Morgunblaðið - 03.09.2000, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 03.09.2000, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ í sumar var rifiö til grunna tæplega fjörutíu ára gamalt einbýlishús í Reykjavík. Eigendur hússins vildu rífa húsiö aö hluta og endurbyggja í gjörbreyttri mynd. Þeim áformum var mótmælt af handhafa höfundarréttar og nágrönnum. Umsagnaraðilar í nefndum og ráöum Reykjavíkurborgar um varöveislugildi hússins óskuöu eftir aö leitast yröi viö aó gera endurbætur á húsinu þannig aö upphafleg hönnun þess yröi áfram ráðandi. MRÆTT hus mun hafa verið eitt fyrsta einbýlishús sem sérstaklega var hannað hér á landi til að standa á sjáv- arlóð. Húsið, sem stóð að Skildinga- nesi 50, var hannað af Gunnari Hanssyni arkitekt árið 1957. Gunn- ar stofnaði teiknistofu í Reykjavík árið 1953 og rak hana til dauðadags árið 1989. Gunnar teiknaði mörg hús sem sett hafa svip á borgina, m.a. Morgunblaðshúsin við Aðal- stræti og Kringluna, Umferðarmið- stöðina, kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg, Strætisvagnastöð SVR við Hlemm, Kaffibrennslu 0. Johnson og Kaabers og fjölmörg íbúðahús og skólabyggingar fyrir Reykjavíkurborg. Hús Gunnars bera mörg merki svonefndrar hreinstefnu í bygging- arlist. í bókinni Draumurinn um hreint form, sem Listasafn íslands gaf út árið 1998 í tengslum við sýn- inguna íslensk abstraktlist 1950- 1960, er Gunnar nefndur í hópi helstu arkitekta þessa tímabils í ís- lenskri listsköpun. Þar segir m.a. um hreinstefnu í húsagerð (bls. 41): „Sjötti áratugurinn er það tímabil þar sem greina má hvað skýrasta samsvörun milli formrænna við- horfa í íslenskum arkitektúr annars vegar og myndlist hins vegar. Aug- ljós tengsl eru milli geómetríska málverksins og ákveðinna útlitsat- riða er einkenndu verk helstu arki- tekta tímabilsins.“ Höfundarréttur arkitekta Arkitektar eiga höfundarrétt á hönnun sinni, líkt og myndlistar- menn á myndum og rithöfundar á ritverkum. Höfundarréttur gildir í 70 ár eftir lát höfundar. Höfundar- réttur erfist, þótt hægt sé að fram- selja hann, ekki er hægt að fram- selja svonefndan sæmdarrétt. Ekkja Gunnars og afkomendur fara því með höfundarrétt hans. í Úlfljóti (1. tbl. 1979) er grein, Um höfundarétt og arkitekta, eftir Ragnar Aðalsteinsson hrl. Þar er m.a. rakin saga höfundarréttar. Fyrir um 200 árum settu Frakkar höfundalög þar sem höfundarréttin- um er veitt sama vernd og eignar- réttinum. I mannréttindayfirlýs- ingu Frakka frá 1789 er talað um eignarréttinn sem friðhelgan og óskerðanlegan. „Enda þótt menn séu í dag ekki á eitt sáttir um rétt- mæti þess að telja höfundarréttindi til eignarréttinda, þá er haldið tryggð við þá hefð í 1. gr. íslenskra höfundalaga frá 1972 þar sem talað er um eignarrétt höfunda að bók- menntaverki eða listaverki.“ Þá rekur Ragnar sögu löggjafar á þessu sviði hér á landi þar til nú- gildandi höfundalög voru sett árið 1972. Einnig aðild íslands að al- þjóðasamningum sem lúta að höf- undarrétti. Um inntak höfundarréttar ritar Ragnar m.a.: „Höfundi er veittur tvenns konar réttur í höfundalög- um: a) sæmdarréttur b) fjárhagslegur réttur Með sæmdarrétti er átt við rétt- inn, sem snýr að áliti og heiðri höf- undarins. Réttur þessi felst í meg- inatriðum í því, að höfundur á rétt á því að nafns hans sé getið, þegar verk hans er kynnt og hann nýtur verndar gegn því að verki hans sé misþyrmt. Með fjárhagslegum nytjum verks er átt við, að höfundur hafi einka- rétt til allra nota og ráðstöfunar á verki sínu.