Morgunblaðið - 30.08.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 21
Chevenement
París.AFP.
segir af sér
JEAN-Pierre Chevenement, innan-
ríkisráðherra Frakklands, sagði af
sér embætti í gær vegna ágreinings
við Lionel Josp-
in forsætisráð-
herra um stefnu
frönsku stjórn-
arinnar í má-
lefnum Korsíku.
Chevenement,
sem hefur verið
einn mest áber-
andi ráðherra
vinstristjórnar
Jospins, var
andsnúinn áformum Jospins um að
veita Korsíkubúum takmarkaða
sjálfstjórn.
Afsögn ráðherrans notaði Jospin
tafarlaust sem tilefni til minni hátt-
ar uppstokkunar i stjórninni. Meðal
annars tekur Danier Vaillant við
innanríkisráðuneytinu.
„Jean-Pierre Chevenement gaf til
kynna, að vegna afstöðu hans til að-
gerða ríkisstjórnarinnar gagnvart
Korsíku kysi hann frekar að segja af
sér ráðherraembætti sínu,“ sagði
Jospin í stuttri yíírlýsingu.
Áfsögn vinstrimannsins Cheven-
ements, sem á sér sterkt persónu-
fylgi, er áfall fyrir Jospin og sósíal-
istaflokkinn, þar sem einmitt um
þetta leyti er forsætisráðherrann og
flokkur hans að setja sig í stellingar
fyrir slaginn um forsetastólinn, sem
útkljáður verður um mitt árið 2002.
Jospin er nú nauðugur einn kost-
ur að þrýsta í framkvæmd áform-
unum um sjálfstjórnarréttindi til
handa Korsíkubúum, og verður
hann þar með að standa og falla með
því hvernig til tekst um framkvæmd
þeirra.
Vopnuð barátta róttækra aðskiln-
aðarsinna á Korsíku undanfarin 25
ár hefur verið öllum frönskum ríkis-
stjórnum óþægur ljár í þúfu, og er
stjórn Jospins þar engin undantekn-
ing. Pað versta við afsögn Cheven-
ements, séð frá bæjardyrum forsæt-
isráðherrans, er að þar með getur
innanríkisráðherrann fyrrverandi
hrist af sér allar hömlur í baráttu
sinni á þingi gegn Korsíkuáformum
stjórnarinnar, en að hafa Cheven-
ement í slíku hlutverki kann að
verða stjórninni og Jospin pólitískt
skeinuhætt. Margir fleiri þingmenn
í herbúðum sósíalista munu einnig
hafa sínar efasemdir um ágæti ríkis-
stjórnaráformanna, en þau ganga út
á að Korsíkubúar fái takmörkuð
sjálfstjórnarvöld í hendur árið 2004.
Chevenement
Reiði vegna ásakana í nýrri bók
Neita að Nixon
hafi barið
Washington. AP.
PATRICIA Nixon Cox, dóttir
Richards Nixons, fyrrverandi
Bandan'kjaforseta, neitar því að
faðir sinn hafi barið eiginkonu
sína og efast um að
hann hafi tekið lynd-
isbreytandi lyf á
meðan hann var for-
seti. Segir Patricia
að þessar ásakanir,
og aðrar, sem fram
koma í nýrri ævisögu
forsetans fyrrver-
andi, eigi ekki við
nein rök að styðjast.
Bókin heitir Vald-
hroki (The Arrog-
ance of Power) og er
eftir Anthony Summ-
ers, sem er frétta-
maður breska ríkis-
útvarpsins, BBC. Kom _
bókin út si. mánudag. Ásakanir
Summers um að Nixon hafi mis-
þyrmt konu sinni, Patriciu, eru
byggðar á frásögnum sem heim-
ildamenn hans hafa eftir öðrum
og í sumum tilfellum hafa heim-
ildamenn hans þær eftir einhverj-
um sem hefur þær eftir enn öðr-
um. '
Nákvæmasta ásökun Summers
er sú að Nixon hafi barið konu
sína annaðhvort rétt áður en eða
rétt eftir að hann tapaði í ríkis-
stjórakosningum í Kaliforniu
1962. Segir Summers að frétta-
maðurinn Bill Van Petten, sem nú
er látinn, hafí sagt ónafngreind-
um vini sínum frá því að Nixon
hafi barið konu sína „svo svaka-
lega að hún gat ekki farið út úr
húsi daginn eftir“.
