Morgunblaðið - 07.10.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 73
FRÉTTIR
Keppa í
samkvæm-
isdönsum
ADAM Reeve og Karen Björk
Björgvinsdóttur keppa fyrir Is-
lands hönd á Heimsmeistaramóti
atvinnumanna í sígildum sam-
kvæmisdönsum sem haldið verður í
Graz í Austurríki laugardaginn 7.
október.
Næsta stóra keppnin sem þau
taka þátt í verður alþjóðlega Inter-
national-danskeppnin sem haldin
verður 10. og 11. október nk. í
Brentwood í Englandi.
Áhyggjur af ástandi
starfsmannamála á sam-
býlum og stofnunum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Foreldra-
samtökum fatlaðra vegna starfs-
mannamála á sambýlum og stofn-
unum fatlaðra.
„Stjórn Foreldrasamtaka fatl-
aðra hefur þungar áhyggjur af því
ástandi, sem skapast hefur í starfs-
mannamálum á sambýlum og
stofnunum þar sem fatlaðir búa.
Eru þessi heimili bæði undirmönn-
uð af fagfólki og öðru starfsfólki og
búa við stöðug starfsmannaskipti.
Það er grundvallaratriði ifyrir
vellíðan fólks með fötlun, að það
búi við öryggi og festu í daglegu
lífi. Við þær aðstæður sem nú hafa
skapast, búa einnig aðstandendur
þessa fólks við stöðugt öryggis-
leysi og áhyggjur, sem alls ekki
getur talist eðlilegt í velferðarþjóð-
félagi. Stjórn Foreldrasamtaka
fatlaðra skorar á stjórnvöld, að
taka á þessum málum án tafar og
bæta kjör þeirra, sem sinna
ábyrgðarmiklum og vandasömum
störfum við umönnun fatlaðra
þannig að þau sambýli og stofnanir
þar sem fatlaðir dvelja, valdi hlut-
verki sínu.“
Landssamtökin Heimili og skóli
Taka við formennsku í
norrænni samstarfsnefnd
LANDSSAMTÖKIN Heimili og
skóli taka við formennsku í nor-
rænni samstarfsnefnd landssam-
taka foreldra skólabarna til næstu
þriggja ára. Óviðunandi undirbún-
ingur kennaranema á öllum Norður-
löndum er talin ein orsök þess að
samstarf foreldra og skólayfirvalda
er ekki sem skyldi.
Jónína Bjartmarz, formaður
landssamtakanna Heimili og skóli,
hefur tekið við sem formaður nor-
rænnar samstarfsnefndar lands-
samtaka foreldra skólabarna, til
næstu þriggja ára. Sameiginlegt
þing samtakanna var haldið í Osló
dagana 22.-24. september síðastlið-
inn, undir yfirskriftinni „Foreldrar
sem auðlegð skólastarfs“. Þai’ voru
saman komnir fulltrúar Danmerkur,
Finnlands, íslands, Noregs og Sví-
þjóðar, en auk fulltrúa frá lands-
samtökum sat þingið fjöldi foreldra
og fulltrúar skólastofnana.
Landssamtök foreldra skólabarna
á Norðurlöndum starfa á samráðs-
og samvinnugrundvelli og lands-
samtökin Heimili og skóli munu
næstu þrjú árin stýra sameiginleg-
um verkefnum samtakanna. Næsta
þing norrænu landssamtakanna
verður haldið á íslandi árið 2002 eða
2003.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á þinginu í Ösló og undirrituð
af öllum formönnum landssamtaka
foreldra skólabarna á Norðurlönd-
um:
Landssamtök foreldra skólabarna
á Norðurlöndum krefjast þess að í
kennaranámi verði hætt að hunsa
kennslu og þjálfun í foreldrasam-
starfi.
Kennaramenntun á Norðurlönd-
um tryggir ekki kennaranemum
nægilega hæfni til samskipta við
foreldra um nám og uppeldi nem-
enda.
Foreldrar eru bakhjarlar barna
og skóla. Rannsóknir sýna að sam-
starf heimila og skóla er stór for-
senda vellíðunar nemenda, náms-
áhuga og góðs námsárangurs. Þrátt
fyrir þetta eru kennarar ekki nægi-
lega vel búnir undir samskipti og
samstarf við foreldra nemenda.
Ljóst er að gífurlegri auðlegð er
kastað á glæ þar sem skólum tekst
ekki að virkja foreldra í öflugu sam-
starfi um menntun barnanna. Því
verður að linna. Landssamtök for-
eldra skólabama á Norðurlöndum
gera þess vegna þá kröfu að
kennaranemum verði í námi sínu
tryggð nauðsynleg menntun og
þjálfun á þessu sviði. Endurmenn-
tun kennara ber að efla að sama
skapi.
