Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 57 FÓLK í FRÉTTUM í þá gömlu góðu daga, þegar Eyþór hafði hár. eða hætta,“ segir Þorvaldur. Fyrir jólin árið ’93 kom svo út platan „Spillt“ sem átti að verða síðasta Todmobile platan.„Við vorum búin að vera í fimm ár í hjónabandi sem var mjög tímafrekt. Við stóðum við þessa ákvörðun okkar og við trúðum því að við værum endanlega hætt.“ Með nýju ári settu fyrrum meðlim- ir hljómsveitarinnar Todmobile sér ný takmörk. Andrea og Þorvaldur pöruðu sig saman og stökkbreyttust í Tweety á meðan Eyþór fann sér nýj- an félaga í sinn dúett. „Eyþór fór náttúrulega að starfa með henni Móu. Okkur Andreu lang- aði til þess að starfa áfram saman þannig að við fórum að prófa ein- hverja allt aðra hluti en Todmobile var að gera á sínum tíma,“ útskýrii’ Þorvaldur. „Mig langaði líka til að starfa í er- lendu umhverfí, þannig að Bong gaf út eitthvað hjá Sony Mega Records og svo gaf Móa út seinna hjá Tommy Boy. Maður fylgdist vel með þeirri þróun. Það var kannski þetta nýja, að fara í erlent umhverfi sem er mjög ólíkt,“ segh’ Eyþór. „Tweety reyndi nú líka fyrir sér í útlöndum,“ bætir Þoi-valdur inn í. „Við gáfum út smáskífuna „So Cool“ í Evrópu við sæmilegar undirtektir í útvarpi eins og ég fékk að fínna fyrir í höfundarlaunaumslaginu ári seinna.“ Upprisan Tveimur árum síðar tók hljóm- sveitin upp á því að velta sér um í gröfinni. „Ein ástæðan fyrir því að við end- urvöktum hljómsveitina árið ’96 var sú að við Andrea störfuðum enn ein- göngu við tónlist og munum eflaust alltaf gera það,“ segir Þorvaldur. „Auk þess var það farið að kitla mann að halda áfram samstai’fi á einhverj- um nótum við þá stráka sem spiluðu með hljómsveitinni. Fyrir okkur er það ákveðinn heiður að spila með þessum strákum. Todmobile þróaðist svo frá því að vera tríó í hljómsveit Andrea Gylfadóttir, syngjandi stelpurokk. þar sem allir þeir sem spiluðu með hljómsveitinni urðu meðlimir. Þetta er búið að vera sami hópurinn núna í 8 eða 10 ár.“ Meðlimir hljómsveitarinnar í dag eru, ásamt Þoi-valdi og Andreu, Kjartan _Valdimarsson hljómborðs- leikari, Ólafur Hólm trommai’i og Eiður Ai’narsson bassaleikari. „Önnur ástæða fyrir því að Tod- mobile fór í gang aftur var sú að fólk fór hálfpartinn í fylu út í okkur þegar við hættum í Todmobile," útskýrir Andrea. „Það var þess vegna ekki al- veg eins opið fyrir Tweety eða Bong, maður fann svolítið fyrir því. Svo vor- um við með fullt af nýju efni sem við heyrðum að voru ekkert annað en Todmobile-lög. Yið vildum ekki vera að setja þau undir einhvern annan hatt en þau áttu heima undir.“ „Það var ekki hægt að kalla þetta neinu öðru nafni,“ segir Þorvaldur. „Eyþór var tekinn inn í þessa ákvörð- un. Við hittumst og hann hlustaði á nýja efnið. Hann lagði okkur svo lið hvað varðar sellóleik, strengjaút- setningar og fleira.“ Platan Perlur & Svín birtist á hill- um plötuverslana fyrir jólin árið 1996 og púls hljómsveitarinnar sló að nýju. Haldið var í tónleikaferð um allt land sem fékk betri móttökur en hljómsveitin hafði nokkum tímann kynnst áður. Vilhjálmur Goði slóst í félagsskapinn, spilaði á gítar og söng (m.a. á einu lagi sem var gefið út á Bandalögum 7) en stoppaði stutt. Todmobile lagðist svo aftur í dvala árið 1998. Andrea hellti sér yfir í blúsinn á meðan Þorvaldur sneri sér alfarið að samstarfi sínu við Selmu Bjömsdóttur. Og hvað svo? Það ættu því að vera gleðitíðindi fyrir tónlistarunnendur að nú er komin í verslanir