Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 55
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 55
MYNDBÖND
Flótti úr
geimfangelsi
Virkið 2: Endurkoman
(Fortress 2: Re-Entry)
Spenniimynd
%
Leiksljóri: Geoff Murphy. Handrit:
John Flock og Peter Doyle. Aðal-
hlutverk: Christopher Lambert,
Pam Grier, Beth Toussaint. (91 mín.)
Bandaríkin. Skífan, 1999. Myndin er
bönnuð börnum innan 16 ára.
IÞEIR sem sáu fyrri myndina um
Virkið geta gert sér í hugarlund um
hvað seinni myndin fjallar. Persóna
Lamberts er sett aftur á bakvið lás
og slá en núna í
fangelsi sem er á
sporbaug við jörðu
og í þetta sinn virð-
ist fangelsisstjór-
inn hafa séð við öll-
um klækja
brögðum Lam-
berts. En Lambert
er mikið hörkutól
og með aðstoð
góðra manna og kakkalakka leggur
hann í aðra flóttatilraun. Leikstjóri
þessarar myndar er Geoff Murphy
en hann á að baki nokkrar ágætis
myndir eins og „Quiet Earth“ virki-
lega góð vísindaskáldsaga sem fjallar
um fólk sem virðist vera eitt í heimin-
um, „Utu“ sem fjallar um deilur á
milli ólíkra hópa á Nýja-Sjálandi.
Það er því sorglegt að sjá þennan
hæfileikaríka leikstjóra sökkva
svona niður í svað ómenningarinnar
og senda frá sér mynd þar sem engan
jákvæðan flöt er hægt að finna. Einn-
ig er skrítið að sjá Pam Grier í litlu
hlutverki en tilraun hennar til þess
að lífga upp á feril sinn með „Jackie
Brown“ hefur greinilega mistekist.
Ottó Geir Borg
Meðgöngu-
gaman
Verðandi feður
(Kimberley)
riainanmynd
★★
Leikstjórn og handrit: Frederick
Golchan. Aðalhlutverk: Gabrielle
Anwar, Sean Astin, Jason Lewis,
Robert Mailhouse, Chris Rydell.
(106 mín.) Bandaríkin, 1999. Sam
myndbönd. Bönnuð innan 12 ára.
HÉR er á ferðinni gamanmynd
sem ef til vill mætti flokka í undir-
grein „meðgöngu-gn'nmynda". Aðr-
ar myndir í þeim flokki væru til
dæmis „Three
Men and a Baby“,
„Micki + Maude“
og „Junior“. Verð-
andi feður segir frá
hópi vina sem eiga
í mismiklu basli
með að ná fótum í
heimi fullorðinna
sem þeir ættu fyrir
löngu að vera farnir að tilheyra. Dag
einn kemur stúlka að nafni Kimber-
ley inn í líf þeirra og þeir falla kylli-
flatir fyrir henni allir sem einn. Þeir
reyna að ná ástum hennar með mis-
Ijöfnum árangri en þegar í ljós kemur
að hún er ófrísk, er erfitt að segja til
um eiginlegt faðerni barnsins. Eftir
talsvert þref og ósætti ákveða vin-
irnir fjórir að styðja Kimberley í
gegnum meðgönguna. Við tekur það
sem á að vera kómísk atburðarás,
þar sem piltarnir prjóna peysur,
versla barnaföt og rjúka allir fjórir
með hinni ófrísku upp á fæðingar-
deild. Hugmyndin er bara orðin dá-
lítið þreytt eftir skyldar myndir sem
nefndar voru hér að ofan. Hún er
hins vegar ósköp ljúf og skemmtileg
|°g þónokkur atriði er bráðfyndin.
