Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 23 LISTIR Draumkennt raunsæi í Reykjavík A I dag verður opnuð sýning 1 Galleríi Reykja- vík á verkum Javier Gil frá Úrúgvæ. Eyrún Baldursdóttir ræddi við myndlistarmanninn sem sækir myndefni sitt í íslenskt umhverfí og norrænar goðsagnir og tengir saman á draumkenndan hátt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Javier Gil í VINNUSTOFU sinni í Aðal- strætinu var Javier Gil að vinna að síðustu verkunum fyrir sýninguna. „Ég vona að þú afsakir draslið," byrjaði hann á að segja og bauð blaðamani sæti á góðum stól. Ýmis verk eftir hann voru enn í vinnu- stofunni en flest voru komin upp í Gallerí Reykjavík þar sem sýning- in hefst klukkan 18 í dag, miðviku- dag. Javier er frá Úrugvæ og hef- ur unnið hér síðan í maí. Hann hefur starfað víða í Evrópu s.s í Þýskalandi, Frakklandi, og Portú- gal. En hver skyldi vera ástæðan fyrir því að hann er komin hingað til lands? „Ég kom hingað með unnustu minni Ásdísi Pétursdótt- ur,“ svarar hann. „Áður en ég kynntist henni vissi ég lítið um ís- land, en svo þegar ég kom hingað varð ég strax yfir mig hrifinn af þjóðfélaginu og umhverfinu." Á sýningunni sýnir Javier bæði kolateikningar og olíumálverk. Myndefnið er að stórum hluta sótt í íslenska náttúru og norrænar goðsagnir. Ennfremur er á sýn- ingunni röð Reykjavíkurmynda sem sýna túlkun Javier á borginni. „Ég gef myndunum goðsagna- kennda merkingu," segir hann og bendir á draumkennda mynd sem sýnir Leif Eiríksson, á stallinum framan við Hallgrímskirkju, toga turninn á kirkjunni niður með sverði sínu. „Efnistökin finnst mér lýsandi fyrir þjóðina því hér fer saman kristin menning og víkinga- eðli fólksins. Mér finnst þetta ákaflega heillandi blanda.“ Javíer segist enn sem komið er ekki hafa lesið íslenskar fornbók- menntir en bendir á að íslenskir vinir sínir hafi sagt sér sögur af hetjun eins og Leifi heppna eða „Lucky“ eins og Javier kýs að kalla hann. „Mér finnst alltaf jafn- gaman að heyra sögur af þessum frægu víkingum og lifnaðarháttum þeirra. Það er í senn heillandi en einnig nokkuð ógnvekjandi.“ Töfrasena í þrívídd „Ég vinn með röð mynda,“ segir hann og vísar til sería sem sýna Hallgrímskirkju, stóra laxa eða guðlegar risaverur sem valsa um Reykjavíkurborg. „Ég geri aldrei eitt verk sem er aðskilið öðrum. Til dæmis byrjaði ég að vinna með Hallgrímskirkjuna og þróaði það með ýmsum hætti, en hélt mig samt innan ákveðins ramrna," seg- ir hann og bætir brosandi við. „Svo þegar mér fer að leiðast eitt fer ég yfir í annað.“ Stíll Javier byggist á einskonar draumkenndu töfraraunsæi. „Myndirnar eru ímyndun mín. Ég tek vissa þætti úr umhverfinu og umbreyti þeim. Ég vil líta á sjálf- an mig sem sviðshönnuð fremur en málara, þó flestir aðrir myndu flokka mig undir hið síðarnefnda. Litirnir eru aldrei aðalatriðið hjá mér. í myndum mínum legg ég áherslu á að búa til visst leiksvið og þróa söguna inn í það rými.