Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 41

Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JULI 2000 41 MINNINGAR YNGVI KJARTANSSON + Yngvi Kjartans- son fæddist á Ak- ureyri 7. aprfl 1962. Hann lést á Akureyri 6. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 14. júlí. Með fáeinum orðum vil ég minnast góðs kunningja og sam- starfsmanns, þar sem var Yngvi Kjartansson blaða- og útvarpsmað- ur er lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akur- eyri 7. júlí sl. Leiðir okkar Yngva lágu saman á Akureyri um miðbik níunda áratug- arins og það afréðst að hann tók að sér ritstjórn Norðurlands og gegndi því starfi um tveggja og hálfs til þriggja ára skeið. I reynd fólst í starfinu nánast allt sem því viðkom að koma út blaði af því tagi sem Norðurland þá var, pólitískt landsmálablað með nokkuð reglu- lega útkomu á hálfs mánaðar til þriggja vikna fresti. Yngvi var sem sagt allt í senn ritstjóri, blaða- maður, auglýsinga- stjóri, ljósmyndari og þar fram eftir götun- um. Starfinu gegndi Yngvi af stakri sam- viskusemi og ávann sér traust og vináttu þeirra sem með honum komu að verkefninu. Helst minnist ég þess að Yngva þætti óþægilegt að hafa ekki meiri tíma og betri að- stæður til vandaðrar efnisöflunar og úrvinnslu en slíkur fátæktarbúskapur einyrkjablaðaút- gáfu bauð uppá. Það beygðist því snemma krókurinn hjá honum í átt til vandvirkni og fagmennsku sem átti eftir að einkenna hann sem blaða- og útvarpsmann æ síðan. Sérstaklega nutu þessir eiginleikar hans sín vel í dagskrárgerð og þeg- ar viðfangsefnið var þjóðlegur fróð- leikur, náttúra og saga landsins eða annað þvíumlíkt. Yngvi var vel les- inn og glöggur og hefði hrein fræði- mennska á þessum sviðum eflaust legið vel við fyrir hann ef sú hefði orðið raunin. Á sama tíma og Yngvi starfaði að útgáfu Norðurlands stofnaði hann sína fjölskyldu, hann kynntist eftir- lifandi eiginkonu sinni Bryndísi og tvíburarnir fæddust. Við samstarfs- fólk hans á þeim vettvangi fylgd- umst því vel með því tímabili 1 lífi fjölskyldunnar ungu. Ritstjórinn var stundum lítt sofinn eftir and- vökunætur yfir veiku barni þegar drífa þurfti út blað, t.d. í kosninga- baráttunni veturinn 1987, en það gerði ekkert til því lífið blasti við. Uppúr þessu fækkaði samveru- stundum, Yngvi hvarf til frekara náms og annara starfa. Alltaf hélst þó samband á milli okkar og um nóg var að spjalla þegar leiðir lágu sam- an. Seinast hittumst við óvænt á Reykjalundi á sl. ári og var Yngvi ótrúlega samur við sig með gaman- yrði á vörum þrátt fyrir allt sem hann hafði mátt reyna í glímunni við andstæðing sem nú hefur sigr- að. Eg minnist Yngva Kjartanssonar með þakklæti og söknuð í huga og votta eftirlifandi eiginkonu, börn- um og öðrum aðstandendum samúð mína og fjölskyldu minnar. Steingrímur J. Sigfússon. GUÐRUNS. KONRÁÐSDÓTTIR + Guðrún Sigríður Konráðsdóttir fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1919. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 11. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Konráð Benjamfn Oddsson og Þuríður Gunn- laugsdóttir. Guðrún átti þijú systkini sem öll eru látin. Eftirlif- andi eiginmaður Guðrúnar er Pétur Jónsson vélvirki og kennari við Iðnskólann í Reykja- vfk til margra ára, fæddur 9. júní 1921. Hún giftist Pétri 8. maí 1942 og bjuggu þau í Reykjavík öll sín hjúskaparár. Böm þeirra eru: 1) Guðrún Margrét, f. 4.2. 1942, maki Illugi Óskarsson, börn Pétur Konráð, Eygló, Elín, Óskar. 2) Kristín Thea, f. 15.2. 1945, dóttir Guðrún Sigríður. 3) Þuríður Auð- ur, f. 6.1. 1947, maki Gordon Chumkian, böm Gordon Josef, Danfel Pétur, Christa. 4) Iljördís, f. 28.8. 1950, synir Pétur, Eirfkur, Hilmar Freyr, samb.maður Bjöm Hafsteinsson. 5) Hrönn, f. 24.5. 1952, maki Jóhann Ásberg Eiríks- son, börn Sævar Þór, Jóhann Pét- ur, Jóna Margrét. 6) Þóra, f. 12.12. 1953, maki Guðni Grétar Guðna- son, d. 7.2. 1981, börn Ragnheið- ur, Viðar Örn, Guðný Gréta, samb.maður Ólafur Rögnvalds- son, dóttir Dóra Björk. 7) Sigurð- ur, f. 30.6. 