Morgunblaðið - 23.07.2000, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 1 7
óvart og liðið hefur í heild náð að
smella saman. Grindvíkingar léku
feikilega vel á undirbúningstímabil-
inu en eftir það báru menn ákveðinn
ugg í brjósti yfir því að þeir myndu
springa eins og blaðra þegar kæmi
inn í Islandsmótið. Þeir hafa haldið
sinni spilamennsku áfram og eru
klárlega komnir með lið sem gæti vel
velgt þeim stóru undir uggum og
haldið áfram á sömu braut. Það er
mjög gott jafnvægi í liði þeirra, þetta
er góð blanda af mismunandi leik-
mönnum sem eru vinnusamir, flinkir
og fljótir. Til að gera Grindavík að al-
gjöru toppliði vantar kannski afger-
andi markaskorara, einhvern sem
skorar 15 mörk á tímabili."
Ákveðin teikn á lofti
hjá Fram
Framarar hafa lagt mikið undir í
fyrra og nú en árangurínn lætur á
sér standa. Er eitthvað að rofa til í
þeim herbúðum?
„Framarar ætluðu sér að verða
virkilega þéttir í vörn og byggja upp
leik sinn á skyndisóknum. Það hefur
ekki gengið eftir, þeir hafa ekki verið
lánsamir upp við markið og vantar
tilfinnanlega markaskorara. Þor-
bjöm Atli var fenginn aftur heim en
hann hefur ekki jafnað sig fyllilega
eftir krossbandaslitin. Mér finnst
miðjuspilið ekki hafa gengið upp hjá
liðinu og framherjarnir hafa fengið
litla þjónustu. Framliðið hefur þó
tekið breytingum og ég tel vera
ákveðin teikn á lofti um að það sé að
lifna við. Framarar sigruðu Leiftur
sannfærandi, 3:1, og eru komnir með
12 stig. Það er lygilega stutt í topp-
inn og það sem mér finnst jákvæðast
við þetta hjá Fram er að þarna eru
ungir piltar úr þeirra unglingastarfi
að fá tækifæri; Daði Guðmundsson,
sem er feikilega efnilegur leikmaður,
Baldur Knútsson og Eggert Stefáns-
son. Framarar fundu röskan fram-
herja í Danmörku, Ronny B. Peter-
sen, og hann kom með hraða inn í
liðið. Mér finnst þó að það búi meira í
Frömurum, ekki síst í manni eins og
Sigurvini Ólafssyni sem er að ná sér
á strik eftir erfitt slys, og mér finnst
að það eigi að koma meira út úr
Hilmari Bjömssyni. En þetta bygg-
ist allt á því að það sé einhver þjón-
usta fyrir aftan þessa menn, þeir fái
sendingar til að vinna úr. Það hefur
vantað í leik Fram til þessa. Ef þessi
teikn sem nú eru á lofti ganga eftir
þá verður það rós í hnappagat þeirra
sem stjórna liðinu að ná að vinna sig
út úr erfiðleikunum. Það voru vænt-
ingar um að Fram myndi gera vel í
sumar - forsendumar vora þær að
nýju leikmennirnir færa með liðið á
toppinn. Liðið hafði aldrei sannað sig
sem slíkt og verið í erfiðleikum í
deildinni í tvö ár. Það væri vissulega
óeðlilegt að markmiðssetning Fram-
ara væri önnur en sú að vera á
toppnum, miðað við það sem lagt er í
þeirra lið, en fyrst þarf liðið að sýna
að það sé gott og eigi tilkall til þess
að vera í toppbaráttu. Næstu tveir til
þrír leikir skera úr um hvort svo sé
og hvar þeir verða í deildinni."
Ólafur hefur ekki enn
fundið rétta liðið
Skagamenn skora ekki mörk ann-
að áríð í röð. Er engin lausn fínnan-
leg á því vandamáli þeirra?
