Morgunblaðið - 07.10.2000, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000
MORGUKBLAÐIÐ
Avaxtasafí er
hollur drykkur
SÍÐASTLIÐIÐ vor
sendu Tannvemdarráð
og Manneldisráð skóla-
stjórum bréf þar sem
þeim tilmælum var
komið á framfæri að
sætir og súrir drykkir
væru ekld boðnir til sölu
í grunnskólum. Mörg-
um brá svolítið í brún
við þessa frétt, fannst
þarna heldur langt
gengið í tannheilsu-
ofstaekinu, því ekki
verður um það deilt að
bæði ávaxtasafar og
sykraðir mjólkurdrykk-
ir eru bráðhollir drykk-
ir sem engin ástæða er til að banna
bömum að drekka. Sá var heldur ekki
tilgangur bréfsins, heldur var þar
komið á framfæri tilmælum hvað
varðar sölu drykkja í skólum. Em
þau tilmæli mjög í anda samþykktar
sem gerð var af samstarfshópi á veg-
um Manneldisráðs og send í alla
gmnnskóla landsins árið 1993. í sam-
starfshópnum áttu sæti fulltrúar For-
eldrasamtakanna, Heimilis og skóla,
Kennaraháskóla íslands, mennta-
málaráðuneytis og Skólastjórafélags
Islands. Samstarfshópurinn birti
ábendingar um mat í skóla þar sem
sagði meðal annars:
• Nemendur hafi greiðan aðgang
að góðu drykkjarvatni
• Allir skólar bjóði léttmjólk til
sölu. Ef aðrir drykkir em seldir í
skólanum skal leitast við að beina
neyslunni til mjólkur, meðal annars
með því að bjóða hana á vægu verði.
Þrátt fyrir góðan ásetning, hefúr
illa gengið að íylgja samþykktinni eft-
ir. Vatn er víða óaðgengilegt fyrir
nemendur og mjólkin jafnvel illa kæld
og ólystug. Nemendur velja því frek-
ar sæta drykki þar sem þeir standa til
boða í stað mjólkur eða vatns. í bréfi
ráðanna tveggja til skólastjóra nú í
vor var lögð áhersla á að kalt og gott
drykkjarvatn þyrfti að vera á boðstól-
um fyrir nemendur og að hugsanlega
þyrfti að bæta kæliaðstöðu fyrir
mjólk í sumum skólum.
Glerungseyðing hefur aukist
Undanfarin ár hefur glemngseyð-
ing orðið áberandi meðal íslenskra
unglinga og í rannsókn
sem Inga B. Ámadóttir,
lektor við tannlækna-
deild Háskóla íslands,
gerði árið 1997 reyndist
fimmti hver unglingur
vera með glerungseyð-
ingu á byijunarstigi.
Ástæðan er fyrst og
fremst rakin tO aukinn-
ar neyslu gosdrykkja og
annarra súrra drykkja.
Þar skipta gosdtykkir
vafalaust mestu máli,
enda er mun meira
drukkið af gosdrykkj-
um en hreinum ávaxta-
söfum. Hins vegar hafa
súm ávaxtasafamir svipuð áhrif á
gleranginn og gosdrykkir. Það er því
ekki heppilegt fyrir tannheilsuna að
vera að sötra á slíkum drykkjum í sí-
fellu eða drekka þá oft á dag. Því er
ekki talin ástæða til að skólamir séu
beinlínis að hvetja til aukinnar neyslu
á súmm og sætum drykkjum með því
að hafa þá til sölu. Þótt ávaxtasykur
hreinu safanna skemmi síður tennur
en annar sykur þá er líka þrúgusykur
í ávaxtasöfum sem hefur sömu áhrif
til tannskemmda og sykurinn í gos-
drykkjum. Hvað varðar hollustu er þó
ólíku saman að jafna, gosdiykkjum
og hreinum söfum, því safamir hafa
að geyma alls kyns hollustuefni sem
hvergi er að finna í gosdrykkjum.
Hreinn safi í hóflegu magni er því lið-
ur í hollu mataræði bama jafnt sem
fullorðinna.
Léttmjólk og gott
drykkjarvatn í grunnskóla
Skólayfirvöld þurfa að móta
ákveðna stefhu um framboð matar og
drykkjar í gmnnskólum landsins.