1957, maki Jónfna Sig- ríður Magnúsdóttir, synir Magnús Guðberg, Konráð Vignir, Birkir Þór. 8) Jón, f. 20.1.1959. Guðrún var jarðsungin í kyrr- þey frá Fossvogskapellu þriðju- daginn 18. júlf. sé orðin 46 ára - að hugsa um það að enginn kallar mig litlu stelpuna sína aftur, en tmlega var ég það í huga þínum fram á síðasta dag. Þú varst frábær móð- ir, amma og langamma og hugsaðir vel um stóra hópinn þinn sem er orðinn nokkuð fjöl- mennur, alls 45 afkom- endur sem allir fengu sinn sess í hjarta þínu sem alltaf virtist hafa pláss fyrir einn í viðbót. Hún amma í Árskógun- um var í miklu uppáhaldi hjá öllum barnabömunum og eiga þau mjög erfitt núna, en tíminn læknar sárin og minningin um þig kemur til með að ylja okkur í framtíðinni. Elsku pabbi, þú sem hugsaðir um mömmu af svo mikilli natni og ást síðastliðin ár að ekki var hægt annað en dást að því hvað þú varst duglegur og um- hyggjusamur. Hjónaband ykkar var langt og farsælt og er missir þinn mikill. Eg vona að Guð styrki þig og systkini mín á þessum erfiða tíma. Margseraðminnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Núna er hún elsku amma okkar farin og söknum við hennar óskap- lega mikið. Söknum litlu sætu ömmu okkar sem var svo mikil puntrófa, með bleika varalitinn og bleiku negl- urnar. Söknum að sjá ekki brosið hennar og hversu auðvelt var að koma henni til að hlæja. Söknum gullmolanna sem komu frá henni. Söknum að fá ekki að koma við litlu hendurnar hennar. Söknum þess að sjá hana ekki sitja í eldhúsinu í Ár- skógunum. Söknum þess að sjá ekki unglingsástina sem var á milli afa og ömmu, þau voru alltaf svo skotin hvort í öðru. En við eigum minningarnar um þig, elsku amma, sem okkur þykir svo vænt um. Elsku amma, við vitum að núna líð- ur þér betur en undanfarið og að ást- vinir þínir hafa tekið vel á móti þér, bless elsku amma. Elsku afi, Guð styrki þig og börnin ykkar í sorginni. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, ogallterorðiðrótt, núsællersigurunninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að stójja, enþað erGuðsaðvilja, og gott er allt, sem Guðí er frá. (V. Briem.) Þín bamabörn, Ragnheiður, Viðar Öm, Guðný Gréta og Dóra Björk. Þín dóttir, Þóra. Elsku mamma mín, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum, en hjarta mitt er fullt af sorg og söknuði og það er undarleg tilfinmng þótt ég H H Erfisdrykkjur P E R L A N H H Sími 562 0200 iiiiiiriiiixiii£ Þegar andlát ber að höndum Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Önnumst alia þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan 7' sólarhringinn. í ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF, Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja + Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, VALTÝR JÓNSSON, Gautlandi 9, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 19. júlí. Ósk Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + SIGURÐUR JAKOB MAGNÚSSON, Aðalgötu 15, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 21. júlí kl. 14.00. Kristborg Níelsdóttir, Guðlaug Rósa Sigurðardóttir, Magnús Níels Sigurðsson. + Okkar ástkæri JÓHANN ST. GUÐMUNDSSON, Hæðargarði 38, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 10. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Þökkum vinarhug og samúð. Ingigerður Helgadóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Þorgerður Jóhannsdóttir, Herdís Jóhannsdóttir, Einar M. Nikulásson, Gunnar Már Jóhannsson, Helga J. Steindórsdóttir og fjölskyldur. + Frændi minn, JÓN THEODÓR LÁRUSSON, sem lést mánudaginn 17. júlí sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. júlíkl. 15.00. Lárus H. Bjarnason. -I- + Við fráfall og útför GUÐMUNDAR HALLDÓRS GUNNLAUGSSONAR, Móavegi 11, Njarðvík, viljum við þakka þeim fjölmörgu, sem sýndu minningu hans virðingu og fjölskyldunni hlý- hug og samúð. Sérstakar þakkir til sr. Baldurs Rafns Sigurðssonar og söngfólks Ytri-Njarðvíkurkirkju Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ruth Vita Gunnlaugsson. + Innilegar þakkir til allra, sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ÁSTU SIGRÍÐAR ÞORKELSDÓTTUR, Lækjarsmára 6, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á Landspítalanum og líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Einar Karlsson og fjöiskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.