„Skagamenn hafa verið í vandræð-
um með að skora og það þekki ég vel
síðan ég var með liðið. Það er erfitt
að stjóma liði sem nær ekki að skora
en munurinn í jákvæða átt frá því í
fyrra er sá að Ólafur Þór Gunnars-
son stendur sig betur í markinu.
Hann hefur oft haldið liðinu á floti og
ver skot sem fóra inn síðasta sumar.
Það vantar betri sóknarleik hjá ÍA,
markatalan segir sitt. Uni Arge átti
að leysa þetta vandamál en hann hef-
ur verið óheppinn með meiðsli.
Vandamálin era enn til staðar, mörk-
in vantar. Hluti af því er líka það að
vængmennimir hafa ekki komið með
nógu mikið af fyrirgjöfum.
Lið sem nær árangri notar yfir-
leitt fáa leikmenn. Skagamenn hafa
lent í því nú er mótið hálfnað en liðið
er alltaf að breytast.
En þó að Skagaliðið hafi ekki enn
náð sér á strik og lykilmenn hafi ekki
sýnt sitt besta er það í ágætri stöðu.
í hverri umferð á það möguleika á að
blanda sér í toppbaráttuna.
Slæmt fyrir Kef lavík
að missa O’Sullivan
Keflvíkingar byrjuðu vel en hafa
síðan lent í vandræðum. Geta þeir
rifið sig upp á ný eða verður þeirra
hlutskipti að berjast í bökkum ?
„Menn tala oft fjálglega í upphafi
móts um að það sé algjört lykilatriði
að byrja vel. Keflvíkingar byrjuðu
vel og komu á óvart, en síðan hafa
þeir dalað, era komnir alla leið niður
í áttunda sæti. Þetta er heilt mót sem
tekur 18 leiki. Fyrir nokkrum áram
unnu Keflvfldngar fyrstu sex leiki
sína en lentu samt í vandræðum í
lokin. Þetta er spurning um elju og
I„Menn horfa á erlendar stjörnur í
sjónvarpinu og búast síðan við því að
sjá jafn góða leikmenn hér heima“
vinnu í þá fjóra mánuði sem mótið
stendur yfir. Keflvíkingar geta verið
sprækir fram á við, með Guðmund
Steinarsson og Hjálmar Jónsson
sem fremstu menn, og Zoran Daníel
Ljubicic er alltaf flinkur í sóknarað-
gerðum liðsins. Keflavík er með góð-
an markvörð, Gunnleif Gunnleifsson,
sem er álíka litríkur í markvörslu og
búningavali og Jorge Campos í
markinu hjá Mexíkó. En Keflvíking-
ar hafa misst flugið og þeir sáu á bak
Liam O’Sullivan, skoska vamar-
manninum, sem er virkilega sterkrn-
og það var alvarlegt mál fyrir þá að
missa hann. Þegar hans hefur ekki
notið við hafa þeir verið í veralegum
erfiðleikum. Það skiptir miklu máli
upp á framhaldið hjá Keflavík hvem-
ig arftaki hans, Mark McNally, fellur
inn í vörnina. Þetta fær mann til að
hugsa alvarlega um hvort það sé rétt
að fá leikmann til landsins sem ekki
er víst að verði með allan tímann."
Varnarleikur og óstöðugleiki
vandamál Blika
Breiðablik hefur tekið við sér í síð-
ustu leikjum eftir erfiða byrjun. Get-
ur liðið haldið sér á þeirri braut sem
það er núna komið á?
„Möguleikar Breiðabliks byggjast
talsvert á því að Marel Baldvinsson
sé í lagi og það hefur komið best í ljós
í tveimur síðustu leikjum. Það vora
hans fyrstu leikir í byrjunarliði í
sumar og Blikar unnu þá báða. Með
Marel og Bjarka Pétursson sem
fremstu menn er liðið ágætlega sett,
þeir era hávaxnir og flinkir og geta
báðir skorað mörk. Marel fékk
mýgrút af færam í fyrra en skoraði
ekki mikið. Það lagast með tíð og
tíma og þá verður Marel topp leik-
maður í atvinnumannaklassa.
