Morgunblaðið - 03.09.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 03.09.2000, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Austfirskt hákarlaskip með keflavað. Serfa sextíu málverka eftir Bjarna Jónsson Sag-a íslenskra áraskipa Bjarni Jónsson listmálari hefur síðastliðin fjögur ár unnið að gerð listaverkaseríu um íslensku árabátaöldina. Eyrún Baldurs- dóttir skoðaði verkin hans sem fela í sér mikinn fróðleik um sögu áraskipa, — ■ 7 allt frá landnámi Islands. Þetta verk sýnir gamla djúplagið og í forgrunni sér inn til Súðavíkur. Morgunblaðið/Jim Smart Bjami Jónsson og málverk frá Ðritvík í baksýn. „Þegar mest var unnu um 350 manns í Dritvík og þar voru 60-70 bátar sem settir vom upp í röðum frá sjónum. Þar höfðust menn við í verbúðum sem voru að mestu hlaðnar úr torfi og grjóti og tjaldað yfir með segli,“ segir listamaðurinn. ÞAÐ var sem afturhvarf í tímann að hlýða á Bjarna Jónsson listmál- ara lýsa því sem fram kemur í verk- unum. Islenskir sjómenn á opnum árabátum í alls kyns veðrum og sjó- lagi, knörr með eftirbát í togi, brim- lending, tveggja manna far og tólfróinn teinæringur. Þarna koma fram ýmsar gerðir sjóbúða og ver- búða, gangspil, varir, naust og há- karlahjallur. Saga íslenskra ára- skipa frá landnámi sögð í sex tugum málverka og frásögn Bjarna gerði upplifunina enn sterkari. Málverkaserían er enn sem kom- ið er heima hjá Bjarna á Ægisíð- unni. Hann hefur ekki viljað selja einstaka málverk því ósk hans er að serían verði í heild sinni sett upp í Þjóðminjasafni íslands. „Þar myndu myndirnar sóma sér vel til fróðleiks fyrir komandi kynslóðir,“ segir Bjarni. „Ráðamenn hafa hins vegar ekki tekið ákvörðun um að kaupa málverkaseríuna en margir hafa sýnt henni áhuga.“ Gífurleg heimildaöflun að baki Bjarni Jónsson er líklega sá nú- lifandi íslendingur sem býr yfir mestri vitneskju um árabátaöldina hér á landi. Hann heillaðist af við- fangsefninu þegar hann vann að gerð skýringamynda í ritunum ís- lenskir sjávarhættir. Fyrir það verk lagði hann mikla vinnu í heim- ildaöflun ásamt Lúðvíki Kristjáns- syni sagnfræðingi sem var höfund- ur texta en hann lést í febrúar síðastliðnum. „Það tók tugi ára að afla gagna fyrir ritun Islenskra sjávarhátta," segir Bjarni. „Lúðvík hófst handa árið 1936 og ég kom inn í verkefnið um 1961. Eg gerði mér enga grein fyrir umfangi verkefnis í fyrstu, ég vann að því í 27 ár og ætli ég hafi ekki gert þúsundir teikn- inga þegar upp var staðið." Þeir félagar kynntu sér allt um þessa fornu atvinnuhætti með því að ferðast um landið og ræða við gamla karla og konur. Margir við- mælendur þeirra höfðu unnið við fiskveiðar á opnum áraskipum fyrir aldamótin. „Hjá þeim var að finna ótæmandi fróðleik," segir Bjarni og bætir við að þeir Lúðvík hafi einnig aflað sér vitneskju úr gömlum handritum og í minjasöfnum. Það var hugmynd Kristjáns Eld- járns þáverandi þjóðminjavarðar að nota fyrirliggjandi þekkingu til að gera málverk af áraskipunum og öllu því sem tilheyrði sjósókn á Is- landi. „Egill Ólafsson á Hnjóti, Þórður Jónsson á Látrum og Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra hvöttu mig einnig til verksins svo að þessi fróðleikur myndi ekki glat- ast,“ segir Bjarni. „Vitneskjan um árabátaöldina er fróðleikur sem er að hverfa og því þurfum við að hlúa að þessum menningararfi," segir Bjarni. „Margt hefur farið forgörðum á síð- ustu árum. Það var litið á gömlu áraskipin sem drasl og það er ekki langt síðan að þau voru notuð sem eldmatur á gamlárskvöldi." Hann bendir á að þær minjar sem hafi varðveist séu á Minjasafni Egils Ól- afssonar á Hnjóti, Sjóminjasafni ís- lands og á safninu á ísafirði, Vest- mannaeyjum, Skógum og víðar. „Sum af áraskipunum sem varð- veist hafa notaði ég sem fyrirmynd- ir í verkum mínum.