Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 27 Yiltu kfló af fírtommu, saum eða kannski iúku af dúkkaðri tommu? I búðinni kennir ýmissa grasa. I þessari hillu á lagemum má m.a. fínna eymatappa, rekskrúfúr, maðkabox, sleggjur, trjáklippur og vírbursta. „Þú skrifar þetta hjá mér, vinurinn." teygja sig ofan í kókkistuna og fá sér ískalda kók. Síðan er sest á bekkinn, smjattað á súkkulaði eða kexi, rætt um fótbolta og heimsmálin leyst. Yf- ir öllu er heimilislegur bragur. „Hrikalegt hvað Skagamenn eru orðnir lélegir, geta ekki neitt, hlaupa bara um völlinn eins og vitleysingar. Enginn kraftur í liðinu.“ Einum kúnnanum er mikið niðri fyrir. Fé- lagi hans tekur undir; „Það var eins gott að maður fór ekki á helvítis völl- inn í gær að sjá þessa andskotans vitleysinga." Svo hlær hann hryss- ingslega. Sá þriðji mótmælir; „Hvað er þetta maður, við verðum að styðja okkar menn. Svo veit ég ekki betur en þeir hafí skorað tvö mörk í gær.“ Hinir hrista hausinn og borða prins póló númer tvö. Aðrir kúnnar koma og fara, einn kaupir hestaskeifur, annar álstiga og kíttisprautu og nokkrir garðáhöld og hrífur. Vilji svo ólíklega til að umbeð- in vara er ekki til í búðinni er sím- tólið hafíð á loft og hún pöntuð. „Ef þú kemur síðar í dag verður þetta ör- ugglega komið,“ segja starfsmenn- irnir við kúnnann. Ljóst er að hér er málunum auðveldlega bjargað. Áfram heldur fótboltaumræðan. Allir vita nákvæmlega hvernig Skagamenn ættu að fara að því að vinna. Færeyingar og öfuguggar Axel hlær þegar hann er beðinn að nefna dæmi um vörur sem fást í búð- inni og meðalmaðurinn hefur í mörg- um tilvikum aldrei heyrt minnst á. „Eg get nefnt sem dæmi kósa og kamlok, nippla og múffur, vimpla og union, úrrek og ábót. Svo erum við líka með Færeyinga og öfugugga héma!“ Brosandi bendir hann á dökkbláan stakk með vatnsheldu framstykki og ermum og segir blaðamanni að heilsa Færeyingnum. Hann réttir síðan fram öfuguggann; lítið jámstykki sem notað er til að ná út boltum sem era fastir í snitti. „Þeim sem ekki þekkja til finnst dá- lítið fyndið að heyra okkur tala um tveggja tommu brjóstnippla, fir- tommu saum og trekvart tommu jámrör," segir Axel. Þó að lagerinn geymi ýmsar skrýtnar vörur kemur stundum fólk í búðina og biður um enn furðulegri hluti. Nokkrir vinnufélagar tóku sig saman og báðu einn sem var nýbyrj- aður hjá fyrirtæki í bænum að skjót- ast í Axelsbúð og kaupa röndótta skipamálningu. Hann brást vel við og fór niður eftir. Því miður var ekki hægt að verða við þessari bón, jafn- vel ekki í Axelsbúð! Tölvuvæðing Aðspurður um framtíðina segir Axel að verslunin gangi vel og hann voni að svo verði áfram. „Ég tel að þetta fari að nokkru leyti eftir hug- arfari manna. Sumir leggja áherslu á að versla á heimaslóðum á meðan aðrir fara stundum til Reykjavíkur. Sem stendur er lager búðarinnar ekki kominn inn í tölvu en það er ver- ið að vinna í málinu. Þegar tölvukerf- ið verður komið í gagnið verða upp- gjör á mánaðamótum óneitanlega miklu auðveldari. Stærsti hluti við- skipta okkar em í reikning og núna er allt handskrifað. í lok hvers mán- aðar þarf að reikna út úr öllum nót- unum með reiknivél, finna hverjar eiga saman og reikna út heildarvið- skipti hvers kúnna. Það er geysileg vinna, enda viðskiptavinirnir marg- ir.“ Augljóst er að Axelsbúð er sér- stakur staður. Heimsókn þangað er vel þess virði, þó ekki væri nema til þess að fá sér bestu kók í heimi. Höfundur er nemi. 1 Bag> Garöatorgi 3, 210 Garðabæ. ICIII dll Sími: 565-6241, 893 7333. Sýningarbílar á Staðnum. Odð: Mánuöaqa - Föstudaqa10-18 * Laugardaga 10-16 Örfáum bílum óráðstafað úr síðustu sendingu Næsta sending í september Dodge Ram 2500 diesel Dodge Grand Caravan Grand Cherokee Limited Grand Cherokee Laredo Chrysler Cirrus Dísa í World Class segir: „Loksins sýnilegur árangur!" „Loksins kom krem þar sem virknin finnst þegar það er borið á húðina og jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli eindregið með Silhouette fyrir konur á öllum aldri og eftir barnsburð er það al- veg nauðsynlegt. Nýja Body Scrubið er kærkomin viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette- kremsins á húðina.“ Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland ff Vorum að fá 100% driflæsingar að aftan og framan og 5,38:1 drifhlutföll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.