ný safnplata með hljómsveitinni Todmobile þar sem meðlimir sveitarinnar, fyrri og seinni tíma, hafa valið þau lög í sameiningu sem þykja standa upp úr af lagasmíð- um sveitarinnar. Platan heitir því einfalda nafni „Best“. A plötunni er einnig að finna tvö ný lög með sveit- inni, þau fyrstu í þrjú ár. „Þetta hefur staðið til í svona 2-3 ár,“ segir Þorvaldur. „Tíminn hefur nú farið misvel með þessi lög. Þegar ég var að vinna hljóðvinnsluna við plötuna hafði ég ekki hlustað á þetta í lengri tíma. Það var merkilegt hvað aldurinn heyrðist mikið á mörgum þeirra, lög sem vom kannski gerð fyrir 4-5 ámm síðan. Síðan vom kannski 8 ára gömul lög sem gætu al- veg eins verið að koma út í dag. Popp í bland við elektróníska tóna, ég nefni t.d. lagið Ég vil brenna.“ „Mér finnst lögin í heild eldast mjög vel,“ segir Eyþór. „Þau em öll búin að þroskast eins og góðir ostar gera en era kannski ekki alveg komin yfir síðasta söludag. Þó að hljómur- inn tímasetji sum þeirra er það bara skemmtilegt. Þetta er líka ágætis tímapunktur fyrir þessa safnplötu. Það er ekki sniðugt að gefa safnplötu út of snemma frekar en ævisögu.“ Hljómsveitin Todmobile verður með útgáfutónleika í Óperanni að vanda þann 1. desember næstkom-„ andi. Auk þess sem áætluð er tón- leikaferð um landið. „Ætli ég verði ekki úti í sal að horfa á,“ segir Eyþór og brosir til hinna. „Já, það verður dálítið skrýtið," viðurkennir Þorvaldur. En hvemig er það eiginlega? Er Eyþór ekki að vinna neina tónlist þessa dagana, langar hann ekkert að stíga aftur á stokk með gömlu félög- unum eða em laglínur símanúmer- anna svona lokkandi? „Þær geta nú verið fallegar,“ við- urkennir Eyþór og hlær. „Sellóið er nú ekki alveg komið upp í hillu en þa^ er undir flyglinum. Fær að vísu ágætis félagsskap þar en það er af- skaplega lítil tónlistarsköpun í gangi hjá mér núna, það þarf a.m.k. að mæla hana í minni einingum en kíló- bitum, því miður. Það er sköpun líka að búa til fyrirtæki. Þú þarft að velja saman réttu mennina eins og í hljóm- sveit. Þú þarft að hafa einhverja sýn, einhverjar skoðanir, annars veit eng- inn hvað hann á að gera. Það þarf líka að vera einhver þörf að gefa út frá sér, þetta em allt mjög svipuð lögmál í sjálfu sér. Hvort ég eigi eftir að stíga aftur á svið með Todmobile veit ég ekki. Aldrei segja aldrei. Ég þyrfti líklegast að æfa mig mjög mikið áð- ur.“ Hér þakkaði blaðamaður kærlegá fyrir spjallið, tók í höndina á þríeyk- inu, borgaði kaffisopann sinn og ætl- aði sér svo að nota farsímann sinn til þess að hringja á leigubíl. Þar greip hann í tómt og var því í vanda stadd- ur. Hann laumaðist því luralega aftur að viðmælendunum og spurði hvort hann mætti hugsanlega fá síma lán- aðan í nokkur sekúndubrot. Eyþór vai- ekki lengi að grípa tækifærið, rétti fram símann sinn með bros á vör og sagði; „Gjörðu svo vel“. C 1 Ný haustdagskrá Stórskotalið á WAEINUM í öflugan hóp frétta- og dagskrárgerðarmanna bætast þjóðþekktir einstaklingar. Auður Uaralds, Eirfkur Jónsson, Hannes Hólmsteinn, lllugi Jökulsson, og Mörður Árnason munu framvegis sjá um Málið, þar sem þau taka fyrir málefni að eigin ýáli og á sinn hátt. Erpur Eyvindarson slæst í hóp með þeim Vilhjálmi Goða og Dóru Takefusa í menningar- og dasgurmálaþættinum Allt annað. Fréttir, Málið og Allt annað, alla virka daga milli klukkan 22 og 22:30. Ómissandi fyrir þá sem vilja fylgjast með. SKJÁREINN alltaf ókeypis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.