Morgunblaðið - 02.08.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 02.08.2000, Qupperneq 36
26 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Kosninga- hátíðin „ Við elskum Láru, “stendur á spjaldi sem eldri kona heldur uppi beint fyrir framan eina sjónvarpsvélina. „Láru sem sveitarstjórafrú, “segir á öðru. Og „Lára, Lára, Lára“á þvípriðja. Kosningar til sveitar- stjóra nálgast. Georg og stuðnings- menn hans eru ánægðir með barátt- una til þessa; hann hefur forskot á keppinautinn, Alfreð, samkvæmt skoðanakönnun staðarblaðsins, munurinn virðist að vísu eitthvað vera að minnka en lokaspretturinn leggst vel í fólk. Kosningahátíð Georgs er hafin í félagsheimilinu. Kvenfólldð í ættinni stóð og steikti kleinur, bakaði pönnukökur og flatbrauð alla vikuna. Karlamir skipulögðu á meðan. Lára, eiginkona Georgs, er komin í upphlutinn, tilbúin að stíga á svið. Georg skrifaði að vísu ávar- pið hennar, en VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson Lára verður að virka sann- færandi og hefur því æft sig vel. Aherslur hér, bros þar. Georg hefur lengi vasast í stjómmálum, þótt búskapurinn hafi verið hans aðalstarfi lengst af og talsverður tími einnig farið í gjaldkerastarfið hjá íþróttafélag- inu. Faðir hans, Georg eldri, gegndi embætti sveitarstjóra um tíma fyrir nokkmm ámm og afinn - Patrekur - kom einnig nálægt stjómmálum á sinni tíð. Var í hreppsnefndinni. Eftir að Georg yngri lauk prófi frá bændaskólanum tók hann meiraprófið og þótti mjög ömggur á vömbílnum. Til fyrirmyndar. En hefur hvorki viljað játa því né neita að hafa reykt njóla á bænda- skólanum. Segir að það sé ekki í sínum verkahring að sverja slíkt af sér. Þetta sé einkamál. Eftir farsælan feril sem bílstjóri tók strákurinn svo við búinu þegar Georg eldri tók að reskjast. Það var honum metnaðarmál að feta í fótspor föðurins. En - vel að merkja - ekki bara í búskapnum heldur líka á stjómmálasviðinu. Því er hátíðin í kvöld svo mikilvæg. Svo var látið líta út sem öllum í sveitinni væri frjálst að mæta, en ungur frændi Georgs - og enn einn karlmaðurinn í fjölskyldunni sem ber sama nafn - sá til þess að útvaldir vinir og harðir stuðnings- menn Georgs mættu snemma, og salurinn var því orðinn fullur þeg- ar menn Alfreðs mættu og þeim vísað frá. Georg þessi frændi, sem starfað hefur sem bamakennari fyrir sunnan en stefnir að laganámi, kann sitt fag. Enda eins gott, stað- arsjónvarpið sýnir nefnilega beint frá hátíðinni um alla sveit og ekk- ert má því fara úrskeiðis. Imyndin verður að vera í lagi. Georg frændi er snjall og hefur látið útbúa litskrúðug spjöld sem fólk er beðið að veifa þegar hann gefur merki. Það getur ekki brugðist; hann gaf körlunum brjóstbirtu við innganginn til að i. gulltryggja að allt yrði í lagi. Lára er lærður bókasafnsfræð- ingur, hefur starfað sem kennari en er í launalausu leyfi sem stend- ur; einbeitir sér að því að eigin- maðurinn nái kjöri. „Georg er leið- togi sem dregur fram það besta í öðram og hann mun draga fram það besta hjá fólkinu hér í sveit- inni,“ segir Lára í ávarpi sínu og er vel fagnað. „Ég lofa ykkur því að hann verður frábær sveitarstjóri," bætir hún við og lófaklappið ætlar aldrei að þagna. Lára brosir framan í sjónvarps- vélarnar. „Við elskum Lára,“ stendur á spjaldi sem eldri kona