Summers segir ennfremur að
John Sears, fyrrverandi lögfræð-
ingur í Washington, sem vann við
kosningabaráttu Nixons er hann
náði kjöri sem forseti 1968, hafi
sagt sér að að honum hafí verið
sagt „að Nixon hafi barið [konu
sína] 1962 og að hún hafi hótað að
skilja við hann vegna þess ...
Þetta var ekki löðrungur, hann
gaf henni glóðarauga." Sagði
Sears við Summers að hann hafi
komist að þessu hjá tveimur lög-
fræðingum sem báðir eru látnir.
Lyndisbreytandi lyf
I bók Summers segir ennfremur
að 1968 hafi Nixon verið fengnir
1.000 belgir af lyndisbreytandi
konu sína
lyfi, Dilantin, er kemur í veg fyrir
krampa. Hafi Jack Dreyfus, stofn-
andi fjárfestingarfyrirtækis, gefið
forsetanum lyfið og seinna bætt
við öðrum þúsund
belgjum. Dreyfus
sagði við The New
York Times að hann
hafi gefið Nixon lyfið
„þegar hann var ekki
í sérlega góðu skapi“.
Segir Dreyfus að lyfið
virki vel gegn ótta,
áhyggjum, sektar-
kennd, reiði, þung-
lyndi og öðrum kvill-
um.
Döttir forsetans
sagði í viðtali við As-
sociated Press á
mánudaginn að þótt
hún viti ekki ná-
kvæmlega hvaða lyf faðir hennar
hafi tekið á lífsleiðinni hafi hún
átt samskipti við hann daglega og
geti borið vitni um að lyndi hans
hafi ekki breyst. Hún segist efast
um að hann hafi tekið lyfin þvf
hann hafi trúað því að lyf ætti
maður ekki að taka nema við
mjög alvarlegum sjúkdómum.
Ekki viðkvæmt blóm
Dóttir forsetans býr f New
York ásamt eiginmanni sfnum,
Edward Cox, sem er lögfræðing-
ur. Hún kemur mjög sjaldan fram
opinberlega, mun sjaldnar en
yngri systir hennar, Julie. Hún
leitaði þó eftir viðtali við AP til
þess að svara þeim ásökunum er
fram koma í bók Summers.
„Ég bjó hjá foreldrum mínum
og systur minni og get því fullyrt
skilyrðislaust að aldrei árið 1962,
og hvorki fyrr né síðar, barði fað-
ir minn móður mfna, og móðir
mín bar aldrei líkamleg merki of-
beidis eða marbletti eins og haldið
er fram í bókinni," sagði Patricia.
„Móðir mín var ekki viðkvæmt
blóm. Hún var ákaflega sterk.
Hún hefði farið burt fyrir fullt og
allt ef eitthvað þessu líkt hefði
gerst. Hún var eindrægasti stuðn-
ingsmaður föður míns og trúði
sannarlega á þau markmið sem
hann reyndi að ná. [...] Foreldrar
mínir geta ekki Iengur svarað fyr-
ir sig. Þetta þarf að koma fram
vegna þess að þetta er satt. Ég
var viðstödd."
Richard Nixon
íslenskur leikari
á bresku sviði
í kvöld, miðvikudags-
kvöld, verður frumsýnt
leikrit eftir smásögu
Antons Tsjekhov í Bar-
ons Court-leikhúsinu í
London, þar sem ís-
lenskur leikari fer með
stórt hlutverk. Sigrún
Davíðsdóttir segir frá.
SIGURÐUR Eyberg, ungur leikari,
sem lauk prófi frá breskum leiklist-
arskóla, East 15, í vor, þreytir í kvöld
frumraun sína á fjölum Barons
Court-leikhússins í London. Leikrit-
ið sem um ræðir er „Fiðrildið", leik-
gerð eftir sögu Antons Tsjekhov.
Leikritið verður frumsýnt í kvöld, en
verður síðan sýnt áfram út allan
september.
Sigurður kom tii Bretlands fyrir
þremur árum til að fara í East 15
leiklistarskólann, eftir að hafa gert
árangurslausar tilraunir til að kom-
ast í Leiklistarskóla íslands. Skólinn
leggur áherslu á svokallað „Method
Acting“ sem byggir á hugmyndum
pólska leiklistarfrömuðarins Stanisl-
avskís. Á þeim hugmyndum byggja
einnig leiklistarskólar eins og
,Á£tors’ Studio“ í New York, sem
leikarar eins og A1 Pacino og Robert
de Niro hafa gert frægan.