“ Hann bendir aftur á myndina af Hallgrímskirkju þar sem hún er beygð og sveigð líkt og gúmmíefni. „Það má í raun líta á þessa mynd sem skissu af leiksviði. Einn dag- inn verður hún kannsi kveikjan að senu hjá kvikmyndaleikstjóra sem færir hana í lifandi búning," hann segir þetta hlæjandi en í þessu felst samt útskýringargildi. Hann verður aftur alvarlegur „Þetta er tilfinningin í verkum mínum, ég vil skapa töfrasenu í þrívídd." Trúarlegar og erótískar myndir Verkin sem Javíer sýnir í Gall- eríi Reykjavík sýna að hans sögn eina hlið á listsköpun hans. „Það sem er nauðsynlegt hreyfiafl í list minni eru andstæðurnar, ringul- reiðin og reglan. Þannig geri ég myndir sem fela í sér leit að trúar- legum gildum og einnig erótískar myndir þar sem ég fjalla um kynlíf sem sjálfsagðan kraft í lífinu." Á sýningunni verða ekki erótísk verk hans, en Javíer bendir á að gefin hafi verið út bók sem sýni seríu slíkra verka. Sýningin í Galleríi Reykjavík er fyrsta sýningin sem Javíer heldur hér á landi, „og vonandi ekki sú síðasta". Símaklefar ínýju hlutverki GANGANDI vegfarendur í Kingst- on-upon-Thames, einu úthverfa London, virða hér fyrir sér verk breska listamannsins David March. Verkið nefnist „Out of Order“ sem útleggja m<í á íslensku sem „Bilun“. „Out of Order" er gert úr tólf rauðum símaklefum, sem áður mátti sjá víða um Bretland. March velur sér oft sérkennileg við- fangsefni, en meðal þekktari verka hans eru kafbátur gerður úr bíl- dekkjum og lest sem búin var til úr múrsteinum. Tónleikar á Selfossi GUÐLAUG Dröfn Ólafsdóttir heldur tónleika í Hótel Selfossi, á morgun, fimmtudag, kl. 21. Þeir sem fram koma, ásamt Guðlaugu, eru Kristjana Stef- ánsdóttir, Ólafur Þórarinsson, Vignir Þór Stefánsson, Jón Óm- ar Erlingsson, Ásgeh’ Ásgeirs- son, Helena Káradóttir, Helga Sigurþórsdóttir, Agnar Már Magnússon, Bjöm S. Ólafsson, Gunnar Jónsson og Gunnlaug- ur Guðmundsson. Stefán Freyr Stefánsson sér um lýsingu. Kynnir verður Jón Bjarna- son. Sýningum lýkur Lónkot í Skagafirði Höggmyndasýningu Páls á Húsa- felli í risatjaldinu að Lónkoti í Skaga- firði lýkur nú um mánaðamótin. Á sýningunni eru höggmyndir unnar í fjörugrjót úr Lónkotsmöl, stuðlaberg úr Staðarbjargavík við Hofsós og grjót úr nágrenni Húsa- fells. Gallerí, Lundi Varmahlíð Sýningu Hlyns Hallssonar, „Mánudagurinn 17. júlí til sunnu- dagsins 13. ágúst" lýkur fimmtudag- inn 31. ágúst. Sýningin er opin alla daga frá 11- 18. Meistara- námskeið með Orlowitz ANDRÉ Orlowitz heldur söng- námskeið í Tónleikasal Söngskól- ans, Smára, við Veghúsastíg dag- ana 5. til 9. september næstkomandi. Þetta er í fimmta sinn sem hann heldur námskeið hér á landi og hefur íjöldi íslenskra söngvara notið leiðsagnar hans, bæði hér heima og í Kaupmannahöfn þar sem hann er búsettur. Námskeiðið, sem er á vegum Söngskólans, er opið öllum söngv- urum, söngnemum og áhugamönn- um til áheyi-nar. LISTMUNIR Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð. Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu meistaranna. Gallerí Fold Rauðarárstíe 14—16, sími 551 0400. fold@artgalieryfold.com www.artgalleryfold.com ART GALLERY mest selda heimilisvélin í 60 ári • 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu, gulu eða grænu. Fjöldi aukahluta íslensk handbók með uppskriftum íylgir Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir Sérstök brúðkaupsgjöf: Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðum nöfnum sínum og brúðkaupsdegi. Þú gefur ekki gagnlegri gjöf! /-7- KitchenAid einkaumboð á íslandi Einar Farestveit &Co.hf. BORGARTÚN 28 - S: 562 2900 & 562 2901 k. 27.930

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.