heldur uppi beint fyrir framan eina sjónvarpsvélina. „Lára sem sveitarstjórafrú," segir á öðra. Og „Lára, Lára, Lára“ á því þriðja. Greinilegt er á öllu að Georg frændi hefur skipulagt allt út í ystu æsar. „Georg lagði mikla áherslu á það að börnin okkar lærðu öll að lesa áður en þau hæfu skólag- öngu,“ segir Lára í ræðunni - „og sem sveitarstjóri mun hann veita aukna fjármuni í lestrarkennslu hér í sveitinni. Við vildum kenna bömunum okkar það sem for- eldrar okkur kenndu okkur; að það væri bæði skemmtilegt og mikilvægt að kunna að lesa,“ segir frúin. „Ein aðalástæða þess að Georg er í framboði til sveitar- stjóra er að hann dreymir um að stuðla að því að öll böm hér í sveit- inni eigi jafna möguleika." Til að leggja áherslu á mikil- vægi lestrarkennslunnar sitja nokkur fjögurra ára börn með lestrarbækur á sviðinu og lesa í hljóði meðan frúin talar. Klappað er eftir hverja einustu setningu Lára. Þegar Georg kemur sjálfur á svið, eftir að eiginkonan lýkur máli sínu, verða fagnaðarlætin eins og í Laugardalshöllinni eftir að ísland skorar í landsleik. Bókstaflega. „Valdimaaaaaaar," hljómar um fé- lagsheimilið og herskari fólks heyrist æpa: „Grrrríííímmm- ssooooooon." Georg frændi svitnar. Skyldi ég hafa sett vitlausa spólu í tækið? hugsar hann með sér en svo virðist sem enginn hafi tekið eftir hinu óvænta „undirspili". Sem betur fer. Loks kemur að því að kjósendur fá tækifæri til að spyrja fram- bjóðandann um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta. Allt í beinni. Eldri maður í íremstu röð gríp- ur strax tækifærið. „Má ég láta spjaldið síga? Gigtin í öxlinni er farin að segja til sín. Svo fékk ég líka flís úr skaftinu." Hvorki Georg né Georg er skemmt. Hvemig gat þetta gerst? Var ekki öragglega búið að dreifa spumingum? „Hvað liggur ykkur á hjarta, kæra vinir?“ segir fram- bjóðandinn, brosir breitt og lætur sem hann hafi ekki heyrt í gamla manninum. Ungui' maður rís á fætur og segir, feimnislega: „Hver er stefna þín í a...fangelsismálum?“ „Það er heppilegt að þú skulir minnast á þetta, Jón minn,“ segir frambjóðandinn. „Ég legg einmitt mikla áherslu á áfengismálin. Áfengi er böl, og ég hef ákveðið að nái ég kjöri verði hætt að veita áf- engi í veislum á vegum...“ „Já, auðvitað. Áfengismálin...,“ grípur ungi feimni maðurinn vand- ræðalega fram í. „Ég á svo erfitt með að lesa skriftina þína...“ Mjóróma karl aftarlega í saln- um stendur þá upp og segir hvellri röddu: „Georg, ég er með spum- ingu. Getum við ekki farið að fá aftur í glösin?" Evrópusamstarf til eflingar fjölmiðlum í almannaþágu EVRÓPUSAMBAND útvarps- og sjónvarpsstöðva (EBU) á 50 ára starfsferil að baki um þessar mundir. Ríkisútvarpið hefur verið aðili að sam- bandinu frá upphafi og hafa Islend- ingar notið afraksturs af samstarfinu innan EBU á margvíslegan hátt. Það vora útvarpsstöðv- ar í Vestur-Evrópu og við Miðjarðarhaf, sem upphaflega mynduðu EBU og hafa lengst af verið bakfiskurinn í þessum samtökum ásamt sjónvarpsdeild- um sínum, eftir að þær tóku til starfa. Eftir hrun kommúnismans og þróun fjömiðla í austur- hluta álfunnar í átt til lýðræðis, hefur aðildar- stöðvum fjölgað að mun og era þær nú 69 talsins en aukaaðilar 49. Skilyrði fyrir þátttöku í EBU era fyrst og fremst fjölmiðlun í almanna- þágu, virðing fyrir