Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 11 FRÉTTIR Okuhraði aukist stöðugt sl. ár UMFE RÐARHRAÐI hefur vaxið stöðugt á undanfömum árum ef marka má árlegar mælingar Vega- gerðarinnar. Það sem er mælt er ökuhraði svonefndrar frjálsrar um- ferðar, þ.e.a.s. stakra bíla sem eru ekki í bílalest. Mælt er á beinum köfl- um þar sem eru ekki innákeyrslur. Mælingin segir því ekki til um meðal- hraða á þjóðvegunum. Mælt er á um fimmtán stöðum út um allt land. Hreinn Halldórsson, framkvæmda- stjóri hjá Vegagerðinni, segir að meginniðurstaða mælinganna núna sé sú að ökuhraðinn sé heldur vax- andi alls staðar. Hefur þessi þróun verið stöðug ár frá ári. Vegagerðin hóf mælingar af þessu tagi 1983 sem lið í rannsókn í vegamálum. Svo tekin séu dæmi úr mælingu Vegagerðarinnar var 15% bíla á hringveginum við Sandskeið yfir 104 km hraða á klst. Hraðast mældust bílar aka þar 130-140 km hraða á klst. A Sandskeiði er meðalhraði bfla í frjálsri umferð 98 km hraði. Mæl- ingin er gerð með nákvæmum bfla- radar. Hreinn segir að vegirnir séu hann- aðir fyrir ákveðinn hraða og tilgang- urinn með mælingunum er m.a. sá að leiða í Ijós hvort umferðarhraðinn sé meiri en hönnun veganna leyfir. Hreinn segir ljóst að hraðinn sé orð- inn of mikill á mörgum stöðum miðað við mælingarnar. Almennt ætti þessi staðreynd að kalla á aðgerðir til að ná niður hraðanum. Hreinn segir að bílalestirnar sem myndast á þjóðvegunum séu ekki síður vandamál því þær skapi fram- úraksturinn. Oftast sé það bfll númer Ökuhraði á hringveginum 1983-2000 tvö og þrjú í lestinni sem mynda lest- ina. Hann segir að hjól- og feliihýsa- eign hafi aukist mikið á undanfórn- um árum og umferð þeirra flokkist einnig undir umferðaröryggismál. Bflar með tjaldvagna hafi verið mældir á allt að 120 km hraða en ekki er leyfilegt að aka hraðar með þá en á 80 km hraða á klst, samkvæmt um- ferðarlögum. Vegagerðin kannaði nýlega fjölda bíla með aftanívagna, þ.e. tjaldvagna og fellihýsi, og var 8% af umferðinni með slík tæki í drætti. Þar af voru aðeins 10% ökutækjanna með sérstakan speglaútbúnað. LÖGREGLAN verður með aukinn viðbúnað um allt land vegna um- ferðareftirlits um verslunarmanna- helgina. Ríkislögreglustjóra- embættið sendir tvær ómerktar lögreglubifreiðir sem búnar eru hraðamyndavélum og radarbyssum út á land og einnig er fyrirhugað að lögreglan hafi til umráða þyrlu sem mæli ökuhraðann á þjóðvegum landsins þessa helgi. Hjálmar Björgvinsson, lögreglu- s Omerktir bílar og þyrla við hraðaeftirlit maður hjá Rfkislögreglustjóra- embættinu, segir að bflarnir tveir verði sendir út til umdæmanna og verða þeir viðbót við þann viðbúnað sem hvert lögregluembætti um sig hefur. Samstarf verður milli embætt- anna á Norðurlandi, Vestfjörðum og Suðurlandi. I samstarfinu felst að lögreglumenn fara lengra út frá sinni starfsstöð og lögreglumenn frá mismunandi embættum eru saman í lögreglubflum. Til dæmis gætu lögreglumenn á Akureyri og Hólmavík verið saman í bfl og er eftirlitssvæði þeirra mun stærra en vanalega. Segja má að varðsvæði þeirra