Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 1
TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Milljónir heimilislausar vegna flóða í Indlandi og Bangladesh
Ottast útbreiðslu farsótta
TALIN er mikil hætta á að farsóttir
komi upp á flóðasvæðunum í norð-
austurhluta Indlands, Bangladesh,
Bhutan og Nepal en þar er vatnið nú
sums staðar tekið að sjatna, að sögn
fréttavefjar BBC í gær. Ljóst er að
minnst 120 manns hafa farist og
meira en fimm milljónir manna eru
heimilislausar vegna monsún-rign-
inganna.
Margir úr röðum hinna nauð-
stöddu þjást nú af húðsjúkdómum og
niðurgangi. Einnig eru dæmi um
malaríu. Tugþúsundir manna hafast
við í bráðabirgðaskýlum og er víða
skortur á mat og hreinu drykkjar-
vatni. Segja læknar að vaxandi hætta
sé á að kólera stingi sér niður meðal
fólksins þegar það snúi aftur til þorpa
sinna. „Miklum áhyggjum veldur að
umhverfið verður mengað og vatns-
ból full af sorpi og leðju,“ sagði emb-
ættismaður heilbrigðisyfirvalda í
sambandsríkinu Assam. Talsmaður
Alþjóðasambands Rauða krossfélag-
Málverkafölsun
Aðstoð í
Páfagarði?
Rdra. The Daily Telegraph.
GRUNUR leikur á að starfs-
menn Páfagarðs hafi átt aðild að
umsvifamiklum málverkafóls-
unum. Að sögn dagblaðsins II
Messagero í Róm rannsaka yfir-
völd nú allmörg listaverk í eigu
Michele Basso, háttsetts klerks
er eitt sinn veitti forstöðu
slg'alasafni Páfagarðs og vel-
ferðarsjóði fyrir klerka. Sjálfur
segir Basso að verkin séu hans
eign og hann sé saklaust fómar-
lamb manna sem séu að reyna
að sverta sig.
Blaðið segir að málverkin,
sem nú sé verið að rannsaka, séu
sögð vera eftir meistara á borð
við Michelangelo, Guercino og
Giambologna. Sé álitið að föls-
unarmálið tengist umfangs-
miklu peningaþvætti. Fjölda
falsaðra listaverka sé smyglað
inn í Páfagarð þar sem útbúin
séu vottorð um að þau sé ósvikin
og síðan séu þau seld til annarra
ríkja. Lögreglan rakst á stafla af
óútfylltum vottorðum frá Páfa-
garði hjá lögfræðingi í Napólí.
Páfagarður er algerlega sjálf-
stætt ríki. Merkir það m.a. að ít-
alska lögreglan getur ekki
rannsakað verk sem þar eru
varðveitt.
anna sagði að staðið vatn á hörm-
ungasvæðunum yrði mjög heppilegt
fyrir moskítóflugur er dreifa malar-
íunni meðal fólks með biti sínu.
Stjómvöld í Assam hafa sent fjölda
lækna og hjúkrunarfræðinga til að
aðstoða fólk á flóðasvæðunum. Rauði
krossinn hefur sent út beiðni um 3,5
milljón dollara, um 280 milljónir
króna, vegna ástandsins. Víða þarf
auk þess að endurreisa samgöngu-
kerfið, varnargarðar, brýr og vegir
hafa skolast burt. Kornuppskera er
JENS Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, greindi frá því á
föstudag að hugsanlegt væri að
þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin
um það í Noregi hvort landið ger-
ist aðili að Evrópusambandinu
(ESB) árið 2005. „Ef til vill á
næsta þingi (2001-2005),“ sagði
Stoltenberg í viðtali við danska
verkalýðstímaritið Fagbladet.
Norðmenn hafa tvívegis hafnað
ónýt og íbúarnir, sem aðallega eru fá-
tækir bændur, verða því á næstunni
háðir matargjöfum.
Lækkandi vatnsborð
í Bramapútra
I Bangladesh er ástandið verst við
fljótin Jamuna og Padma, fjölmörg
þorp eru stórskemmd eða horfin og
hafa þar um 700 þúsund manns orðið
að flýja tU svæða sem eru hærra yfir
sjávarmáli, að sögn AFP-fréttastof-
unnar.
aðild að ESB, fyrst árið 1972 og
síðan aftur árið 1994 en samkvæmt
nýlegum skoðanakönnunum er
fjöldi fylgjenda aðildar u.þ.b. jafn
þeim sem eru andvígir aðild. Könn-
un sem gerð var í maí sýndi að tæp
47% kjósenda eru hlynnt aðild og
önnur könnun sem framkvæmd var
nýlega sýndi fram á að 42% væru
andvíg en 37% fylgjandi aðild.
