Morgunblaðið - 29.07.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 31
LISTIR
Notar sólarljósið
í verkum sínum
TILLAGA myndlistarmannsins
Kees Visser um listskreytingu í
nýbyggingu Kennaraháskóla Is-
lands, var valin til frekari útfærslu
og framkvæmda, en
56 myndlistarmenn sendu inn til-
lögur um listaverk í nýbygginguna
sem enn er á hönnunarstigi.
Forvalsnefnd valdi sex listamenn
úr innsendum umsóknum til að taka
þátt í samkeppninni en þeir voru,
auk Kees, Finna Birna Steinsson,
Guðjón Ketilsson, Guðrún Krist-
jánsdóttir, Hreinn Friðfinsson og
Þorvaldur Þorsteinsson. Þessir
listamenn skiluðu inn frumdrögum
að listaverkum í nýbyggingu skól-
ans og eru þær til sýnis í skála aðal-
byggingar Kennaraháskólans við
Stakkahlíð.
Þrír speglar endurkasta sólar-
ljósi niður á ganginn
Við opnun sýningarinnar sagði
Ólafur J. Proppé rektor Kennara-
háskóla íslands meðal annars að
arkítektar og listamenn ynnu saman
í síauknum mæli og að það væri
mikil hagræðing að ákveða list-
skreytingar meðan byggingin væri
enn á hönnunarstigi.
Kess Visser sendi inn þrjár tillög-
ur að listaverkum. Hið fyrsta og
jafnframt viðamesta er listaverk í
miðrými byggingarinnar sem gert
verður úr gleri. „Ég fékk þá hug-
mynd að nota birtu sólarinnar sem
skín í gegnum glerganginn," segir
listamaðurinn. „Ofan á þakglugga
eru settir þrír speglar sem ætlað er
að endurkasta sólarljósi niður á
ganginn. I gólfið verða settar þrjár
hvítar glerplötur, jafnstórar spegl-
unum sem ætlað er að sólarljósið
falli á, á jafndægrum að hausti og
vori og sólstöðum að vetri og
sumri.“ Hann segir að sólarljósið
muni aðeins skína á glerplötumar í
fimm mínútur í hvert skipti. Verkið
sé síbreytilegt og þeir sem um
bygginguna gangi geti séð hvernig
ljósgeislinn fjarlægist eða nálgist
glerplötuna smátt og smátt. Hluti af
verkinu eru einnig tvær litaðar
glerplötur sem hanga frjálst í mið-
ganginum, festar í þakbita. Ein
þeirra mun ná frá lofti niður að gólfi
þriðju hæðar, en önnur mun liggja
þvert. Öll handrið í miðrýminu, eru
hugsuð úr glerplötum. Tvö handrið-
anna verða úr lituðu gleri og eitt úr
speglagleri.
Skýjafar og jarðmyndir
Önnur tillaga er fyrir rúður á
glervegg suður- og austurhliðar
vinkilbyggingar. Efri gluggarnir
verða skreyttir með myndum af
skýjafari og þeir neðri með jarð-
myndum. „Síðustu 7-8 árin hef ég
safnað myndum af jörðu og himni, á
gönguferðum mínum um landið. Það
er gaman að geta nýtt þær fyrir
þetta verkefni,“ segir hann. Hinir
gluggar byggingarinnar verða með
mismunandi lituðu filmugleri.
Þriðja tillaga Kees er fyrir bóka-
safn skólans sem hann hugsar sem
einskonar sökkul byggingarinnar.
„Verkið verður úr slípuðum
grágrýtisflísum. Neðst eru þær
svartar en eftir því sem ofar dregur
leysist liturinn yfir í bláan,“ útskýrir
höfundurinn.
Morgunblaðið/Amaldur
Myndlistarmaðurinn Kees Visser við tillögur sínar þijár.
Lofsamlegir dómar
í 62. TÖLUBLAÐI tímaritsins Pi-
ano Journal sem nýlega er komið út
er að finna gagnrýni á geisladisk
Halldórs Haraldssonar píanóleik-
ara þar sem hann leikur sónötur
eftir Schubert og Brahms.
Hinn heimsþekkti píanóleikari
Alberto Portugheis fjallar um disk-
inn á lofsamlegan hátt og talar um
„meistaralegan flutning“ verkanna.
Um Sónötu Schuberts í B-dúr
segir meðal annars: „Haraldsson
nær fullkomlega að ná fram hinni
stöðugu innilegu nálægð fyrsta
kaflans, hinni kyrru sorg og drama-
tík Andante sostenuto-kaflans og
glettilegri kátínu Scherzo-kaflans.