stækki við samstarf af þessu tagi. Hjálmar segir að ekki verði kall- að út aukalið um verslunarmanna- helgina en reynt að stilla því þannig upp að ekki verði vandræði við mönnun vegna sumarleyfa. Laun handhafa forseta- valds tvö- faldast ÞÓKNUN handhafa forseta- valds rúmlega tvöfaldast í kjöl- far ákvörðunar Kjaradóms um hækkun launa forseta íslands. Samkvæmt 7. gr. laga um laun forseta íslands skulu þeir sam- anlagt njóta jafnra launa og laun forseta eru þann tíma sem þeir hverju sinni fara með for- setavald um stundarsakir. A heimasíðu Jóhönnu Sigurð- ardóttur alþingismanns kemur fram að hefði nýleg ákvörðun Kjaradóms um laun forsetans gilt á síðasta ári hefði rúmlega 1.500 þúsund króna greiðsla til handhafa forsetavalds tvö- faldast. „Samkvæmt auglýsing- um um fjarveru forseta Islands, sem birtar eru í A-deild Stjóm- artíðinda á árinu 1999, var for- setinn erlendis samtals 77 daga á sl. ári. Hefðu breytingarnar á launakjörum forseta Islands, sem nú hafa verið ákvarðaðar, gilt á árinu 1999 hefðu handhaf- ar forsetavalds fengið 3.164 þús- und krónur í stað 1.559 þúsunda króna sem samanlagt komu í þeirra hlut fýrir árið 1999.“ Morgunblaðið/Ami Sæberg ÓIi Jóhann Danielsson og Eygló Sif Steindórsdóttir, eigendur Gull- smiðju Óla, virða fyrir sér skemmdimar. Innbrotsþjófarnir fóru inn um þetta gat á glugganum. Stolið fyrir 4-5 millj. kr. á 2 mínútum Islensk barnateikning á búlgörsku frímerki FRIMERKJASYNIN GIN DIEX 2000 stendur nú yfir á Kjarvalsstöð- um. Á sýningunni kom í ljós að teikning eftir Ingibjörgu Davíðs- dóttur skreytir frúnerki frá Búlgar- íu, en sjálf hafði hún ekki hugmynd um það. „Þetta kom mér mjög á óvart og ég vissi fyrst í fyrradag að teikningin væri á þessu frímerki," sagði Ingibjörg. Ingibjörg var átta ára þegar hún teiknaði myndina og er tuttugu og níu ára í dag. „Mynd- in birtist fyrst í bók sem var gefin út af menntamálaráðuneytinu,“ sagði Ingibjörg. Bókin var gefin út árið 1980, sem var alþjóðaár barnsins, og inniheldur bamasögur skrifaðar af eldri systur Ingibjargar. Ingi- björg sagði að hún hefði ekki séð myndina síðan. „Mig langar mikið til þess að vita hvernig það kom til að myndin endaði á búlgörsku frí- merki,“ sagði Ingibjörg. „Ég gaf aldrei leyfi. Það væri gaman að vita hvort einhver annar hafi gefið það og hveraig framleiðendur frímerk- isins komust yfir teikninguna." Verðgildi frímcrkisins er 13 stó- tinki, en 100 stótinki eru í einu Lewi, sem er gjaldmiðill Búlgaríu. Sendiferðabifreiðin lenti á annarri bifreið, ók niður ljósast aur og bruna- hana áður en hún valt. Sendibifreið rann stjórnlaus 125 metra BROTIST var inn í Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi í fyrrinótt og höfðu þjófarnir á brott með sér skartgripi fyrir andvirði á milli fjög- urra til fimm milljóna króna. Einnig voru mikil spjöll unnin í versluninni en þjófarnir notuðu sleggju og öxi til að brjóta sér leið inn í verslunina og í skartgripakassa. Óli Jóhann Daníelsson er eigandi verslunarinnar ásamt eiginkonu sinni Eygló Sif Steindórsdóttur. Óli segir