Morgunblaðið - 08.10.2000, Side 8
8 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Norskar kýr:
Nei, nei, lambið mitt, hann er ekki dauður. Hann hugsar bara með hraða snigilsins.
Andlát
BJARNI
EINARSSON
BJARNI Einarsson
handritafræðingur lést
á líknardeild Land-
spítalans síðastliðinn
föstudag 83 ára að
aldri.
Bjami fæddist á
Seyðisfirði 11. aprfl
1917, tók stúdentspróf
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1937 og
lauk cand.mag.-prófi í
íslenskum fræðum vor-
ið 1943 frá Háskóla ís-
lands. Hann var blaða-
maður við Þjóðviijann
á námsárum og frétta-
maður við Rfldsútvarpið 1945-46.
Bjarni fluttist til Kaupmannahafn-
ar 1946 og varð fyrsti sendikenn-
arinn í íslenskum fræðum við
Kaupmannahafnarháskóla. Eftir
heimkomuna 1958 var hann ís-
lenskukennari við Vélskóla íslands
til ársins 1965 er hann réðst sem
lektor í íslenskum
fræðum til Oslóarhá-
skóla. Þar varði hann
doktorsritgerð sína
um bókmenntalegar
fyrirmyndir Egils
sögu árið 1971. Arin
1972 til 1987 var
Bjarni handritasér-
fræðingur við Stofnun
Árna Magnússonar á
Islandi.
Eftir Bjarna liggja
margar fræðibækur
og ritgerðir og á árinu
gekk hann frá til út-
gáfu grundvallarrann-
sókn á öllum handritum Egils sögu
á vegum Árnasafns í Kaupmanna-
höfn. Bjami flutti þætti um íslenskt
mál í Ríkisútvarpinu um árabil.
Eftirlifandi eiginkona Bjarna er
Sigrún Hermannsdóttir hjúkrunar-
fræðingur og eignuðust þau fimm
börn.
% f Eldhúsið 1
komið heim
ÍSSS \og saman
a,S'"?ají fyrir jól J
-*«. i
B R Æ Ð U R N I
Lágmula 8 • Simi 530 2800
Bílstjórar funda
með olíufélögunum
Sumum
spurning-
um enn
ósvarað
FULLTRÚAR nokkurra samtaka
avinnubílstjóra, ásamt FIB, hafa
síðustu daga fundað með forráða-
mönnum Skeljungs og Olíufélags-
ins, til að fá skýringar á síðustu
verðhækkunum og hvernig verð-
myndunin er á eldsneytinu. Fund-
urinn með Skeljungi fór fram á
miðvikudag og síðdegis á fimmtu-
dag buðu forráðamenn Olíufélags-
ins til fundar. Svipaður fundur
með forstjóra Olís er fyrirhugaður
eftir helgi. Fundir sem þessir hafa
ekki áður verið haldnir með þess-
um hætti, en megintilefnið er sú
harða mótmælaályktun sem sam-
tök bílstjóra sendu frá sér í byrjun
vikunnar.
Framkvæmdastjóri Landssam-
bands vörubifreiðastjóra, Unnur
Sverrisdóttir, sagði við Morgun-
blaðið að margt hefði skýrst á
fundunum en enn væri nokkrum
spurningum ósvarað. Unnur vildi
ekki fara nánar út í þá sálma en
ákvarðanir yrðu teknar að fundun-
um loknum hvort bílstjórar grípi
til einhverra mótmælaaðgerða. Á
fundina hafa mætt fulltrúar vöru-
bflstjóra, sendibílstjóra, rútubíl-
stjóra, leigubílstjóra, vinnuvélaeig-
enda, auk fulltrúa frá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, tók undir með
Unni að skýringar hefðu fengist á
nokkrum atriðum. Hann sagði olíu-
félögin hins vegar ekki hafa sann-
fært sig af hverju flotaolía hefði
ekki hækkað jafn mikið og dísilolía
á bíla. Verð þessara tegunda hefði
verið að þróast svipað á erlendum
mörkuðum. Að sögn Runólfs lýstu
Skeljungmenn því yfir að þeir
væru tilbúnir að skoða möguleika á
örari verðbreytingum en tíðkast
hefði og styðjast þá við dagbundin
verð í Roterdam en ekki meðalverð
á mánuði.
Ráðstefna um afþreyingu ungs fólks
„Jeg tarf
ekki sjuss“
Greipur Gíslason
JEG tarf ekki sjuss“,
er ráðstefna á veg-
um Loftskipsins sem
er forvarnaverkefni á vejg-
um Ungmennafélags Is-
lands og Islands án eitur-
lyfja. Ráðstefnan verður
haldin í Ráðhúsi Reykja-
víkur 12. október nk. og
hefst klukkan 16. Greipur
Gíslason á sæti í undirbún-
ingsnefnd fyrir þessa ráð-
stefnu. Hann var spurður
hvaða málefni bæri hæst í
umræðum sem þar eiga að
fara fram?
„Við ætlum að einbeita
okkur að starfi unglinga á
menntaskólaaldri og af-
þreyingu. Við ætlum að
kynna fyrir hvert öðru
ýmis verkefni sem verið er
að vinna að víða um land á
vegum unglinga og starfsfólks
sem annast málefni unglinga á
vegum sveitarfélaga. Einnig verð-
ur kynnt starf ungmennahreyf-
ingar Rauða krossins - URKI.
Einnig verður kynnt starf Gamla
apóteksins á Isafii’ði sem er kaffi-
og menningarhús ungs fólks.“
- Fólk gæti haldið vegna nafns
ráðstefnunnar, að hún ætti að
fjalla uw áfengismál?
