Morgunblaðið - 07.10.2000, Page 84
D0LE
+ Borðtölvur
+ Fartölvur
+ Netþjónar
563 3000 + www.ejs.ls
Cisco Systems
InllllllllWVVTlllllllfnte
P A R T N E R
SILVER CERTIFIED
Tæknival
MORGUNBLAÐW.KRINGLUNNII, 103 REYKJAVÍK,SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, r A TTP A DT\4 PTTP 7 ATTT'íS'R'Tr'T? Qfinn T7T?T?n T T A TTQ A GÖT TT 1 Ctn TfT? AATPIA TTC'IT'
ASKRIFT-AFGREIÐSLA5691122,NETFANG:RITSTJ@MBL.1S,AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1 iuAU (jriAKL)Alj U K I. UiVl Utíiiilt ZUUU V iliKti I JLlAU DAoUJLj U lOU ÍVK. IVLiÍilJ VOÍV.
Samtök físk-
vinnslustöðva
Fagna
umræðu
um Island
í Evrópu-
samstarfi
AÐALFUNDUR Samtaka
fisltvinnslustöðva, sem haldinn
var í gær, ítrekar stuðning sinn
við EES-samstarfið og fagnar
umræðu um stöðu Islands í
Evrópusamstarfi en leggur
áherslu á að þar skipta hags-
munir sjávarútvegsins gríðar-
lega miklu máli.
Aðalfundurinn telur að til-
lögur auðlindanefndar um
gjaldtöku íyrir afnot af auðlind-
um geti lagt grunn að sam-
komulagi, enda verði gjaldtak-
an hófleg og jafnræðis verði
gætt á milli atvinnugreina. Tald
ríkisvaldið upp auðlindagjald á
sjávarútveg leiði það til hærri
útgerðarkostnaðar og komi síð-
an að hluta fram í hærra hrá-
efnisverði til fiskvinnslunnar.
Afkoma gefur ekki
tilefni til nýrra útgjalda
Afkoma í sjávarútvegi og
samkeppnisaðstaða við ríkis-
styrktan sjávarútveg í ESB
löndum gefur ekki tilefni til
nýrra útgjalda en brýnt er fyrir
þróun sjávarútvegsins að eyða
þeirri óvissu sem ríkt hefur
undanfarin ár og skaðað stöðu
greinarinnar.
Aðalfundurinn ítrekar fyrri
áskorun á sjávarútvegsráð-
herra að flýta endurskoðun
laga um starfsemi Kvótaþings
með það fyrir augum að starf-
semi þess verði lögð niður sem
fyrst, en fundurinn telur að op-
inbert eftirlit með skiptaverði
sé fyllilega tryggt með starf-
semi Verðlagsstofu sldpta-
verðs. Með öllu ólíðandi sé fyrir
íslenskan sjávarútveg að starf-
semi Kvótaþings hefti eðlileg
viðskipti fyrirtækja og trufli
með þeim hætti hráefnisöflun
fískvinnslunnar.
Samlcvæmt mati Seðlabank-
ans voru skuldir sjávarútvegs-
ins um 160 milljarðar í lok júlí
og höfðu aukist um níu millj-
arða frá áramótum. Kom það
fram hjá Amari Sigurmunds-
syni, formanni Samtaka fisk-
vinnslustöðva á aðalfundinum
sem fram fór í Skíðaskálanum í
Hveradölum.
■ Erum ekki að missa af/26
■ Audlindagjald/27
MITSUBISHI
CRRI5MH
Alver og virkjanir á Austurlandi hefðu mikil áhrif á efnahagslífíð
Landsframleiðslan
myndi aukast um 2,5%
EF AF framkvæmdum við álver og virkjanir á
Austurlandi verður mun landsframleiðsla aukast
um 2,5% á framkvæmdatímanum og 0,8-1,5% var-
anlega eftir að framkvæmdum lýkur. Þetta kemur
fram í skýrslu fimm manna starfshóps um áhrif
virkjunar og álvers á íslenskt efnahagslíf.
í skýrslunni kemur fram að á árunum 2002-2009,
meðan verið er að byggja upp álver og virkjanir á
Austurlandi, muni að jafnaði 0,9% alls fólks á ís-
lenskum vinnumarkaði starfa við framkvæmdirnar.
Þegar framkvæmdirnar verða í hámarld, árið 2005,
er gert ráð fyrir að 2.300 manns vinni að þessum
verkefnum, en það eru 1,5% af vinnumarkaðinum.
Fjárfestingar á byggingartímanum yrðu að jafn-
aði 15-20% meiri en ef ekJd kæmi til verkefnisins og
allt að 40% þegar framkvæmdir standa sem hæst.
Áætlað er að samanlagðar fjárfestingar
Landsvirkjunar og Reyðaráls verði um 30 milljarð-
ar á ári á tímabilinu 2003-2008, þar af 40% af inn-
lendum uppruna. í skýrslunni kemur Jram að halli
á viðskiptum við útlönd aukist um allt að 2,5% á
framkvæmdatímanum og skuldir þjóðarbúsins
yrðu 10-12% meiri í lok tímabilsins, en ef ekkert
yrði af framkvæmdum.
