Morgunblaðið - 02.08.2000, Qupperneq 38
Q8 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000
UMRÆÐAN
MCRGUNBLAÐIÐ
Þegar aðstoðar er þörf
ÞEGAR aldraður
einstaklingur, sem býr
heima, er orðinn lasinn
eða hjálparþurfl, þarf
að meta hvort tíma-
bært er að huga að um-
sókn um aðstoð. Fjöl-
mörg úrræði eru til
staðar, og öflugt stuðn-
ingskerfl eykur líkur á
að þeir, sem þarfnast
verulegrar umönnunar
annarra, geti dvalist
■tengur á eigin heimili.
5 Fólk getur leitað
ýmissar aðstoðar og
upplýsinga á heilsu-
gæslustöðvum eða hjá
heimilislækni. Meðal
þjónustu, sem býðst utan sjúkra-
stofnana, er heimahjúkrun, heima-
þjónusta, matarsendingar, félags-
starf, öryggistæki og dagvistun.
Þörf þeirra, sem ekki geta lengur
búið í heimahúsum, er metin af fag-
fólki. Það mat, svokallað vistunar-
mat, er lagt til grundvallar þegar
sótt er um þjónusturými á dvalar-
heimili eða hjúkrunarrými á stofn-
un.
Heimahjúkrun
Hver sem er getur sótt um heima-
hjúkrun á heilsugæslustöðvum, fyrir
sig eða sína nánustu teiji hann þörf á
því. Þegar sótt er um heimahjúkrun,
Júlíana Sigurveig
Guðjónsdóttir
meta hjúkrunarfræð-
ingar þörf fyrir hjúkr-
un umsækjanda eða að-
standanda hans. Boðið
er upp á eftirlitsheim-
sóknir allt að fjóram
sinnum á sólarhring,
þar með talið að nóttu,
ef þörf telst á. I heim-
sóknunum er aðstoðað
við athafnir daglegs
lífs, böðun, lyfjagjafir,
sáraskiptingar og
fleira.
Heimaþjónusta
Sé þörf á lengri við-
veru í heimahúsum er
sótt um heimaþjón-
ustu, auk eða án heimahjúkrunar. Á
vegum sveitarfélaga veita félagsmál-
astofnanir heimilishjálp og fjárhags-
aðstoð og standa að rekstri þjónust-
umiðstöðva fyrir aldraða. I félags-
og þjónustumiðstöðvum fer fram
fjölbreytt starfsemi og félagsstarf.
Þeir Reykvíkingar, sem ekki geta
annast daglegt heimilishald, geta
sótt um heimaþjónustu í félags- og
þjónustumiðstöðvum fyrir aldraða í
viðkomandi hverfl. Sá, sem þarfnast
heimaþjónustu, hefur þá samband
við deildarstjóra miðstöðvarinnar í
sínu hverfi. Starfsmenn heimaþjón-
ustu meta þjónustuþörf umsækj-
anda með heimsóknum, og gerður er
Stokkalækur
nýtt tjaldsvæði rétt austan Hellu
Aldraðir
Nauðsynlegt er að
sækja um vistunarmat,
segir Júlíana Sigurveig
Guðjónsddttir, þegar
fólk er orðið bjargar-
laust heima.
samningur um hvert sé verksvið
starfsmanns. Starfsfólk heimaþjón-
ustu annast almenn heimilisstörf,
svo sem heimilisþrif, þvotta og inn-
kaup. Einnig er leitast við að mæta
persónulegum þörfum einstaklinga.
Félagslegur stuðningur, hvatning og
samvera eru mikilvægir þættir í
starfmu. Viðvera getur verið allt að
fjórar klukkustundir á dag. Hægt er
að fá þjónustuna á kvöldin og um
helgar, ef það hentar. Einnig er
hægt er að sækja um heimsendan
mat í félags- og þjónustumiðstöðv-
um, fyrir þá sem ekki geta annast
matseld sjálfir.