“ Þá fjallar Ragnar sérstaklega um höfundarrétt arkitekta og leitar svara við spurningunni um hvaða verk njóti verndar að höfundalögum um byggingarlist. Hann vitnar í því sambandi í greinargerð með frum- varpi til höfundalaga, þar sem segir m.a.: „Byggingarverk falla undir vernd laganna, en þó vitanlega háð því al- menna skilyrði, að þau geti talist til listaverka. Hér til heyra ekki ein- göngu hús, heldur og önnur mann- virkjagerð, ef í henni kemur fram sjálfstæð, listræn sköpun. M.a. hefur skrautgarðagerð verið talin til byggingarlistar (arkitektúr). Verndin nær einnig til teikninga og líkana af byggingum, með því skil- yrði sem hér var greint. Einstakir hlutar af byggingum, bæði hið innra og ytra, geta og notið sjálfstæðrar verndar, hvort sem byggingin er vernduð í heild eða ekki, t.d. sér- stakar gerðir súlna eða turna, vegg- skreytingar, myndskreyttar rúður o.s.frv.“ Ragnar bendir á að þótt það sé nokkuð ljóst til hvers konar verka á sviði byggingarlistar vernd höfund- arréttar nær, þá sé ekki þar með svarað þeirri spurningu hvort verndin nái til allra verka á greind- um sviðum. Hann telur að í verkinu „þurfi að birtast andleg sköpun og einstaklingsbundin sérkenni höf- undarins, til að um vernd að höf- undarlögum sé að ræða.“ Ragnar segir ákvæði í 13. grein höfundarlaga skipta mestu máli fyr- ir arkitekta og þá á neikvæðan hátt. I þessu ákvæði segir „að eiganda mannvirkis, sem nýtur verndar eft- ir reglum um byggingarlist, sé heimilt að breyta því án samþykkis höfundar, teljist það nauðsynlegt vegna afnota eða af tæknilegum ástæðum". Ragnar segir að hafa verði í huga þegar þessi grein er lesin og túlkuð að það sé aðalregla í höfundarrétti að óheimilt sé að breyta höfundarverkum og 13. grein sé því undantekningarregla frá þeirri aðalreglu. Allar undan- tekningarreglur í lögum beri að túlka þröngt. „í 13. gr. segir að heimilt sé að breyta mannvirki án samþykkis höfundar ef annað hvort eftirtalinna skilyrða er fyrir hendi: a) Það verður talið nauðsynlegt vegna afnota. b) Það verður talið nauðsynlegt af tæknilegum ástæðum. Ekki teljast þessi skilyrði, annað- hvort eða bæði, vera fyrir hendi, enda þótt eigandinn sjálfur líti svo á að það sé nauðsynlegt. Fyrir hendi verður að vera nauðsyn skv. al- mennum hlutlægum mælikvarða.“ Breytingum mótmælt Ættingjar Gunnars fréttu fyrst af hinum fyrirhuguðu breytingum á umræddu íbúðarhúsi þegar umsókn um endurbyggingu hússins í breyttri mynd kom til meðferðar í borgarkei-finu. Andmæltu þeir þessum áformum. í bréfi lögmanns þeirra til húseigenda er vitnað til höfundalaga, þar sem byggingarlist nýtur ótvíræðrar verndar. I bréf- inu, sem jafnframt var sent Bygg- ingarfulltrúanum í Reykjavík og Borgarskipulagi 16. október 1998, segir m.a.: „í höfundarrétti felst að breytingar á mannvirkjum eru í að- alatriðum óheimilar án samþykkis höfundarréttarhafa, sbr. 3. og 2. mgr. 4. gr. laganna. Breytingar án samþykkis höfundarréttarhafa eru einungis heimilar að uppfylltum skilyrðum 13. gr. laganna, þ.e. breyting verður að vera nauðsynleg vegna afnota hússins eða af tækni- legum ástæðum. Fyrrgreint hús er óumdeilanlega verndað að höfundarrétti.