Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
184. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússneskur kafbátur með rúmlega 100 manna áhöfn á botni Barentshafs eftir árekstur
Tvisýnt um líf
skipverja Kúrsk
tvu, Ósló. AFP, Reuters, AP.
VLADIMIR Kúrojedov, aðmíráll og
yfirmaður rússneska flotans, sagði í
gær í samtali við ítar-Tass-frétta-
stofuna að ólíklegt væri að takast
myndi að bjarga úhöfn kjarn-
orkukafbátsins Kúrsk sem lá í gær
mikið skemmdur á botni Barents-
hafs með 116 manns innanborðs. Tíu
skip voru á vettvangi í gær, kafbátar
og ofansjávarskip, og búist við að
reynt yrði að hefja björgun með að-
stoð flugvéla í gærkvöldi. Hvassviðri
var sagt torvelda aðgerðir og öflugir
hafstraumar eru þar sem báturinn
liggur.
Kafbáturinn mun hafa lent í
árekstri á sunnudag en ekki er ljóst
hvað hann rakst á. Hann tók þátt í
mikilli æfingu rússneska Norðurflot-
ans og mun yfirmaður flotans, Vjatj-
eslav Popov, stjórna björgunarðað-
gerðunum. Að sögn talsmanna
Rússa stafaði engin umhverfishætta
frá kafbátnum og geislavirkni um
borð var innan eðlilegra marka.
„Þrátt fyrir að verið sé að gera allt
sem hægt er, þá eru litlar líkur á að
það takist að bjarga Kúrsk,“ sagði
Kúrojedov í viðtali við Ítar-Tass.
„Það bendir allt til mikilla og alvar-
legra skemmda ...ástandið er
slæmt.“ Breskur hermálasérfræð-
ingur sagði í gær að tíminn væri
naumur vegna þess að ekki væri víst
að áhöfnin hefði súrefni til meira en
tveggja sólarhringa. Yfirvöld í
Múrmansk sögðu síðdegis í gær að
hættu á súrefnisskorti hefði verið
bægt frá þar sem björgunarskipið
Kolokol dældi nú súrefni og elds-
neyti niður til skipverja.
Ljóst er að slökkt var á aðal-
kjarnaofninum um borð á sunnudag
en ekki er vitað hvort áhöfnin var
þar að verki eða hver ástæðan var.
Rafmagnslaust var um borð í Kúrsk
og því hætta á súrefnisskorti hjá
áhöfn kafbátsins en fjarskiptasam-
band rofnaði við bátinn á sunnudag.
Segja heimildarmenn Itar-Tass að
björgunarmenn hafi samband við
áhöfnina með því að berja 1 skips-
skrokkinn og skiptast þannig á
morse-skeytum við þá. Önnur frétta-
stofa í Rússlandi sagði á hinn bóginn
að tekist hefði að koma aftur á
fjarskiptasambandi í gær.
Rakst Kúrsk á
annan kafbát?
Kafbáturinn er sagður vera á um
150 metra dýpi um 135 kílómetra
norðan við flotastöðina Severom-
orsk. Mun hann hallast um 60 gráður
þar sem hann liggur á hafsbotninum,
framhlutinn er fullur af sjó og hafa
skipverjar leitað skjóls í skutnum.
Seint í gærdag hafði Ítar-Tass-
fréttastofan eftir heimildarmanni
innan rússneska sjóhersins að líkleg-
asta skýringin á slysinu væri talin sú
að Kursk hefði rekist á erlendan kaf-
bát sem þarna hefði verið á ferli og
kynni sá kafbátur einnig að liggja
skemmdur á hafsbotninum.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið, Pentagon, sagði í gær að ekkert
benti til þess að bandarískt herskip
hefði komið við sögu í slysinu. Tals-
maður ráðuneytisins, Craig Quigley,
sagði að bandarískt herskip hefði
verið á svæðinu en „langt frá“ staðn-
um þar sem Kúrsk er. Quigley vildi
AP
Rússneski kjarnorkukafbáturinn Kúrsk, ekki er
vitað hvar báturinn var þegar myndin var tekin.
Kafbáturinn er um 14 þúsund tonn og einn af full-
komnustu kafbátum Rússa. Á innfelldu myndinni
er Gennadí Ljatsín, skipstjóri Kúrsk.
ekki tjá sig um það hvort bandarísk-
ur kafbátur hefði verið í grennd við
Kúrsk er slysið varð. Vitað er að
stórveldin fylgjast ávallt með flota-
æfingum hvort annars og oft eru not-
aðir til þess kafbátar.
Engin kjarnorkuvopn voru sögð
um borð í rússneska kafbátnum sem
getur borið allt að 24 stýriflaugar
með kjarnaodda eða hefðbundið
sprengiefni auk annarra vopna. Tals-
maður norskra stjómvalda sagði
ástæðulaust að vantreysta yfirlýs-
ingum ráðamanna Rússa um að ekki
hefðu verið kjamorkuvopn um borð
en vandlega var fylgst með gangi
mála af hálfu Norðmanna. Geisla-
virkni var mæld á svæðinu í gær og
reyndist eðlileg.
Kúrsk er með fullkomnustu kaf-
bátum Rússa, svonefndur árásarkaf-
bátur og því aðallega ætlaður til að
berjast við aðra kafbáta. Vestrænir
sérfræðingar nefna gerðina Osear II
en slíkir kafbátar em tæp 14.000
tonn að þyngd, með tvo kjarnaofna
og geta náð 28 mílna hraða. Kúrsk
var smíðaður árið 1994.
■ Ekkert bendir til/24
Landsþing demókrata í Bandaríkjunum hafíð
Reuters
Forsetaefni demókrata, A1 Gore, faðmar Betty Hoover eftir að hafa
ávarpað samkomu í bænum Independence í Missouri-ríki i gær.
