Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Rútubíl-
stjóri
- grunaður
um ölvun
LÖGREGLAN á Akureyri
stöðvaði í gærmorgun ökumann
hópferðabifreiðar grunaðan um
ölvun við akstur. Bílstjórinn var
á ferð á Hörgárbraut, rétt fyrir
norðan Akureyri, en í rútunni
voru nítján farþegar.
„Ökumaður hópferðabifreið-
arinnar mældist vel yfir leyfileg-
um mörkum er tekin var mæling
af honum með öndunarprófs-
mæli,“ sagði Gunnar Rnutsen
hjá lögreglunni á Akureyri, en
eftir að bifreiðarstjórinn var lát-
inn blása var farið með hann í
blóðprufu og fenginn annar öku-
maður. Nítján farþegar voru í
rútunni. Að sögn Gunnars taldi
lögreglan að bifreiðarstjórinn
hefði neytt áfengis kvöldið áður
og farið of snemma af stað um
morguninn.
Samningur Samskipa og Eimskips um Ameríkuflutninga rennur út 1. ágúst
Vilja fá lengri frest hjá
Samkeppnisstofnun
FORRÁÐAMENN Samskipa íhuga
nú hvernig haga megi í framtíðinni
flutningum fyrirtækisins til Banda-
ríkjanna. I byrjun árs 1997 sömdu
Samskip og Eimskip um Ameríku-
siglingar en samkeppnisyfirvöld
töldu samninginn brjóta í bága við
samkeppnislög og veittu fyrirtækj-
unum undanþágu til 1. ágúst 2000.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa,
tjáði Morgunblaðinu að til að byrja
með yrði farið fram á að samkeppn-
isyfirvöld veittu lengri frest vegna
málsins.
Samskip og Eimskip gerðu með
sér samkomulag um að Samskip
fengju flutningsrými í skipum
Eimskips sem sigla til Norður-Am-
eríku. Jafnframt hættu Samskip
flutningum með eigin skipum á
þessari leið. Flutningasamningurinn
tók gildi í janúar 1997 og segir Ólaf-
ur að samkeppni milli fyrirtækjanna
hafi verið virk og bendir jafnframt á
að fleiri aðilar hafi komið inn í sam-
keppnina á þessari flutningaleið.
Samkeppnisyfirvöld töldu samn-
ing félaganna ekki í samræmi við
samkeppnislög en veittu undanþágu
til 1. ágúst í ár. Taldi samkeppnisráð
samninginn fela í sér markaðsskipt-
ingu og að hann væri ekki í sam-
ræmi við samkeppnislög. Skipafé-
lögin kærðu þá niðurstöðu
samkeppnisráðs til áfrýjunarnefnd-
ar samkeppnismála sem staðfesti
hana en veitti áðurgreindan frest.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, tjáði Morgunblaðinu í gær að
nokkrir möguleikar væru í stöðunni
varðandi framhald Ameríkuflutn-
inga fyrirtækisins: Óbreyttur flutn-
ingasamningur við Eimskip og óska
mætti eftir framlengingu á undan-
þágunni; að fá tímabundna undan-
þágu meðan aðrir möguleikar yrðu
athugaðir; að samið yrði við annan
aðila eða siglingar teknar upp að
nýju.
Samningur skipafélaganna stend-
ur þar til annað hvort félagið segir
honum upp en Ólafur segir nauðsyn-
legt að ákveða á næstu vikum með
hvaða hætti framhaldið geti orðið
vegna frestsins sem sé að renna út.
Hann segir flutninga milli íslands
og Bandaríkjanna hafa dregist mjög
saman mörg undanfarin ár þótt
samkeppnin sé enn fyrir hendi. Inn-
flutningur matvæla frá Bandaríkj-
unum hafi minnkað, m.a. vegna
breyttra reglna um merkingar og
fleira, mun færri bílar séu fluttir
þaðan og flutningar fyrir varnarliðið
séu nú einnig minni en áður var. Þá
segir hann útflutning sjávarafurða
til Bandaríkjanna hafa dregist sam-
an.
„En við eigum eftir að taka af-
stöðu og ákvörðun um hvernig við
ætlum að sinna þessum flutningum.
Til að byrja með munum við fara
fram á það að Samkeppnisstofnun
veiti okkui- lengri frest til að finna
þessum flutningum farveg," sagði
Ólafur Ólafsson.
Morgunblaðið/Auðunn
Rostungurinn leit rólega til ferðamanna sem fylgdust undrandi með dýrinu.
"þl
ROSTUNGUR hefur gert sig
heimakominn í Papey, úti fyrir
Hamarsfirði, og vita menn ekki til
að slík skepna hafi sést þar áður.
