Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá vinstri: John Sniellie, Mary Chapman, Ian Skiiling, Magnús Tumi Guðmundsson, Virginia C.
Gulick og Sveinn Jakobsson, skipulcggjendur ráðstefnunnar.
Alþjóðleg ráðstefna um eldgos í jöklum
Móbergsmyndanir
á Islandi og Mars
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmennt vará ráðstefnunni sem fór
fram í Háskóla íslands, stofu 101 í Odda.
ALÞJÓÐLEGRI ráðstefnu um eld-
gos í jöklum sem fram fer í Háskóla
Islands lýkur í dag. Þar er meðal
annars rædd sú tilgáta vísindamanna
hjá Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna (NASA) að á Mars sé líklega að
finna bæði móbergshryggi og mó-
bergsstapa líka þeim sem finnast hér
á landi, en slík jarðfræðifyrirbæri
eru afar sjaldgæf utan Islands.
Ian Skilling kemur frá Bandaríkj-
unum og er einn skipuleggjenda ráð-
stefnunnar. Hann segir rannsóknir á
eldgosum undir jöklum á íslandi nýt-
ast fræðimönnum í rannsóknum sín-
um á Mars. Með því að skoða aðstæð-
ur á íslandi geta vísindamennirnir
nýtt sér þær hliðstæður sem finna
má á Mars. Hann segir líkindin með
móbergsmyndunum hér á landi og á
Mars með ólíkindum.
Fyrsta ráðstefnan um
eldgos í jöklutn
Háskóli íslands og Náttúrufræði-
stofnun fslands eru gestgjafar ráð-
stefnunnar en hún hefur verið skipu-
lögð af vísindamönnum frá íslandi,
Bandaríkjunum og Bretlandi. Magn-
ús Tumi Guðmundsson, jarðeðlis-
fræðingur og einn skipuleggjend-
anna, segir ráðstefnuna merkilega,
einkum fyrir þær sakir að þetta er í
fyrsta sinn sem ráðstefna sem þessi
er haldin. Aidrei fyrr hefur verið
haldin ráðstefna þar sem eingöngu
er fjallað um samspil eldfjalla og
jökla. Þarna gefst vísindamönnum
því kostur á að leiða saman hesta
sína, kynnast rannsóknum og að-
ferðafræði annarra. Ráðstefnan hef-
ur því mikið gildi, segir Magnús
Tumi.
Á ráðstefnunni hefur verið fjallað
um samspil jökla og eldgosa í viðu
samhengi og viðfangsefnið rætt út
frá ýmsum sjónarhomum. Þar hefur
verið fjallað um niðurstöður rann-
sókna á eldgosum á íslandi og
móbergsfjöll hér á landi, Suður-
skautslandinu og Kanada. Einnig er
fjallað um rannsóknir á bröttum
eldkeilum í Mexíkó, Bandaríkjunum
og víðar þar sem jöklar eru í hlíðum.
Ástæða þess að ráðstefnan er
haldin hér á iandi er sú að ísland er
eini staðurinn þar sem gos undir
jöklum eru algeng, segir Magnús
Tumi. „Gos undir jöklum brenna því
á Islendingum", bætir hann við.
Þátttakendur á ráðstefnunni koma
víða að. Þeir koma meðal annars frá
Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi,
Frakklandi, Japan, Austurríki, Nor-
egi og Mexíkó. 50 erlendir fræði-
menn komu til landsins til að fylgjast
með ráðstefnunni og um 25 Islend-
ingar taka þátt í henni.
Settu hlýjan svip á heimilið eða í sumarbústaðinn. Úrvalið er hjá okkur
Guðrún Arnardóttir í góðu formi
Síðasta
ólympíuferðin
Guðrún Arnardóttir
ARANGUR Guðrún-
ar Arnardóttur í
frjálsum íþróttum
hefur verið afar athyglis-
verður að undanfórnu, hún
setti íslandsmet í 400
metra grindahlaupi á stór-
móti í London 5. ágúst sl.
og á því móti og því næsta
á eftir, sem var í Malmö í
Svíþjóð, sigraði hún ól-
ympíumeistarann Díönu
Hemmings frá Jamaíka.
Hvað skýrir þennan góða
árangur að undanfórnu -
hver er lykillinn?
„Miklar æfingar í vetur
og síðustu ár hafa skilað
sér. Á síðasta ári var ég
um tíma raunar nær far-
lama vegna meiðsla, allt
síðasta sumar var ég að
jafna mig eftir tognun á
læri og hásinabólgur. En ég fór að
ná mér á strik þegar innanhúss-
æfingar hófust sl. haust. Síðan hef
ég æft mjög mikið en ekki tekið
þátt í mörgum mótum.“
- Hvað er gert fyrir íþróttafólk
þegar svona meiðsli koma upp?
„Iþrótta- og Ólympíusamband-
ið er með afreksmannasjóð sem
hefur lækni á sínum snærum sem
greinir meinið og síðan tekur við
meðferð hjá sjúkraþjálfara. Svo
byggði þjálfarinn minn, sem þá
var Norbert Elliott, upp æfinga-
prógramm sem ég fór eftir fram
áhaust. Þá tók við þjálfun minni
Paul Doyle, þeir eru báðir banda-
rískir. Eg æfi í Bandaríkjunum,
bý í Athens í Georgíu. Elliott var
háskólaþjálfarinn minn en Doyle
er þjálfari æfingahóps sprett-
hlaupara frá fimmtán þjóðum sem
ég hef unnið með.“
- Voru þetta sterk mót í
London ogMalmö?