Tannvemdarráð og Manneldisráð
hafa komið sinni stefnu á framfæri
um að léttmjólk verði seld í grann-
skólum og gott vatn standi nemend-
um til boða. Að sjálfsögðu geta böm
komið með aðra drykki að heiman eft-
ir sem áður. Víðast hvar í Evrópu er
mjólk ýmist seld á vægu verði eða
gefin í skólum. Með því móti er verið
að beina neyslunni í þá átt án þess að
verið sé að banna aðra drykki eða
gefa í skyn að mjólkin sé eini holli
drykkurinn fyrir böm. En öllu má of-
Laufey
Steingrímsdóttir
Eftirfarandi viðskipta-
númer voru vinningsaðilar
íTalió nr. 13
21149 21447 21754 22055 22365 22562
21160 21473 21756 22077 22366 22568
21163 21484 21757 22080 22371 22576
21164 21485 21759 22100 22380 22580
21165 21508 21774 22113 22386 22590
21166 21513 21792 22127 22401 22595
21191 21514 21818 22128 22414 22597
21222 21527 21842 22142 22433 22598
21224 21528 21847 22145 22434 22608
21237 21531 21848 22149 22435 22610
21246 21539 21849 22160 22440 22612
21251 21550 21855 22189 22443 22623
21267 21557 21868 22191 22444 22624
21273 21564 21869 22192 22460 22628
21279 21575 21870 22196 22474 22631
21289 21581 21872 22206 22479 22644
21298 21600 21893 22233 22481 22646
21312 21602 21904 22237 22483 22649
21313 21621 21914 22247 22484 22650
21319 21622 21918 22249 22489 22651
21327 21659 21923 22250 22492 22655
21358 21676 21938 22254 22498 22656
21377 21686 21951 22281 22504 22658
21395 21709 21953 22306 22505 22660
21397 21711 21965 22308 22511 22663
21401 21720 21999 22309 22528 22664
21417 21732 22004 22313 22537 22710
21427 21737 22005 22321 22544 22721
21438 21738 22025 22325 22548
21440 21743 22035 22332 22554
21442 21747 22052 22338 22560
UMRÆÐAN
Drykkir
Skólayfírvöld þurfa að
móta ákveðna stefnu,
segir Laufey
Steingrímsdóttir, um
framboð matar og
drykkjar í grunnskólum
landsins.
gera og til skamms tíma var mjólkur-
neysla íslenskra ungmenna það rífleg
að frekar var ástæða til að spoma við
ofneyslu en hvetja til mjólkurþambs.
Nú er öldin önnur og mjólkurdrykkja
fer hraðminnkandi. Ef heldur fram
sem horfir verður drykkjarmjólk að
öllum líkindum lítilfjörlegur þáttur í
fæði margra eftir fáein ár.
Enn em feitar mjólkurvörur þó al-
gengari í fæði íslendinga en flestra
annarra Evrópubúa og hörð mjólkur-
fitan vegur þungt i okkar fæði. Því
skiptir máli að velja fituminni mjólkur-
vörur og drekka léttmjólk eða undan-
rennu. Tvö til þrjú glös af léttum
mjólkurvörum á dag er hæfilegur
skammtur fyrir flest skólaböm, ef
meira er druiddð af mjólk verður fæð-
ið of einhæft en án mjólkur er erfitt að
fullnægja kalkþörfinni. Fjölbreytt
fæði er gullna reglan sem seint fellur
úr gildi.
Höfundur er forstöðumaður
Manneldisráðs.
Erlent fjármagn
í sjávarútvegi
ÞAU em afar misvís-
andi skilaboðin sem
koma þessa dagana frá
ríkisstjóminni um
möguleika þess að
rýmka fyrir fjárfesting-
um erlendra aðila í sjáv-
arútvegi. Sjávarútvegs-
ráðherra hefur lýst sig
opinn fyrir slíkum
breytingum og utanrík-
isráðherra er tilbúinn
að endurskoða afstöðu
sína. Ekki er gott að
átta sig á því hve langt
þeir vilja ganga. Þeir
hafa efalaust heyrt
varnaðarorð forsætis-
ráðherra sem er
íhaldsamur á þessu sviði, eins og
fleimrn þegar kemur að samskiptum
okkar við útlendinga. Það er hins
vegar afar mikilvægt að umræðan
verði tekin upp með markvissum
hætti.
