Morgunblaðið - 29.07.2000, Side 15

Morgunblaðið - 29.07.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 15 LANDIÐ Viðbygg,ing‘ grunnskólans á Vopnafírði tekin í notkun Tónlistarskóli og hóraðs bókasafn í brúnni Morgunblaðið/Helgi Bjamason Efri hæð viðbyggingar Vopnafjarðarskóla lítur út eins og brú á skipi og neðri hæðin eins og stefni. Aðalbjörn Björnsson skólastjóri stendur á skipinu og brúin sést á bak við hann.. Aðstaða nemenda og starfsfólks Vopnafjarð- arskóla batnar mjög við upphaf skólastarfs í haust þegar tekin verð- ur í notkun ný álma. Öll kennsla verður á einum stað og námið samfellt. Þar verður auk þess aðstaða fyrir tónlistar- skóla og héraðsbóka- safn, Helgi Bjarnason skoðaði aðstöðuna og ræddi við skólastjórann. VERKTAKI hefur skilað af sér viðbyggingu grunnskólans á Vopnafirði. Eftir er að raða inn húsgögnum og tækjum og verður nýi skólinn tekinn í notkun við upphaf skólastarfs í haust. Bygg- ing grannskólans hefur staðið yfir í tvö ár og annast trésmiðjan Mælifell ehf. á Vopnafirði verkið. Arkitekt viðbyggingarinnar er Þorsteinn Geirharðsson. Byggingin á að minna á sjóinn. Neðri hæðin er eins og stefni á skipi sem snýr til sjávar og efri hæðin er hins vegar eins og brú á skipinu og af báðum hæðum er fallegt útsýni út á fjörðinn. Á eftir að reyna á starfsemina Nýja álman er um 1100 fermetr- ar að stærð. A efri hæðinni er sameiginleg aðstaða fyrir nemend- ur, mötuneyti, tónlistarskóli, að- staða fyrir skóla- og héraðsbóka- safn, sýórnunarálma og kennara- stofa. A neðri hæðinni eru fimm kennslustofur fyrir yngstu nem- endur skólans, aðstaða fyrir hús- vörð og góðar geymslur. í fram- haldi af byggingu nýju álmunnar hefur verið unnið að endurbótum á eldri hluta skólans sem byggður var 1967. Þar verða kennslustofur fyrir eldri nemendur skólans auk sérgreinastofa. „Það er varla hægt að hugsa sér betri aðstöðu. Enn á eftir að reyna á starfsemina en ég get ekki séð annað en að hún eigi að ganga vel,“ segir Aðalbjöm Björnsson skólastjóri. Nú verður skólastarfið á einum stað en undanfarin ár hef- ur þurft að kenna á þremur stöð- um í þorpinu. „Hér verður einset- inn samfelldur skóli þar sem nemendur fá hádegismat og fara ekkert heim fyrr en námi er lokið þann daginn. Jafnvel er hugsan- legt að allir nemendur ljúki nám- inu á sama tíma að deginum en það er kostur þar sem í skólanum eru einnig börn úr sveitinni sem þarf að aka heim,“ segir Aðalbjörn. Hinum megin götunnar er leik- skóli Vopnfirðinga og fá leikskóla- börnin mat úr mötuneyti grunn- skólans. Nemendum líði vel Tónlistarskóli Vopnafjarðar verður í grunnskólanum og þar verður einnig sameiginlegt skóla- og héraðsbókasafn. Aðalbjörn seg- ir að eftir sé að þróa samskipti grunnskólans og tónlistarskólans og athuga hvort stundatöflur þeirra verði tengdar beint saman. Hugmyndin með sameiginlegu bókasafni er að þar verði eins kon- ar upplýsingamiðstöð hreppsbúa. Vopnfirðingar hafa notað bókasafn sitt tiltölulega mikið, kannski vegna landfræðilegrar einangrunar héraðsins. Hugmyndin er að þar geti fólk einnig komist í tölvu og inn á Netið. Með því að taka