Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 58
GRAFfSKA SMBJAN 2000
MORGUNBLAÐIÐ
_ 58 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000
MYNDBOND
Vinátta,
tónlist og
tíska
Greenwich staðartími
(Greenwich Mean Time)
I) rama
•k'k'k
Leikstjóri: John Strickland. Hand-
rit: Simon Mirren. Aðalhlutverk:
Steve Shcpherd, Ben Waters og
Angela Lauren Smith. (117 mín.)
Bretland, 1999. Skífan. Bönnuð
innan 16 ára.
GREENWICH staðartími er ein
af þessum kvikmyndum sem bæði
fjalla um og eru sérstaklega fram-
leiddar fyrir ungt
fólk. Segir þar frá
vinahópi sem lýk-
ur háskólanámi og
heldur út í lífið
með ólíka drauma
og metnað í far-
teskinu. I fyrstu
er hópurinn bland-
aður bæði af kynj-
um og kynþáttum
en þegar á líður síast stelpurnar út
(enda bara kærustur) og strákarnir
reynast aðalpersónurnar. Nokkrir
þeirra koma af stað hljómsveit sem
gengur vel og þá fara spurningar
um söluvænlega hagræðingu á
kostnað listasjónarmiða að sækja
á. Um sama leyti verður vinahóp-
urinn fyrir reiðarslagi er einn úr
hópnum lamast alvarlega eftir bif-
hjólaslys. Pessir hlutir reyna ekki
síst á vináttu og þroska, enda
bregðast hinir ólíku einstaklingar
hópsins mjög misjafnlega við mót-
lætinu. Þetta er ágæt kvikmynd og
hin sæmilegasta skemmtun. Hún á
margt gott til og annað miður. Sá
hluti myndarinnar sem fjallar um
lömun eins vinarins er til dæmis
vel gerður og áhrifaríkur, sem og
umfjöllunin um listræn markmið
hljómsveitarinnar sem leikur svo-
kallaðan „jungle“ jazz. Þetta er
vönduð og góð tónlist sem kryddar
kvikmyndina. Það sem hins vegar
truflaði mig einna mest við mynd-
ina er að hún gefur sig út fyrir að
vera bresk raunsæismynd, en um
leið eru persónurnar og starfsframi
þeirra eins og klippt út úr bresku
tískublaði.
Heiða Jóhannsdóttir
J *
* r
. r'.
m
* •
* r
m
•
- *
J r
« r
J *
* r
* T .
m
* *
* r
* r
m
• j .
I r
BORÐSTOFUHUSGOGN
SÓFASETT
LAMPAR
SKÁPAR
BORÐ
STÓLAR
©pid sunnudag kl. 13-1
Í0%- 50%
:í:
* tj
•7;
':U
r*
•7;
•U
* t*
•7;
’ tj.
« r n ^ Raðgreiðslurtilalltað36mán. SíðumÚla 20, SÍHlÍ 568 8799