“ Áraskipin mismunandi eftir landshlutum Síðastliðin fjögur ár hefur Bjarni unnið að gerð málverkanna sem eru orðin alls sextíu talsins. Þeir Lúð- vík gerðu saman lista yfir þær myndir sem vert væri að mála og segist Bjarni enn geta bætt við. Því fer fjarri að öll áraskipin og verstöðvarnar hafi verið eins, þó að leikmanni gæti svo virst í fyrstu. „Sjólag og veðrabrigði eru ákaflega mismunandi eftir landshlutum. Sjó- menn lærðu af reynslunni að laga sig að ólíkum aðstæðum og virðast hafa viðað að sér gífurlegri eðlis- fræðiþekkingu," segir Bjarni. Hann útskýrir einkenni hvers áraskips um leið og hann flettir í gegnum málverkin sem hann hefur staflað upp við vegginn í vinnustofunni. „Sandaskipin höfðu beint lotað stefni og skut. Þau voru breiðari um bógann að framan en aftan. Það var gert til að bátarnir sætu betur á öldunni.“ Bjarni heldur áfram að benda og um næstu mynd segir hann. „Vestmannaeyjaskipin voru frábrugðin í seglabúnaði. Fram- mastrið var lægra en afturmastrið, öfugt við það sem tíðkaðist annars staðar. Það var vegna þess að þeir gátu alltaf átt von á sviptivindum og til að varast þá þurftu þeir að fella stóra seglið eins fljótt og mögulegt var.“ Þannig útskýrir hann einnig Grindavíkurskip, Bol- ungarvíkurskip, færeyskan bát og Engeyjarskip og veit af hverju þau hafa sín sérkenni. Vanir harðræði og þekktu ekki annað „Á þessum tímum sóttu menn sjóinn upp á líf og dauða," segir Bjarni og kemur í frásögn sinni að því harðræði sem íslenskir sjómenn og konur lifðu við. Aðbúnaðinn má einnig sjá endurspeglast í myndun- um. A einni þeirra standa þrír menn í nístingskulda við lýsistunnu. ,Áður en sjómennirnir fóru út klukkan fjögur eða fimm um nætur, fengu þeir ekki annað en lýsi. Vatn eða sýrubland höfðu þeir með sér um borð en mat fengu þeir ekki fyrr en komið var í land seinnipart dags. Stundum var svo kalt hjá þeim í verbúðunum að klæði þess sem yst svaf, frusu föst við tóftarvegginn." Bjarni hefur eftir sögu sem hann heyrði hjá Alexander Einarssyni frá Dynjanda í Jökulfirði. „Eitt sinn skall á vonskuveður fyrir vestan svo að margir sjómenn fórust. Eftir að veðrið hafði staðið í nokkra daga dettur á dúnalogn. Það var enn nístingskalt og þoka, svokölluð ís- þoka. Þeir Alexander fara aftur á sjóinn og þurfa að róa því ekki var hægt að sigla. Þegar þeir eru komn- ir stutt út sjá þeir þúst fram undan sem þeir könnuðust ekki við. Er þeir koma nær sjá þeir að þar er bátur sem marar í hálfu kafi. Áhöfnin er enn um borð en menn- irnir höfðu frosið undir árum.“ Unnið fyrir íslensku þjóðina Happdrætti Háskóla íslands mun á næstunni gefa út spil með árabátamyndum Bjarna. „Myndirn- ar verða á framhlið spilanna og út- skýringar fylgja með á sérstöku blaði,“ segir Bjarni sem er mjög ánægður með framtakið. Honum er engu að síður ofarlega í huga sú óvissa sem ríkir um framtíð mynda- seríunnar. „Ég vil helst að mynd- irnar séu allar saman, því ef ég fer að selja úr seríunni mun fróðleikur- inn um árabátaöldina ekki skila sér. Mér finnst einnig nauðsynlegt að serían í heild sinni sé aðgengileg ís- lensku þjóðinni og beri vitni þess- um menningararfi okkar.“ Dæmigerð vestfirsk verstöð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.