Hotanir skæruliða í Kasmír
Boða sjálfs-
morðsárásir
Srinagar, Nýju-Delhí. AFP, The Daily Telegraph.
Höfðað
til miðj-
unnar
BILL Clinton Bandaríkjaforseti átti
í nótt að flytja kveðjuræðu sína á
fyrsta degi flokksþings Demókrata-
flokksins sem hófst í Los Angeles í
gær. Al Gore varaforseti verður
formlega útnefndur forsetaefni
flokksins á þinginu og mun flytja
ávarp á fimmtudagskvöld, en þá lýk-
ur þinginu. Clinton sagði í blaðavið-
tali í gær að stefna repúblikana væri
röng í öllum meginmálum er hefðu
áhrif á líf Bandaríkjamanna, efna-
hagsmálum, löggæslu og umhverfis-
málum.
Hillary Clinton, eiginkona forset-
ans, átti einnig að ávaipa þingið í
nótt en hún er nú í framboði í New
York til öldungadeildar Bandaríkja-
þings. Demókratar höfðu af því
nokkrar áhyggjur að forsetahjónin
myndu stela senunni og gera Gore
erfitt um vik að koma fram sem
sterkur, óháður leiðtogi, en Hillary
hefur lofað því að forsetahjónin
muni láta nægja að lýsa yfir stuðn-
ingi við framboð Gores og verða síð-
an,,algjörlega á brott“ af þinginu.
I dag munu þingfulltrúar sam-
þykkja stefnuskrá flokksins sem á
að keppa við stefnu Repúblikana-
flokksins um hylli miðjusinnaðra
kjósenda. I stefnu demókrata verður
áhersla lögð á að skólar verði gerðir
ábyrgir fyrii' frammistöðu nemenda
sinna, gæsla við landamærinverði
hert, heimsviðskipti aukin, herinn
styrktur og dauðarefsingu viðhaldið.
En stefna demókrata er frábrugð-
in stefnu repúblikana að því leyti að
þeir fyrrnefndu eru hlynntir rétti til
fóstureyðinga, að skylda verði að
hafa gikklás á byssum og að endur-
bætur verði gerðar á reglum um
fjáröflun til kosningabaráttu.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sem Gallup gerði um síð-
ustu helgi sögðu 47% aðspurðra lík-
legra kjósenda að það væri „alls
enginn möguleiki" á að þeir myndu
kjósa Gore í forsetakosningunum 7.
nóvember nk. Aðeins 30% sögðu það
sama um frambjóðanda repúblíkana,
George W. Bush. Samkvæmt ann-
arri skoðanakönnun hefur Gore sax-
að mjög á það forskot sem Bush náði
í kjölfar landsþings repúblikana í
þarsíðustu viku og styðja nú 40%
Gore og 43% Bush. Frambjóðandi
Græningja, Ralph Nader, hefur 7%
fylgi, og nýútnefndur frambjóðandi
Umbótaflokksins, Pat Buchanan, 2%
stuðning meðal aðspurðra.
HARÐLÍNUMENN úr röðum
skæruliða í Kasmír-héraði, studdir
af pakistönskum stjórnvöldum,
sögðu í gær að þeir myndu hefja um-
fangsmiklar árásir, þ.á m. sjálfs-
morðsárásir, í héraðinu í dag og
krefjast þannig sjálfstæðis héraðsins
en í dag er sjálfstæðisdagur Ind-
verja. Mikil spenna ríkir í héraðinu
eftir öldu oíbeldisaðgerða undan-
farna daga og á sunnudag féllu 22 og
52 særðust átök skæruliða og her-
sveita Indlandshers.
„Skæruliðar okkar munu hefja
umfangsmiklar og grimmilegar ár-
ásir á hersveitir sem halda Kasmír-
héraði og breyta sjálfstæðisdegi Ind-
verja í dag eyðileggingarinnar,"
sagði Amiruddin Mughal, talsmaður
eins hóps Mujahideen-skæruliða í
gær. Þá lýsti annar hópur skæruliða
því yfir að sérsveitir hefðu verið
skipaðar til að framkvæma sjálfs-
morðsárásir á herstöðvar Indverja í
héraðinu. „Við munum koma Ind-
verjum verulega á óvart á sjálfstæð-
isdaginn þrátt fyrir miklar öryggis-
ráðstafanir þeirra," sagði talsmaður
Lashkar-e-Taiba skæruliðahópsins.
Mikill viðbúnaður var í Srinagar,
höfuðstað Kasmír, um helgina og
sagðist talsmaður öryggissveitanna í
héraðinu mundu gera allt til að koma
í veg fyrir yfirlýstar aðgerðii' skæru-
liða. Þá er öryggisviðbúnaður mikill í
Nýju-Delhí enda talið að skæruliðar
kunni að láta til skarar skiíða þar.
Pervez Musharraf, hershöfðingi
og leiðtogi Pakistana, hét því í gær
að koma á „ósviknu lýðræði" í Pak-
istan og hvatti til þess að Indverjar
og Pakistanar hæfu viðræður um
málefni Kasmír-héraðis.
I sjónvarpsávarpi sínu í gær sagði
Musharraf þó að pakistönsk stjórn-
völd styddu réttmæta baráttu íbúa
Kasmír fyrir sjálfstæði héraðsins.
Kenndi hann indverskum stjórn-
völdum um það hættuástand sem
skapast hefur í héraðinu á undan-
fömum dögum. „I Suður-Asíu er af-
ar ótryggt öryggisástand af völdum
þrjósku Indverja vegna Kasmír,"
sagði Musharraf í ávarpi sínu.
MORGUNBLAÐIÐ 15. ÁGÚST 2000