu-Görðum í Kol- beinsstaðahreppi ásamt móður- bræðrum okkar. Á þessum ámm vom böm send í sveitina þegar skóli var búinn á vorin og komu aftur þeg- ar haustaði og skólaganga hófst að nýju. I þessari sveitavem lærði ungl- ingurinn að umgangast dýrin, þykja vænt um þau og umgangast þau af nærgætni, einnig að kynnast öllum sveitastöram sem vora þroskandi og líka mikilvæg fyrir alla að takast á við og lærdómsrík. Hanna var tvö sumur hér í Hafnarfirði í vist hjá mjög góðum hjónum að passa tvö börn þeirra, þá var hún 15-16 ára gömul, og minntust þau oft á hana við mig því ég kynntist þeim vel í gegnum mína tengdaforeldra, því þau voru miklir kunningjar þeirra. Alltaf báðu þau mig að senda Hönnu þeirra kveðju, svo vel líkaði þeim við hana. Hanna flytur úr foreldrahúsum þegar hún er 18 ára gömul ogfór hún þá til móðursystur sinnar, Ástu, og Ólafs, manns hennar, og fær þar fæði og húsnæði, því þá fer hún að vinna hjá Kaffíbrennslu O. Johnson & Kaaber í Reykjavík. Hanna vann í Kaffibrennslunni í 13 ár. Þegar móð- ir okkar veikist, orðin mikill sjúkling- ur í kringum árið 1950, kom Hanna systir alltaf til Hafnarfjarðar til að hjálpa til heima með alla þvotta og hreingerningar og taldi hún þetta ekki eftir sér. Fannst mér alltaf gam- an þegar Hanna kom og við hjálpuð- umst að með verkin og þá var oft mikið skrafað og hlegið. Hanna er 26 ára þegar hún flytur frá Ástu og Ólafi, þá fer hún til hjón- anna Lóu og Gils sem þá bjuggu á Kjartansgötu 8 í Reykjavík og þar fær hún herbergi og fæði með því að hjálpa þeim með þvotta og tiltekt í íbúð þeirra, því þau hjón voru bæði fötluð, Lóa var með skaddaða mjöðm og Gils með fötlun á vinstri hendi. Þessi hjón reyndust systur okkar eins og foreldrar meðan hún bjó hjá þeim og bjó Hanna í þeirra húsum um fimm ára tímabil. Hanna systir okkar hafði mjög gaman af að dansa og stundaði mikið gömlu dansana í Gúttó og í gömlu virkja, f. 8.10. 1918, d. 7.4. 1995. Synir þeirra: 1) Flosi Már, f. 1.5. 1958, kvæntur Örnu Friðriksdótt- ur, synir þeirra eru Guðmundur, Eðvar Már og Aron Freyr, þau eiga tvær. son- ardætur. 2) Gunnar Þór, f. 12.3. 1962, kvæntur Sigurborgu Vilhjálmsdóttur, dætur þeirra eru: Helen og tvíbura- systurnar Rebekka Líf og Telma Sif. Einnig á Gunnar dótturina Dagnýju úr fyrra hjónabandi. Utfor Jóhönnu Sigríðar fór fram frá Frikirkjunni í Reykjavík 14. júlí. Mjólkurstöðinni, þegar hún var ung stúlka og uppá sitt besta. Ég minnist þess þegar ég var 15 ára að þá bauð hún mér með sér í Gúttó að sjá sýn- ingu, því hún hafði verið valin í hóp fólks sem sýndi dansinn lanser sem þá var mikið dansaður og var þetta meiri háttar dans, fágaður og falleg- ur og vora fáir sem náðu að læra þennan dans og alger unun á að sjá systur mína taka þátt í þessu. Hanna mín naut þess tíma þegar hún gat stundað gömlu dansana. Það var Mka gaman þegar þau tóku danssporin saman, Markús bróðir og Hanna, sjá þau sveiflast um gólfið í léttum valsi. Síðast er ég sá þau svífa í góðri danssveiflu systkinin var þeg- ar fermdust hjá okkur fjórum systr- um fimm systrabörn vorið 1976 og var veislan í Iðnaðarmannahúsinu í Hafnarfirði. Þetta var ógleymanleg stund og held ég að þetta sé með síð- ustu dönsum sem Hanna mín dans- aði, en þetta geymist nú í minning- unni. Hanna var mikið fyrir útsaum og prjón og saumaði mikið út, fallegar myndir, púða, veggteppi og fallegu rennibrautina sem prýddi heimili hennar. Einnig fallegu útprjónuðu peysurnar sem synir hennar, Flosi og Gunni, klæddust, marglitar og vora þeir alltaf svo fínir í þessum flíkum. Hanna vann utan heimilis alla tíð, hún var í skúringum hjá Brunabótafélagi Islands í nokkur ár, en árið 1977 byrjar hún að vinna hjá Landsbankanum í Austurstræti og vinnur þar til haustið 1994 að hún hættir, þegar Jóhannes maður henn- ar veikist. Hanna hafði ávallt mikið síma- samband við okkur systur og einnig við Rakel, mágkonu sína, einnig