tónlistarskóla og bókasafn inn í grunnskólann er verið að opna skólahúsnæðið meira fyrir fólk á öllum aldri því að nem- endur tónlistarskólans eru eins og gestir bókasafnsins á öllum aldri. Þá er tölvuver með myndfunda- búnaði í eldri hluta hússins og er sú aðstaða mikið notuð af fólki ut- an skólans, meðal annars við nám- skeiðahald og fundi. Nemendum fækkar „Ég vonast til að þessi góða aðstaða skili betra og markvissara skólastarfi. Að betri árangur náist og ekki síður að nemendum og starfsfólki líði betur. Það skiptir mestu máli að nemendunum líði vel,“ segir skólastjórinn. Bygging nýju álmunnar kostar um 160 milljónir kr. að sögn Þor- steins Steinssonar sveitarstjóra. Við þá upphæð bætist kaup á bún- aði í húsnæðið og endurbætur og breytingar á eldri hluta hússins. Má búast við að þegar upp verður staðið verði kostnaðurinn hátt í 200 milljónir kr. Er þetta töluvert mikið fyrir 770 manna sveitarfélag þar sem íbúum og þar með nem- endum hefur farið fækkandi um árabil. Þorsteinn segir að Jöfnun- arsjóður sveitarfélaga greiði 15- 20% kostnaðar. Sveitarfélagið hef- ur selt hlutafé til að standa undir byggingarkostnaði auk þess fram- kvæmdafjár sem það hefur sam- kvæmt fjárhagsáætlun en það sem upp á vantar er fjármagnað með lánsfé. Nemendum hefur fækkað úr 130 niður í rúmlega 100 á tveimur ár- um og með sömu íbúaþróun má búast við enn færri nemendum á næstu árum. Sautján nemendur voru í fjölmennasta árgangi skól- ans á síðasta ári og þrír í þeim fá- mennasta. „Byggingin er vissulega stór og hugsanlega hefði mátt hafa sumt minna. En það verður að hafa í huga að hver skóli þarf ákveðna aðstöðu hvort sem nem- endurnir eru 200 eða 100,“ segir Aðalbjörn skólastjóri þegar hann er spurður að því hvort ekki hefði verið hægt að sleppa því að byggja við skólann vegna fækkunar nem- enda. Þorsteinn sveitarstjóri segir að góður grunnskóli og leikskóli á staðnum sé ein af grunnforsendum þess að byggðin dafni. „Það má ekki gefast upp þótt á móti blási. Sókn er besta vörnin,“ segir hann. Hann getur þess jafnframt að hreppsnefnd Skeggjastaðahrepps þar sem Bakkafjörður er þéttbýlis- kjarninn hafi óskað eftir samvinnu í skólamálum. Muni elstu nemend- urnir úr hreppnum ganga í skóla á Vopnafirði en þeir verða reyndar aðeins þrír í vetur. S Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson. A góðri stund Grundarfirði - Um helgina verð- ur haldin fjölskylduhátfð hér i' Grundarfirði undir heitinu „Á góðri stund í Grundarfirði“. Ibúarnir eru búnir að vera á fullu við að fegra hús sfn og garða. Á myndinni eru Elís Gfslason og dóttir hans Hugrún að setja nýja girðingu við heimili sitt. /*f Boegán V ^ (m\ Hátíð jarðar við Úlfarsfell í dag kl. 1Í Fjölbreytt upplifun fyrir alja fjölskylduna • Géstir taka þátt í uppgræðsju svæðisins • Tónlist, myndlist og uppákomur í skjóli fjalli Smökkun á nýrri uppskeni if jarðeplum ój í • Gönguferðir undir leiðsögn Sérfræðinga I Svifdrekamenit svífa til jarðar við tónlist. r i JÍr.i R EYKJAVlK AM*ononynO^u MINMIMO, X r L. by-gg ingah lutar-byggi ngalausnir Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.