Morgunblaðið - 02.08.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 5 5
ÍDAG
Árnað heilla
rj(\ ÁRA afmæli. í dag,
I vl miðvikudaginn 2.
ágúst, verður sjötug Björg
J. Benediktsdótir, Goð-
heimum 22, Reykjavík. Af
þvi tilefni mun hún taka á
móti gestum í dag á heimili
dóttur sinnar og tengdason-
ar að Sólheimum 23, 6. hæð
E, frá ki. 17-20.
BRIDS
Hnisjón Ouðniiindiir Páll
Arnarson
TIL að byrja með ætti les-
andinn að líta á spil norðurs
og velja opnun. Norður er í
fyrstu hendi, á hættunni, en
AV eru utan hættu:
Norður
+ -
» K98762
♦ 3
* DG10973
Vestur Austur
* 98543 * ÁKDG76
v 1054 v -
♦ K986 ♦ G1074
* K +542
Suður
A 102
* ÁDG3
♦ ÁD52
*Á86
Það er aldrei auðvelt að
koma slíkum spilum á fram-
færi og gildir þá einu þótt
menn hafl einhvers konar
tvílita opnun í vopnabúrinu.
Spilið kom upp á landsliðs-
æfingu fyrir nokkru og
Steinar Jónsson valdi að
opna á veikum tveimur í
hjarta. Sem er ágæt byrjun,
því áætlunin er sú að segja
síðan allt upp í fimm lauf við
yfirvofandi spaðamelding-
um AV. En Steinar hitti
strax í mark, því makker
hans, Ásmundur Pálsson,
var með góðan hjartastuð-
ning og sterk spil á móti. AV
voru Þorlákur Jónsson og
Matthías Þorvaldsson:
Vestur Norður Austur Suður
M.Þ. SJ. W. Á.P.
2hjörtu 4spaðar 5J\jörtu
5spaðar 6hjörtu 6spaðar Dobl
Pass Pass Pass
Þetta er góð afgreiðsla á
báða bóga, því þótt hægt sé
að vinna alslemmu í NS með
því að fella laufkónginn fyrir
aftan er útilokað að hitta á
það við borðið. En fórnin
var verulega ódýr; Þorlákur
gaf aðeins tvo slagi á láglita-
ásana og uppskeran NS var
aðeins 100-kall.
Á hinu borðinu vakti Að-
alsteinn Jörgensen h'ka á
tveimur hjörtum, en merk-
ingin var allt önnur: Annað
hvort veikir tveir í spaða eða
tvílita hönd með hjarta og
láglit. í AV voru Björn Ey-
steinsson og Guðmundur
ífemW0I1W Suður
B.E. A.J. G.H. SA
2hjörtu 2spaðar Dobl*
4 spaðar 5 lauf Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
„Ég ákvað að vera sam-
kvæmur sjálfum mér og
fórna ekki núna frekar en í
bikarleiknum," sagði Guð-
mundur á eftir (en um það
spil var fjallað í laugardags-
þættinum), „en nú er ég
ákveðinn í að snúa við blað-
inu og fórna alltaf!"
Sex hjörtu unnust auðvit-
að og fyrir það tóku NS
1430 og 16 IMPa.
I7A ÁRA afmæli. Nk.
I U þriðjudag, 8. ágúst,
verður sjötug Sigríður Inga
Þorkelsdóttir, Engjavegi
21, ísafirði. Eiginmaður
hennar er Kristján J. Krist-
jánsson. Þau taka á móti
gestum í dag, miðvikudaginn
2. ágúst, frá kl. 16-19 í húsi
Félags bókagerðarmanna,
Hverfisgötu 21, Reykjavík.
r7 r| ARA afmæli. í dag,
I \/ miðvikudaginn 2.
ágúst, verður sjötug Stein-
vör Bjarnadóttir, Miðvangi
89, Hafnarfirði. Eiginmað-
ur hennar er Ragnar Þor-
steinsson. Verða þau með
opið hús á heimili sínu milli
kl. 15-19 og bjóða ættingj-
um og vinum að fagna þess-
um áfanga með sér.
pT A ÁRA afmæli. Á morgun, fimmtudaginn 3. ágúst, verð-
Ovl ur fimmtug Elín Richards, Lautarsmára 5, Kópa-
vogi. Eiginmaður hennar, Þorvaldur J. Sigmarsson, verður
fimmtugur nk. sunnudag, 6. ágúst. Þau eiga einnig 30 ára
hjúskaparafinæli um þessar mundir. Þau hjónin taka á móti
gestum ásamt fjölskyldu sinni í Smáranum, íþróttahúsi
Breiðabliks v/Dalsmára, á morgun, 3. ágúst, kl. 20.
Með morgunkaffinu
Sjáðu, Gyða.
Þarna er
myndarlegasti
snigillinn í skóg-
inum. Hvemig
situr húsið
221 á mér.
Ilmsjón llelgi Áss
Grétarsson
STAÐAN kom upp í A-
flokki skákhátíðarinnar í
Pardubice í Tékklandi.