ólíkum skoðunum í allri umfjöllun og þjónusta við þjóðar- heild með alhliða framboði dagskrár- efnis á eigin tungumáli um öflugt dreifikerfi er nái til landsins alls. Og hvað hefur Rfldsútvarpið og ís- lenzkur almenningur borið úr býtum fyrir tilstuðlan EBU? Allt frá upphafi hafa útvarpstöðvarnar í sambandinu átt nána samvinnu á fjölmörgum svið- um. Skipti á dagskrárefni hafa mjög komið við sögu og hefur Rfldsútvarpið því um áratugaskeið getað flutt fjöld- ann allan af afburða tónlistarefni frá öðrum aðildarstöðvum án þess að greiða sérstaklega fyrir það. Þá hefur Rfldsútvarpið einnig verið þátttak- andi í sameiginlegum dagskrárverk- efnum og komið íslenzkum höfundum og flytjendum á framfæri í útvarpi víða um lönd. Hafi fréttamenn Rflds- útvarpsins þurft að fylgjast _með við- burðum í Evrópu, er snertu ísland og íslendinga sérstaklega, hafa þeir getað treyst á aðstoð samstarfsaðil- anna innan EBU með upptökur og aðstöðu í hljóðverum. Á þetta hefur t.d. mikið reynt í sambandi við beinar íþróttaútsendingar. Að sjálfsögðu er þetta gagnkvæmt samstarf og greiðvikni. Þekktast er EBU fyrir sjónvarpssam- vinnuna, sem gengur undir nafninu Evróvis- jón, og samnefnda söngvahátið. En Evró- visjón er miklu meira en sú árlega dægurlagakeppni. Til marks um það er jarðstöðin íyrir gervihnattamóttöku, sem stendur við útvarpshúsið í Efstaleiti. Þar er allan daginn tekið á móti fréttamyndum víðs vegar að úr veröldinni í frétta- sldptum EBU-stöðvanna eða eftir samningum við sjónvarpsstöðvar í öðrum heimshlutum. Og til þess að gera samstarfið framkvæmanlegt hefur EBU beitt sér fyrir ýmsum tæknilegum nýjungum á sviði útvarps og sjónvarps og lagt á ráðin um staðla, sem allir hafa tileinkað sér. í nafni EBU hafa evrópskar sjón- varpsstöðvar komið fram sem ein heild og gert sameiginlega samninga við alþjóðasambönd innan íþrótta- hreyfingarinnar og tryggt sér þannig sýningarrétt fi'á flestum merkustu viðburðum á sviði vinsælustu keppnis- EBU Nýju fjölmiðlarnir, segir Markús Örn Antonsson, safnast stöðugt á hendur fárra aðila. íþrótta. Þetta á m.a. við um ólympíu- leika og heimsmeistarakeppni og Evrópukeppni í knattspymu. Ýmsa aðra tilfallandi viðburði eins og beinar útsendingar frá landsleikjum íslend- inga erlendis má þakka aðild okkar að EBU. Handknattleikurinn hefur þar oft verið áberandi. Nýleg Bach-tónlistarhátíð í dag- langri útsendingu í Sjónvarpinu sýnir einnig vilja og metnað EBU til að bjóða athyglisverða listviðburði og menningarefni til flutnings í dag- skrám aðildarstöðvanna. Um gervi- hnettina berast hingað sömuleiðis tónleikar í beinum útsendingum fyrir útvarp, svonefhdir Evróputónleikar. Þá hefur sambandið veitt verðlaun fyrir athyglisverð handrit að sjón- varpsleikritum eftir unga höfunda. Hafa íslendingar náð góðum árangri í þeirri keppni. Þannig er af ýmsu að taka og ótvírætt hafa Rfldsútvarpið og notendur þess haft ómældan ávinning af þessari samvinnu þó að því sé ekki hampað að staðaldri. EBU hefur á síðari áram einbeitt sér að því að vera sameiginlegur tals- maður útvarps- og sjónvarpsstöðva í almannaþágu, m.a. gagnvart Evrópu- sambandinu og Evrópuráðinu, í því skyni að standa vörð um gildi opin- berra fjölmiðla í almannaþágu svo að Markús Örn Antonsson Lóðaskortsstefna R-listans og hrikalegar afleiðingar