Morgunblaðið - 29.07.2000, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 9
FRÉTTIR
••
Ondunarsýnatækið til hagræð-
is fyrir lögreglu og ökumenn
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Hjálmar Björgrinsson lögreglumaður tekur öndunarsýni í nýja tækinu.
SÉRÚTBÚIN bifreið Ríkislögreglu-
stjóraembættisins, með tækjabúnað
til töku öndunarsýna vegna meints
ölvunaraksturs, var tekin í notkun á
ný í síðustu viku. Embættið fékk bíl-
inn og tvö öndunarsýnatæki fyrir
tveimur árum, 25. júlí 1998, en í kjöl-
far dómsmáls var hætt að nota tækin
tímabundið meðan unnið var að verk-
lagsbreytingum.
Öndunarsýnatækið hefm' í för með
sér mikla hagræðingu fyrir lög-
regluna en ekki síður ökumanninn,
jafnt í tímaspamaði og minni bið eftir
niðurstöðum. Einnig dregur tækið úr
álagi á heilbrigðisstarfsmenn þar
sem dregur úr blóðsýnatökum.
Hjálmar Björgvinsson, lögreglumað-
ur og umsjónarmaður bifreiðarinnar,
segir að ákveðið hafi verið að hafa eitt
tækið ávallt í Reykjavík, þar sem
reynslan undanfamar vikur sýni að
mikið er um ölvunarakstur. Hitt tæk-
ið er í bílnum og því á ferðinni hvar-
vetna um landið.
Árs svipting neiti ökumaður
að gefa öndunarsýni
Hjálmar segir að ákvörðun hafi
verið tekin um það nýlega að auka
eftirlit með þeim þremur þáttum sem
hafi leitt til alvarlegra umferðarslysa
umfram annað, sem era ölvunarakst-
ur, brot á reglum um notkun bílbelta
og um leyfilegan hámarkshraða. Þau
alvarlegu umferðarslys sem orðið
hafi í gegnum tíðina feli mörg í sér
einn eða fleiri þessara þátta. Ölvun
fylgi útihátíðum, eins og haldnar eru
um verslunarmannahelgina, og því
verði eftirlit sérstaklega hert um
land allt.
Samkvæmt umferðarlögum verður
ökumaður að gangast undir öndunar-
próf, blása í blöðra, fari lögregla fram
á það. Öndunarprófið sýnir magn
áfengis í blóði í prómillum. Sé magnið
0,45 prómill eða meii'a er ökumaður
spurður hvort hann vilji gefa öndun-
arsýni sem greint er í tölvubúnaðin-
um. Neiti hann því bendir sýnatöku-
maður honum á ákvæði í
umferðarlögum sem kveður á um að
neitun kosti hann sviptingu ökurétt-
inda í eitt ár og honum jafnframt gert
skylt að gangast undir blóðsýnatöku.
Hjálmar kveðst hafa tekið á annað
hundrað öndunarsýni og hingað til
hafi enginn neitað að gefa sýni. Öku-
maður er einnig spurður að því hvort
hann hafi neytt áfengis eftir að akstri
lauk og svari hann því játandi fer
ekki fram öndunarsýnataka heldur
er ökumaðurinn sendur í blóð- og
þvagsýnatöku. Ökumaður er spm'ður
hvort hann neyti þríhyrningsmerktra
lyfja daglega og hvort hann sé undir
áhrifum þeirra. Sé því svarað játandi
er hætt við öndunarsýnatöku og öku-
maður sendur í blóðsýnatöku. Einnig
er ökumaður spurður hvort hann sé
með aukinn líkamshita, þ.e. hærri
hita en 37 gráður. Astæðan er sú að
líkaminn brýtur áfengi niður á annan
hátt þegar líkamshiti er meiri en 37
gráður og það gerir öndunarsýnatök-
una óáreiðanlega. Að lokum er öku-
maður spurður hvort hann hafi unnið
við leysiefni. Tækjabúnaðurinn er
þannig gerður að hann skynjar leysi-
efni í andrúmsloftinu og fari magn
þeirra upp fyrir ákveðið mark stöðv-
ast öndunarsýnatakan og ökumaður
er sendur í blóðasýnatöku.
Gangist ökumaður undii' öndunar-
sýnatöku þui'fa hins vegar að líða 20
mínútur frá því hann blés í blöðrana
þar til öndunarsýnið er tekið til að
auka áreiðanleika prófsins. Tækið
mælir áfengismagn í milligrömmum í
lítra og sýni það t.d. 0,30 mg/1 er sú
tala margfölduð með tveimur til að fá
út áfengismagn í blóði í prómillum. Á
þeim tíma sem ákveðið er að ökumað-
ur gangist undir öndunarsýnatöku og
þar til henni er lokið má hann einskis
neyta.
Mælingin er gerð tvisvar sinnum
og meðaltal úr báðum fundið og síðan
er ákveðið frávik reiknað út. Tækið
prentar út niðurstöðumar og málið
fer síðan sinn hefðbundna feril.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Eldurinn kom upp í hjólageymslu í Grafarvogi í gær.
Kviknaði
í hjóla-
geymslu
Útsala — Útsala
15% afsláttur af útsöluvörum!
TVEIR tólf ára drengir voru fluttir á
slysadeild með reykeitrun, ertingu í
öndunarfæram, eftir brana í Grafar-
vogi um miðjan dag í gær. Þeir voru
að fikta með eld og bensín í hjóla-
geymslu í fjölbýlishúsi og við það
kviknaði í geymslunni. Þeir náðu
ekki að komast út fyrr en vegfarandi
sá hvað um var að vera og náði að
opna fyrir þeim. Slökkvilið slökkti
eldinn og reykræsti hjólageymsluna,
en að sögn lögreglu var mesta mildi
að ekki fór verr.
FÉLAG HÖPUOBEINA-
OOSPJALDHRYGOSJAfNARA
Nám
Höfuðbeina-
og spjald-
hryggsjöfnun
www.simnet.is/cranio
S. 699 8064 og 564 1803
www.mbl l.is
Ríta
TÍSKUVERSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 $. 554 7030.
Opið mán,—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
50-80%
afsláttur
á lagci'KÖIu i kjallara.
*
Oti’iílckgt iirval - irália’i* |»jóiiusln
h}á.<Zý&afhluUi
fngjalcigi 5. 'ími .'iiíl 2141.
Opið \irka ilaga Irá kl. 10.00—1 <5.0(1. laugardaga frá kl. 10.00— I.'>.00.
Andblær iiðinna ára ................. ,
Skolavorðustíg 21,
sími 552 2419
Ný sending komin af góðum antikhúsgögnum
og skrautmunum. Góðir greiðsluskilmálar.
Opið virka daga kl. 12-18, laugardaga kl. 12-16.
N°7
MASKARATILBOÐ
Þykkja betur
12 tíma
Meðmæli augnlækna
Fást á næsta útsölustað
Urð og grjót. . .
Hálfstífur
Vibram sóli
Þýskir eðal-gönguskór
16.245
Heilt yfirleður og
Goretex öndun
Grandagarði 2 | Reykjavík | sími 580 8500