Eins og sannur Schubert-flytjandi
leikur Haraldsson svo síðasta þátt-
inn létt og leikandi..."
Um Sónötu Brahms í f-moll segir
greinarhöfundur meðal annars að
Schumann hafi sagt að píanósónöt-
ur Brahms væru dulbúnar sinfón-
íur. „Halldór Haraldsson leikur f-
moll sónötuna eins og sannur
hljómsveitarstjóri. Hægt er að
heyra mismunandi blæ einleiks-
hljóðfæranna og á milli þétt og
kröftugt samspil heillar hljómsveit-
ar.“
Piano Journal er gefið út af Sam-
bandi evrópskra píanókennara
(European Piano Teachers Associ-
ation, EPTA), og kemur ritið út
ársfjórðungslega.
Norskt útileikhús í Reykholti
Kristnitakan í
Noregi 995
Um 120 manna leikflokkur frá eynni
Mostri á Hörðalandi í Noregi sýnir
leikritið Kristkonungana eftir
Johannes Heggland á Reykholtshá-
tíð í dag. Leiksýningin fer fram úti
undir berum himni, í Snorragarði, og
hefst kl. 16.
Að sögn leikstjórans, Ragnhild
Randal, fjallar verkið um kristnitök-
una í Noregi. í tíma spannar það um-
brota- og átakaárin 995-1024, eða
allt frá því Ólafur konungur
Tryggvason kom til Mosturs árið 995
og þar var sungin messa í fyrsta sinn
í Noregi, þar til Ólafur Haraldsson
fékk kristniréttinn samþykktan á
Mostursþingi 1024. Gamli og nýi tím-
inn mætast, heiðni og kristni.
Leiksýningin hefur verið sett upp
í tengslum við hátíðina Mostraspel-
et, sem haldin hefur verið um hvíta-
sunnuhelgina á hverju ári allt frá ár-
inu 1984. Leiksviðið er utandyra, í
gamalli kalknámu, þar sem 1.500
áhorfendur geta nú fylgst með
hverri sýningu. Leikaramir, sem eru
um 120 talsins, eru allir íbúar eyjar-
innar Mosturs eða rekja ættir sínar
þangað.
í fyrsta sinn utan Mosturs
Þetta er í fyrsta sinn sem sýningin
er sett upp utan Mosturs. Leikstjór-
anum líst vel á aðstöðuna í Reyk-
holti, segir það mikla ögrun að leika
þar og kveðst hlakka mikið til.
í fullri lengd tekur sýningin tvær
og hálfa klukkustund en í Reykholti
verður sýnd stytt útgáfa sem tekur
um klukkutíma og fimmtán mínútur.
Höfundurinn, Johannes Hegg-
land, sem kominn er yfir áttrætt,
komst ekki með til íslands, en hann
hefur skrifað fjölda bóka og leikrita.
„Við hefðum gjarnan viljað hafa
hann með hér í Reykholti - en hann
verður með okkur í huganum," segir
Ragnhild Randal.
Frá sýningu leikflokksins frá
Mostri á Kristskonungunum.
Reyk-
holtshátíð
Á DAGSKRÁ Reykholtshátíð-
ar í dag, laugardag, er formleg
afhending á húsnæði Snorra-
stofu í Reykholtskirkju klukk-
an 14 að viðstöddum forseta Is-
lands, Ólafi Ragnari Grímssyni,
og norsku konungshjónunum
Haraldi V og Sonju. Klukkan
16 hefst sýning 100 manna leik-
flokks frá Noregi á Kristskon-
ungarnir eftir Johannes Hegg-
land og klukkan 21 eru
kvöldtónleikar, þar sem Hanna
Dóra Sturludóttir sópransöng-
kona og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanóleikari flytja ís-
lensk lög og óperuaríur.
Fluttar verða nýjar útsetning-
ar á íslenskum sönglögum eftir
Áma Harðarson.
Vandaðar og vel skipu-
lagðar 4ra-5 herbergja
íbúðir á góðum stað í
Reykjavík til sölu.
íbúðirnar eru með stór-
um svölum á móti
suðri, þvottahús í íbúð-
inni, rúmgott baðher-
bergi, stór barnaher-
bergi, rúmgott eldhús
og fallegt útsýni.
Upplýsingar í síma
896 1606 og 557 7060
O'drniöþffi!
Milupa bamamdturínn er
farsæl byrjun á réttu og
undirstöðugóðu mataræði
fýrír barnið þitt.
Milupa bamamaturinn er
ætlaður börnum frá 4-8
mánaða atdrí.
Wlaestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT
_______________________________________a