Dagvistun
Dagvistun er stuðningsúrræði
fyrir aldraða, sem búa í heimahús-
um. Markmiðið er að rjúfa félags-
lega einangrun þeirra og stuðla að
því að þeir geti búið lengur heima.
Sveitarró í fögru umhverfi Rangárvalla.
Gönguferðir með innfæddum.
Fljótasigling fjölskyldunnar með Tindfjöllum.
Varðeldur og stjörnubjart með ábúendum.
Stokkalækur
Staður fyrir náttúruunnendur.
» 1 u s. <\LIN Dj
1 '
í h-){i>,Ó|iflt|ibit Iflts, t> H'J / r. *.». /'
Vinsælu matar- og kaffídúkarnir eru komnir. 100% polyester - straufrítt. Litir: Hvítt, kremað, vínrautt, dökkblátt og grænt.
140x180 sm 1.190,-
160 sm hringur 1.190,-
150x220 sm 1.490,-
150x250 sm 1.690,-
150x250 sm oval 1.690,-
150x300 sm 1.990,-
ScéSííMk
Dagvistun felur í sér akstur til og
frá dagvist, tómstundaiðju, hreyfi-
þjálfun, fæði, hvíldaraðstöðu og að-
stoð við böðun.
I Reykjavík eru fjórar dagvistar-
deildir fyrir aldraða. Reykjavíkur-
borg rekur tvær þeirra, að Dalbraut
27 og Vitatorg að Lindargötu 59.
Rauði kross íslands rekur Múlabæ
við Armúla og Hlíðabæ við Flóka-
götu. Hlíðabæ og Vitatorgi var kom-
ið á fót sérstaklega með minnisskert
fólk í huga. Hægt er að sækja dag-
vist tvo til fimm daga í viku. Hver
dagur kostar kr. 600, og þá er öll
þjónusta innifalin, nema hárgreiðsla
og fótsnyrting, sem greitt er auka-
lega fyrir, og þá lágmarksgjald.
Hver sem er getur sótt um dagvist
fyrir einstakling. Fagfólk á viðkom-
andi stað metur hverjir eru teknir
inn. Beiðni um dagvist skal beina til
deildarstjóra viðkomandi dagvistar,
sem einnig veita frekari upplýsing-
ar.
Umsóknir um dagvistun og
hvíldarinnlagnir er hægt að fá hjá
forstöðumanni heimaþjónustusviðs á
aðalskrifstofu öldrimarþjónustu-
deildar að Síðumúla 39.
Æskilegt er að sækja um hvíldar-
innlagnir á sjúkrahús eða hjúkrun-
arheimili með hálfs árs fyrirvara, til
að líklegt sé að unnt sé að sinna
beiðninni á þeim tíma, sem óskað er.
Erfitt getur verið að leysa slík mál
fyrirvaralítið. Hvfldarinnlagnir eru
notaðar til að yfirfara heilsufar og
veita endurhæfingu eða viðhalds-
þjálfun.
Oryggistæki
Hægt er að sækja um öryggis-
tæki, neyðarhnapp til Trygginga-
stofnunar ríkisins. Vottorð þarf frá
lækni um heilsufarsástand umsækj-
anda, og forsenda er að manneskjan
búi ein. TR hefur gert samninga við
fyrirtæki, sem veita öryggiskallkerf-
isþjónustu. Sjúklingar borga hluta
af þjónustunni, mismunandi eftir
verðskrá fyrirtækjanna. Viðbrögð
við neyðarboði, sem leiðir til útkalls,
skulu vera fólgin í að starfsmaður
vaktstöðvar, sem hefur lykla að við-
komandi húsnæði, fari á staðinn og
grípi til viðeigandi ráðstafana.
