Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hugmynd að nýju deiliskipulagi Grófarinnar er í kynningu hjá Borgarskipulagi
Miðbærinn
tengdur höfninni
Miðborg
BORGARSKIPULAG er nú
með til kynningar hugmynd
að nýju deiliskipulagi fyrir
Grófarreitinn í miðborginni,
en samkvæmt henni er gert
ráð fyrir töluvert miklum
breytingum á svæðinu, m.a.
nýrri byggingu við Tryggva-
götu, sem mun teygja sig frá
Naustinni og að Vesturgötu,
og þá er einnig gert ráð fyrir
tengingu reitsins við hafnar-
svæðið.
Hugmyndin að skipulaginu
er komin frá arkitektastof-
unni arkitektur.is, en skipu-
lagið er enn á umræðustigi.
Grófarreiturinn, sem skipu-
lagið nær til, afmarkast af
Grófinni, Tryggvagötu,
Naustinni og Hafnarstræti. A
reitnum eru sex lóðir og á
þeim eru samtals sex hús.
Gildandi deiliskipulag á
svæðinu er deiliskipulag
Kvosarinnar frá árinu 1986.
Þriggja hæða hús við
Grófina
Helsta breytingin, sem gert
er ráð fyrir á reitnum sam-
kvæmt þessari nýju hug-
mynd, er að í stað bflastæða á
lóðinni Vesturgötu 2 er gert
ráð fyrir að þar megi reisa
þriggja hæða nýbyggingu
með kjallara. Einnig er gert
ráð fyrir því að reisa megi
sams konar byggingu með-
fram Tryggvagötu.
I greinargerð með skipu-
laginu segir að þessar
nýbyggingar ljúki uppbygg-
ingu reitsins og styrki og full-
geri götumynd hans. Þær falli
að húsum á reitnum í hæð og
umfangi og tengi hann við
umhverfið. Að öðru leyti er
nýbyggingunum ætlað að
endurspegla nútíma bygging-
arlist eins og hún gerist best
og skal því gera miklar kröfur
um formun, efnisval og upp-
byggingu þessara húsa.
Grófarreiturinn var að
hálfu leyti undir sjó
Fyrr á öldinni var Grófar-
reiturinn að hálfu leyti úti í sjó
og lá bólverk mikið, sem reist
var um 1890, frá vestri til
austurs eftir endilöngum
reitnum norðan við Bryggju-
húsið, sem er Vesturgata 2, og
Brydepakkhúsið, sem er
Hafnarstræti la. í gegnum
Bryggjuhúsið var port frá
höfninni og inn í bæinn og var
það kallað „Hlið Reykjavík-
ur.“
A lóð Vesturgötu 2 er hluti
bólverksins enn sýnilegur
ásamt grásteinshellulögn frá
sama tíma. Austurhluti ból-
verksins kom nýlega fram
þegar verið var að grafa fyrir
viðbyggingu við húsið
Tryggvagötu 22 og má gera
ráð fyrir því að vesturhluti
bólverksins sé enn til staðar
undir jörð á lóð Vesturgötu 2.
Við nýlega uppbyggingu
Listasafns Reykjavfluir hefur
verið höfð að leiðarljósi stefna
ports sem lá í gegnum
Bryggjuhúsið og að gömlu
höfninni. Anddyri Listasafns-
ins er nú í beinni stefnu að
fyrrverandi porti Bryggju-
hússins og hefur verið opnuð
leið í gegnum safnið að núver-
andi höfn.
Portið í gegnum Bryggju-
húsið verði opnað
Lagt er til að þessi tenging
við núverandi höfn verði
styrkt enn frekar með því að
opnað verði á ný portið gegn-
um Bryggjuhúsið og að port í
sömu stefnu verði á nýbygg-
ingu við Tryggvagötu 20.
