Morgunblaðið - 02.08.2000, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.08.2000, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Brúin yfir Hóls- selskfl lagfærð LAGFÆRINGAR hafa verið gerðar á brúnni yfir Hólsselskfl þar sem rúta valt um miðjan síðasta mánuð og maður lést og fjöldi fólks slasaðist. Guðmundur Heiðreksson, deildar- stjóri veghönnunar hjá Vegagerðinni á Akureyri, sagði að sett hefði verið nýtt vegrið á brúna. Stöplar voru brotnir niður og nýir settir upp. Nýja vegriðið er nokkru utar en það sem fyrir var þannig að nokkru rýmra er nú um þá bfla sem aka yfir brúna. Guðmundur sagði að enn væri þriggja til fjögurra sentímetra brík niðri við brúna og hún yrði ekki tekin í burtu. „Þrátt fyrir þessar lagfær- ingar er ástandið enn þannig að fara verður hægt og rólega yfir brúna,“ sagði Guðmundur. Hafist var handa við að laga brúna strax eftir slysið og lauk verkinu nú í síðustu viku. Guðmundur sagði að í leiðinni hefðu tvær smábrýr á svip- uðum slóðum, þ.e. yfir Ytri- og Syðri- Vatnsleysu, einnig verið lagfærðar og sett á þær ný vegrið, en þær eru á kaflanum frá hringveginum að Grímsstöðum. Starfsmenn Vegagerðarinnar munu innan skamms ljúka við lagn- ingu vegar að nýrri brú yfir Fnjóská yfir til Grenivíkur og sagði Guð- mundur að hún yrði tekin í notkun í lok ágústmánaðar. Þá er unnið að stóru verkefni á sviði vegagerðar á Tjörnesi þar sem verið er að endur- byggja veginn fyrir Tjörnesið. Þetta er þriðji áfanginn sem nú er unnið að, en hann er frá Hringveri að Breiðu- vík. Töluverður hluti þessa kafla verður tekinn í notkun í haust en framkvæmdum lýkur að fullu næsta sumar. Gert er ráð fyrir að lokið verði við að leggja allan veginn fyrir Tjörnes á næstu þremur til fjórum árum. Um þessar mundir eru að hefjast framkvæmdir við veginn á Mývatns- öræfum, þ.e. við kafla frá Hólma- tunguafleggjara að Jökulsá, og loks má nefna að unnið er við fjögurra kflómetra vegarkafla í Öxarfirði, í kringum Lund, en þar er verið að endurbæta veginn og leggja á hann slitlag. „Sem betur fer er nóg að gera hjá okkur,“ sagði Guðmundur. Morgunblaðið/Albert Kemp Helga Bjarnaddttir við minnisvarðann sem hún afhjúpaði. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fyrsta skóflustungan tekin. Það er Sigurður Guðmundsson sem er með sköfluna á lofti. Ólafur H. Júlíusson, sölu- og markaðsstjóri Húsasmiðj- unnar, Steinar Árnason, rekstrarstjóri verslunarinnar á Selfossi, og Sturla Snorrason, einn aðaleigenda Húsasmiðjunnar. Húsasmiðjan byggir stórt verslunarhús Selfossi - Nýtt 4.000 fermetra versl- unar- og þjónustuhúsnæði Húsa- smiðjunnar mun rísa við Eyraveg á Selfossi. Fyrsta skóflustungan að húsnæðinu var tekin síðastliðinn föstudag. Húsið verður á nýrri lóð Húsasmiðjunnar við neðanverðan Eyraveg á Selfossi, í nýskipulögðu hverfi. Nýja húsið, sem tilbúið verð- ur í maí á næsta ári, mun hýsa versl- un og byggingalager Húsasmiðjunn- ar en starfsemi fyrirtækisins rúmast ekki lengur í núverandi húsnæði á Eyravegi 37. Gert er ráð fyrir að um 40 manns vinni í nýja verslunarhús- inu. • Það var Sigurður Guðmundsson húsasmíðameistari sem tók fyrstu skóflustunguna en hann var einn af aðaleigendum byggingavöruverslun- ar SG-einingahúsa, sem sameinaðist rekstri Húsasmiðjunnar er hún hóf starfsemi á Selfossi. Steinar Árna- son rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Selfossi sagði nýbyggingu Húsa- smiðjunnar stórvirki í framkvæmd- um á Selfossi. „Þessi framkvæmd er fagnaðarefni fyrir Sunnlendinga og er akkeri fyrir atvinnulífið þegar svona stórt fyrirtæki setur sig niður til framtíðar hér á Selfossi," sagði Steinar. Fáskrúðsfirði - Haldnir voru franskir dagar á Fáskrúðsfirði 28.- 30. júlí. Virðist sem hátíð þessi njóti allnokkurrar virðingar, því þá heimsækja Fáskrúðsfjörð margir gestir auk þess sem brottfluttir Fá- skrúðsfirðingar heimsækja átthag- ana, vini og íjölskyldur. Hátiðin hófst með helgistund í franska grafreitnum á Krossum ut- an við þorpið. Þess má til gamans geta að sendiherra Frakka var í heimsókn á Fáskrúðsfirði á föstu- daginn. Um kvöldið kom fólk saman í skrúðgarði og horfði á ýmsar upp- ákomur, kveiktur var varðeldur og sungið fram á nótt. Á laugardag var börnum boðið á hestbak og Lions- menn sáu um dorgveiði og veitt voru verðlaun fyrir stærsta fiskinn. Fótboltamót 4. flokks stúlkna af Austurlandi var og haldið. Aflijúpaður var minnisvarði um Berg Hallgrímsson. Var það eigin- kona hans, Helga Bjarnadóttir, sem það gerði, en áður rakti