í borg þar sem hundruð ungra
leikara eru í leit að tækifærum er það
sérlega góður árangur að vera kom-
inn með sitt fyrsta hlutverk aðeins
nokkrum vikum eftir að námi lauk.
Barons Court-leikhúsið hefur verið
starfrækt í níu ár og sýnir nokkur
leikrit á ári. Leihússtjóri er Ronald
Selwyn Phillips, sem hefur gert leik-
gerðina að smásögu Tsjekhovs og
leikstýrir jafnframt verkinu.
Leikritið segir frá Olgu Dymóvu,
fallegri og sjálfumglaðri konu, sem
ekki getur látið vera að daðra við
hvaða karlmann, sem vekur áhuga
hennar. Osip, eiginmaður hennar,
sem Sigurður leikur, tekur þessu öllu
með þögn og þolinmæði og sér ekki
sólina fyrir eiginkonu sinni þrátt fyr-
ir breyskleika hennar. Sigurður seg-
ist hafa miklar mætur á hlutverkinu.
„Osip er öðlingur, en áttar sig ekki á
að kona hans þyrfti kannski fastari
tök,“ segir hann og bætir við af and-
ans spekt að sjaldan launi kálfurinn
ofeldið.
Tungumálið er mikilvægur hluti af
verkfærum leikarans og það getur
varla verið auðvelt að leika á öðru
máli en sínu eigin. Sigurður segir
hlæjandi að framan af hafi skólafé-
lagar hans haldið að hann væri lát-
bragðsleikari, því hann hafi iðulega
brugðið fyrir sig látbragði fremur en
orðum. Orðin komust þó upp á yfii--
borðið að lokum og nú segist hann
ekki hugsa út í tungumálið.
Það einfaldar einnig aðstæður að í
Bretlandi eru til ótal mállýskur og
margvíslegur hreimur. Þótt leikur-
um sé kenndur samræmdur fram-
burður, svokölluð BBC-enska kennd
við ríkisútvarpið þeirra, er ekki leng-
ur nein krafa um að allir tali eins.
Eins og glöggt má heyra í kvikmynd-
um færist það sífellt i aukana að hver
tali með sínu nefi. Og þar sem fram-
boð af leikurum er svo mikið er ein-
falt að finna leikara með rétta fram-
burðinn fyrir hvert hlutverk í stað
þess að einhver sé að burðast við að
læra þann framburð sem hlutverkið
krefst.
Hlutverk Osips er ekki fyrsta hlut-
verkið, sem Sigurður fer með. Meðan
á náminu stóð var hann farinn að
leika með litlum farandleikhópi. Sá
hópur var verðlaunaður á Edinborg-
arhátíðinni í fýrra fyrir bestu
leiksýninguna utan hins hefðbundna
ramma, „Fringe first“-verðlaunin.
Það leikrit fjallar um safnverði á
listasafni og hvernig þeir hleypa fjöri
í kyrrlátt starfið. Það leikrit er af allt
öðrum toga en stofuleikurinn sem
Sigurður leikur nú í.
Sigurður segist einmitt hafa áhuga
á sem fjölbreyttustum verkum og
æviráðning er ekki á stefnuskránni.
Bæði sviðs- og kvikmyndaleikur vek-
ur áhuga hans og aðalatriðið er að
hafa skemmtilegt verkefni til að fást
við, líkt og Osip næstu vikurnar.
Hallarmúia 2, Rvik.
Austurstrætí 18, Rvík.
Strandgötu 31, Hfj.
Bókval, Hafnarstræti 91-93, Ak.
r^SIMINN-GSM
NOKIA 5110
Asamt aukahlutapakka og Frelsiskorti frá Símanum GSM
Handfrjáls búnaður, taska, hleðslutæki í bfl, mælaborðsfesting, Frelsiskort
13 .990
kr. stgr.
NOKIA3S1Q
Ásamt aukahlutapakka og Frelsiskorti frá Símanum GSM
Handfrjáls búnaður, taska, hleðslutæki í bíl, mælaborðsfesting, Frelsiskort
15.990
kr. stgr.
Einnig fá nokkrir heppnir einstaklingar sem kaupa ritföng,
ásamt GSM-síma tilboðinu eða frelsis áfyllingu, ritföngin
endurgreidd.
Dregið verður úr lukkupottinum á FM957.
Frelsiti Jsölu