Liðið er að mörgu leyti léttleik-
andi og tveir sterkustu menn þess
hafa verið Hreiðar Bjarnason og Atli
Knútsson markvörður. Þeir hafa
báðir leikið geysilega vel og þá er
Robert Russell sterkur leikmaður
sem hefur gert ágætis hluti á miðj-
unni. Vandamál Breiðabliks liggur í
vamarleik alls liðsins og þá er aft-
asta línan ekki fljót. Liðið hefur spil-
að misjafna leiki og vantað stöðug-
leika, en það virðist vera að rétta úr
kútnum. Miðað við það sem Blikar
gerðu í fyrra held ég að það búi ýmis-
legt í þessu liði. Nái þeir upp stöðug-
leika og haldi lykilmönnum heilum
geta þeir komið sér í mjög þægilega
stöðu í þessari deild.“ .
Losarabragur á leik-
mönnum Stjörnunnar
Stjömunni var spáð botnsæti og
liðið er á botninum. Eru líkur á að
það breytist?
„Það var yfirlýst markmið
Stjömumanna að halda sér í deild-
inni en það virðist ætla að reynast
þeim erfitt. Þeir hafa oft á tíðum
leikið vel úti á vellinum en sam-
kvæmt þeirra samantekt komust
sóknarmenn þeirra sjö sinnum einir
gegn markverði mótherjanna í
fyrstu sex leikjunum án þess að
skora. Það er ekki hægt að flokka
allt sem óheppni, einhver lélegheit
og klaufaskapur hljóta að fylgja
með.En mér finnst vera fullmikill
losarabragur á leikmönnum Stjöm-
unnar fyrir leiki. Þeir koma seint út á
völlinn - til dæmis til upphitunar.
Þarna þarf að búa til örlítið meiri
festu, þessi mál er auðvelt að lagfæra
og eiga að vera á hreinu hjá leik-
mönnunum sjálfum. Þeir eiga að vita
hvemig þeir eiga að undirbúa sig,
þjálfarinn á ekki að þurfa að standa
yfir þeim með svipu. Þessir strákar í
Garðabænum era ekki búnir til úr
neinu öðra en aðrir menn og þurfa
sama tíma og aðrir til að búa sig fyrir
leiki. Þetta finnst mér vera kæra-
leysi. Þá era leikbönnin hjá Vladimir
Sandulovic vandamál, það er slæmt
þegar fenginn er svona sterkur leik-
maður og hann missir mikið úr. En
það býr mikið í þessu liði. Vörnin
hefur leikið ágætlega, með Vladimir,
Ragnar Ámason og Ólaf Gunnars-
son mjög sterka, Asgeir G. Asgeirs-
son hefur átt ágætis leiki og Veigar
Páll Gunnarsson á mikla framtíð fyr-
ir sér ef hann heldur rétt á spilunum.
Stjörnumenn þurfa að rífa sig upp úr
lognmollunni og gera eitthvað upp-
byggilegt í seinni umferðinni.“
reu/ch
hi-fec
SPEEDO.
í^ccboh
OZON
LA
GEAH'
Verð áður
Verðnú
2.500-3.500 kr. 1.490 kr.
2.490 kr.
990-1.990 kr.
Sundbolir
Regnjakkar 5.990 kr.
Reebok skór 4-10.000 kr.
Barnaskór m/riflás 3.700 kr. 1.990 kr.
Fótboltaskór 3.990 kr. 990 kr.
Útivistarjakkar 11.990 kr. 4.990 kr.
Útivistarbuxur 5.990 kr. 2.990 kr.
Gott start fyrir sumarið!
Mikið úrval af íþróttagöllum, peysum,
buxum, hlaupaskóm, sandölum, regnjökkum,
úlpum ofl. ofl.
I
BOLTAMAÐURNN
LAUGAVEGI 23 • SÍMI 55 1 5599