Morgunblaðið - 09.08.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 27
■
AGUST
fSífft
I KL 1
Átök um rúss-
neska vodka-
verksmiðju
Moskvu. AFP.
HARÐVITUG átök standa yfir
þessa dagana um stjórn rússneska
vodkabrugghússins Kristall, sem
framleiðir meðal annars Stoliehnaya-
vodka. Tveir menn, Vladimíi- Svirskí
og Aleksander Romanov, takast á
um hvor þeirra eigi tilkall til að vera
forstjóri fyrirtækisins og heyja þeir
þessa baráttu með vopnaða verði sér
til fulltingis.
Síðastliðinn föstudag tók Svirskí,
sem síðustu árin gegndi stöðu gjald-
kera fyrirtækisins en tók í vor við
forstjórastólnum til bráðabirgða, og
menn honum hollir - öryggisverðir
og nokkrir verkamenn - sér yfirráð
yfir framleiðslusal verksmiðjunnar.
Romanov, sem taka átti við af
Svirskí, flutti með valdi inn í for-
stjóraskrifstofuna á föstudag og afl-
aði sér með aðstoð vopnaðra liðs-
manna einnig yfirráða yfir
rekstrarskrifstofum verksmiðjunn-
ar, að einni undanskilinni. Yfirmaður
lögfræðideildarinnar, Natalia Isku-
lova, varnaði, ásamt þremur starfs-
mönnum, öðrum mönnum Romanovs
inngöngu, í þvi skyni að meina „inn-
rásarmönnum" aðgang að skjölum
fyrirtækisins.
„Ég neitaði að víkja úr skrifstofu
minni þrátt fyrir hótanir manna
Romanovs um að berja mig,“ tjáði
Iskulova fréttamönnum í síma úr
harðlokaðri skrifstofunni.
Málaferli og
stríðandi fylkingar
Upptök átakanna um stjórn
verksmiðjunnar voru þauað þáver-
andi forstjóri, Júrí Ermilov, var rek-
inn úr starfi í maí sl. en sú ráðstöfun
var í tengslum við allsherjarendur-
skipulagningu á stjórnun áfengis-
framleiðslufyrirtækja sem russneska
ríkið á meirihluta eða er stór hluthafi
í. Er þessi endurskipulagning liður í
tilraunum Vladimírs Pútíns, sem sór
embættiseið sem forseti Rússlands í
maí, til að laga stöðu ríkisfjármála.
Rússneska ríkið verður af miklum
skatttekjum vegna útbreiddrar ólög-
legrar áfengisframleiðslu í landinu
og binda ráðamenn vonir við að með
bættu kerfi og eftirliti megi stórbæta
bágan hag ríkissjóðs.
Svirskí var útnefndur eftirmaður
Ermilovs til bráðabirgða, en á stjórn-
arfundi varð tillaga um að Romanov
skyldi skipaður í starfið ofan á. Átök
milli fylkinga innan stjómar íyrir-
tækisins og málaferli hafa staðið frá
því í júní vegna skipunarmála þess-
ara. Sáttadómstóll í Moskvu dæmdi
17. júlí sl. ráðningu Romanovs, sem
aldrei hefur starfað við Kristall áður
en gegndi starfi aðstoðarforstjóra við
rússneska ríkisolíufélagið Rosneft,
ógilda. Romanov sakaði Svirskí um
að hafa mútað dómaranum og lét til
skarar skríða á föstudag er honum
var brostin þolinmæðin til að bíða
niðurstöðu áfrýjunar sinnar á fyrri
úrskurði.
Lögregla gerði húsleit á skrifstof-
um verksmiðjunnar á föstudag vegna
rannsóknar skattayfirvalda á ásök-
unum um að stjómendur fyrirtækis-
ins hefðu ekki talið allan hagnað þess
fram.
í sjónvarpsviðtali bar Svirskí á
brýn að misnota sér aðstöðu sína til
að raka til sín hlutabréfum og að hafa
selt 26% einkahlutafjár í fyrirtækinu
til „skúffufyrirtækja" skráðra á Kýp-
ur. 51% hlutafjár er í ríkiseigu. Áætl-
að markaðsverðmæti verksmiðjunn-
ar er um 45 milljarðar króna. Svirskí
hótaði að fara í meiðyrðamál vegna
ummæla Romanovs.
ERLENT
AP
Viðskiptavinur Kristall-vodkaverksmiðjunnar heldur á sýnishorni
framleiðslunnar fyrir utan hina þekktu verksmiðju í Moskvu, sem fram-
leitt hefur eftirsóttasta áfengið í Rússlandi í 100 ár.
Vopnum beitt í deilu um forstjórastól
Rill
kw ÍÁ
TVÆR SYNIN
MIÐASALA:
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FER
BANKASTRÆTI 2, 101 REYKJAVIK
SÍMI: 552 8588 - midasaf
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 18
ANDSBANKI
isk Kulturfond
Máttarstólpar menningarborgarinnar:
'ALMENNAR ®BÚNAÐARBANKINN Landsvirkjun
EIMSKIP