Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Mun fleiri tóku þátt í vígslu Þorgeirskirkju við Ljósavatn en gert var ráð fyrir þannig að ijölmargir sátu utan-
dyra í blíðskaparveðri, en hægt var að fylgjast með athöfninni um hátalarakerfi.
Fluttur var leikþáttur við Goðafoss þar sem sýnt var á táknrænan hátt
hvernig Þorgeir fleygði goðunum í fossinn.
Þorgeirskirkj a
vígð að viðstöddu
fjölmenni
Sameiginlegur kór barna úr Þingeyjarprófastsdæmi söng við athöfnina,
m.a. tvö ný lög og ljóð sem samin voru í tilefni kirkjuvígslunnar.
ÞORGEIRSKIRKJA við Ljósavatn
var vígð við hátíðlega athöfn á
sunnudag, 6. ágúst, að viðstöddu fjöl-
menni en einnig tóku margir þátt í
Goðafosshátíð sem haldin var í
tengslum við kirkjuvígsluna.
Áætlað er að um þrjú þúsund
manns hafi lagt leið sína að Ljósa-
vatni og Goðafossi af þessu tilefni og
er það mun meiri mannfjöldi en von
var á að sögn sr. Péturs Þórarinsson-
ar, prófasts Þingeyjarprófasts-
dæmis.
„Við erum afskaplega ánægð með
hvernig til tókst, en athöfnin fór
fram í einstaklega fallegu veðri með
þátttöku fjölda fólks. Menn eru sam-
mála um að þetta hafi verið sérstak-
lega vel heppnað,“ sagði Pétur.
Þrátt fyrir að mun fleiri hafi komið
á svæðið en ráð var fyrir gert dugðu
þær umferðarúrlausnir sem fyrir-
fram höfðu verið ráðgerðar og sagði
Pétur að þar hefðu félagar úr björg-
ungarsveitinni á Húsavík og Þingey
staðið sig afar vel. „Þetta gekk allt
saman skínandi vel og fjölmargir
hafa lýst yfir ánægju sinni með
hvemig til tókst,“ sagði Pétur.
Kirkjunni færðar góðar gjafir
Biskup íslands, Karl Sigurbjöms-
son, vígði Þorgeirskirkju og flutti
hátíðarræðu. Dagný Pétursdóttir
stjórnaði kór kirkjunnar sem söng
nokkur lög og þá söng Baldvin Kr.
Baldvinsson á Torfunesi einsöng. Að
lokinni guðsþjónustu var orðið gefið
frjálst og lýsti þá Jónas Kristjánsson
frá Fremstafelli aðdraganda að
kirkjubyggingunni og arkitektarnir
Gunnlaugur Jónasson og Gunnlaug-
ur Johnsson lýstu hugmyndum sín-
um að arkitektúr kirkjunnar og inn-
viðum hennar. Ingvar Gíslason talaði
fyrir hönd fyrrverandi þingmanna
Norðurlands eystra og færði hann
kirkjunni að gjöf frá þeim feld einn
mikinn með krossmerki að innan-
verðu en hann er eftir Ásthildi
Magnúsdóttur og verður væntan-
lega hengdur upp á vegg kirkjunnar.
Fulltrúi Oddfellowstúkunnar Þor-
geirs í Reykjavík, sem heitir eftir
Þorgeiri Ljósvetningagoða, færði
kirkjunni að gjöf stein með áletrun
sem komið hefur verið fyrir í
kirkjunni, en á steininn eru letruð
orð þau sem höfð em eftir goðanum í
íslendingabók Ara fróða þar sem
hann kveður upp úr með að einn sið-
ur skuli ríkja í landinu. Magnús G.
Gunnarsson, sóknarprestur í Dalvík-
urbyggð, áður á Hálsi, og eiginkona
hans Þóra Ólafsdóttir gáfu kirkjunni
hökul og þá tilkynnti sóknarprestur-
inn, sr. Amaldur Bárðarson, um aðr-
ar gjafir sem kirkjunni bárast. Að
Til leigu ca. 300-350 fermetra húsnæði í norðurenda
hússins við Hafnarstræti 26. Húsið stendur nálægt
miðbæ Akureyrar. Upplýsingar í síma 898 0489.
Morgunblaðið/Rúnar Pór
Útidagskrá fór fram á bakka Skjálfandafljóts, við Goðafoss, en hana sóttu einnig mun fleiri en búist var við.
athöfn lokinni var boðið upp á stand-
andi kleinukaffi.
Dagskrá við Goðafoss
Síðar um daginn var útidagskrá
við áningarstaðinn við Goðafoss og
hófst hún með lúðrablæstri. Þá flutti
Halldór Kristinsson, sýslumaður
Þingeyinga, ávarp og sr. Bolli Gúst-
avsson, vígslubiskup Hólastiftis,
flutti hátíðarræðu. Sameiginlegur
kór úr prófastsdæmunum söng, m.a.
tvö ný lög sem sérstaklega vora sam-
in fyrir þetta tilefni og ljóðin sömu-
leiðis, annað lagið er eftir Öm Frið-
riksson við lag Ásgeirs J.
Jóhannssonar en hitt eftir Einar A.
Melax við texta Pjeturs Hafsteins
Lárassonar. Sr. Pétur Þórarinsson
flutti ljóð sem Rósa B. Blöndals orti í
tilefni af kirkjuvígslunni og loks var
fluttur leikþáttur um Þorgeir Ljós-
vetningagoða á gilbrúninni við Goða-
foss.
Að honum loknum flutti biskup ís-
lands fararblessun og þjóðsöngurinn
var sunginn.
Dagskrár-
yfírlit
Listasumars
8.-15. ágúst
10. ágúst kl. 21.30 í Deiglunni.
Túborg jazz. Heitur fimmtudagur.
Kvartett Jóa Ásmunds. Jóhann
Ásmundsson-bassi, Eyþór Gunn-
arsson-píanó, Jóel Pálsson-saxó-
fónn og Jóhann Hjörleifsson-
trommur. Aðgangur ókeypis.
11. ágúst kl. 20.30. í Deiglunni.
Bókmenntavaka. Ljóðadagskrá
AKUBÉVRI2000
um Braga Sigurjónsson og Guð-
mund Frímann.
12. ágúst kl. 16.00 í Ketilhúsinu
efri hæð. Opnun myndlistarsýning-
ar Rúrí sýnir ljósmyndir. Sýningin
stendur til 27. Ágúst.
12. ágúst kl. 16.00 í Ketilhúsinu
neðri hæð. Opnun myndlistarsýn-
ingarinnar Val Höddu. Sýningin
stendur 27.ágúst.
12. ágúst kl. 16.00 í Deiglunni
opnun myndlistarsýningar Elvu
Jónsdóttir.
12. ágúst kl. 16.00 Audio visual
art gallery Listasumars, Deiglan.
Opnun myndlistarsýningar. Vid-
eolistaverk eftir John Hopkins.
12. ágúst kl. 20.30 í Deiglunni.
Kvöldskemmtun. Dans. Anna
Richards fellur niður.
13. ágúst kl. 20.00 í Deiglunni.
Fagurtónleikar með Sigrúnu Arn-
grímsdóttur söngkonu falla niður
af óviðráðanlegum orsökum.
15. ágúst kl. 20.00 í Deiglunni.
Fagurtónleikar. Rósa Kristín
Baldursdóttir syngur við undirleik
Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.