Heiða Jóhannsdóttir
FÓLK í FRÉTTUM
Tom Cruise farinn að líta í kringum sig
Ihugar að leika í
sannri stríðsmynd
FRÁ Hollywood berast þær fréttir
að leikstjórinn David Fincher sem
á að baki myndirnar Seven og
Fight Club sé búinn að ákveða að
taka að sér að leikstýra dramatískri
mynd sem gerist á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Myndin mun
bera heitið They Fought Alone og
er byggð á „sönnum“ atburðum -
nokkuð sem þó ber að taka með fyr-
irvara þegar Hollywood er annars
vegar. Sagan rekur hetjulega fram-
göngu ofurstans Wendells Fertig
og herflokks hans. Sagt er að hand-
rit myndarinnar og leikverksins
sem það byggist á hafi vakið athygli
margra af stærstu leikaranöfnum
kvikmyndabransans, einkum þeim
Toms Cruise sem ku vera mjög
spenntur fyrir hlutverki Fertigs og
að vinna með Finchers. Nú er bara
sjá hvort aðstandendum myndar-
innar takist að næla í Cruise sem
yrði ansi mikill fengur því heitari
leikari býðst vart í dag.
Cruise hefur áður komið ein-
hvers konar stríðsmynd er hann lék
eftirminnilega í mynd Olivers
Stone Born on the Fourth of July.
David Fincher hefur hinsvegar
ekki tekist á við gerð stríðsmyndar
ef litið er framhjá því að Alien3,
sem var ekki stríðsmynd eiginlegri
merkingu þótt vissulega hafi
Ripley og félagar átt í „stríði" við
geimveruna óhugnarlegu. Hann
hefur heldur ekki tekið sér fyrir
hendur efnivið byggðan á sönnum
atburðum heldur hefur hann haldið
Reuters
Svo gæti farið að Tom Cruise og
David Fincher vinni saman að
gerð myndar sem á sér stað í síð-
ari heimsstyrjöldinni.
sig nær alfarið við skáldskapinn.
Því verður spennandi að sjá hvern-
ig honum tekst til við þetta nýja og
krefjandi verkefni.
i
Við tökum gamla tækið uppi
nýtt á allt að 17.000 kr
ZANUSSI
Kæliskápur með frysti
• Rúmmál kælis 195L
• Rúmmál frystis 105L
• Sjálfvirk afþíðing í kæli
• HxBxD: 179 x 59.5 x 60
• 3 ára ábyrgð á kælivél
69.9001
-17.000S
Verð áður kr.
Gamli skápurinn uppí
Þú greiðir stgr. kr. 52.900
ZANUSSI
Hljóðlát uppþvottavél
• Tekur 12 manna stell
• 4 þvottakerfi
• Mjög hljóðlát
• HxBxD: 85 x 59,5 x 60
• 3 ára ábyrgð
Verð áður kr. 57.900
| Gamla vélin uppí -15.000
Þú greiðir stgr. kr. 42.900
• < I ! ,1
Eldavél með grilli
• Undir- og yfirhiti
•Grill
• Geymsluskúffa
• HxBxD: 85 x 49,5 x 60
• 2 ára ábyrgð
Verð áður kr.
Gamla vélin uppí
ZANUSSI
Kæliskápur með frysti
• Rúmmál kælis 220L
• Rúmmál frystis 60L
• Sjálfvirk afþíðing í kæli
•HxBxD: 165x55x60
• 3 ára ábyrgð á kælivél
| —|Verð áður kr. 57.9001
Gamli skápurinn uppí -16.000
Þú greiðir stgr. kr. 41.900
ZANUSSI
Þvottavél 1000 sn.
• Stillanlegur vinduhraði
• Hitastillir
• íslenskur leiðarvísir
• 14 þvottakerfi
• 3 ára ábyrgð
áðurkr. 58.9001
Gamla vélin uppí -14.000
Þú greiðir stgr. kr. 44.900
ZANUSSI
Kæliskápur í borðhæð
• Rúmmál kælis 137L
• Rúmmál frystis 18L
• Sjálfvirk afþíðing í kæli
j • HxBxD: 85 x 55 x 60
I • 3 ára ábyrgð á kælivél
34.600
-5.000
Þú greiðir stgr. kr. 29.600
Eerð áður kr. 34.9001
iamli skápurinn uppí -10.000
Þú greiðir stgr. kr. 24.900
Frí heimkeirsla á höfuðborgarsvæðinu. Losum þig við gamla tækið í leiðinni!
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500