Stoltenberg, sem er fylgjandi að-
Höfuðborgin Dhaka hefur ekki
fai-ið varhluta af flóðunum, víða
streymir vatnið um götumar og hef-
ur flaumurinn þar blandast vatni úr
holræsum. Vatnsborð hefur hins veg-
ar lækkað nokkuð í Bramapútra og
fleiri fljótum í norður- og vesturhér-
uðunum en um leið eykst straumur-
inn á svæðunum sunnar, við Bengal-
flóann. Spáð var fremur lítilli
rigningu í gær í mestum hluta lands-
ins næsta sólarhringinn nema í
Chittagong og fleiri strandhéruðum.
ild, hefur lýst því yfir að hann vildi
vera allt að því 100% öruggur um
að kjósendur samþykktu aðild áður
en boðað yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu. Hefur hann jafnframt
verið tregur til að vekja máls á
fyrirhugaðri aðild að sambandinu
fyrir þingkosningar, sem halda á á
næsta ári, af ótta við að það kunni
að afla fylgis við flokka sem eru á
móti.
Við Svartafoss í Öræfum
Morgunblaðið/RAX
Aðild Noregs að Evrópusambandinu
Þjdðaratkvæðagreiðsla
hug’sanleg árið 2005
Kaupmannahöfn. Reuters.
HVAÐ ER
TIL RÁÐA?
Ánægju-
legra
að glíma
við
góðæri
en halla-
rekstur
20
SALA Á FISKIGEGN-
UM SÍMA OG NETIÐ
Tyrknesk handbók
Konur
barðar af
varkárni
Ankara. The Daily Telegraph.
MIKLAR deilur eru nú í Tyrk-
landi vegna þess að ríkisstyrkt
trúarbragðastofnun bókstafs-
trúaðra múslima hefur gefið út
handbók þar sem körlum er sagt
að berja konur sínar, stunda fjöl-
kvæni og hunsa getnaðarvarnir.
Flestir Tyrkir eru íslamstrúar en
yfirleitt hófsamir og ríkið sjálft
er ekki byggt á trúarbrögðum.
Sagt er í handbókinni að ekki
sé ráðlegt að „berja konuna í
andlitið" en dangla frekar var-
lega í aðra líkamshluta. Einnig
segir að karl megi taka sér aðra
konu ef eiginkonan sé veik eða
þá að hann hafi ekki efni á vinnu-
konu. Einnig segir að tónlist sé
syndsamleg vegna þess að hún
æsi kynhvötina. Brjóstastækkun
og notkun á hárkollu sé einnig
synd.
„Þetta er hneyksli fyrir ríkis-
stjórn sem segist stefna að aðild
að Evrópusambandinu. Þetta
jaðrar við vitfirringu," segir
Ferda Cilalioglu, kona og félagi í
Þjóðlega lýðveldisflokknum sem
er veraldlegur flokkur.
Filippseyjar
Felldir
með
sveðjum
Zamboanga á Filippscyjum. AFP.
FÉLAGAR í kristnum sér-
trúarflokki lentu í átökum við
herlið á Filippseyjum í gær
og féllu tuttugu manns, þar af
16 úr trúflokknum. Hermenn-
irnir voru að reyna að hand-
taka leiðtoga hópsins er ráð-
ist var á þá með sveðjum, að
sögn talsmanns stjórnvalda,
Charlemagne Batayola.
Talsmaðurinn sagði að leið-
toginn, Alfredo Opsiona, ætti
yfir höfði sér ákæru vegna
glæpa en útskýrði ekki nánar
í hverju þeir fælust.
Nokkrir hópar ofstækis-
manna í suðurhluta landsins,
svonefndir Tad-tad, hafa ver-
ið athafnasamir frá því á átt-
unda áratugnum. Taka þeir
oft andstæðinga sína af lífi
með sveðjum. Arum saman
hafa geisað átök á svæðinu,
aðallega milli kristinna og
múslima sem vilja stofna eig-
ið ríki. Hafa mannréttinda-
samtök sakað stjórnvöld um
að nota Tad-tad hópana sem
skæruliða gegn múslimum og
marxistahópum.
MORGUNBLAÐIÐ 13. ÁGÚST 2000