Samstarf kauphalla
kallar á umræðu
Samkvæmt gildandi lögum um
fjárfestingar erlendra aðila er þeim
heimilt að eiga takmarkaðan óbein-
an hlut í íslenskum sjávarútvegi og
ekki er gerður grein-
armunur á veiðum og
vinnslu nema að því er
varðar tiltekna
vinnsluþætti. Heimild
til óbeinnar eignarað-
ildar var lögfest til að
laga lögin að veruleik-
anum, en vitað var um
óbeina eignaraðild er-
lendra fyrirtækja í
sjávarútvegsfyrir-
tækjum og ekki var
talið ráðlegt að fylgja
fortakslausu banni eft-
ir, eins og þágildandi
lög gerðu ráð fyrir.
Það sem nú knýr á um
að þessi mál verði end-
urskoðuð er það samstarf kauphall-
anna í Svíþjóð, Danmörku og Islands
sem er á næsta leiti. Norðmenn
munu einnig taka þátt í þessu sam-
starfi og Eystrasaltsríkin hafa skrif-
að undir viljayfirlýsingu um þátt-
töku. Með samstarfi kauphallanna
verður íslenski hlutabréfamarkaður-
inn viðfang erlendra aðila ekki síður
en íslenskra því erlendir fjárfestar fá
með þessari breytingu mun greiðari
aðgang að íslenskum markaði en nú
er. Erlendir fjárfestingar hafa ekki
Svanfríður
Jtínasdóttir
ÍSLENSKT MAL
UMSJÓNARMANNI hefur
borist forkunnlegt bréf frá Egg-
ert Ásgeirssyni skrifstofustjóra
og birtir það hér með þökkum.
Málfátækt er höfuðóvinur. Egg-
ert segir:
„Ágæti Gísli!
Nokkrar línur til að hvetja til
fjölbreytts orðavals.
1.
Þegar fjallað hefur verið um
jarðskjálfta undanfarna mánuði
hefur nær eingöngu verið rætt
um að þeir hafi riðið yfír. Þetta
orðasamband á stundum við, en
er þó fátæklegt og einhæft í
meira lagi ekki síst þegar orða-
sambandið er notað án tillits til
hvort skjálftar valda tjóni eða
eru eðlilegar jarðhræringar sem
varla frnnast nema á jarðskjálfta-
mælum. Ég athugaði nokkur
dæmi um það sem ritað hefur
verið um jarðskjálfta í fornum og
nýjum ritum. Þeir jarðskjálftar
sem þar var fjallað um vora að
sjálfsögðu eingöngu þeir sem
færðir vom í annála og í minnum
hafðir.
jarðskjálfti gekk yfir
jarðskjálfti varð
jarðskjálfti hófst
jarðskjálfti fylgdi
jarðskjálfti dundi yfir
jarðskjálfti kom
jarðskjálfti gerði usla
jarðskjálfti fannst
gætti jarðskjálfta
varð vart jarðskjálfta
2.
Ég bæti því við sem var ofar-
lega á baugi jarðskjálftadagana
og síðar þegar sæsímastrengir
slitnuðu.
Þegar rætt er um rafmagn og
farsímakerfi, jafnvel einnig heitt
vatn, er oftast komist svo að orði
að það detti út, komi inn eða sé
sett inn.
Ég, sem leikmaður í
verkmenntun, geri ráð fyrir að
þessi orðanotkun eigi rætur í
þeirri tækni þegar notaðir voru
(eru?) gaffalrofar sem hmkku út
eða var kippt út og mfu þannig
strauminn. Síðan var klónni sleg-
ið inn þegar straumur var tengd-
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1078. þáttur
ur aftur. Orðfæri rafmagns-
manna hefur smám saman
breiðst út til annarra tækni-
greina og sýkt blaðamál, eins og
fara gerir.