Sigurður Guðjónsson, bóndi á Borg
í Hornafirði, Sigurður Eymunds-
son, tannlæknir á Höfn í Horna-
firði, og dóttir hans urðu dýrsins
fyrst vör. „Við vorum á göngu
arna meðfram eynni í fyrradag og
iá allt í einu blasti rostungurinn
við okkur í fjörunni," sagði Sigurð-
ur Guðjónsson í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær. „Hann
var undir fjögurra metra háum
klettum, þannig að við reyndum
Rostung-
ur dvelur
í Papey
ekkert að komast að honum. Það
var heitt í veðri og bjart og hann
bara lá þarna og manni fannst eins
og hann hálfpartinn mókti. Við
fengum hann þó til að líta aðeins
upp, með því að klappa saman lóf-
Ð U
um og fleygja steinvölum í áttina
að honum, en hann hafði annars
ekki mikinn áhuga á að hreyfa sig.
Líklega er þetta ungt dýr, hann er
á stærð við góðan útsel.“
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Ingimar Sveinsson, fyrr-
verandi skólastjóra á Djúpavogi,
var hann nýkominn úr Papey og
sagði hann að rostungurinn væri
enn á sama stað. „Hann er um 100
metra norðvestur af Áttæringsvog-
inum, höfninni norðan til á eynni,
og liggur þar uppi á klöpp, hinn ró-
legasti. Við náðum að skoða hann
úr 10-15 metra fjarlægð. Hann er
með stuttar tennur, afar skeggjað-
ur, ljósgrár að lit og mjög feitur og
sver. Hann liggur þarna enn á
sömu klöppinni. Það eru nú ekkert
lystugir pollar þarna, en mér var
sagt að hann hefði verið að drekka
úr þeim. Hvað það merkir veit
maður svo sem ekki. Hann gæti allt
eins verið eitthvað veikur, greyið.“
Ingimar, sem er fæddur og upp-
alinn í Hamarsfirði, segist aldrei
hafa heyrt minnst á rostungskomu
í Papey eða þar um kring fyrr.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé
svona skepnu. Ég hef aldrei heyrt
talað um að rostungur hafi sést
hér. Hins vegar var áður fyrr talað
um kampseli inni á Hamarsfirði, en
þeir voru samt frekar sjaldgæfir."
Aðstoðarutanrfkisráðherra Þýskalands
Evrópustoð op-
in Islendingum
ÍSLENDINGAR geta tekið þátt í
starfi svonefndrar Evrópustoðar
Atlantshafsbandalagsins, NATO, ef
þeir vilja, að sögn Christophs
Zöpels, aðstoðarutanríkisráðherra
Þýskalands.
Opinberri heimsókn ráðherrans
hingað til lands lauk í gær en hann
hefur rætt við innlenda ráðamenn,
þ. á m. Ólaf Ragnar Grímsson for-
seta og Geir Haarde fjármálaráð-
herra sem einnig gegnir starfi for-
sætisráðherra. Zöpel segir í samtali
við Morgunblaðið að vilji íslending-
ar ganga í Evrópusambandið verði
herverndarsamningurinn við
Bandaríkjamenn ekki til trafala.
„Þið eruð velkomnir og Þjóðverjar
myndu styðja aðild íslands ef þið
sæktuð um hana,“ segir ráðherrann.
Hann telur að næstu tvo til þrjá
áratugi muni kjarnorkuvopn
Bandaríkjamanna verða helsta
trygging bandamanna þeirra í
Evrópu í öryggismálum og vísar því
á bug að Evrópustoðin geti valdið
því að samstarfið yfir Atlantshafið
rofni. Hann segir ennfremur að í
framtíðinni geti farið svo að þrjú öfl-
ug ríkjasambönd með evrópskar
rætur, Bandaríkin, Evrópusam-
bandið og Rússland, stofni nýtt
varnarbandalag er taki við af
NATO.
■ Ný ríki þurfa/34
Morgunblaðið/Sig Sigm
Þrjár kynslóðir að vinnu við kartöfluuppskeru í Birtingaholti, Guðbjörg
Björgvinsdóttir, María Magnúsdóttir og Guðbjörg dóttir hennar.
Byrjað að taka upp
kartöflur í Hreppum
BÆNDUR í Hrunamannahreppi
eru farnir að taka upp kartöflur og
er uppskeran bærileg. Um er að
ræða fljótsprottnar hvítar kartöfl-
ur af tegundunum premiere og
dore. Veruleg kartöflurækt er í
Hrunamannahreppi þar sem vel lít-
ur út með allan jarðargróður.
Garðyrkjumenn eru t.a.m. farnir að
senda margar tegundir grænmetis
á markað og segja að ef fram held-
ur sem horfir verði uppskera góð.