Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 19
Islandssími hf.
Obreytt áætlun
varðandi GSM
ÍSLANDSSÍMI hefur ekki geflð
upp á bátinn að fara af stað með
GSM-kerfi, að sögn Kristjáns
Schram, markaðsstjóra fyrirtækis-
ins. Krisján var spurður hvort
Íslandssími hefði ákveðið að hætta
við uppbyggingu GSM-kerfis vegna
auglýsingar frá fyrirtækinu í Morg-
unblaðinu síðastliðinn sunnudag,
þar sem sagt var frá því að fyrirtæk-
ið leitaði að yfirmanni virðisaukandi
þjónustu til að takast á við ný og
spennandi verkefni við uppsetningu
á farsíma af þriðju kynslóð. í fyrir-
sögn auglýsingarinnar var óskað eft-
ir hjálp við að gera gemsann úreltan.
Kristján segir að viðkomandi starf
felist í yfirumsjón með tæknilegri
uppbyggingu á þjónustugreinum á
borð við GPRS og þráðlaust Net,
sem GSM tæknin í dag geti ekki
boðið upp á. Íslandssími haldi sig þó
enn við að koma sér upp GSM-kerfi.
„Við stefnum að uppbyggingu á
GPRS farsímakerfi. Síðan verður
UMTS-leyfið væntanlega boðið út í
byrjun næsta árs, eins og er að ger-
ast í Þýskalandi núna og var í Bret-
landi. Með umræddri auglýsingu er
Íslandssími hvorki að gefa í skyn að
fyrirtækið ætli eða ætli ekki að
sækja um UMTS-leyfi þegar að því
kemur. Sá starfsmaður sem verið er
að auglýsa eftir á fyrst og fremst að
sjá um þróun þráðlausra netsíma,
sem eru að koma á markaðinn. í um-
ræddu starfi er því mest um að ræða
forritunarþróun og við erum að
hugsa um GPRS-kerfið í því sam-
bandi,“ segir Kristján.
Hluthafar
vilja árangurs-
tengd laun
í nýrri könnun Hay Management
Consultants kom í ljós að æ fleiri
fjárfestar vilja að laun yfirmanna
fyrirtækja verði tengd fjárhagslegri
frammistöðu fyrirtækjanna sem þeir
starfa hjá og að litið verði til nokkuð
langs tíma í því sambandi. Um 85%
af fagfjárfestum telja að laun yfir-
manna fyrirtækja beri að tengja
frammistöðu fyrirtækjanna betur og
um 80% aðspurðra fjárfesta sögðu að
þegar yfírmenn fengju launaumbun
væri tekið mið af of skömmum tíma.
Margir hluthafar hafa á undan-
förnum mánuðum lýst yfir óánægju
sinni með rausnarlegar greiðslur til
forstjóra og yfirmanna fyrirtækja.
Stjórn Vodafone Airtouch hefur til
að mynda tilkynnt hluthöfum að
tæplega 1,2 milljarða greiðsla til for-
stjóra fyrirtækisins, Chris Gent, hafi
verið alger undantekning og að slíkt
verði ekki endurtekið.
Þess ber þó að geta að margir
þeirra sem talað var við í könnuninni
sögðust vera andsnúnir tillögum sem
veita hluthöfum aukin völd til þess
að ákveða laun yfirmanna en nú í
október stefnir viðskiptaráðuneytið
breska að því að fá samþykkt slík
lög. Helstu rökin eru þau að hætta sé
á að fyrirtæki greiði yfirmönnum of
lág laun til þess að vinna hylli hlut-
hafa og það kunni að verða til þess að
þeim takist ekki að fá til sín hæfustu
stjórnenduma.
------»-H-------
Skólavörubúðin
>
kaupir Arval
SKÓLAVÖRUBÚÐIN ehf. hefur
keypt öll hlutabréf í heildverslun-
inni Árvali ehf. af Sigurbjörgu Guð-
jónsdóttur, Snjólaugu Steinarsdótt-
ur og Agnesi Steinarsdóttur.
Árval rekur annars vegar heild-
verslun með hannyrðavörur, garn
og prjónavörur og föndurvörur fyr-
ir endurseljendur, skóla, félags-
starf aldraðra og fleiri. Hins vegar
á og rekur Árval verslunina Garn
og gaman í Kópavogi. Fyrst um
sinn verða engar breytingar á
rekstri þess en nafn félagsins mun
breytast í Skólavörubúðin - Árval
ehf. Starfsmenn verða áfram þeir
sömu fyrir utan þær Sigurbjörgu
og Snjólaugu. Agnes mun starfa
áfram með nýjum eigendum og
vera í forsvari fyrir rekstrinum.
Eftir sameiningu félaganna verða
starfsmenn 12 talsins og ársvelta
rúmlega 200 milljónir króna. Fram-
kvæmdastjóri Skólavörubúðarinnar
er Óskar Sigurðsson en húsgagna-
fyrirtækið GKS keypti rekstur
Skólavörubúðarinnar í mars á síð-
asta ári þegar hún var einkavædd.
Erum flutt
í Auðbrekku 7
Norburlandamót landsliba á Laugardalsvelli 16. ágúst kl. 18.45
Fullt verö: 2.000 kr. Safnkortsverb: 1.500 kr. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
Forsala á ESSO-stöðvunum á höfuðborgarsvæ&inu, Hveragerði,
Skútunni Akranesi, Leiruvegi Akureyri og Aðalstöðinni Keflavík.
Fyrstir koma, fyrstir fá - sæti!
Esso!
Olíufélagiðhf
www.esso.ls
HAMRABORG
; ^' ~ t--;. 'i i
NÝBÝLAVEGUR
UMBOÐS- OG HEILD VERSL UN
SSpassmsr
AUÐBREKKA 1 • 200 KÓPAVOGUR • ICELAND
SÍMI / TEL.: +354 544 5330 • FAX: +354 544 5335
NETFANG / E-MAIL: jon@straumur.ls
www.straumur.is