Fjölbreyttara orðalag væri:
Rafmagnskerfið bilar
Straumur fer af eða rofnar
Línur slitna, sligast eða slást
saman
Staurar brotna
Skammhlaup verður
Spennar slá út
Hitaveiturör leka, brotna, bila
eða gefa sig.
Holur þorna upp eða stíflast
eða falla saman (þær hrynja
varla þótt oft sé svo mælt).
Dælur bila.
Þannig mætti lengi telja og er
þá ekki minnst á hve litríkara
mál væri að segja frá því t.d.:
Veðurhamurinn í nótt varð til
þess að ís safnaðist á teinarofa í
spennistöðinni á Rangárvöllum
þannig að skammhlaup varð og
rafmagn fór af Akureyri.
3.
í Morgunblaðinu 23.8. var
þessi yfirskrift á baksíðu: Gífur-
leg náttúruspjöll urðu í nýaf-
stöðnu hlaupi.
Náttúruspjöll er sérkennilegt
og tiltölulega nýtt tískuorð.
Elsta dæmið í ritmálsskrá OH er
í erindasafni Jóns Eyþórssonar:
Um daginn og veginn, sem út
kom 1969 og sem að meginhluta
til voru flutt 1936-41.
Skv. íslenskri orðabók er
spjall (spjöll) dregið af áhrifs-
sögninni að spjalla m.a. það að
skemma eða vinna tjón á e-u. I
orðabók SBI. er það tínt til að
spjalla konu þýði at vanære,
krænke kvinde (að flekka hana
eða lítillækka). Samkvæmt til-
tækum gögnum mínum voru
spjöll, til skamms tíma, unnin að
yfirlögðu ráði og með illt í huga.
Spjöll gerast aldrei eða verða.
Hvað segir þú um setninguna?
Er það ekki öfugmæli að náttúr-
an spjalli sjálfa sig?
Með bestu kveðju.“
Umsjónarmaður ræður ekki
við þessa þungu spurningu og
spyr á móti: getur málið, maður-
inn eða náttúran framið sjálf-
spjöll?
★
Virða skal það sem vel er gert.
Meðferð orðsins Evrópa hefur
stórbatnað á sjónvarpsstöðvun-
um. Nú er sjaldan svo til orða
tekið, að ekki sé skýrt að ísland
sé hluti þessarar álfu. Sagt er
meðal annars: „á meginlandi
Evrópu“, „í Mið-Évrópu“, „syðst
í Evrópu“, „annarsstaðar í
Evrópu" o.s.frv.
En eftir þetta hrós tek ég til
að nöldra. Margir hafa lýsingar-
orðið var eins í öllum tölum, föll-
um og kynjum. Það er orðið
viðrini. Ég held að þessi meðferð
þyki orðinu óviðunandi. Lærðir
menn segja jafnvel: „Við höfum
orðið „var“ við þetta.“ „Þeir hafa
ekki orðið „var“ við þetta“
o.s.frv. En var beygist eins og
snar: Var, um varan, frá vörum
til vars; varir, um vara, frá vör-
um til varra. Þetta var karlkyn-
ið, en kvenkynið: vör, um vara,
frá varri, til varrar; varar, um
varar, frá vörum til varra og
hvorugkynið: vart, um vart, frá
vöru, til vars; vör, um vör, frá
vörum, til varra. Enginn myndi
segja: Þeir höfðu „snar“ handtök
við þetta, heldur snör, eða þær
voru „snar“ að ganga frá verk-
inu, heldur snarar.
Ef við verðum áðurnefndrar
málvillu vör skulum við verða
snör að bæta um betur.
★
Áslákur austan kvað:
Mælti Löðmundur Grímsson á Leiti:
Ég limrugerð svolítið þreyti,
og það liðkar ögn taugina,
er leggst ég í laugina,
að leggja þar heilann í bleyti.
Auk þess heyrðu skilrikir
menn einn af forystumönnum
kennara tala um að „fella upp
úrskurð". Þetta þótti okkur und-
arlegt tal. Hvernig hefði verið að
nota eina sögn, úrskurða? „Upp“
treður sér víða inn að enskum
hætti. Eitt og annað vekur „upp“
andúð. Þarna skulum við sleppa
„upp“ og auðvitað forðast að
vekja upp drauga, þó að þar eigi
„upp“ heima.