„Það er fjarri lagi. Við ætlum
að einblína á allt annað sem ungl-
ingar eru að gera en drykkju og
neyslu annarra vímuefna. Það er
mín sannfæring að jákvæð af-
þreying sé besta forvörnin á þess-
um aldri. Ef fólk hefur nóg fyrir
stafni er minni hætta á að það
lendi í vandræðum vegna neyslu
vímuefna. Ef fólk hefur nóg að
gera hefur það ekki tíma til að
sinna því slæma. Það er mín til-
finning að á yngri árum geti for-
eldrar og afstaða þeirra skipt
sköpum í lífshlaupi fólks. En þeg-
ar fólk kemst á menntaskólaald-
urinn fara foreldrarnir að skipta
aðeins minna máli, félagslífið tek-
ur yfir og þá verður það að taka
við unglingunum á ábyrgan og já-
kvæðan hátt. Nafnið á ráðstefn-
unni: „Jeg tarf ekki sjuss,“ segir
allt sem segja þarf í þessum efn-
um.“
- Hvers vegna völduð þið þetta
nafrí!
„Nafnið er tilvitnun í kvik-
myndina Stella í orlofi, þar sem
Stella drífur alkóhólistann og
Svíann Salómon í veiðiferð, þar
sem hún veitir honum jafnt af-
þreyingu sem áfengi þangað til að
honum verður Ijóst að hann þarf
ekki á áfenginu að halda þar sem
hann fær nóg „kikk“ úr laxveið-
inni og þarf ekki á öðru að halda.
Þetta er það sem við erum að
benda á, ef fólk hefur nóg að gera
þarf það ekki vímuefni."
-En hvernig er staðan hjá
unglingum landsins í þessum efn-
um?
„Ætla mætti af umræðum og
umfjöllun í fjölmiðlum að stór
hópur unglinga sé ekki í góðum
málum, hópurinn er satt að segja
ekki eins stór og ætla mætti.
Langflestir eru á grænni grein og
það viljum við benda á
með ráðstefnunni. Við
erum farin að óttast að
hin neikvæða umræða
sé til ills og geri ungl-
ingum erfitt fyrir. Ráð-
stefnan er haldin til að
benda fjölmiðlafólki og
sveitarstjómarmönn-
um, sem og ráðamönnum þjóðar-
innar, ásamt auðvitað ungling-
unum sjálfum, á hvað ungt fólk er
að gera og þar af leiðandi að
hjálpa til við að fólk geti kynnst
því sem hinir eru að gera í mál-
efnum unglinga. Það er óþarfi að
allir séu að „finna upp hjólið“,
► Greipur Gislason fæddist á
ísafirði 12. júlí 1982. Hann lauk
grunnskólaprófi 1998 og er nú
nemandi í Menntaskólanum á
ísafirði. Hann hefur unnið á
sumrin við rekstur Morrans, sem
er atvinnuleikhús ungs fólks í
ísafjarðarba1. Hann er skátafor-
ingi í skátafélaginu Einherjum-
Valkyrjunni. Hann hefur einnig
starfað í Litla leikklúbbnum á
fsafirði og verið virkur í ýmsu
öðru félagsstarfi.
hver í sínu horni endalaust.“
- Hvað verður á dagskrá ráð-
stefnunnar?
„Það er aðeins ungt fólk sem
kemur þar fram. Fyrst og fremst
eru á dagskránni erindi sem ungt
fólk víða af landinu flytur. Þar
segir það frá starfi sínu og heima-
byggð sinni. Auk erindanna verð-
ur umfangsmikil skemmtidagskrá
sem ungt fólk ber að sjálfsögðu
veg og vanda af. Við ætlum að
nota hverja einustu mínútu, hlé
sem sjálfa ráðstefnuna, til þess að
koma því að hvað ungt fólk er að
gera í landinu."
-Hvað verður helst skemmt-
unar?
„Unglingahljómsveitin Gleði-
sveit kemur frá ísafirði til þess að
skemmta í Ráðhúsinu, einnig
kemur leikhópurinn Lago frá
Grindavík og svo eru það kynn-
amir tveir frá ísafirði sem tengja
dagskrána á léttu nótunum. Og
svo verður boðið upp á léttar veit-
ingar eins og siður er á öllum góð-
um ráðstefnum. Dagurinn endar
með pallborðsumræðum þar sem
í pallborði sitja þeir sem fluttu er-
indi á ráðstefnunni ásamt fulltrú-
um ungliðahreyfinga stjómmála-
flokkanna. Ráðstefnan er öllum
opin og menn hvattir til að
mæta.“
- Hvað starf heldur þú að skili
mestum árangri sem fyrirbyggj-
andi vörn gegn vímuefnum?
„Ég tel að íþróttir, skátastarf,
hjálparstarf, tónlistarskólar og
annað hefðbundið tómstundastarf
fyrir unglinga skili sínu fólki á
beinu brautina, en það þarf eitt-
hvað fyrir hina sem finna sig ekki
í þessu skipulagða
starfi. Fyrir þá era t.d.
staðir eins og Gamla
apótekið á ísafirði
kjörinn vettvangur. Ég
tel mikilvægt að geta
„hangið“ á góðum stað
og spjallað við kunn-
ingjana, án nokkurra
hamlandi áhrifa eldra fólks, en þó
samt þannig að séð sé til að ekki
sé um að ræða vímuefnaneyslu á
staðnum. Ég held að unglingar
þurfi á stað að halda þar sem þeir
geta „gert ekki neitt“ í félagsskap
fólks á sínum aldri. Það er of lítið
af slíkum stöðum.
Vantar staði
þar sem fólk
getur„hang-
ið“ eftir-
litslítið og
gert „ekkert“