að aðkoman hafi verið hræði- leg. „Við vorum vakin hér heima um kl. hálfsex í morgun af Seeuritas. Þetta er í fimmta sinn sem reynt er að brjótast inn hjá okkur og í fjórða sinn sem það heppnast frá því við opnuðum 1993. Við vorum fyrst í litlu plássi hinum megin við götuna en fluttum verslunina í nóvember þar sem við erum núna. Við höfum innréttað hana með nýjum innrétt- ingum og gert hana glæsilega. Það hræðilegasta var að þjófarnir fóm inn í verslunina en létu sér ekki nægja að brjóta bara glugga og teygja sig eftir munum,“ segir Óli. Brotið var stórt gat á glugga og farið inn um það. Allt var á rúi og stúi inni og innréttingar eyðilagðar. Glerbrot vom út um alla verslun en þjófarnir skildu eftir í versluninni sleggjuna sem þeir notuðu til að brjóta þykkt öryggisglerið í versl- uninni og öxi sem þeir notuðu til að komast að mununum innandyra. Skildu eftir hring upp á 200.000 kr. „Þeir tóku munina í bökkunum og hafa líklega haft poka með sér sem þeir settu þá í. I fátinu hafa þeir misst nokkra bakka sem lágu á gólf- inu. Þeir hafa farið hring í búðinni og tekið það sem við fyrstu sýn virt- ist dýrast af mununum. Þeir tóku meðal annars þykkar og miklar hálsfestar, alla armbandabakka, bakka með herrahringjum og bakka með demantshringjum. Þeir létu hins vegar vera hring sem stóð rétt hjá bökkunum og kostar um 200 þúsund kr. Þeir hafa haft tak- markaðan tíma því öryggiskerfið var á og bjallan í gangi,“ segir Óli. Hann sagði að lögreglan hefði verið stödd á Nýbýlavegi þegar Securitas hafði samband við hana. Óli hefur það eftir lögreglunni að innan við ein og hálf mínúta hefði liðið frá því þeir fengu tilkynning- una þar til þeir vom komnir í versl- unina. Þá voru þjófarnir á bak og burt. Óli telur að þjófarnir hafi ver- ið innan við tvær mínútur inni í versluninni. Hann telur líklegt að tveir til þrír menn hafi verið að verki. „Ég sé það fyrir mér í framtíðinni að koma þarna upp myndavélakerfi eða rimlum fyrir gluggana,“ segir Óli. Hann telur fljótt á litið að út- söluverð þeirra muna sem hafi verið stolið sé á bilinu 5-6 milljónir kr. Líklegt finnst honum að þeir sem hér hafi verið að verki séu fíkniefnaneytendur eða í fíkniefna- viðskiptum og skartgripirnir þá notaðir sem gjaldmiðill í fíkniefna- viðskiptum. „Það getur enginn komið með svona mikið magn til gullsmiðs hérlendis. Gullsmiðum eru í mesta lagi boðnir til sölu stak- ir giftingarhringar þegar fólk er að slíta sambúð.“ Verslunin er tryggð fyrir þjófnaði og fær endurgreitt kostnaðarverð fyrir hlutina. SENDIBIFREIÐ rann stjórnlaus rúmlega 125 metra aftur á bak og valt við Kleppsveg í gær, að sögn lögreglu. Ökumaður bifreiðarinnar var að bakka niður halla við Kambs- veg þegar bremsur hennar biluðu með fyrrgreindum afleiðingum. Sendibifreiðin lenti á annarri bifreið, ók niður ljósastaur og brunahana áð- ur en hún valt við Kleppsveginn og lenti annar helmingur hennai- á Sæbrautinni. Engin slys urðu á fólki en það varð að fjarlægja bifreiðirnar tvær með krana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.