Jafnframt er lagt til að ból-
verkið verði gert sýnilegra
bæði á lóðinni Vesturgötu 2
og 2a. Grafið verði meira frá
því og lóðimar mótaðar til
samræmis við það. Komið
verði upp vatnsspegli norðan
við bólverkið og planka-
bryggju yfir hann í gönguleið-
inni gegnum reitinn til minja
um gömlu bryggjuna og að-
komuna að Reykjavík. Þá er
lagt til að komið verði upp set-
aðstöðu og upplýsingatöflum
þannig að staðurinn nýtist
sem áfangastaður á gönguleið
en talið er að með þvi að opna
þessi port náist góð göngu-
tengsl frá Ingólfstorgi og allt
til hafnarinnar, með tengingu
við minjar liðinnar tíðar og
menningu nútímans.
Hornsteinn Reykjavíkur
Svæðið beint fyrir framan
Bryggjuhúsið, sem eitt sinn
var kallað „Hlið Reykjavíkur"
er merkilegt fyrir þær sakir
að öll götunúmer borgarinnar
tengjast því. Þannig að ef gata
liggur fyrir austan þetta
svæði er hús númer 1 alltaf
það hús sem er næst svæðinu
fyrir framan húsið. Það sama
gildir um götur sem liggja
fyrir vestan, norðan eða sunn-
an húsið. Því hefur komið
fram sú hugmynd að koma
upp homsteini Reykjavíkur
sunnan við Bryggjuhúsið.
I gildandi deiliskipulagi er
gert ráð fyrir að götustæði
Grófarinnar verði fært til
austurs inn á lóðina Vestur-
götu 2a. Mun það hafa verið
gert vegna þáverandi hug-
mynda um ferðir almennings-
vagna. Ekki er talin þörf á
þessari breytingu nú og er því
lagt til að lega götunnar hald-
ist óbreytt.
Bfiastæði á lóðinni við
Vesturgötu 2 verði lögð
niður
Samkvæmt hugmyndinni
að nýja deiliskipulaginu er
gert ráð fyrir að bílaumferð á
svæðinu verði með sama sniði
og nú er, þ.e. einstefna á
Naustinni og Hafnarstræti en
tvístefna á Vesturgötu,
Tryggvagötu og Grófinni.
Bflastæði á lóðinni Vestur-
götu 2a verði lögð niður og
ekki verði heimilt að leggja
bílum inni á öðmm lóðum. Sex
bflastæði sem nú eru með
fram gangstétt í Naustinni
muni haldast og með fram
gangstétt í Tryggvagötu komi
sex ný stæði.
Kynningu hugmyndarinnar
að nýju deiliskipulagi Grófar-
reitsins lýkur þann 17. ágúst,
en eftir það má gera ráð fyrir
því að unnið verði að nánari
útfærslu á skipulaginu og í
framhaldinu muni skipulags-
og umferðarnefnd og borgar-
ráð taka málið til formlegrar
afgreiðslu.
Bæjaryfírvöld Garðabæjar veita íbúum við Tjarnarflöt og
Asbúð viðurkenningu fyrir fallega garða
Bjuggii til trjágöng á
óhefðbundinn hátt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barnaskemmtun á
Víðistaðatúni
GARÐABÆR veitti viður-
kenningar fyrir snyrtilegt
umhverfi í bænum fyrir árið
2000 síðastliðinn fimmtudag.
Er þetta í þrettánda sinn sem
slík verðlaun eru veitt.
Eigendur tveggja lóða
íbúðarhúsnæðis hlutu viður-
kenningu. Annars vegar
Anna Júlíana Sveinsdótti og
Rafn A. Sigurðsson, íbúar As-
búðar 98. Hins vegar Stein-
unn Gísladóttir og Jón Vil-
helmsson íbúar Tjamarflatar
8. Erla Bil Bjarnardóttir,
garðyrkjustjóri Garðabæjar,
segir að fyrst og fremst sé
leitað eftir görðum sem séu
snyrtilegir og vel hirtir. Erla
segir umhverfisnefnd Garða-
bæjar hafa verið einhuga í
vali sínu á görðunum.