„Já, þau voru tiltölulega sterk
en samt voru þar ekki mjög marg-
ar konur af topp-tíu listanum í
frjálsíþróttagreininni. Mínir
sterktustu keppinautur á þessum
mótum voru Sandra Glover frá
Bandaríkjunum, sem á besta tím-
ann í minni grein í ár og svo auð-
vitað ólympíumeistarinn Díana
Hemmings. Ég hef oft og mörg-
um sinnum keppt við þessar
stúlkur en þekki þær ekki í gegn-
um þjálfun."
- Þú ert á leið á Ólympíuleikana
um miðjan septembernk. Erekki
kominn í þig „glím uskálfti"?
„Jú, ég hlakka verulega til að
takast á við þetta verkefni. Ég
ætla að hugsa um að hlaupa mitt
hlaup og hinar hugsa um sig, svo
sjáum við til hvernig fer.“
- Sumar tala um að þú hafír
verið að „toppa" á röngum tíma,
hvað segirþú um þaSl
„Ég bætti mig líka svona mikið
á svipuðum tíma fyrir Ólympíu-
leikana 1996 þannig að ef ég gat
þá þá get ég líka haldið áfram að
bæta mig núna.“
- Hefur þjálfuninni verið
breytt með nýjum þjálfara?
„Já, það er aðeins áherslu-
breyting, meira lagt upp úr al-
mennri styrktarþjálfun, lögð
áhersla á að styrkja alla litlu
vöðva líkamans í stað-
inn fyrir stóru vöðvana
mest.“
-Hvað með matar-
æði, hefurþað breyst?
„Nei, ekki mataræð-
ið sjálft, en ég hef alltaf
fylgt þeirri stefnu að borða alhliða
matartegundir, ekki sneiða hjá
fitu og sykri t.d., allt er gott í hófi,
það er mín stefna. Miðað við
krakkana sem ég hef verið með í
æfingahópum þá kem ég ekki verr
út í fítumælingum. Það eru marg-
ir sem halda að íþróttafólk, sem er
► Guðrún Arnardóttir fæddist í
Reykjavík 24. september 1971.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi
1991 og BS-gráðu í íþróttafræð-
um frá Georgíu-háskóla í Banda-
ríkjunum. Hún hefur tekið mik-
inn þátt í fijálsíþróttum, byrjaði
æfingar 1985, er margfaldur ís-
landsmeistari og hefur einnig
náð miklum árangri á erlendri
grundu. Hún starfar sem at-
vinnumanneskja í íþróttum og
hefur gert það frá árinu 1996,
eftir Ólympíuleikana þá.
í fullu starfi sem slíkt, þurfi að lifa
meinlætalífi í sambandi við mat-
aræði, en það er að mínu mati
ekki rétt. Það þarf bara að finna
hinn gullna meðalveg."
- Þú ert búsett í Bandaríkjun-
um, hvernig líkar þér þaS!
„Með hveiju árinu líkar mér
betur að búa þar. Þetta er mjög
ólíkt umhverfi frá Islandi, bæði
hvað veðurfar snertir en líka
menningarheimurinn. Ég hef að-
lagast og eignast vini en alltaf
þegar maður er að burtu að heim-
an þá saknar maður eðlilega fjöl-
skyldu sinnar. Ég á foreldra í
Kópavogi og þrjú eldri systkini.
Ég er öll sumur meira og minna
heima, milli þess sem ég fer á mót
í Evrópu, en er í Bandaríkjunum á
vetruna. Ég leigi íbúð með íslend-
ingi, Sigurbirni Arngrímssyni,
sem er í doktorsnámi í íþróttum.“
- Hver eru þín helstu áhugamál
fyrir utan íþróttimar?
„Það hefur ekki gefist mikill
tími til annarra áhugamála.“
- Þú hefur haft við orð að þú
ætlir að hætta keppni eftir 01-
ympíuleikana núna íhaust, er það
endanleg ákvörðun eða ætlarðu
að halda áfram ef þér gengur
mjögvefí
„Þetta er endanleg ákvörðun.
Ég ætla að hætta að keppa eftir
Ólympíumótið núna í Sydney í
Ástralíu, en ég ætla hins vegar
ekki að hætta þjálfun. íþróttirnar
eru það stór þáttur í lífi mínu að
ég get ekki alveg hætt, en það
verður eflaust ekki mikil alvara í
þeim æfingum."
- Hvað ætlar þú að taka þér
fyrir hendur?
„Ég ætla að fara í
skóla í Norður-Georg-
íu. Þar ætla ég að
stunda undirbúnings-
nám fyrir hjúkrun og
stefni á að verða hjúkr-
unarfræðingur þegar fram líða
stundir. Ég hef haft mörg ár til að
hugsa um hvað ég vilji eyða lífinu í
og þetta er niðurstaðan. Ég var
eina önn í meinatækni í Tækni-
skólanum. Mitt áhugasvið er á
heilbrigðissviðinu, ég vil gjarnan
hjálpa fólki.“
Stefnir að
því að verða
hjúkrunar-
fræðingur