Morgunblaðið - 02.08.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 59
!J~
'I’M.^55^*75 ALVORU BÍQ! ^ttolby
STAFRÆMT
Ss 5= = HLJDBKERHí UV
=-== ÖLLIKVISÖLUMI ..'-UJ..
4.45, 8 og 10. B. i. 16.
SJÁIÐ ALLT UM „THE PATRIOT" á stjornubio.is
MYNPBOND
Karaoke
Travolta
Lifi iaugardagsfárið
(Forever Fever)
G a in a n m v n <1
irk'k
Leikstjórn og handrit: Glen Goei.
Aðalhlutverk: Adrian Pang,
Medaline Tan. (90 mín.) Singapúr
1999. Bergvík/Góðar stundir.
Óllum leyfð.
ÞAÐ er alls ekki sama hvernig
skal stæla. Vonda stælingu skortir
allan húmor, vanmetur áhorfendur
og reynir að hylma
yfir hið augljósa -
að um stæfingu sé
að ræða. Vond
stæfing getur því
verið ferlega pirr-
andi og leiðinleg
upplifun. Góð stæl-
ing er hins vegar sú
sem fer hvergi und-
an í flæmingi um að
verið sé að stæla og herma eftir. Góð
stæling vottar þannig fyrirmyndinni
virðingu sína um leið og hún fær frá
henni að láni góðu kostina, töfra og
hugmyndir. Góð stæling tekur sig
ekki of hátíðlega heldur hendir þvert
á móti gaman að sjálfri sér einmitt
fyrir það að vera stæling. Flestir
kannast nú orðið við Karaoke - þar
sem óbreyttum almúganum gefst
færi á því að hverfa á vit draumór-
anna með því að bregða sér í fiki eft-
iriætis söngstjamanna. Flestir vita
það jafnframt að íbúar austurlanda
fjær eru alveg vitlausir í þessa
skemmtilegu iðju og þar hefur lengi
blómstrað ríkuleg Karaoke menn-
ing. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé
svona hálfgerða Karaoke bíómynd -
svona Karaoke útgáfa af Saturday
Night Fever, Bruce Lee-myndunum
og jafnvel Strictly Ballroom. Jafnvel
gömlu diskóstandardamir eru í
bráðskemmtilegum útsetningum as-
ískra listamanna í Karaoke-stíl.
Þetta er bráðskemmtilega leikin og
hressileg gleðimynd - þó með alvar-
legum undirtón - sem allir stuðbolt-
ar em hvattir til að sjá.
Skarphéðinn Guðmundsson
SýndW.5,8og11.ana
Sýnd W. 5.30,8 og
1 0.1 5. B. L14.
Sýnd kl. 5, 8 og
10.40. B. 1.16.
Reuters
Holdgervingur kvenleikans
Angelina
alein heima
HEIMSHÖFIN skilja hjónakomin
Billy Bob Thomton og Angelinu
Jolie að næstu mánuðina, það er ef
Billy Bob nær sér ekki af skelfilegri
flughræðslu sem hrjáir hann.
Hin engilfríða Angelina er nú um
stundir við tökur á kvikmyndinni
Tomb Raider í London og vegna
þess hve stórt hlutverk hún leikur
þarf hún að vera á tökustað upp á
hvem einasta dag næstu 20 vikurn-
ar. Til þess að hitta nýjustu eigin-
konu sína (hún er sú fimmta í röð-
inni) þarf Billy Bob karlinn að þola
ellefu klukkustunda fiug yfir hafið
og það er meira en hann getur lagt
á sig fyrir ástina.
Angelina ber sig heldur aumlega
og hefur verið haft eftir henni: „ég
hringi í hann á hverju kvöldi og
græt eins og bam og segi honum
hve mikið ég sakna hans. Ég elska
hann svo mikið.“
Angelina hefur undirbúið sig
lengi fyrir hlutverk Löru Croft,
hinnar kvenkyns Indiana Jones, og
hefur undanfarnar vikur gengist
undir strangar líkamsæfingar til að
komast í búning teiknimyndahelj-
unnar bijóstgóðu og er það ekkert
verk fyrir aukvisa. Stúlkan er nú
komin í bardagahaminn og mundar
hvers kyns vopn eins og ógurlegasti
málaliði.
