Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 37/
Elliðavatnsengjar og
Vatnsendakróka ætti að
friða ásamt Þingnesi,
segir Þorkeil Jóhannes-
son. A sumrin mætti
gera þetta svæði að einu
göngusvæði með því að
hafa brú úti milli
engjanna og nessins.
Petta svæði mætti kalla
Elliðavang og myndu fá-
ar höfuðborgir geta
státað af svipuðu úti-
vistarsvæði við fagurt
vatn og gróið hraun.
gengd í vatnsföllum, er renna úr og
í Elliðavatn og í vatninu sjálfu, og
veiðiskap á vatnasvæðinu. Ef þessi
spjöll væru nú ný af nálinni eða fyr-
irhuguð myndu vafalaust vera höfð
uppi margháttuð mótmæli, krafist
áframhaldandi rannsókna á lífríki
vatnasvæðisins og óspart bent á þá
ósvinnu að spilla merkum fornminj-
um. Ekkert af þessu gerist og
væntanlega mest vegna þess, að við
búum hér við löngu orðinn hlut eða
að þetta er „bara“ landsvæði í nám-
unda við byggð í Reykjavík og ekki
víðerni fyrir norðan eða austan.
Hér er samt úrbóta þörf.
Ef raforkuframleiðsla í Ártúnum
yrði lögð af, myndu Elliðavatns-
engjar jafna sig á 10-20 árum eða
svo og þar verða víðáttumikið úti-
vistarsvæði við borgarmörkin og í
námunda við Heiðmörk. Jafnframt
gæfist tækifæri til þess að rann-
saka til fullnustu búðirnar í Þing-
nesi og Norðlingaholti og umgjörð
þeirra og hugsanlega aðra staði í
nágrenninu og meta varðveislugildi
þeirra. Elliðavatnsengjar og Vatns-
endakróka ætti að friða ásamt
Þingnesi. A sumrin mætti gera
þetta svæði að einu göngusvæði
með því að hafa brú úti milli engj-
anna og nessins. Þetta svæði mætti
kalla Elliðavang, og myndu fáar
höfuðborgir geta státað af svipuðu
útivistarsvæði við fagurt vatn og
gróið hraun. Hver menningarborg,
sem ætti, yrði af að meiri.
Nokkru áður en línur þessar voru
festar á blað birtist í Morgunblað-
inu (12.08.00) ritstjórnargrein, er
ber nafnið: Uppbygging gamalla
sögustaða. Mér fínnst margt, sem
þar segir, geta átt við „uppbygg-
ingu“ Elliðavangs. Með Morgun-
blaðið að bakhjarli verður leiðin að
stofnun Elliðavangs vonandi greið.
Við gerð Elliðavangs má ekki
gleyma því, að land Kópavogsbæjar
liggur að vatninu að vestanverðu.
Þvi er nauðsynlegt, að Reykjavík-
urborg og Kópavogsbær taki hönd-
um saman um endurheimt land-
gæða við vatnið og varðveislu
þeirra. í því sambandi ber þess vel
að gæta að þétta byggð við vatnið
ekki um of.
(Vísað var í íslendingabók og
Landnámabók (Landnámu) í útgáfu
Jakobs Benediktssonar (íslenzk
fornrit I. Reykjavík 1968).
Höfundur er prófessor.
O Samsonite
Viöskipta-
félaginn frá
Samsonite
“toppurinn í töskum”
TÖSKU - OG SKÖVIÐGERÐIR
Skeifan 7 • Simi 525 0800
RAFRPEN SKRRNING
HLUTABRÉFP
Þann 11. desember 2000 verða hlutabréf
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
Þar af leiðandi verða engin viðskipti með
hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma
ógildast hlutabréf félagsins sem eru útgefin á
pappírsformi í samræmi við heimild í ákvæði
til bráðabirgðarlaga nr. II í lögum nr. 131/1997,
um rafræna eignarskráningu verðbréfa,
sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á
ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignar-
skráningar á verðbréfum, og reglugerð
nr. 397/ 2000, um rafræna eignarskráningu
verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa,
sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald
þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá
Tryggingamiðstöðvarinnar hf., að staðreyna
skráninguna með fyrirspum til skrifstofu
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í Aðalstræti 6-8,
101 Reykjavík fyrir nefndan dag.
Ennfremur er skorað á þá sem eiga takmörkuð
réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við
fullgilda reikningsstofnun (viðskiptabanka,
sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar
falið reikningsstofnun, sem hefur gert aðildar-
samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., að
hafa umsjón með eignarhlut sínum í félaginu.
Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF
- þegar mest á reynirl
Aðalstræti 6-8 »101 Reykjavík • Sími 515 2000 • www.tmhf.is
5.-8. OKTÓBER
Haustið er komið!
Nýjar haustvörur eru nú í öllum
verslunum Kringlunnar.
Komdu og skoðaðu,
gæddu þér á girnilegum réttum
og geröu góð kaup
á nýjum vörum á Kringlukasti.
Opið í dag
frá kl. 13:00 - 17:00.
Komdw i Kringluna
og njóttu haustsins
fi hlýlegu umhverfi.
Sunnudagur
NÝJAR VÖRUR
með sérstökwm afsleetti
20%-50%
Upplýsingar í sima 588 7788