í skýrslunni kemur einnig fram það álit að álver
á Reyðarfirði geti haft margvísleg jáltvæð áhrif á
samfélagið á Mið-Austurlandi. Áiverið styrki lands-
hlutann í efhahagslegu tilliti og stuðli einnig að
meiri fjölbreytni 1 atvinnulífi. Alls myndu verða til
um 1.000 ný störf á svæðinu í álverinu og í tengslum
við starfsemi þess. Búast megi við að vegna fjölda
nýrra starfa fjölgi íbúum Mið-Austurlands um allt
að 2.000-2.500 og að íbúar á svæðinu verði níu til tíu
þúsund árið 2010. Fram kemur í skýrslunni að þörf
sé á a.m.k. 500 nýjum íbúaðarhúsum á svæðinu á
árunum 2003-2010. Þá kalli fjölgun íbúa á upp-
byggingu í skólamálum og á félagslegri þjónustu.
I skýrslunni er bent á að nauðsynlegt sé að gera
endurbætur í samgöngumálum. Fyrirhugað er að
gera jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar, en einnig þurfi að endurbæta veginn milli
Stöðvaríjai'ðar og Breiðdalsvíkur. Þá þurfi að end-
urbæta veginn milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
■ Þörf fyrir/12
Morgunblaðið/RAX
Unnið er allan sólarhringinn við vegagerðina yfír Vatnaheiði. Um miklar framkvæmdir er að ræða en aka þarf mestöllum efnum í veginn.
Vegavinna á
Vatnaheiði
MIKLAR framkvæmdir standa nú
yfir við gerð nýs vegar yfír Vatna-
heiði á Snæfellsnesi. Það er Suður-
verk hf. sem annast vegagerðina og
hófust framkvæmdir um mitt sum-
ar. Nýi vegurinn verður 16 km lang-
ur og er með stærri framkvæmdum
Vegagerðarinnar á þessu ári. Veg-
arstæðið er mun lægra en núver-
andi vegur yfír Kerlingarskarð og
verður vegurinn mikil samgöngubót
þegar hann kemst í notkun.
Flugleiðir lækka flugtaksþunga B757-véla í Evrópuflugi
Spara milljónatugi
í yfirflugsgjöldum
A
MITSUBISHI
- demantar í umferb
HEKLA
— /Jbryxtu ú nýrri öld I
FLUGLEIÐIR hafa frá fyrsta ágúst
síðastliðnum skráð lægri flugtaks-
þyngd á sumum B757-200 þotum sín-
um í Evrópuflugi til að lækka lend-
ingar- og yfirflugsgjöld. Jens
Bjamason, flugrekstrarstjóri Flug-
leiða, segir gjöldin miðast við skráða
flugtaksþyngd véla og að með þessu
geti sparast umtalsverðar fjárhæðir.
Talið er að spamaðurinn geti numið
um 60 milljónum króna.
Lægri flugtaksþyngd fæst með því
að vélamar eru látnar bera minna
eldsneyti, sem nemur nokkram tonn-
um. Er lægri flugtaksþyngdin 99,8
tonn en hún getur verið rúm 113
tonn. Jens Bjamason segir þetta
unnt á nokkrum Evrópuleiðum þar
sem ekki sé nauðsynlegt að nýta til
fulls eldsneytistanka vélanna. Það
verði hins vegar að gera í Ameríku-
fluginu. Hann segir að þetta tak-
marki ekki að ráði burðargetu flug-
vélanna en hugsanlega geti þó komið
til þess að sldlja verði eftir frakt við
ákveðin skilyrði.
Þá hefur flugtaksþyngd ráðið
nokkru um verð nýrra flugvéla en
bæði Boeing og Airbus hafa boðið
flugfélögum sveigjanlegt kaupverð
sem ráðist af því hversu mikiil hluti
af mögulegri burðargetu vélanna er
notaður. Boeing-verksmiðjumar
hafa nú fallið frá þessari leið en Flug-
leiðir njóta hennar þó vegna þeirra
B757-þotna sem fyrirtæidð á í pönt-
un hjá verksmiðjunum. Áætlað er að
sparnaður í innkaupsverði hverrar
vélar nemi um 100 milljónum króna.
Getur valdið óþægindum
við viss veðurskilyrði
Franz Ploder, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, segir að
þessi takmarkaða þyngd geti haft
áhrif og valdið óþægindum í vissum
tilvikum fyrir farþega og kostnaði
fyrir félagið við ákveðin veðurskil-
yrði. Þegar flogið sé til íslands írá
borgum sunnarlega í Evrópu sé að-
eins unnt að gera flugáætlun með
varaflugvöll á Islandi, þ.e. Akureyri
og/eða Egilsstöðum. Oft sé flugvöll-
urinn í Glasgow notaður sem vara-
flugvöllur, sérstaldega þegar veður
era rysjótt á íslandi, og því séu
möguleikar færri ef hverfa þurfi frá
lendingu í Keflavík. Hann kvaðst
hins vegar skilja þörf Flugleiða til að
leita sparnaðarleiða en í ákveðnum
tilvikum gæti óhjákvæmilega komið
til óþæginda og kostnaðar. Það ætti
við þegar skilja yrði eftir frakt eða
farangur eða millilenda á leið til ís-
lands til að taka meira eldsneyti til að
geta snúið aftur frá landinu.