“ í bréfinu kemur ennfremur fram að ljóst sé að húsið þarfnist viðgerð- ar og viðhalds að einhverju leyti, Pétur H. Ármannsson arkitekt HÚSVERNDAR- STEFNA BORGARINNAR W J ÉTUR H. Armannsson arkitekt starfaði r-^lijá byggingalistardeild Listasafns Reykja- JL víkur á Kjarvalsstöðum þegar umsögnin var gefin. Hann sagði að í rauninni hefði átt að breyta húsinu í allt annað hús, ekki aðeins að gera við það heldur breyta um stfl. „Okkar umsögn hljóð- aði þannig að hús væru nytjahlutir. Það þarf að breyta þeim og laga að nýju hlutverki eða breytt- um aðstæðum. Þetta er hinn eðlilegasti hlutur og nokkuð sem allir hönnuðir þurfa að gera ráð fyrir. Hins vegar er það svo að ef vel er til húsa vand- að í upphafi hafa þau ákveðið gildi. í húsverndar- stefnu borgarinnar er setning sem við vísum oft í: „Virða ber upphaflega gerð húss óháð aldri þess og stfl.“Það þýðir ekki þar með að hús sé heilagt og ekki megi breyta neinu, heldur að breytingar séu gerðar með ákveðinni virðingu fyrir hinni upprunalegu gerð húss.“ Pétur telur að þetta tiltekna mál eigi fremur að vekja umræðu um húsvemdarstefnu borgarinnar og hve langt eigi að ganga í að varðveita góða byggingarlist frá öllum tímabilum en um höfundar- rétt. Hann sagði að hlutir á borð við hús og bfla gengju í gegnum eins konar skuggatímabil þegar fólki þætti óspennandi það sem er mitt á milli þess að vera nýtt og gamalt. Þá veldist gjarnan úr það sem væri merkilegt. „Fólk hefur almennt ekkert verið spennt fyrir húsum byggðum frá 1950-70, en það er að vakna áhugi á þeim. Þetta er líkt og með tekkhúsgögnin sem fólk henti á haugana en eru nú komin í tísku og orðin eftirsótt. Um miðja 20. öldina var verið að breyta gömlum timburhúsum með því að múrhúða þau og augnstinga glugga. Slíkt þekkist vart lengur,“ sagði Pétur. „Mér finnst að góð hús sanni sig og síðan er það kannski ann- arra en höfundanna að ákvarða hvað sé vert að varðveita og hvað ekki. En þetta kallar að sjálfsögðu eftir því að almenningur og yf- irvöld séu vel upplýst um það sem vel hefur verið gert í byggingar- list.“ En hvað með siðareglur arkitekta þar sem m.a. er kveðið á um að arkitekt skuli virða höfundarrétt annarra? „Siðareglurnar kveða á um að ef verið er að breyta húsi sé það gert í samráði við handhafa höfundarréttar. Þetta er skynsamleg regla sem flestir arkitektar virða og í flestum tilvikum leiðir slíkt samráð til farsællar niðurstöðu. Ég held að menn hafi skilning á þvi að það getur þurft að breyta húsum af ýmsum ástæðum.“ Það gildir um hús líkt og aðra hluti að réttur eigenda er ákaílega sterkur. Pétur segist hafa spurt listfræðing að því hvernig svona mál stæðu gagnvart málverkum. Hann fékk það svar að ef maður ætti Kjarvalsmálverk mætti hann ekki breyta því, en hann mætti eyðileggja það.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.