Eiríkur Stefánsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarð- ar, starfsferil Bergs og upp- byggingu að atvinnumálum Fá- skrúðsfjarðar, en hann starfaði lengi við útgerð og sfldarverkun á Fáskrúðsfirði. Eiríkur og Guðríður Benediktsdóttir voru einmitt frum- kvöðlar að afhjúpun minnisvarð- ans. Við þetta tækifæri afhenti Dóra Gunnarsdóttir bikar sem keppt var um í fyrsta sinn nú, en hlaupið var 2,5 km minningarhlaup um Berg, sem var annálaður hlaup- ari. Ráðgert er að hlaupið verði ár- lega. Steinninn var hannaður af Þór Sigmundssyni og unninn í Stein- iðjunni í Reykjavík. Á laugardagskvöldið var flug- eldasýning og dansleikur. Margs konar uppákomur voru alla helg- ina, svo sem sýningar á munum og myndum, hjólreiðakeppni, óvissuferðir og leiktæki og ungl- ingadansleikir voru alla dagana í tjaldi. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Landganga á Húsatanga Norður-Héraði - Meðan ferjan á Fljótinu, Lagarfljótsormurinn, liggur bundin við hlið Lagar- fljótsormsins hins eina sanna við Húsatanga töltir fólk í land. Landgangurinn er ekki hefðbund- inn heldur er þar um að ræða gamlan hertrukk í eigu Hákonar Aðalsteinssonar og Sigrúnar Benediktsdóttur, skógarbænda á Húsum í Fljótsdal. Síðan er geng- ið til „tjalds“, sem reist var af Húsabændum á Húsatanganum skammt ofan fjöruborðs. „Tjald- ið“ er reist úr lerkiviði, stofnar í uppistöðum og lerkifjalir negldar þar á í staðinn fyrir tjalddúk. Nýr slökkvibíll til Seyðisfjarðar Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Seyðisfirði - Slökkvilið Seyðisfjarð- ar hefur fengið nýjan slökkvibfl og var hann afhentur við hátíðlega at- höfn. Bæjarbúum og öðrum var boð- ið til veislu í og við slökkvistöð bæj- arins í sumarhita og lognblíðu. Þar var og haldin sýning á tækjum og tólum slökkviliðsins. Einnig sýndu slökkviliðsmenn úr Slökkviliði Seyðisfjarðar hvernig alvarlega slös- uðu fólki er bjargað úr bílflaki. Beittu þeir til þess klippum og ýms- um öðrum nútímalegum verkfærum. Það var Benedikt Gunnarsson fulltrúi frá Ólafi Gíslasyni & co. hf ./ Eldvarnarmiðstöðinni sem afhenti Ólafi H. Sigurðssyni bæjarstjóra Seyðisfjarðar bílinn. Ásgeir Magn- ússon slökkviliðsstjóri Seyðisfjarðar tók síðan við bflnum. Guðmundur Vignir Óskarsson formaður Lands- sambands slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna flutti tölu og færði síðan slökkviliðinu að gjöf nýtt fé- lagsmerki félagsins. Hann sagði bfl- inn færa stöðu brunamála upp um mörg stig og að kaupstaðurinn sé nú kominn í framvarðasveit á landsvísu við sambærilegar kringumstæður. Cecil Haraldsson sóknarprestur flutti blessunarorð við athöfnina. Ásgeir Magnússon slökkviliðs- stjóri segir löngu orðið tímabært að endumýja tæki slökkviliðsins. „Und- anfama áratugi hafa Seyðílrðingar búið við það óöryggi að hafa aðeins yfir að ráða einum slökkvibfl, göml- um Bedford, sem er einstaklega hægfara og ekki hægt að senda hann út fyrir bæinn. Með tilkomu nýja bflsins verður mögulegt að taka þátt í björgunaraðgerðum á miklu stærra svæði og hafa jafnframt varabfl á Seyðisfirði. Bæjarstjórnin hefur undanfarið staðið mjög vel að upp- byggingu og endurnýjun tækjabún- aðar slökkviliðsins og með þessum nýja bfl er brotið blað í sögu björgun- ar- og brunamála bæjarfélagsins.“ Bifreiðin er af gerðinni Man/Ros- enbauer 19.364 FAK38 4x4, árgerð 2000. Hún er með 360 hestaíla vél, fjórhjóladrifin með hátt og lágt sí- drif, driflæsingu að aftan og framan, ABS-hemla, kojuhús með pláss fyrir fjóra menn, þar af tvo í stólum með reykköfunartækjum. Burðargeta er 19 tonn. I yfirbyggingu, sem er úr áli og plasti, er 4.000 lítra vatnstankur og 200 lítra froðutankur og Rosen- bauer-branadæla með tveimur inn- tökum og fjórum úttökum. Auk ýmiss búnaðar annars er 4,5 kW rafstöð, 10 m branastigi og 3x500 W loftdrifið ljósamastur. I bflnum verður einnig komið fyrir fullkomnum klippu- og björgunar- búnaði til að bjarga slösuðum úr bíl- flökum eða húsarústum. Slökkvibfllinn nýi er fyrstur í röð bíla sem verða afgreiddir eftir útboði sem Eignarhaldsfélag Brunabótafé- lagsins og Samband íslenskra svejt- arfélaga stóðu fyrir á síðasta ári. Ól- afur Gíslason & co J- Eldvarnamiðstöðin í samvinnu við Rosenbauer a/s í Noregi var með hagstæðasta tilboðið og er nú verið að smíða fimm bfla til viðbótar sem verða afgreiddir á næsta ári. Þetta er fjórtándi slökkvibíllinn sem kem- ur til Islands úr verksmiðjum Rosen- bauer í Flekkefirði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.