Enn er verið að velja fleiri töku-
staði utan London þar sem Lara
getur ærslast og barist við
glæpona, Kambódia hefur verið
nefiid á nafn auk staða sem em nær
en margan gmnar.
lara Croft.
www.laugarásbíó.is
Listi yfir óbærilegustu slagara sögunnar
Fuglasöngurinn,
Agadú og Celine Dion
„BÍ, BÍ, BÍ og dirrindí, fuglinn
flýgur upp í ský og fimur dillar
stélinu," söng Omar og spriklaði
með hér um árið „sællar“ minning-
ar. Færri muna kannski að lagið á
sér erlenda fyrirmynd. Sú útgáfa,
sem nefnist „The Birdie Song“ og
var fiutt af The Tweets, var á dög-
unum útnefnd óbærilegasta lag
sögunnar - vafasamur heiður það -
í netkönnun sem tónlistarvefurinn
dotmusic gerði á dögunum. Heiður-
inn verður síðan ennþá vafasamari
ef litið er neðar á listann yfir tíu
óbærilegustu lög sögunnar því þar
má m.a. finna í þriðja sæti dönsku
sykurdúkkurnar í Aqua og „Bar-
bie-stúlkuna“ þeirra, í fimmta
frumraun annarrar Barbie-dúkku,
Kylie Minogue, „I Should Be So
Lucky“ og því sjötta heilalausu
sumarpopparana í Vengaboys sem
vældu nýlega eins og sársvangir
kettlingar að þeir væru á leiðinni til
Ibiza.
Laddi okkar virðist síðan fá fall-
einkunn þegar kemur að því að
velja sér og sínum lagstúfa því af
tíu óbærilegustu lögum sögunnar
hefur hann bögglast við að snúa
tveimur þeirra yfir í íslenskan bún-
ing - „Agadú“ hörmungin sem
Black Lace fluttu upphaflega þykir
fjórða óbærilegasta lag sögunnar
og „Skammastu þín svo“ sem Laddi
bjó fyrir vin sinn Eirík Fjalar en
það hét upphaflega „Shaddap Your
Face“ í flutningi Joe nokkurs Dolce
við lítinn fögnuð þeirra er heyrt
hafa enda þykir það nú áttunda
óbærilegasta lag sögunnar.
Sítt að aftan með
brostið hjarta
Sveitasöngvarinn Billy Ray Cyr-
us er frægur fyrir sitt hallærislega
„síða að aftan“ en sá hárstfllinn er
fjarri því að vera hans helsta
áhyggjuefni því við hliðina á laginu
,Achy Breaky Heart“ er hann sem
nýjasta Parísartíska. Cyrus jóðlaði
þessar grípandi línur inn hjörtu
fólks fyrir nokkrum árum síðan en
særði þau og mölbraut svo varan-
lega að lagið þykir nú níunda hvim-
leiðasta lag sögunnar.
Síðastur en ekki sístur - og þó -
er írski vísnasöngvarinn Chris De
Burgh sem dansaði einn og yfir-
gefinn við rauðklæddu dömuna
kinn við kinn hér um árið. Þau hafq,
varla fengið neinn félagsskap síðan1
þá - allavega ekki ef Krissi er enn
að raula lagið - því það þykir nú
tíunda óbærilegasta lag sögunnar.
Skyldi sú rauðklædda ekkert vera
farin að þreytast?
í sambærilegri könnun sem BBC
vefurinn gerði var t.d. nefnd til
sögunnar umdeild útgáfa Cliffs
gamla Richards á Faðir vorinu
heilaga og „Search For The Hero“
með M People. Harkalegustu við-
brögðin fékk þó söngdívan kana-
díska Celine Dion. Ekki nóg með að
lagið hennar úr Titanic-myndinni
hafi verið valinn ömurlegasti lag-
stúfur sögunnar heldur fylgdu því
skilaboð á borð við: „í hvert sinn er
ég heyri rödd þessarar konu þá1'
langar mig einna helst að bora gat
á mína eigin hljóðhimnu.“ Ætli það
sé nú ekki heldur sársaukaminna
að skrúfa fyrir útvarpið?
Celine Dion klífur upp á háa C-ið
- mörgum til ómældrar mæðu.
Hvemig er hægt að finnast lag
með þessum manni óbærilegt,?
Billy Ray Cyms þoldi ekki álag-
ið sem fylgdi frægðinni.
h