systkinabörnin sín, fá fréttir og líka að fylgjast með hvernig öllum gengi í því sem þau vora að fast við og þeim íiði vel. Þessu hélt hún áfram eftir að hún veiktist og var komin á Elliheim- ilið Grand, því hún hafði þar símann hjá sér. Þegar henni hrakaði fyrir fimm vikum og var flutt á sjúkra- deildina var skrítin tilfinning að fá ekki fleiri hringingar frá Hönnu systur og mágkonu. Það var fallegur afmælisdagurinn hennar, 3. júlí síðastliðinn, sól skein inn um gluggann á sjúkrastofunni hennar þegar við Dedda og ég kom- um til hennar. Synir hennar og fjöl- skyldur vora þar komin, falleg blóm á borðinu hennar, sem hún var búin að fá í tilefni dagsins. Hún var mjög glöð og ánægð með að hafa okkur öll þarna hjá sér, reyndi að gera að gamni sínu þótt hún væri orðin mikið veik. Hún þráði að verða 75 ára og henni varð að ósk sinni, en fjóram dögum síðar var lífsljós hennar út- brannið. Hún lést í faðmi drengjanna sinna og tengdadætra sem hafa sýnt elsku móður og tengdamóður sinni mikla ást og umhyggju í þessari löngu rimmu við illvígan sjúkdóm sem vora fimm löng ár. Ég vil svo fyrir hönd okkar systra og mágkonu og fjölskyldna okkar þakka Hönnu okkar öll samvistarár- in með henni, minningin lifir í hjarta okkar. Elsku Hanna okkar, Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guð geymi þig. Kæra Flosi og Gunnar og fjöl- skyldur ykkai-, við vottum ykkur innilega samúð við fráfall elsku móð- ur, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu. Góður Guð styrki ykkur og blessi. Gestheiður, Ingibjörg, Edda Kolbrún og Rakel. KRISTIN STEFÁNSDÓTTIR + Kristín Stefáns- dóttir fæddist í Gröf í Svarfaðardal 12. nóvember 1913. Hún andaðist á Dal- bæ Dalvík 7. júlí síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Stef- áns Arngrímssonar og Filippíu Sigur- jónsdóttur í Gröf. Voru foreldrar Kristínar báðir Svarfdælingar. Systkini Kristínar voru Anna Arnfríður sem nú er látin og Arngrímur Sigurjón bifvélavirki á Dalvík sem lifir systur sína. Kristín giftist 25. desember 1936. Eiginmaður hennar var Sig- týr Sigurðsson bifr.stjóri og kaup- maður á Dalvík, f. 5. október 1906, d. 28 nóvember 1983. Börn Krist- ínar og Sigtýs eru Sigurður Arn- ar, f. 1938, og Sævar, f. 1939. Útför Kristínar fór fram frá Dalvíkurkirkju 14. júlí. Síðasta dag lífs þíns hér á jörð sat ég stund við rúmið þitt og strauk smáa og æðabera hönd meðan þú blundaðir. Þú hafðir svo fallegar hendur, hvítar og fínlegar. Samt vora þessar sömu hendur alltaf vinn- andi. Þú sast aldrei með þær í skauti þér verkefnalausar. Synir þínir minnast þess að sitja við hlið þér að læra að lesa. Prjón- arnir þínir tifuðu jafnt og þétt og ef ykkur rak í vörðurnar stoppuðu þeir andartak til að fylgja línunni sem lesin var eða benda með léttum áslætti á það sem betur mátti gera. Sem tengdadóttir á heimili þínu man ég þig horfandi á sjónvarpið eða lesandi í bók á með- an prjónarnir eða heklu- nálin gengu. Barnabörn þín bára vitni um mynd- arskap þinn og í dag prýða heimili þeirra fagrir hlutir gerðir af þessum fallegu höndum. Þegar heilsan bilaði og líkaminn þoldi ekkert hnjask hélstu þó áfram að vinna handavinnu og þá voru ekki fá barnasængurfötin sem langömmubörnin fengu saumuð af styrkum höndum og næmu auga fyrir því sem fallegt var. Löngu eftir að kraftar þínir voru að mestu horfnir vann þinn sterki vilji áfram að stjórna þessum hönd- um. Verkin urðu smærri og einfald- ari en ætíð jafn vel gerð. Þú vaknaðir af blundinum og ég spurði: „Viltu segja mér hvenær þú áttir þína bestu daga?“ Þú horfðir á mig stund og með þeirri reisn sem alltaf prýddi þig svaraðir þú lágri en styrkri röddu: „Ég átti alltaf gott líf.“ Ég veit að við, fjölskylda þín, voram hluti af þessu góða lífi og gleðin í svip þínum, þegar við birt- umst í dyranum þínum er dýrmæt minning. Kærar þakkir fyrir allt. Málfríður Torfadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.