ILröfu þessari er beint til
menntamálaráðherra/menntamála-
ráðuneyta, kennaraháskóla og sam-
taka kennara á öllum Norðurlönd-
um. Bæta verður úr þessu án
frekari tafa. Það nægir ekki að lög-
festa meginábyrgð foreldra á námi
barnanna. Tryggja verður að lögum
sé fylgt í raun.
Samstarf krefst opinna sam-
skipta, gagnkvæmrar virðingar,
jafnræðis og sameiginlegs mark-
miðs sem aðilar þess einsetja sér að
vinna að.
Samstarfsnefnd landssamtaka
foreldra skólabarna á Norðurlönd-
um mun fylgja þessari kröfu eftir í
hverju landanna fyrir sig og sam-
ræma frekari aðgerðir af hálfu sam-
takanna.
Landssamtökin Heimili og skóli
munu fylgja þessari kröfu eftir hér á
landi. Jafnframt bjóða samtökin
fram aðstoð sína og eru tilbúin til
samstarfs við hverja þá sem vilja
beita sér í þessu máli.
Landssamtakanna Heimili og
skóli bíða fleiri stórverkefni, því
dagana 24.-26. nóvember næstkom-
andi verður haldinn á Islandi aðal-
fundur og ráðstefna Evrópsku for-
eldrasamtakanna EPA. Yfirskrift
ráðstefnunnar er „Tungumál - lykill
að samskiptum". Þátttakendur á
ráðstefnunni koma víða að úr
Evrópu og verða á annað hundrað,
auk íslenskra þátttakenda.
Barnaleikur.is
leiðréttir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi leiðrétting frá Barna-
leik.is „Barnaleikur.is vill leiðrétta
staðhæfingu auglýsingar um sam-
starf við Netdoktor.is
Að sérfræðingar svari fyrirspurn-
um lesenda Barnaleiks.is - slíkt hef-
ur ekki verið samþykkt af hendi Net-
Doktor.is. Eingöngu fóru fram
viðræður af hálfu beggja aðila þ.s.
ákveðið var að Netdoktor.is byði upp
á sérfræðiþjónustu þar sem hinir
ýmsu sérfræðingar veittu svör við
fyrirspurnum lesenda Barnaleikur-
•is. Ákveðið var að Barnaleikur.is
mundi stytta leiðina að þeim sér-
fræðingum með tengingu yfir á Net-
Doktor.is. Enginn skriflegur samn-
ingur var undirskrifaður. Ekkert
samstarf er þarna á milli í dag.
Bamaleikur.is biðst innilegrar af-
sökunar á fagleysi í garð Netdoktor.-
is. Afsakið okkur.“
--------------
Barnafataversl-
un opnuð á
Laug*aveginum
NÝ VERSLUN verður opnuð í dag,
laugardaginn 7. október, kl. 10 á
„Löngum laugardegi" á Laugavegi
82 í Reykjavík. Um er að ræða leik-
fanga- og barnafataverslun fyrir ald-
urinn 0 til 9 ára. Stóri vondi úlfurinn
og Guffi mæta á svæðið og gefa
börnunum nammi, en þeir eru meðl-
imir í Disney-fjölskyldunni en þarna
er um að ræða Disney-vörur.
------------------
Lýst eftir
vitnum
EKIÐ var á bifreiðina ZY-887, sem
er Mitsubishi Lancer grá að lit, hinn
4. október á tímabilinu frá kl. 20.20-
21.36 þar sem hún stóð bak við
Laugaveg 59 í Reykjavík, Kjörgarð.
Sá sem það gerði fór hins vegar af
vettvangi án þess að tilkynna óhapp-
ið. Talið er að þar hafi verið á ferð-
inni sendibifreið græn að lit með
hvítum kassa.
Þeh- sem geta gefið frekari upp-
lýsingar eru beðnir að snúa sér til
lögreglunnar í Reykjavík.
Smiöjuvegi 2 (Bak viö Bónus - Ekið inn frá Skemmuvegi)
í dag hefst RÝMINGARÚT5ALA q bókalager Fjölva
Við flytjum lagerinn Hundruð bókatitla
; og þurfum því að fyrir alla aldurshópa
rýma ærlega til á ótrúlega lágu verði
Barnabækur - Teiknimyndasögur
Listaverka- og Náttúrufræðibækur
Dulræn Fræði - Heilsubækur - Skáldsögur
Ævisögur - Sagnfræði og margt fleira
JgÁgjOUMi I
Skemmtllegir
bókapakkar
á enn betrl
vildarkjörum
Fríbzer skemrntun fyHr alla
fjöískyUuna að gruska
T bókastöflum að vil4
Og rúsínan í pylsuendanum:
Állir fa bók að gjöfí kaupbæti !
Opið um helgina og næstu helgi:
Laugardaga 10.00 til 17.00
Sunnudaga 12.00 til 17.00
Sími 568 8433
Ef þú kemst ekki, kíktu á nýju vefverslunina okkar - þar eru
allar bækur á sama lága verðinu meðan lagersalan stendur.
www.fjolvi.is
V.