Morgunblaðið - 15.08.2000, Blaðsíða 70
'70 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Fram-leikurinn er sjöundi Liðsleikurinn á fótboltavef mbl.is.
Liðsleikurinn tengist liðunum í Landssímadeildinni, og fylgja
síðan önnur lið f kjölfarið. I Liðsleiknum eru möguleikar á
skemmtilegum vinningum sem tengjast einstökum liðum. I
Fram-leiknum getur þú unnið Fram-treyju, -regnhlíf, -húfu,
-könnu, -úr, -spil og fleira.
Á vefnum fer líka fram óformleg
skoðanakönnun, Spurt er, þar
sem lesendum gefet færi á að svara spurningum sem brenna
á mönnum. Niðurstöður er síðan hægt að skoða hveiju sinni
auk þess að sjá eldri spurningar og svör.
mbl.is
FÓLK í FRÉTTUM
Innrí og ytri dj öflar
Daredevil: Visionaries eftir Kevin
Smith. Teiknað af Joe Quesada og
yfirfært af Jimmy Palmiotti. Sagan
er sjálfstæð saga um ofurhetjuna
Daredevil sem hefur verið gefin út
af Marvel síðan á áttunda ára-
tugnum. Bókin er gefin út af
Marvel Comics árið 2000. Fæst
í myndasöguversluninni Nex-
us VI.
HEIMUR ofurhetjunar er yfirleitt
fylltur reyk og speglum því þar eru
hlutimir sjaldnast það
sem þeir sýnast. Yngri les-
endur verða yfírleitt að
gera sér grein fyrir því áð-
ur en það hugrakka skref
fram af syllunni og ofan í
hið botnlausa dýpi ofur-
hetjuheimsins er stigið að
flest allar söguhetjurnar
hafa verið persónur í
blaðasápuóperum í nokkra
áratugi. AUtaf eru að
skjóta upp kollinum per-
sónur sem annaðhvort
voru löngu gleymdar,
fallnar í dá eða taldar af.
Til dæmis eru fastalesendur löngu
hættir að kippa sér upp við það þegar
hetjulegur bardagi ofurhetjunar og
erkifjandans endar með dauða þeirra
síðamefnda, því innst inni vitum við
að það er skiptir engu þótt illmennin
væru upprætt í sameindir sínar í
blásýrabaði, því þau snúa alltaf aftur.
Heldur má aldrei gleyma því þegar
Súpermann gerði eins og Jesús og
reis upp írá dauðum. Það eina sem
lesendur græddu á því ævintýri, fyrir
utan afar óþægilega hárgreiðslu ofur-
hetjunnar þegar hún sneri aftur, vora
vangaveltur um það hvort hetjan hafi
öðlast ódauðleika með því að fá ekki
að hvíla í friði eða hvort upprisusagan
fyrirsjáanlega hafi í raun verið eins og
að lesa sorglega minningargrein um
góða myndasögugerð.
Það er nefnilega
merkileg staðreynd að í
augnablikinu era ofur-
hetjumar það sem halda
bókmenntagreininni
uppi, íjárhagslega að
minnsta kosti, en í leið-
I inni era þessar sömu of-
urhetjur ástæðan fyrir
því bamalega óorði sem greinin hef-
ur. Takið því ofurhetjunum með gát,
þær klæðast kannski flottum göllum
en sama hvemig er litið á það þá er
erfitt að kyngja menningarstolti sínu,
opna hugann og reyna að taka mann í
níðþröngum litríkum búning alvar-
lega. Fyrir suma væri það jafhvel eins
og að setjast niður með Andrési Önd
og ræða við hann á alvarlegu nótun-
um um erfiðleika innan fjölskyldu
hans.
Sem betur fer, og Guði sé lof, eru til
menn innan veggja stórfyrirtækj-
anna, þar sem ofurhetjunum er
stjómað eins og strengjabrúðum,
sem hafa metnað fyrir því sem þeir
gera. Einn slíkur er kvikmyndaleik-
stjórinn Kevin Smith sem er þekkt-
astur fyrir myndir sínar „Clerks“,
„Chasing Amy“ og nú síðast „Dogma“
þar sem hann skrifaði handiitin, leik-
stýrði og lék hlutverk hins þögla Bob.
Það sem er alltaf sérstaldega gam-
an þegar utanaðkomandi snillingar
era fengnir til þess að skrifa nokkur
blöð í ofurhetjusápuóperana er það að
þeir taka nánast aldrei að sér verkin
nema með því skilyrði að þeir fái áð
bijóta allar áður settar reglur. Fyrir
utan það kannsM að kála ofurhetj-
unni.
Matt Murdock er blindur lögfræð-
ingur sem blindaðist í slysi sem barn.
Þetta leiddi til þess að önnur skiln-
ingarvit piltsins mögnuðust svo um
munar. Hann vai- alinn upp í harðasta
glæpahverfi New York borgar af föð-
ur sínum sem var misheppnaður box-
ari sem leiddist út í heim glæpa af illri
nauðsyn og á endanum varð það hans
bani. Murdock litli sór því þess að
berjast við glæpi allt sitt líf. Á daginn
berst hann í réttarsölunum, á næt-
umar kemst hann í nánari samsMpti
sem ofurhetjan Daredevil.
Þegar Kevin Smith tekur við sögu-
þræðinum hefur vitanlega miMð vatn
runnið til sjávar á æviskeiði hom-
haussins rauðMædda og ástarlíf hans
ekM upp á marga fiska. Smith er
nokkuð miskunnariaus við ofurhetj-
una því hann tekur hreinlega síðustu
mola einkalífs hans og sturtar þeim
niður Mósettið. Sagan er full af há-
dramatískum vangaveltum um Guð,
antikrist, ástina og lífið og er óhætt að
segja að saga Smith sé ein sú afdrifa-
ríkasta, metnaðarfyllsta og besta sem
nokkurn tímann hefur verið skrifuð
um ofurhetjuna. Afleiðingar þessarar
sögu verða líMegast hinum hug-
myndasnauðari fastráðnu pennum
Marvel söguefni á næstkomandi ár-
um. Þá er bara að vona Marvel haldi
áfram að toga í rétta strengi. Svona
eiga ofurhetjusögur að vera.
Birgir Örn Steinarsson
Þriðjudagat og
fimmtudagar
Suðurlandsbraut 56 • Austurstræti 20 • Kringlan