AÐGERÐARLEYSI R-listans í skipulags- og lóðamálum borgarinn- ar hefur þegar haft alvarlegar afleið- ingar. Á sex ára valda- tíma R-listans í Reykjavík hefur hann aðeins deiliskipulagt eitt svæði í Grafarholti fyrir íbúðabyggð og ráðstafað lóðum úr hluta þess. Einstak- lingar og fyrirtæki, sem vilja byggja í Reykjavík, fá ekki lóðir og leita því í stórum stíl til annarra sveitarfé- laga, aðallega Kópa- vogs. Úrræða- og getu- leysi meirihlutans skipulags- og lóðamál- um er núna með ná- kvæmlega sama hætti og hjá vinstri flokkun- um þegar þeir höfðu meirihluta í börginni 1978-1982. Sífellt minna framboð Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór með meirihluta í borginni 1982-1994 var úthlutað lóðum undir rúmlega 5.700 íbúðir eða um 440 íbúðum ár- lega. í valdatíð R-listans hefur verið úthlutað og seldur byggingarréttur fyrir rúmlega 1.800 íbúðir eða u.þ.b. 300 íbúðir árlega. Þrátt fyrir veru- lega fólksfjölgun í Reykjavík á und- anfömum 18 árum, u.þ.b. 24 þúsund íbúar árin 1982-2000, minnkar fram- boð lóða umtalsvert á þeim áram sem R-listinn hefur stýrt málum í höfuðborginni. Skuldir og álögur heimilanna hækka R-listinn hefur not- fært sér þennan lóða- skort, sem hann ber alla ábyrgð á, og sett nánast allar lóðir á uppboð. Þannig hefur lóðaverð hjá borginni hækkað á einu ári um hvorki meira né minna en 140%. Afleiðingamar era hrikalegar. Bygg- ingarverð á hverri íbúð hækkar um nokkrar milljónir, söluverð íbúða hækkar sem leiðir til veralegrar hækkun- ar á skuldum heimil- anna og fasteignamati húsnæðis. Hækkun á fasteignamati veldur síðan mikilli hækkun á fasteigna- gjöldum eins og eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis hafa sannreynt að undanförnu og munu gera enn frekar á næsta ári. Þessi þróun hefur einnig leitt til þess að verð á eldra húsnæði hefur hækkað að sama skapi. Þessi lóðaskortsstefna R-listans með öllum fyrrgreindum aíleiðingum er einn af þremur stærstu orsakavöldum auk- innar verðbólgu í þjóðfélaginu. Einstaklingum og fyrirtækjum vísað burt Þessi stefna hefur ekki einungis leitt til þess að langflestir einstak- lingar sem sækja um lóð í Reykjavík fá neitun, heldur hefur íbúðarverð hækkað ótæpilega. Afleiðingarnar Húsnæði Lóðastefna R-listans er fjandsamleg öllum Reykvíkingum, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, en ekki síst ungu fólki sem vill byggja sér íbúðahús- næði í Reykjavík. eru þær að ungt fólk sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði verður skuldsett langt umfram það sem eðlilegt má teljast. Þessi stefna hefur einnig leitt til þess að fjölmörg reykvísk bygg- ingarfyrirtæki hafa að mestu þurft að flytja starfsemi sína í önnur byggðarlög. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hafa gagnrýnt þessa lóðastefnu R-listans harkalega. Það verður eitt fyrsta verk okkar sjálfstæðismanna þegar við fáum meirihluta í borginni á nýjan leik að tryggja nægt lóða- framboð. Einnig munum við ákveða að gatnagerðargjöld eða söluverð lóða verði í samræmi við kostnað borgarinnar við gerð nýrra bygging- arsvæða, en lóðir ekki seldar því okurverði sem nú tíðkast hjá R-list- anum með öllum þeim hrikalegu afleiðingum sem því fylgir. Höfundur er borgarfutttrúi. .....1 'i Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.