Móttökudeild
Á Landspítala, Landakoti, starfar
móttökudeild. Þar fer fram almenn
skoðun og greining á sjúkdómum
ellinnar. Hjúkrunarfræðingar deild-
arinnar, félagsráðgjafi og öldrunar-
læknar skrá upplýsingar um ástand
viðkomandi. Sjúklingurinn er skoð-
aður og ákvarðanir teknar um rann-
sóknir, ef þurfa þykir. Þar fer einnig
fram greining minnissjúkdóma, þar
sem það á við (t.d. óeðlileg
gleymska, dægurvilla, persónuleika-
truflanir o.s.frv.).
Vistunarmat
Nauðsynlegt er að sækja um vist-
unarmat þegar fólk er orðið bjargar-
laust heima og heimahjúkrun,
heimaþjónusta, og stuðningur að-
standenda nægir ekki lengur.
Alltaf þarf að gera vistunarmat ef
sækja á um vist á hjúkrunarheimili
eða þjónusturými á dvalarheimili.
Vistunarmat er gert til að stuðla að
því að þeir fái pláss, sem helst þurfa.
Einnig er vistunarmatið eftirlitstæki
stjórnenda svo sjá megi hvar þörfin
er mest. Vistunarmat er vottorð gef-
ið út af þjónustuhópi aldraðra í við-
komandi sveitarfélagi, sem yfirleitt
er í tengslum við heilsugæslustöð
þess svæðis.
I Reykjavík er sótt er um vistun-
armat á sérstökum eyðublöðum sem
fást hjá öldrunarþjónustudeild Fé-
lagsþjónustunnar að Síðumúla 39, í
síma 535-3040, hjá félags- og þjón-
ustumiðstöðvum og á heilsugæslu-
stöðvum. Umsækjendur þurfa að
hafa átt lögheimili í Reykjavík síð-
astliðin þrjú ár. Viðkomandi sjúkl-
ingur þarf að samþykkja skriflega
umsókn um vistunarmat. Ef sátt er
um það, og viðkomandi er í heima-
húsi, getur hann eða aðstandendur
hans, snúið sér til Matshóps Öldrun-
arnefndar Reykjavíkurborgar, Síð-
umúla 39,108 Reykjavík, í síma 535-
3000, og beðið um vistunarmat.
Einnig framkvæma fagteymi á öldr-
unarsviði Landspítala vistunarmat.
Fagaðili heimsækir alltaf viðkom-
andi og metur aðstæður. Leitað er
upplýsinga um líkamlegt og andlegt
heilsufar, um félagslegar aðstæður,
s.s. heimilishagi, hvort viðkomandi
búi einn, lýsingu á húsnæði og stað-
setningu. Sjálfsbjargargetan er
metin. Athugað er hvort umsækj-
andi njóti nú þegar aðstoðar, s.s.
heimahjúkrunar, heimaþjónustu,
dagvistunar, matarþjónustu eða sé
með öryggistæki, svo sem neyðar-
hnapp. Einnig er ástæða umsóknar
skráð.
Höfundur er hjúkrunnrfræðingur,
aðstoðardeildarsljóri á öldrunar-
sviði Landspítala.
FASTEIGNA 7]
MARKAÐURINN J
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Stóragerði
Nýkomin [ sölu góð 130 fm neðri sérhæð ásamt 26 fm bílskúr á þessum
eftirsótta stað. Rúmgott eldhús með nýjum eikarinnréttingum, góðar stof-
ur og 2 svefnherb. auk forstofuherb. Tvennar svalir. Hús nýmálað að utan.
Hiti í útitröppum. Verð 18,8 millj.
Holtsgata
Nýkomin í sölu mjög falleg 116 fm 5 herb. íbúð á 2. hæð. Samliggjandi
skiptanlegar stofur, vandað eldhús og 3-4 svefnherbergi. Parket og nátt-
úruflísar á gólfum. Ein íbúð á hæð. Eign ( mjög góðu ástandi, mikið endur-
nýjuð. Nánari uppl. á skrifstofu.
Ofanleiti
Nýkomin í sölu 76 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílskýli. Góð
stofa, eldhús með borðaðstöðu og 2 svefnherb. Suðursvalir.
Verð 12,5 millj.