ísraelski alþjóðlegi
meistarinn Alexander
Kundin (2444) hafði hvítt
gegn Rússanum Boris
Furman (2261). 20. Rxe5!
dxeð Að sjálfsögðu gat
svartur ekki drepið með
riddara þar sem þá myndi
drottningin falla í valinn.
Hvítur fær peð upp úr
krafsinu og unna stöðu.
LJOÐABROT
MIG LANGAR
Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma,
þegar leiftrar á árroðans bál,
heyri ég raddir í eyrum mér óma,
koma innst mér frá hjarta og sál:
- Hér er kalt, hér er erfitt að anda,
hér er allt það, sem hrærist, með bönd!
O, mig langar til fjarlægra landa,
ó, mig langar að árroðans strönd!
Ég vil bálið, sem hitar og brennur,
en ég bölva þér, nákaldi ís.
Ég vil aflþunga elfu, sem rennur,
ekki óhreina pollinn, sem frýs.
Ég vil ástblómið rauða sem angar,
ekki arfa eða þurrkaðan vönd.
Ó, svo langt héðan burtu mig langar,
ó, mig langar að árroðans strönd!
Jónas Guðlaugsson.
SKÁK
Hvítur á leik.
Framhaldið varð: 21. Bxe7
Dxe7 22. Hxa8 Hxa8 23.
Dxc6 Ha2 24. Hdl Kh7 25.
g3 Db4 26. h4 h5 27. Kh2
Ha7 28. Kg2 g6 29. Hd8
Del 30. Df6 og svartur
gafst upp enda óverjandi
mát.
ST J ÖRNUSPA
eftir Frances Drake
LJON
Aímælisbarn dagsins:
Þú ert örlátur og áreiðanleg-
ur svo fóík leitar mjög til þín
um forystu. Verndaðu sjálf-
anþig.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Líttu í eigin barm og reyndu
umfram allt að koma jafn-
vægi á líf þitt. Þú þarft að
læra þá lexíu að deila með
öðrum bæði í sorg og gleði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt heiður skilinn því þér
hefur tekist að greina kjarn-
ann frá hisminu og því verð-
ur leiðin þér miklu auðveld-
ari hér eftir en hingað til.
Tvíburar .
(21,maí-20.júní) nA
Þú getur aðeins sjálfum þér
um kennt ef verkefnin eru
að vaxa þér yfir höfuð. Taktu
ekki meira að þér en þú get-
ur staðið við með góðu móti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert fullur af krafti og iðar
í skinninu eftir að koma öllu
því í verk sem hefur verið á
biðlistanum. Með góðri
skipulagningu tekst þér það.
Ljón
(23. júli - 22. ágúst) m
Þú ert hrókur alls fagnaðar
og allir vilja vera nálægt
þér. Leyfðu þér að njóta
þess en gættu þess þó að
ganga ekki of nærri þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) ©
Lokaðu þig ekki af frá um-
heiminum þótt þú sért ekki
upp á þitt besta. Leggðu þig
heldur fram um að bæta
samskiptin því maður er
manns gaman.
(23. sept. - 22. okt.) m
Líttu ekki um öxl heldur
stýrðu málum í höfn af ör-
yggi og festu. Þú munt njóta
virðingar vegna dugnaðar
þíns en láttu það ekki stíga
þér til höfuðs.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert í baráttuhug og skalt
hafa í huga að til að vinna
sigur er best að hafa kær-
leikann að vopni og vera til-
búinn til að komast að sam-
komulagi
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) flftO
Nú verður ekki undan því
vikist að ganga í málin þótt
þau séu þér óljúf. Skyldan
kallar svo þú þarft að gera
þitt besta í stöðunni
Steingeit _
(22. des. - 19. janúar) áSc
Þú hefur í svo mörgu að
snúast að þú þarft að fá fólk í
lið með þér til þess að hlut-
irnir gangi upp. Notaðu
kvöldið fyrir sjálfan þig.
Vatnsberi ,
(20. jan. -18. febr.) CSa!
Hertu upp hugann því þú
færð nú tækifæri til að ræða
málin við einhvern, sem þú
treystir. Það mun reynast
þér mun auðveldara en þú
bjóst við.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Notfærðu þér þann hæfi-
leika þinn að vera fundvís á
galla í málsmeðferð annarra.
Mundu samt að fara fram
með aðgát og umfram allt
tillitssemi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Felgu-spray
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295
O,
Grill-spray
ARVIK
ÁRMÚLA1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295
Svart
Þolir 600°C
Rautt
Þollr 300°C
4
/7 m í
?
og Sport
Reykjavíkurvegi 60, sími 555 2887
Algjört
verðhrun!
Við stakkum verslunina og verðum því með
lagersölu í nokkra daga.
Ótrúleg verðhekkun
Si&sa t’í&kuhús
Hverfisgötu 52, sími 562 5110
Útsalan er hafin
HERRflMOKKftSINUR
Teg: 81115
Stærðir: 40-46
Litir: Svartir og
vínrauðir
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
r- —
Toppskórinn~\oppskóri
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG JL SUÐURLANDSBRAUT 54
SÍMI 552 1212
[NýversfJn]
i / y 1
nn
(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTISUBWAY)
SÍMI 533 3109
W