Lagði mesta áherslu
á runna og tré
Lóðin að Asbúð er umvafin
fjölbreyttum trjá- og runna-
gróðri í mishæðóttu landslagi
garðsins sem umlykur skjól-
góð dvalarsvæði. Garðurinn
hefur frjálslegt yfirbragð
með bogadregnum línum.
Anna Júlíana segist sjá að
mestu um garðinn sjálf með
hjálp Rafns sem slær reglu-
lega flötina. Hún segist hafa
lagt mesta áherslu á runna og
tré.
Anna Júlíana segist ekki
vera sérfræðingur í garð-
yrkju og því hafi það komið
henni mjög á óvart að fá
inum er skipt í afmörkuð
dvalarsvæði umlukin gróðri.
Steinunn og Jón sjá um
garðinn í sameiningu. Stein-
unn segir þetta skemmtilegt
áhugamál sem þau geti notið
saman. Gott sé fyrir hjón að
eiga sér sameiginleg áhuga-
mál. Einnig sé gott að hafa
áhugamálið við höndina. Þau
þurfi ekki að fara neitt til að
stunda það.
Töluverð fyrirhöfn fylgir
því að halda garðinum snyrti-
legum en Steinunn segir það
þess virði. Þau hafa mikla
ánægju af garðinum.
Skógarhæð
snyrtilegasta gatan
Valdimar Gíslason - íspakk
hlaut viðurkenningu fyrir
snyrtilega frágengna lóð í
iðnaðarhverfi í Molduhrauni
sem nú er í uppbyggingu.
Golfklúbbur Kópavogs og
Garðabæjar var heiðraður
fyrir snyrtilega umgengni á
umsjónarsvæði klúbbsins.
Umhverfisnefnd var einkar
ánægð með hversu vel hefur
tekist til við uppbyggingu
vallarsvæðis og aðkomu að
golfskálanum sem er umvafin
gróðri. Kirkja Jesú Krists
hinna síðari daga heilögu,
sem stendur við Ásbraut 2,
hlut viðurkenningu fyrir gott
framtak við frágang lóðar.
Loks var Skógarhæð valin
snyrtilegasta gata Garðabæj-
ar. Yfirbragð Skógarhæðar
þykir sérstaklega snyrtilegt
og allar lóðir fullfrágengnar.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Anna Júlíana leggur mesta áherslu á tré og runna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Garðyrkja er sameiginlegt áhugamál Steinunnar og Jóns.
viðurkenninguna. Hún hefur
beitt óhefðbundinni aðferð
við að búa til trjágöng þar
sem lauf eru látin flétta sig
upp eftir þar til gerðri grind.
„Eg reyndi allar hugsanlegar
vafningsjurtir en engin þeirra
náði að dafna,“ segir Anna
Júlíana. Hún brá þá á það ráð
að nota viðju í þeim tilgangi,
en hún vefur sig upp eftir
grindunum. Þetta hefur gef-
ist mjög vel og hún er einkar
ánægð með trjágöngin.
Hún segir vinnuna í garðin-
um mjög róandi og græna lit-
inn telur hún góðan fyrir aug-
að. „Allt er vænt sem vel er
grænt,“ bætir hún við.
Sameiginlegt áhugamál
Sérkenni lóðarinnar að
Tjarnarflöt er mikið blóm-
skrúð og litlar tjarnir. Garð-
Garðabær
Hafnarfjörður
HAFNFIRSK börn gerðu sér
glaðan dag í veðurblíðunni á
Víðistaðatúni í gær, en þá fór
fram lokahátíð íþrótta- og
leikjanámskeiða bæjarins.
Farið var í leiki og borðaðar
veitingar og skemmtu allir sér
konunglega, enda varla annað
hægt þegar veðurguðirnir eni
í hátíðarskapi.